Morgunblaðið - 12.08.2005, Síða 11

Morgunblaðið - 12.08.2005, Síða 11
Þetta snýst um að finnaákveðið jafnvægi milli full-trúalýðræðisins annarsvegar og hins vegar beins lýðræðis,“ sagði Palle Svensson, pró- fessor í stjórnmálafræði við háskól- ann í Árósum, á fundinum í Odda í gær. Auk Svensson töluðu þau Maija Setälä, lektor í stjórnmálafræði við háskólann í Turku í Finnlandi og Claes de Vreese, dósent við háskól- ann í Amsterdam, á fundinum. Svensson sagðist vera þeirrar skoðunar að danskur almenningur eigi að hafa möguleika á því að kjósa um lagafrumvörp frá danska þinginu. Í dag getur þriðjungur þing- manna farið fram á slíka þjóðarat- kvæðagreiðslu en ekki almenningur. „Að veita almenningi slíkt vald myndi vera mikið framlag til lýð- ræðisvæðingar stjórnkerfisins,“ sagði Svensson og bætti því við að þessi möguleiki myndi valda því að ríkisstjórn og þingmenn tækju tillit til fleiri sjónarmiða og reyndu frekar að ná samstöðu um þau lagafrum- vörp sem færu í gegnum þingið. Þar að auki séu þjóðaratkvæðagreiðslur til þess fallnar að auka upplýsinga- flæði til almennings, enda þurfi þeir hópar sem berjist í slíkum málum að kynna sitt mál fyrir kjósendum. Ekki taka upp ítölsku regluna! Svensson sagðist hafa heyrt af því að stjórnarskráin væri í endurskoð- un hér á landi og hann gaf íslenskum lagasmiðum ráð ef þeir ætluðu að fara þá leið að auka vægi þjóðarat- kvæðagreiðslna í stjórnarskránni. „Ef þið hafið í huga að innleiða þjóðaratkvæðagreiðslur hér á landi; ekki nota ítölsku regluna,“ sagði Svensson en þar er krafist 50% þátt- töku til að atkvæðagreiðslan sé gild. Svensson sagði að slík regla valdi því að stjórnmálamenn reyni oftar en ekki að fæla kjósendur frá því að mæta á kjörstað. „Ekki nota þá reglu. Ég mæli með dönsku regl- unni,“ sagði Svensson, en í henni felst að til þess að fella lagafrumvarp úr gildi þurfa 30% kosningabærra manna að hafa tekið þátt og meiri- hluti þeirra sem kaus að hafa sagt nei. Fjórir aðrir möguleikar eru á að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu í Danmörku, að sögn Svenssons. Breytingar á stjórnarskrá, kosninga- aldri og tilteknir alþjóðasamningar þurfa að fara í þjóðaratkvæða- greiðslu og sé fullveldi Dana að ein- hverju leyti fært undir alþjóðastofn- anir og minna en 5⁄6 þingmanna eru samþykkir er efnt til þjóðaratkvæða- greiðslu. Danskir þingmenn hafa einungis einu sinni nýtt sér heimild sína til að setja mál í þjóðaratkvæði, en það gerðist árið 1963. Þegar Svensson var spurður á fundinum hvers vegna heimildin hefði ekki verið nýtt oftar sagði hann ýmsar ástæður vera fyrir því. Í fyrsta lagi væri ákveðin hefð fyrir því í Danmörku að löggjöf væri samþykkt með nokkuð öruggum meirihluta. Í öðru lagi benti Svens- son á að þessi heimild væri tvíeggjað sverð, því ef stjórnarandstaða tæki upp á því að beita henni væri alltaf hætt við því að þegar valdahlutföllin í landinu breyttust og stjórnarand- staðan kæmist til valda yrði þjóðar- atkvæðagreiðslum beitt gegn henni í staðinn. Ólíkur aðdragandi Marija Setälä benti á að þjóðarat- kvæðagreiðslur gætu átt sér ólíkan aðdraganda. Þær gætu t.d. komið til vegna fyrirmæla í stjórnarskrá og væri þá skylt að fara með málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Einnig gætu þær verið háðar ákvörðun ákveðinna embættismanna eða ákveðins hluta borgaranna. T.d. geti ríkisstjórnir í sumum tilvikum ákveðið að efna til atkvæðagreiðslu um tiltekið málefni, eins og raunin sé í Finnlandi, Sví- þjóð, Noregi og Bretlandi, eða þá að ákveðinn fjöldi kjósenda fari fram á slíka atkvæðagreiðslu. Þetta sé raun- in í Sviss, þar geti t.d. 50.000 manns farið fram á að greiða atkvæði um lög sem hafa verið samþykkt og eins sé hægt að leggja lagafrumvarp, sem einhver kjósenda hefur samið, fyrir þjóðaratkvæði ef 100.000 undir- skriftum er safnað. Setälä sagði að þótt stundum væri gerður sá munur á atkvæða- greiðslum að þær væru ráðgefandi eða bindandi þá væri lítill munur þar á í reynd. Stjórnmálamenn höguðu sér alltaf í samræmi við niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar, jafnvel þótt hún væri ráðgefandi að nafninu til. Sviss sér á parti Hún sagði að Sviss væri nokkuð sér á parti hvað varðar fjölda at- kvæðagreiðslna, en frá árinu 1940 hefur 395 sinnum verið gengið til þjóðaratkvæðagreiðslu þar í landi og til samanburðar má nefna að 19 önn- ur Evrópulönd hafa samtals gengið 144 sinnum til þjóðaratkvæðis. Þetta samsvarar því að 73% allra þjóðarat- kvæðagreiðslna á þessu tímabili hef- ur farið fram í Sviss. Næst algeng- astar eru þjóðaratkvæðagreiðslur á Ítalíu en þar hefur verið kosið 58 sinnum frá 1940 og þar á eftir kemur Írland með 28 þjóðaratkvæða- greiðslur á sama tímabili. Að mati Setälä eru þjóðarat- kvæðagreiðslur sem haldnar eru að frumkvæði stjórnvalda ekki góður kostur, enda eigi þær til að veikja þingið og binda hendur þess. „Það hafa ekki orðið neinar rót- tækar breytingar á síðustu áratug- um sem hafa aukið notkun þjóðarat- kvæðagreiðslna verulega á Vesturlöndum,“ sagði Setälä.Hins vegar megi benda á að óháð fjölda hafi þjóðaratkvæðagreiðslur áhrif á málsmeðferð í þinginu og geti þrýst á stjórnmálamenn að tryggja sér næg- an meirihluta og taka þannig tillit til fleiri sjónarmiða en ella. „Eftir að hafa kynnt mér þjóðarat- kvæðagreiðslur um lagafrumvörp í nokkurn tíma held ég að þær séu, út frá sjónarhóli lýðræðisins, frekar hluti af löggjafarferlinu en að þær séu tæki sem ríkisstjórnir noti sér.“ Önnur nálgun Nálgun Claes de Vresse, dósents við háskólann í Amsterdam, var nokkuð önnur en hinna fyrirlesar- anna. Hann hefur skoðað þjóðarat- kvæðagreiðslur „að innan“ ef svo má að orði komast; kannað áhrif fjöl- miðla, kosningabaráttu og upplýs- ingaflæðis til kjósenda í aðdraganda atkvæðagreiðslu. Í erindi sínu í gær fjallaði de Vreese einkum um þjóðaratkvæða- greiðslur sem tengjast Evrópusam- bandinu og tók sérstaklega fyrir þjóðaratkvæðagreiðslurnar í Frakk- landi og Hollandi um stjórnarskrá Evrópusambandsins nú í sumar, sem hann sagði að hefðu um margt end- urspeglað dæmigerðar þjóðarat- kvæðagreiðslur. Hann sagði að ýms- ar kenningar væru uppi um hvað geti haft áhrif á niðurstöðuna í slíkum at- kvæðagreiðslum, annað en bein af- staða kjósenda til þess málefnis sem kosið er um. Hann benti einkum á að fylgi ríkisstjórna í landinu þegar kosið er, staðan í hagkerfinu og þau málefni sem efst eru á baugi á þeim tíma, geti haft áhrif á atkvæði kjós- enda. „Þegar kosið var í sumar voru rík- isstjórnirnar bæði í Frakklandi og Hollandi óvinsælar, hagkerfin í báð- um löndum voru að ná sér eftir kreppu og málefni innflytjenda voru ofarlega á baugi í báðum löndum,“ sagði de Vreese. Hann benti á að í slíkum atkvæða- greiðslum kæmist oft nokkuð rót á hefðbundnar flokkslínur og ekki óal- gengt að kjósendur kysu þvert á vilja þess flokks sem þeir allajafna styddu. „Það sem við höfum séð varðandi málefni Evrópu er að lands- lagið í stjórnmálum breytist tals- vert,“ sagði hann og benti á að í raun myndist nýr pólitískur ás, sem gangi þvert á hægri og vinstri og horfi í raun aðeins á kosti og galla þess mál- efnis sem kosið er um. Að mati de Vreese getur kosninga- barátta og upplýsingaflæði til kjós- enda skipt talsverðu máli varðandi þátttöku og skoðanamyndun. Lítil þekking algeng ástæða þess að kjósa ekki Hann benti t.d. á að langflestir þeirra sem ekki kusu í þjóðarat- kvæðagreiðslunni um upptöku evr- unnar í Danmörku árið 2000 hafi kennt um lítilli þekkingu á málefn- inu. Hann sagði kosningabaráttuna geta haft mikil áhrif. Með henni megi hafa áhrif á þátttöku sem geti skipt miklu máli ef t.d. ákveðin þátttöku- skilyrði séu sett. „Hún getur fest í sessi ákveðnar skoðanir hjá kjósend- um eða breytt þeim,“ sagði hann og bætti við að slík barátta geti enn- fremur haft áhrif á það hvaða málefni ráði niðurstöðum atkvæðagreiðsl- unnar. Þannig megi til að mynda með kosningabaráttu beina athygli kjós- enda að ríkisstjórninni ef hún stend- ur illa rétt fyrir atkvæðagreiðsluna. Að lokum spurði de Vreese: „Eig- um við að vera hrædd við að kjós- endur skipti um skoðanir og séu sein- ir að ákveða sig? Kannski ekki. Ég held að aðalatriðið sé að þegar við horfum til venjulegra kosninga sé það ekki rétt ályktun að segja að ákvarðanir kjósenda séu alltaf rök- réttar. Þetta rót á kjósendum og það að þeir byggja ákvarðanir sínar á þáttum sem koma ekki málefninu við, er innbyggt í lýðræðið.“ Snýst um að finna jafnvægi arnihelgason@mbl.is Á hádegisfundi um þjóð- aratkvæðagreiðslur í gær kom meðal annars fram að kosningabar- átta getur haft úrslita- áhrif í þjóðaratkvæða- greiðslum og að Sviss hefur haldið 73% allra þjóðaratkvæðagreiðslna í Evrópu frá 1940. Árni Helgason sat fundinn. Morgunblaðið/Jim Smart Palle Svensson, prófessor við Árósaháskóla, og Maija Setälä, lektor við Turku-háskólann í Finnlandi, héldu erindi á fundinum í gær. Nokkur fjöldi gesta mætti á fundinn. Fremst á myndinni má sjá Claes de Vreese, dósent við háskólann í Amsterdam, sem hélt erindi á fundinum. Hann sat meðal áhorfenda meðan hinir töluðu. Hádegisfundur Stofnunar stjórnsýslufræða og Morgunblaðsins um þjóðaratkvæðagreiðslur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 11 FRÉTTIR Við flytjum í bæinn... Opnum nýja Ralph Lauren verslun að Laugavegi 40 Full búð af glæsilegum haustfatnaði RALPH LAUREN Laugavegi 40 - SÍMI 561 1690 CLAES de Vresse hefur kannað afstöðu ólíkra hópa til þjóð- aratkvæðagreiðslna og reynt að finna mynstur. Hann sagði að þó niðurstöðurnar væru ekki hávísindalegar, gæfu þær ákveðna mynd af afstöðu ein- stakra hópa. Meðal annars kemur þar fram að menn eru líklegri til að segja já en konur. Því betur menntað sem fólk er, þeim mun líklegra er það til að svara játandi og sama gildir um fólk í yfirmannastöðum. Þá hafa ákveðin málefni einnig verið könnuð, þ.e. hvaða tegundir málefna séu líklegri til að njóta stuðnings umfram önnur. Í erindi sínu benti de Vreese einnig á að málefni sem feli sér jákvæðar breytingar í hagkerfinu séu líkleg til að njóta stuðnings en hins vegar séu breytingar sem eru nei- kvæðar fyrir innflytjendur síð- ur líklegar til að njóta stuðn- ings. Karlmenn jákvæðari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.