Morgunblaðið - 12.08.2005, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Á AÐ RÍFA MJÓLKUR-
SAMLAGSHÚSIÐ?
Ífrétt í Morgunblaðinu í fyrradagsagði m.a.:„Líklegt er að sótt verði um
leyfi til að rífa gamla Mjólkursam-
lagshúsið í Borgarbyggð í þessum
mánuði ef enginn sýnir því áhuga að
reka starfsemi í húsinu í framtíðinni.
… Bærinn hefur lýst yfir vilja sínum
til að rífa húsið til að rýma fyrir nýj-
um húsum, en beðið var með þau
áform til að kanna, hvort einhver
áhugasamur aðili fyndist, sem gæti
hugsað sér að reka þar starfsemi.
Helga Halldórsdóttir, forseti bæjar-
stjórnar, segir að einn aðili hafi feng-
ið að skoða húsið og metið hvað þyrfti
að lagfæra og gera upp áður en hægt
sé að hefja þar starfsemi. Hún segir
þó að enn hafi ekkert formlegt tilboð
borizt í húsið og bæjarfélaginu ekki
birtar neinar áætlanir um framtíð-
arnýtingu. Á meðan ástandið sé
þannig sé ekki annað að gera en að
sækja um leyfi til að rífa það og það
verður trúlega gert nú í ágústmán-
uði.“
Í þessari frétt birtist slíkt metn-
aðarleysi af hálfu bæjarstjórnar
Borgarbyggðar að með ólíkindum er.
Auðvitað á bæjarstjórnin ekki að
bíða eftir því, að einhverjir gefi sig
fram til þess að taka að sér þetta hús.
Auðvitað eiga kjörnir forráðamenn
bæjarfélagsins að hafa þann metnað
að segja við sjálfa sig og aðra:
Þetta hús er merkilegt tákn um lið-
inn tíma. Þann tíma, þegar landbún-
aðurinn var höfuðatvinnuvegur fólks
í Borgarfirði og Borgarnes lifði á því
að þjóna blómlegum landbúnaðar-
héruðum. Gamla Mjólkursamlags-
húsið var miðstöð þeirrar þjónustu.
Þetta hús, sem setti svip sinn á Borg-
arnes og gerir enn, er teiknað af ein-
um fremsta arkitekt, sem íslenzka
þjóðin hefur átt. Um allt land er unn-
ið að því að vernda hús, sem Guðjón
Samúelsson teiknaði. Við Borgfirð-
ingar viljum gera það líka og eiga
samstarf við aðra um að tryggja að
þetta svipmikla hús setji svip sinn á
Borgarnes og Borgarfjörð og því
verði fundið hlutverk við hæfi.
Svona eiga forráðamenn Borgar-
byggðar að tala en ekki bíða aðgerð-
arlausir eftir því, að einhverjir gefi
sig fram til að vinna þau verk, sem
þeir hafa verið kjörnir til.
Í samtali sem birtist hér í blaðinu
hinn 30. maí sl. sagði Sturla Böðv-
arsson, samgönguráðherra og fyrsti
þingmaður Norðvesturlands, m.a.:
„Ég hef alltaf haft áhuga á því að
varðveita menningararfinn og ekki
sízt byggingararfinn og þegar um er
að ræða svona merkilega byggingar-
list eins og hús Guðjóns Samúelsson-
ar eru undantekningarlaust hefði ég
auðvitað mikinn áhuga á því ef hægt
væri að endurreisa þetta hús og láta
það falla inn í skipulagið þarna.“
Það eru til fordæmi fyrir því,
hvernig hægt er að standa að end-
urreisn merkra bygginga. Glæsilegt
dæmi um það er gamla sjúkrahúsið á
Ísafirði, sem Guðjón Samúelsson
teiknaði líka og er nú á ný orðið bæj-
arprýði á Ísafirði og hýsir umfangs-
mikla menningarstarfsemi.
Það er augljóst að einhverjir Borg-
firðingar verða að taka forystu um að
koma í veg fyrir að það skemmdar-
verk verði framið í Borgarnesi að rífa
gamla mjólkursamlagshúsið.
Hér er kjörið verkefni fyrir há-
skólana tvo, sem starfræktir eru í
Borgarfirði, háskólann á Bifröst og
landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.
Þessir tveir háskólar ættu nú að taka
höndum saman um að koma í veg fyr-
ir það óhappaverk, sem nú stendur til
að fremja í Borgarnesi. Þessir tveir
háskólar eiga að sýna að þeir hafi víð-
tæku menningarhlutverki að gegna í
sinni heimabyggð og slá skjaldborg
um þessa byggingu.
Af orðum Sturlu Böðvarssonar er
ljóst, að bæði á Alþingi og í ríkis-
stjórn má vænta stuðnings við end-
urreisn gamla Mjólkursamlagshúss-
ins.
Aðrir þingmenn Norðvesturkjör-
dæmis eiga að láta til sín heyra og
lýsa afstöðu sinni til þessa máls.
Það má ekki gerast að niðurrifs-
menn hafi sigur í þessu máli.
SKÍTUG BORG
Í Velvakanda Morgunblaðsins ígær birtist bréf frá „konu í Aust-
urbænum“, þar sem sagði m.a.:
„Það er ekki gott útlit hjá kóngu-
lónni, sem spann stóran og fallegan
vef úti fyrir eldhúsglugganum mín-
um snemma í sumar. Núna, þegar ég
er að skrifa þessar línur, 21. júlí, get
ég ekki betur séð en vefurinn glæsi-
legi sé orðinn þakinn óhreinindum
og borin von, að nokkur fluga álpist
til að fljúga í þetta útbíaða net. Nið-
urstaða: kóngulóin deyr sennilega úr
sulti.
Borgin mín er orðin svo yfirgengi-
lega skítug að meira að segja kóngu-
lær líða fyrir það. Þegar verst lætur
t.d. á veturna segi ég stundum, þeg-
ar illa liggur á mér, að ég eigi heima
í Drulluvík.“
Svo vill til að daginn áður, þ.e. í
fyrradag, birtist frásögn hér í
blaðinu, sem bar yfirskriftina: Verzl-
unarfólk tekur ruslið heim á kvöldin.
Þar segir í upphafi:
„Verzlunareigendur við Laugaveg-
inn eru margir hverjir farnir að taka
ruslið, sem leggst til frá verzlunum,
heim með sér á kvöldin eftir að
Reykjavíkurborg hætti að taka við
sorpi frá fyrirtækjum um sl. áramót
og víða safnast laust rusl aftan við
verzlanir og við bakhús.“
Hildur Símonardóttir, sem rekur
verzlun við Laugaveginn, segir í
samtali við Morgunblaðið: „Ruslið
safnast saman, sígarettustubbar
liggja á víð og dreif og tyggjóklessur
eru um allt á gangstéttunum.“
Lýsingar þessara tveggja kvenna
fara saman við tilfinningu og upp-
lifun margra borgarbúa. Reykjavík
er á ný orðin skítug borg. Fólk um-
gengst hana í samræmi við það. Nú
má aftur sjá ungmenni henda alls
kyns rusli út um glugga bíla, sem
eru á ferð.
Borgaryfirvöld hafa látið þetta
gerast. Þau verða að reka af sér
slyðruorðið og það strax.
VIÐRÆÐUNEFND um framtíð R-listans
náði ekki samkomulagi á fundi sínum í gær
um áframhaldandi samstarf flokkanna
þriggja, Samfylkingar, Vinstri grænna og
Framsóknarflokks, í borgarstjórnarkosn-
ingunum í vor. Fulltrúar flokkanna í nefnd-
inni hafa því ákveðið að fara með málið aft-
ur til síns baklands í Reykjavík. Gert er ráð
fyrir að Reykjavíkurfélög flokkanna hittist
í næstu viku og taki endanlega afstöðu til
sameiginlegs framboðs.
Viðræðunefndin hóf fundinn kl. 17 í
húsakynnum framsóknarmanna í Reykja-
vík. Fundinum lauk rúmlega einum og
hálfum tíma síðar. Páll Halldórsson,
fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni,
sagði við fréttamenn eftir fundinn að síð-
asta orðið í svona málum hlyti að vera hjá
fólkinu í flokkunum. „Viðræðunefndin
vinnur eins og hún kemst en hún tekur ekki
lokaákvörðun í svona málum.“
Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi Vinstri
grænna í nefndinni, tók undir þetta: „Við
lítum svo á að viðræðunefndin hafi lokið
sínum störfum og komist ekki lengra að
svo stöddu.“ Hún sagði eðlilegt að flokks-
félögin í Reykjavík tækju afstöðu til fram-
haldsins.
Tillaga frá Samfylkingunni
Þorlákur Björnsson, fulltrúi Framsókn-
arflokksins í nefndinni, talaði á sömu nót-
um. „Við í samninganefndinni höfum ekki
náð neinni niðurstöð
við lokið okkar störfu
Í upphafi fundarin
Samfylkingarinnar f
sjö liðum um hlut flo
um framboðslista og
bjóðendum. Tillagan
haldið yrði prófkjör
Viðræðunefnd R-listaflokkanna skilar u
Koms
um s
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Viðræðunefnd Sam
„ÉG tel ábyrgð
þeirra sem nú
standa að slitum
samstarfsins um
Reykjavíkurlist-
ann mikla,
fulltrúar Fram-
sóknarflokksins í
viðræðunefnd
flokkanna hafa
lagt sig alla fram um að ná lausn
sem allir gætu sætt sig við, án ár-
angurs,“ segir Alfreð Þorsteinsson,
oddviti Framsóknarflokks íborg-
arstjórn. Spurður hverjir það séu
sem standa að slitum listans segist
hann ekki vilja tjá sig um það á
þessu stigi.
„Miðað við þann mikla árangur
sem Reykjavíkurlistinn hefur náð í
borgarmálum á liðnum árum væru
það mikil vonbrigði ef ekki yrði boð-
ið fram í nafni listans í næstu borg-
arstjórnarkosningum. Mikil kyrr-
staða ríkti í borginni síðustu
valdaár sjálfstæðismanna, m.a. í
skóla- og dagvistarmálum og at-
vinnumálum. Þessu hefur öllu verið
snúið til betri vegar undir stjórn
Reykjavíkurlistans,“ segir Alfreð.
Hann segir óhjákvæmilegt að
samstarf flokkanna sem mynda
Reykjavíkurlistann verði erfitt það
sem eftir er kjörtímabilsins ákveði
þeir að bjóða ekki fram undir
merkjum listans í næstu kosningum.
„Þeir hljóta þá að leggja mismun-
andi áherslur, hver fyrir sig, sem
gerir stjórn borgarinnar óvissari en
ef flokkarnir stæðu saman og næðu
samkomulagi um ákvarðanir. Ég
held að það liggi í augum uppi.“
Nýr meirihluti ekki á dagskrá
Spurður hvort öruggt sé að sam-
starf flokkana sem mynda Reykja-
víkurlistann haldi í þá rúmu níu
mánuði sem eru til kosninga segir
Alfreð ekkert annað í spilunum, og
myndun nýs meirihluta ekki á dag-
skrá. „Ég spái ekki um framtíðina,
en ég segi bara að þetta samstarf
getur orðið með allt öðrum hætti ef
þessar lyktir verða, að flokkarnir
bjóða fram hver í sínu lagi.“
Alfreð segir að stjórnir fram-
sóknarfélagana í Reykjavík muni
hittast í dag eða um helgina til þess
að fara yfir málin, og ræða tillögu
sem Samfylkingin lagði fram í gær.
„Ég hef ekki skoðað þessa tillögu í
þaula, en mér sýnist hún vera að-
gengileg.“
Alfreð Þorsteinsson
Vonbrigði ef
R-listinn býð-
ur ekki fram
INGIBJÖRG Sól-
rún Gísladóttir
vill ekki taka svo
djúpt í árinni að
samstarfi R-
listans sé lokið
með viðræðuslit-
um samninga-
nefndarinnar.
„Viðræðuslitin
auka manni ekki bjartsýni en eru til
marks um það að samninganefndin
komist ekki lengra og einhverjir
þar telji sig ekki hafa umboð til þess
að semja um niðurstöðu á þeim nót-
um sem fyrir lágu. Þarna var reynt
að auka aðkomu borgarbúa að því
að velja fulltrúana og borgarstjór-
ann en um það varð ekki sátt.“
Hvað varðar áhrif á samstarf
flokkanna út kjörtímabilið segist
Ingibjörg telja að þetta muni ekki
koma til með að hafa áhrif á það.
Hún líti svo á að Reykjavíkurlistinn
muni freista þess að ljúka kjör-
tímabilinu og minnir á að ekki sé út-
séð um málið ennþá. Nú fari það fyr-
ir félagsfundi hjá
Reykjavíkurdeildum flokkanna,
sem hún reiknar með að verði
haldnir í næstu viku.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Eykur ekki á
bjartsýni
STEINGRÍMUR
J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-
hreyfingarinnar
– græns fram-
boðs, sagði í sam-
tali við Morg-
unblaðið í gær að
það væri ekki sitt
hlutverk að
kveða upp úr um framtíð R-listans.
„Málið er í höndum félaganna
sjálfra í Reykjavík eða stofnana
þeirra,“ sagði hann og bætti við:
„En það væri óraunsæi annað en að
horfast í augu við að bjartsýni
manna á að samkomulags-
grundvöllur náist minnkar við þessi
tíðindi. Ég held að menn verði að
horfast í augu við það og vinna út
frá því. Ég ætla svo að vona að
menn taki niðurstöðunni hver sem
hún verður skynsamlega og af
reisn.“
Jafnframt kvaðst hann vonast til
þess að R-listinn kláraði kjör-
tímabilið í góðum anda og „einnig
vildi ég gjarnan sjá að menn
stefndu á samstarf á þeim grunni,
þ.e. þó flokkarnir bjóði fram hver í
sínu lagi ættu þeir að starfa saman
og halda völdum hér í borginni“.
Hann ítrekaði þó að málið væri
ekki endanlegt þótt viðræðu-
nefndin hefði þurft að játa sig sigr-
aða.
Aðspurður kvaðst hann styðja þá
stefnu sem fulltrúar Vinstri
grænna hefðu tekið í R-listaviðræð-
unum. Hann ítrekaði þó að sú
stefna væri algjörlega á valdi fé-
lagsins í Reykjavík. Hann blandaði
sér ekki í það, í sjálfu sér. Hann
sagði að R-listinn hefði byggst á
kosningabandalagi á ákveðnum
jafnræðisgrunni „og ég skil vel að
menn vilji láta á það reyna hvort
flötur sé fyrir því að það haldi
áfram“.
Steingrímur J. Sigfússon
Vonar að
menn taki nið-
urstöðunni
með reisn „ÉG hef
að menn
getað n
an á vel
unandi
velli fyr
aðila,“ s
Árni Þó
urðsson
vinstri-g
borgarstjórn. „Sjónarmið
anna voru of ólík um það á
grunni samstarfið ætti að
ast, hvort það ætti að bygg
áfram á þeim jafnréttisgru
það hefur byggst á til þess
hvort breyta eigi forsendu
Árni segir að þrátt fyrir
hefði gjarnan viljað að flok
næðu saman hefði viðræðu
flokksins metið það svo að
hefði ekki umboð til þess a
sig lengra í átt að samkom
Því sé ekki um annað að ræ
að fjalla um málið í félagi
grænna í Reykjavík og tak
stöðu til málsins þar hvort
urinn geti teygt sig lengra
ræðunefndin hafi talið sig
gert. Hann segir að funda
um málið á mánudaginn.
Spurður hvert framhald
ef ekkert verði af sameigi
framboði R-listans í næstu
arstjórnarkosningum segi
„Reykjavíkurlistinn er hér
hluta og hann hlýtur að st
þá skuldbindingu sem han
herðar í síðustu kosningum
vart borgarbúum. Þetta er
ugt fólk sem starfar á vett
Reykjavíkurlistans, og ég
og treysti að menn muni lj
þessu kjörtímabili hvernig
verður boðið fram í næstu
ingum.“
„Mega ekki missa móði
„Þó að við mörg sem hö
starfað á vettvangi Reykja
urlistans sjáum samstarfið
Árni Þór Sigurðsson
Sjónarmið
flokkanna
of ólík