Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
91
02
08
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
FRESHMINT
105 STK. 2 MG
FRESHMINT
105 STK. 4 MG
Nicorette
Ágústtilboð
10% afsláttur
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklings-
bundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar
um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar
sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum
innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt
heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á
brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
Bolungarvík | Flest bendir til að leki
hafi komið að fiskibátnum Eyjólfi
Ólafssyni GK 38 í fyrrinótt þegar
hann sigldi á rekald í sjónum. Að
sögn lögreglunnar á Ísafirði ákvað
skipstjórinn þá að sigla honum í
strand til að forða honum frá því að
sökkva. Rannsókn málsins er enn á
frumstigi.
Björgunarskipið Gunnar Friðriks-
son frá Ísafirði kom með fiskibátinn
Eyjólf Ólafsson til hafnar í Bolung-
arvík um kl. 13 í gær en báturinn
strandaði við Straumnes á fjórða
tímanum í gærmorgun.
Tveir menn voru í áhöfn bátsins og
var þeim að sögn skipstjórans engin
hætta búin.
Að sögn Pálma Stefánssonar skip-
stjóra á Gunnari Friðrikssyni barst
þeim hjálparbeiðni um kl 3.30 í fyrri-
nótt og voru þeir komir að strand-
stað, sem var utarlega á Straumnes-
inu, um kl. hálf sex.
Áhöfnin á Eyjólfi var þá enn um
borð enda engin hætta á ferð.
Pálmi sagði að þeir hefðu byrjað á
því að taka mennina um borð í björg-
unarskipið og eftir að áhöfnin hefði
komið fyrir belgjum og uppblásnum
gúmbát í káetu bátsins hefðu þeir
beðið um stund eftir meira aðfalli, og
um kl. hálf níu hafi þeim tekist að
draga bátinn á flot í fyrstu tilraun.
Siglingin frá Aðalvík og til Bol-
ungarvíkur tók rúma fjóra tíma og
gekk að óskum enda gott í sjóinn.
Eftir að báturinn hafði verið hífð-
ur á þurrt mátti sjá að allnokkrar
skemmdir eru á stefni hans.
Skipstjórinn á Eyjólfi Ólafssyni
vildi ekki tjá sig um tildrög óhapps-
ins, en þeir voru á leið frá Suðureyri
á miðin útaf Horni.
Mb. Eyjólfur Ólafsson er hrað-
fiskibátur af gerðinni Gáski 900. Bát-
urinn er gerður út frá Sandgerði.
Fiskibáturinn Eyjólfur Ólafsson strandaði við Straumnes
Sigldi á rekald í sjónum
Ljósmynd/Gunnar Hallsson
Fiskibáturinn Eyjólfur Ólafsson er talsvert mikið skemmdur að framan.
SKY-sjónvarpsstöðvarnar hafa ákveðið fyrir
tilstuðlan SMÁÍS (Samtaka myndrétthafa á Ís-
landi) að loka á öll íslensk kreditkort sem
borga áskriftir að stöðvum þeirra. Talið er að á
bilinu þrjú til fimm þúsund heimili hér á landi
séu með SKY-áskrift án heimildar. Margir hafa
keypt þessa þjónustu á síðustu árum.
Hallgrímur Kristinsson, framkvæmdastjóri
SMÁÍS, bendir á að sala áskriftar að SKY-
sjónvarpsstöðvunum hérlendis sé án allra
heimilda og brot á lögum um höfundarrétt og
útvarpslögum. Hann segir að þetta hafi áhrif á
íslenskar sjónvarpsstöðvar hér sem hafa greitt
hátt verð fyrir efnisréttindi frá SKY, s.s. kvik-
myndir, þætti eða íþróttaefni eins og enska
boltann.
Þeir sem selja þjónustuna
farnir að ganga mjög langt
„Það hefur færst mjög í vöxt að aðilar hér á
landi séu að selja og hafa milligöngu um sölu á
SKY-sjónvarpsstöðvunum. Nú er svo komið að
menn ganga lengra heldur en nokkurn tíma áð-
ur.
M.a. sjáum við það í formi heilsíðuauglýsinga
sem hafa verið að birtast í blöðunum, þar sem
m.a. er verið að auglýsa enska boltann,“ segir
Hallgrímur. Hann segir málið snúa annars veg-
ar að aðilum sem séu að selja gervihnattadiska
og bjóða upp á áskrift í leiðinni og hins vegar
fjölbýlishúsum sem séu að dreifa SKY í gegn-
um kapalkerfi fjölbýlishúsanna. Að sögn Hall-
gríms er talið að um þrjú til fimm þúsund
heimili séu með áskrift að SKY-stöðvunum án
heimilda.
„Þetta eru kannski um 3–5% af íslenskum
heimilum sem þarna fá SKY inn á borð til sín.
Sá peningur rennur allur til útlanda og skil-
ar sér ekki inn í íslenskt umhverfi. Eðlilega
verða þeir sem hafa keypt réttinn af þessu er-
lendis frá fyrir miklu tapi, bæði beinu og
óbeinu,“ segir Hallgrímur og bætir því við að í
framhaldi sé ekki útilokað að SMÁÍS fari í
frekari aðgerðir gegn þeim aðilum hér á landi
sem bjóða áskriftir til sölu að SKY eða öðrum
stöðvum sem ekki leyfisveiting fyrir.
Lokað fyrir íslenska áskrifendur
að SKY-sjónvarpsstöðvunum
Á bilinu 3–5 þúsund
heimili talin vera
með áskrift að SKY
án heimilda
Morgunblaðið/ÞÖK
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
MEÐAL þeirra aðila sem selja sérstakan
SKY-móttökubúnað á Íslandi, þ.e. gervi-
hnattadisk og afruglara, er verslunin Öreind.
Kostar búnaðurinn nú um 50 þúsund kr. Bald-
ur Þór Sveinsson, framkvæmdastjóri Öreind-
ar, segir að þeir selji einvörðungu tækjabún-
aðinn en ekki áskriftina.
Aðspurður segir hann nokkra aðila hér-
lendis útvega mönnum áskrift að SKY-
stöðvunum. „Hvernig þeir gera það hef ég
ekki hugmynd um og vil ekki vita það,“ segir
Baldur og bætir því við að hann viti að sala
áskriftar að SKY sé án allra heimilda. Varð-
andi áskriftarkostnað segist Baldur hafa
heyrt af því að þeir aðilar sem taki að sér að
útvega áskrift hérlendis rukki um 1.400 kr. á
mánuði. Síðan sé áskriftin greidd að auki til
aðila í Bretlandi, sem sé á bilinu 13–40 pund.
Hann segir menn annaðhvort greiða áskrift-
ina mánaðarlega með kreditkorti eða þá í
einni greiðslu, t.a.m. í upphafi árs. Ársgjaldið
gæti því verið í kringum 80 þúsund kr. fyrir
um og yfir 100 sjónvarpsrásir.
Hann bendir á að þegar eingöngu sé litið á
áskriftargjöldin sé SKY margfalt ódýrari en
allt það sjónvarpsefni sem hægt er að kaupa á
Íslandi, t.a.m. hjá Stöð 2. „Mér finnst því
hreinlega ekkert óeðlilegt að fólk sé að gera
þetta,“ segir Baldur. Hann telur það vera
galla að ekki sé hægt að kaupa áskrift að
SKY eins og hverja aðra vöru. „Þó að það
væri ekki nema milli Norðurlandanna.“
Hann segir langt um liðið frá því að hann
heyrði fyrst umræðuna um það að lokað yrði
fyrir kreditkort þeirra sem séu með áskrift
að SKY án heimilda. „Ég man ekki eftir neinu
korti, sem ég hef heyrt um, sem hefur verið
lokað enn sem komið er,“ segir Baldur og
bætir því við að hann telji að aðgerðir SMÁÍS
komi ekki til með að snerta fyrirtækið mikið.
Öreind hafi ekki selt mikið af SKY-búnaði í
gegnum tíðina, eða á milli 50–100 stykki.
„Finnst hreinlega ekkert
óeðlilegt að fólk sé að gera þetta“
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær karlmann á þrítugs-
aldri til að greiða manni sem hann
réðst á í miðborg Reykjavíkur árið
1998 rúmar 9,3 milljónir krónur í
skaðabætur auk vaxta.
Stefndi hafði verið sakfelldur af
ákæru um að hafa slegið brotaþola í
andlitið með krepptum hnefa og við
það hafi hann fallið afturábak og
skollið í götuna, að því er virðist
rænulaus. Varanleg örorka manns-
ins var metin 75% í kjölfar árás-
arinnar. Að auki var stefndi dæmd-
ur til að greiða 1.737.489 krónur í
málskostnað. Áður hafði hann
greitt 3,1 milljón í bætur sem dróg-
ust frá dæmdri bótaupphæð.
Dómurinn leit til þess að brota-
þolinn hefði átt nokkra sök á tjóni
sínu með því að eiga upptök að því
að líkamlegu ofbeldi var beitt í
samskiptum aðila og hlaut hann
fyrir það refsidóm. Var talið rétt að
hann bæri tjón sitt að 1⁄3 hluta sjálf-
ur. Dómurinn sýknaði félaga árás-
armannsins af kröfum stefnanda.
Allan V. Magnússon héraðsdóm-
ari dæmdi málið. Sveinn Andri
Sveinsson hrl. flutti málið fyrir
stefnda og Tómas Jónsson hrl. fyrir
þann er sýknaður var. Halldór H.
Backman hrl. flutti málið fyrir
stefnanda.
9,3 milljónir kr.
í bætur fyrir
líkamsárás
GERT er ráð fyrir að aðalmeðferð í
máli ríkissaksóknara gegn karl-
manni sem ákærður er fyrir stór-
fellda líkamsárás sem leiddi til
dauða manns á veitingastaðnum
Ásláki í Mosfellsbæ í desember sl.
hefjist í haust.
Við fyrirtöku málsins var lögð
fram beiðni af hálfu verjanda um að
dómurinn kallaði til mats- og skoð-
unarmenn til að gera nýja krufn-
ingarskýrslu. Byggt er á heimild í
lögum um meðferð opinberra mála.
Forsendur beiðninnar eru þær m.a.
að óhjákvæmilegt sé í jafn alvar-
legu máli að gera nýja matsskýrslu.
Ákærði heldur því fram að krufn-
ingarskýrslan sem fyrir liggur sé
hlutdræg.
Beðið um nýja
krufningar-
skýrslu