Morgunblaðið - 28.07.2005, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Létt og skemmtileg rómantísk gamanmynd með Óskarsverðlaunaleikkonunni, Kim Basinger
og hinum kynþokkafulla John Corbett úr “Sex and the City þáttunum.”
tt til r tí r r l l i i, i i r
i f ll r tt r t it tt .
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd með ensku tali.
með ensku tali
-KVIKMYNDIR.IS
DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 b.i. 12
Madagascar enskt tal kl. 6 - 8 og 10
Elvis has left the building kl. 8 og 10
Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12
Voksne Mennesker kl. 5.45
-S.V. Mbl.
-Steinunn/
Blaðið
MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM
JENNIFER CONNELLY
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR SIG
EKKI AÐ UPPLÝSA
SUMA RÁÐGÁTUR BORGAR
SIG EKKI AÐ UPPLÝSA
-KVIKMYNDIR.IS
KRINGLAN
MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR
FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES)
THE PERFECT MAN kl. 4.30 - 6.30 - 8.30 - 10.30
MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 4.30 - 6.30
ELVIS HAS LEFT THE BUILDING kl. 4.30 - 8.30 - 10.30
WHO´S YOUR DADDY kl. 6.30 - 8.30 - 10.30 B.i. 14
Sýningatímar 27. - 29. júlí
Frábær grínmynd fyrir
alla fjölskylduna!
Sýnd í Álfabakka • Akureyri • Keflavík
Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins. Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.
HÁDEGISBÍÓ 400 KR. MIÐAVERÐ Á ALLAR 30-31.JÚLÍ OG 1.ÁGÚST Í SAM
Gamanleikarinn Will Ferrel
skorar feitt og hressilega
í myndinni.
Ekki missa af fjölskyldugrínmynd
sumarsins.
HLJÓMSVEITIN Moving Cloud
kemur frá Danmörku en sækir í
írska tónlistarhefð í tónlist sinni.
Liðsmenn sveitarinnar komu hingað
til lands í dag og ætla að halda
þrenna tónleika hér á landi, í kvöld á
Gauk á Stöng og í Fossatúni í Borga-
fjarðarsveit á föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Morgunblaðið sló á dögunum á
þráðinn til Svend Kjeldsen, bod-
hránleikara Moving Cloud, sem var
að undirbúa sig fyrir Íslandsferð.
Segðu mér aðeins frá upphafi
Moving Cloud, þið hafið spilað sam-
an síðan árið 1988, ekki satt?
Jú, það er satt. Það eru ekki nema
tvær eða þrjár hljómsveitir hérna í
Danmörku sem spila írska þjóðlaga-
tónlist í fullu starfi og við erum ein
þeirra. Árið 1983 byrjuðum við
nokkrir saman með frjálst flæði
(„djamm-session“) með írskri tónlist
á elstu kránni hér í Árósum, Ferju-
kránni. Upp úr þessu varð hljóm-
sveitin svo til.“
Það varð mikil aukning á áhuga á
írskri þjóðlagatónlist á þessum árum
í Danmörku og kannski víðar, ekki
satt?
„Jú, það var það. Það varð ein-
hverskonar menningarleg sprenging
þar sem fólk hafði sífellt meiri áhuga
á þessari tónlist. Við vorum hópur
háskólastúdenta sem fór að hafa
áhuga af alvöru í kjölfarið. Það fluttu
líka nokkrir Írar til Árósa svo það
varð til lítið samfélag manna sem
var mikið að spá í þessa tónlist.“
The Dubliners
kveiktu áhugann
Hvernig fékkst þú sjálfur fyrst
áhuga á írskri þjóðlagatónlist?
„Já, það skal ég segja þér. Kvöld
eitt þegar ég var 16 ára vorum við
fjölskyldan saman að horfa á sjón-
varpið heima á þátt sem hét Musi-
calske Venner (Tónelskir vinir) sem
sýndur var í þá daga. Í þættinum
kom fram hljómsveitin The Dubli-
ners, en þetta var í fyrsta sinn sem
hún kom til Danmerkur. Það sem
heillaði mig var hljómurinn í hljóð-
færunum þeirra, þessi leikandi írska
tónlist. Eftir helgina fór ég því rak-
leitt á bókasafnið og fann nótnabæk-
ur með írskri tónlist og byrjaði að
fikta við þetta sjálfur og eftir það var
ekki aftur snúið.“
Af hverju heldurðu að írsk þjóð-
lagatónlist hafi orðið eins vinsæl víða
og raun ber vitni?
„Þessi tónlist er orðin alþjóðleg
tónlistarstefna á síðustu árum, líkt
og djass og blús og annað. Ég held
að ástæðan sé að vissu leyti sú að Ír-
ar hafa á undanförnum árhundr-
uðum flust víða um heim, til Eng-
lands, Bandaríkjanna og Ástralíu
meðal annars, í kjölfar kart-
öflubrestsins eins og frægt er orðið.
Þeir tóku að sjálfsögðu með sér sinn
menningararf sem fólk hefur svo
meðtekið svona vel.“
Nú hafið þið unnið með Donal
Lunny, hvernig hefur það verið?
„Já, nú þarf ég að finna stóru lýs-
ingarorðin! Það hefur verið alveg
frábært, stórfenglegt og ógleym-
anlegt. Donal Lunny er auðvitað eitt
af stærstu nöfnunum í þessum geira
tónlistar. Hann hefur unnið með og
tekið upp fyrir öll stærstu nöfnin á
borð við Van Morrison, Sinead
ÓConnor og U2.“
(Donal Lunny hélt einnig tónleika
á Listahátíð hér á landi á síðasta ári
svo hann ætti að vera einhverjum
landsmönnum kunnur.)
Hann hefur tekið upp tvær plötur
fyrir ykkur, ekki satt?
Jú, ég setti mig í samband við
hann í upphafi og hann féllst á að
vinna með okkur. Við ákváðum svo
að halda samstarfinu áfram á nýj-
ustu plötunni, Sweet Nyaa, sem kom
út í október. Þá höfðum við reyndar
aðeins annan háttinn á þar sem
Lunny er búsettur í Japan. Við fór-
um þangað með það sem við höfðum
tekið upp hér heima og tókum upp
afganginn hjá honum. Platan var því
tekin upp bæði í Japan og í Árósum
og svo var hún masteruð á Írlandi
svo þetta var mjög alþjóðlegt hjá
okkur.“
Og nú eruð þið á leið til Íslands.
„Já, það er víst. Við hlökkum mik-
ið til. Það eru auðvitað mikil forrétt-
indi að fá að ferðast og spila tónlist-
ina sína víða um heim. Það verður
mjög gaman að koma til Íslands í
fyrsta sinn sem er jú eitt af Norð-
urlöndunum. Ég veit ekki hvað við
ætlum að gera auk þess að spila á Ís-
landi. Ég hefði að sjálfsögðu átt að
vera búinn að undirbúa mig til að
geta slegið um mig með einhverjum
íslenskum staðarheitum. Goðafoss,
Haukadalur og Gullfoss, það er
svona það eina sem ég er búinn að
kynna mér.“
Tónlist | Danska hljómsveitin Moving Cloud
Írsk áhrif um heim allan
John Pilkington, Louise Vangsgaard, Klavs Vester og Svend Kjeldsen eru Moving Cloud.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Bandaríski leikarinn JohnnyDepp er sagður hafa lesið
breska söngvaranum Pete Doherty
pistilinn er
hann hitti
hann og kær-
ustu hans
Kate Moss í
hádegismat
nýlega en
Moss er fyrr-
um kærasta
Depp.
Depp, sem
segist sjálfur
vera ham-
ingjusamur fjölskyldufaðir, mun
hafa tekið Doherty afsíðis og hvatt
hann til að láta af villtu líferni sínu
og einbeita sér þess í stað að sam-
bandinu við Moss og umönnun ungs
sonar sem hann á með söngkonunni
Lisu Moorish.
Fólk folk@mbl.is
HÉR REYNIR götusali í Bangla-
desh að selja sjóræningjaeintak af
nýjustu bókinni um Harry Potter,
Harry Potter og blendingsprinsin-
um.
Eintak af bókinni kostar um 1.900
íslenskar krónur í verslunum en
hægt er að nálgast eintak af bókinni
hjá götusölum í Bangladesh á tæpar
400 krónur.
Bera saman
bækur sínar
Reuters