Morgunblaðið - 12.08.2005, Page 27

Morgunblaðið - 12.08.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2005 27 ðu og þess vegna höfum um.“ ns í gær lögðu fulltrúar fram skriflega tillögu í okkanna á sameiginleg- g aðferð við val á fram- n gekk m.a. út á það að r sem yrði opið öllum stuðningsmönnum Reykjavíkurlistans. Frambjóðendur frá hverjum flokki yrðu að lágmarki fimm og að hámarki átta. Sá sem hlyti flest atkvæði yrði borgarstjóraefni listans. Tryggt yrði að hver flokkur fengi einn fulltrúa í fyrsta til þriðja sæti listans og einn fulltrúa í fjórða til sjötta sætið. Í sjöunda og áttunda sætið færu þeir sem hlytu flest atkvæði í þau sæti. Í níunda og tíunda sæti færu þeir sem næstir kæmu að atkvæðatölum í heildina. Þó þyrfti að tryggja að allir flokkarnir þrír fengju að minnsta kosti þrjú af tíu efstu sætunum. Páll Halldórsson sagði aðspurður við fréttamenn eftir fundinn að samfylkingar- menn teldu að þeir hefðu teygt sig ansi langt með þessum tillögum og í raun lengra en mörgum innan flokksins þætti gott. Svandís Svavarsdóttir sagði hins vegar við fréttamenn stuttu síðar að í tillögunni hefði jafnræðisreglan ekki verið höfð í heiðri „sem er sú grundvallarforsenda sem við höfum lagt af stað með alveg frá fyrsta fundi í apríl“, sagði hún. „Það ætti því ekki að koma neinum á óvart þótt þetta hugnað- ist okkur ekki sem leið til lausnar, eins og þau kjósa að kalla það,“ sagði hún og vísaði til þess að samfylkingarmenn hefðu talað um tillögur sínar sem „hugmynd að lausn“. Þegar hún var spurð á hverju viðræðurnar hefðu strandað svaraði hún: „jafnræðis- reglunni“. Aðspurð sagði hún ennfremur að það hefði ekki verið tímabært á fund- inum í gær að tala um prófkjör „þegar menn eru ekki tilbúnir að handsala það að flokkarnir eigi jafna aðkomu að framboð- inu“. Allt uppi á borðinu Þegar Þorlákur Björnsson var spurður á hverju viðræðurnar hefðu strandað sagði hann að það hefði verið ágreiningur um það hvað „jafnræði“ milli flokkanna þýddi. Ennfremur hefði verið ágreiningur um það hvernig menn skilgreindu opið prófkjör, hverjir vildu opið prófkjör og hvernig. Að- spurður sagði hann að framsóknarmenn hefðu frá upphafi tekið vel í hugmyndir um opið prófkjör um borgarstjóraefnið. „Það er mjög sanngjörn krafa,“ sagði hann. „Jafnframt viljum við sjá jafnræði milli flokkanna.“ Hann sagði ennfremur að- spurður að framsóknarmenn hefðu verið jákvæðir í garð beggja þessara sjónarmiða og skilið þau mætavel. Fulltrúar Samfylkingarinnar í viðræðu- nefndinni sendu fjölmiðlum í gærkvöldi fyrrgreindar tillögur sínar og sögðu í texta með þeim að allir flokkarnir hefðu sam- þykkt að bera þær upp á félagsfundi hjá sér. Þegar blaðamaður spurði Svandísi út í það sagði hún að ekkert slíkt samkomulag hefði verið handsalað á fundi viðræðu- nefndarinnar. Hún sagði að allar tillögur sem fram hefðu komið í viðræðunum yrðu til umræðu á félagsfundi Vinstri grænna á mánudag. „Við munum gera grein fyrir stöðunni eins og hún er og allar tillögur verða uppi á borðinu,“ sagði hún. „Það er óraunsætt að halda því fram að næstu dag- ar muni snúast um Samfylkinguna.“ Þorlákur sagðist hins vegar aðspurður í gærkvöldi hafa samþykkt að bera um- ræddar tillögur samfylkingarmanna upp á félagsfundi framsóknarfélaganna í Reykja- vík. Hann sagði að enn lægi ekki fyrir hve- nær félagsfundurinn yrði haldinn, en stjórnir félaga framsóknarmanna í Reykja- vík yrðu kallaðar saman á allra næstu dög- um. Að sögn Páls verður fulltrúaráðsfundur Samfylkingarinnar í Reykjavík haldinn á miðvikudag í næstu viku. Verði niðurstaða félags- og fulltrúaráðsfunda flokkanna þriggja sú að bjóða ekki fram sameiginlega undir merkjum R-listans má búast við því að flokkarnir hefji fljótlega undirbúning að sérframboði í Reykjavík. umboði sínu til flokkanna án þess að leggja fram sameiginlega tillögu um framboð st ekki að samkomulagi sameiginlegt framboð Morgunblaðið/Sverrir mfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknarflokks náði ekki saman á síðasta formlega fundinum í gær. „MÉR finnst miður að við- ræðunefndinni hafi ekki tekist að komast að sameiginlegri niðurstöðu um að Reykjavík- urlistinn bjóði fram sameig- inlega áfram,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri. Hún vill ekki afskrifa R-listann þrátt fyrir þessa niðurstöðu. „Mér myndi finnast það svik við kjósendur að afskrifa R- listann á þessari stundu. Það segi ég sem borgarstjóri og sem R- lista manneskja. [...] Ég sjálf hef verið R-lista manneskja í húð og hár frá árinu 1994, og ég held að á næstu sólarhringum reyni á okkur sem trúum á Reykjavík- urlistann og viljum hafa hann áfram, að koma fram með ein- hverja lausn sem viðræðunefndin kom ekki auga á.“ Spurð hvert framhaldið verði, verði það niðurstaðan að R-listinn bjóði ekki fram næsta vor, segir Steinunn: „Reykjavíkurlistinn fékk umboð kjósenda í síðustu kosningum til vors 2006, og auð- vitað klárum við það og stöndum heilshugar á bak við það. En ég held að stuðningsfólk og kjós- endur Reykjavíkurlistans treysti okkur til þess að leysa þetta þannig að tekið verði tillit til hagsmuna allra í þessum efnum. Ég vil ekki trúa því að þetta sé búið fyrr en það er búið.“ Steinunn Valdís vildi í gær ekki segja til um hvort hún teldi það betra eða verra fyrir Sam- fylkinguna í Reykjavík að bjóða fram undir eigin merkjum eða merkjum Reykjavíkurlistans. „Mér finnst aðalatriðið vera Reykjavíkurlistinn, það er verið að tala um sameiginlegt framboð þessara flokka. Ég er sameig- inlegur borgarstjóri flokkanna, og lít fyrst og fremst á mig sem Reykjavíkurlistamanneskju, og ég vil ekki nálgast þetta viðfangs- efni út frá flokkunum. Þó að ég sé í Samfylkingunni er R-listinn svo miklu meira en flokkarnir þrír. Þetta snýst ekki síst um fólkið sem hefur kosið Reykjavík- urlistann án þess að vera í þess- um þremur flokkum.“ Steinunn Valdís Óskarsdóttir Afskrifar ekki R-listann „SVO virðist sem verið sé að taka R-listann úr öndunarvélinni, og ef það verður niðurstaðan kemur það fæst- um á óvart,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í borg- arstjórn, um niðurstöðu viðræðu- nefndar um framtíð R-listans. Hann segir að sjálfstæðismenn muni ekki hafa að því frumkvæði að mynda nýjan borgarstjórn- armeirihluta á því kjörtímabili sem nú er að líða, enda líklegt að flokkarnir sem mynda R-listann reyni að halda samstarfinu áfram út kjörtímabilið þótt R-listinn hverfi af sjónarsviðinu. „Við sjálfstæðismenn stefnum að meirihluta og teljum að borg- arbúar eigi að gera kröfu til þess að eitt ábyrgt stjórnmálaafl stjórni. En Sjálfstæðisflokkurinn er að sjálfsögðu tilbúinn til þess að taka þátt í stjórn borgarinnar með öðrum stjórnmálaöflum, ef slíkar aðstæður kæmu upp, og þá útiloka ég engan,“ segir Vilhjálmur. Stjórnleysi fram að kosningum „Það hefur verið dapurlegt að horfa upp á þessar viðræður flokk- anna í R-listanum á undanförnum mánuðum, þar sem allt hefur snú- ist um titlatog, en málefnin sitja á hakanum. R-listinn er búinn að klúðra þannig málunum í Reykja- vík að eina undankomuleiðin er að leggja R-listann niður. Svo munu flokkarnir sem að honum standa sverja af sér óstjórnina. Nú blasir við stjórnleysi næstu tíu mánuði, sem hlýtur að vera öllum borg- arbúum mikið áhyggjuefni. Í borg- arstjórnarkosningunum í maí næstkomandi breytum við þessu ástandi,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Mun ekki eiga frumkvæði að nýjum meirihluta HALLDÓR Ás- grímsson, for- maður Fram- sóknarflokksins, segir að fram- sóknarmenn hafi í viðræðun- um gengið langt til að viðhalda R- listanum. Hann segir að R-listasamstarfið hafi frá upphafi byggst á jafnræði milli flokkanna. „Margir hafa gleymt því að í fyrstu alþingiskosning- unum eftir að þetta samstarf komst á var Framsóknarflokk- urinn næststærsti flokkurinn hér í borginni, á eftir Sjálfstæð- isflokknum. Við höfum lagt áherslu á að því jafnræði sem var lagt upp með í þessu samstarfi verði viðhaldið, þó lögðu fulltrúar Framsóknarflokksins það til að Framsóknarflokkurinn hefði minnstu hlutdeild í þessari upp- stillingu. Þar með sýndu menn vilja til að halda þessu samstarfi áfram.“ Halldór segir að fulltrúar Fram- sóknarflokksins í viðræðunum um framtíð R-listans séu heldur svart- sýnir á framhaldið. „Það er ljóst að Samfylkingin telur að það eigi ekki að vera áfram það jafnræði sem farið var af stað með þegar til samstarfsins var stofnað. En fé- lagsmenn í flokkunum verða að taka afstöðu til þess.“ Hann ítrek- ar að Framsóknarflokkurinn hafi gengið mjög langt til að ná þessu saman „en ég vil ekkert um það fullyrða hvernig það getur endað á þessu stigi“. Inntur eftir því hvort hann hafi orðið fyrir vonbrigðum segir hann: „Samstarfið hefur gengið vel í þessi ár og ég tel að það hafi verið borgarbúum til góðs. Fram- sóknarflokkurinn er hins vegar al- veg tilbúinn til að takast á við það verkefni að bjóða fram á nýjan leik.“ Halldór Ásgrímsson Sýndum vilja til að halda samstarfinu áfram DAGUR B. Egg- ertsson segir að oft hafi gengið á ýmsu hjá Reykjavíkurlist- anum og hann hafi átt það sameiginlegt með mörgum stuðnings- mönnum listans að vera bjartsýnn á að næðist saman enda væri það eina rökrétta niðurstaðan. Hann sé hins vegar svartsýnni á það núna. „Heildarhagsmunir þessara fé- lagshyggjuafla hafa fram til þessa verið hafðir að leiðarljósi þegar niðurstöðu hefur verið endanlega náð. En núna hef ég áhyggjur af því að inni í þessum viðræðum hafi, ólíkt því sem hefur verið áður, ver- ið togast á milli flokka frekar en að leita lausna til að tryggja þessum viðfangsefnum, verkefnum og hug- sjónum framgang í næstu kosn- ingum.“ Dagur segir mestu máli skipta að Reykjavíkurlistinn endurnýi sig og sæki umboðið og stuðninginn þang- að sem Reykjavíkurlistinn hafi orð- ið til, sem hafi verið í hreyfingu borgarbúa sem vildu öðruvísi borg. Aðgangur almennra stuðningsmanna „Þess vegna á umræðan ekki að snúast um hvort það verði opinn að- gangur almennra stuðningsmanna að stefnumótun í aðdraganda kosn- inga og uppröðunar á listann, held- ur hvernig. Það kemur mér á óvart að þetta trúnaðarsamband við þá sem við erum að vinna fyrir sé ekki lykilatriði. Heldur frekar einhver valdahlutföll á milli flokka,“ segir Dagur en áréttar að vissulega geti það skipt máli upp á hvort listinn verði sigurstranglegur. Það sé þó ekki meginatriði þess sem Reykja- víkurlistinn hefur staðið fyrir. „Reykjavíkurlistinn hefur staðið fyrir að endurspegla allt borg- arsamfélagið og þá breidd sem í því felst. Annars vegar með því að vera samstarf ólíkra flokka, sem hefur verið styrkur, og hins vegar þess stóra hóps sem ef til vill hefur ekki fundið sér farveg innan flokka en deilir þessum hugsjónum “ Hættur ef flokkarnir bjóða fram hver um sig Dagur gerir ekki ráð fyrir að fara í framboð í næstu kosningum ef flokkarnir bjóða fram hver í sínu lagi. Segist hann þá munu hætta af- skiptum af stjórnmálum, að minnsta kosti að sinni. „Ég, eins og aðrir sem kosnir voru til verka fyr- ir R-listann, fékk umboð mitt frá þessum breiða hópi borgarbúa. Mér er efst í huga að vinna að þeim verkefnum af heilindum næsta árið í því umboði. Ég hef reynt að ganga rösklega til verks en ætli ég verði ekki heldur að slá í klárinn ef eitt- hvað er.“ Dagur B. Eggertsson Hættur ef R-listinn býður ekki fram fði kosið n hefðu náð sam- l við- grund- rir alla segir ór Sig- n, oddviti grænna í flokk- á hvaða byggj- gjast unni sem sa, eða unum.“ r að hann kkarnir unefnd ð hún að teygja mulagi. æða en vinstri- ka af- t flokk- a en við- g geta að verði dið verði nlegu u sveit- ir Árni: r í meiri- tanda við nn tókst á m gagn- r allt öfl- tvangi trúi því júka g svo sem u kosn- inn“ öfum avík- ð gjarn- an fyrir okkur áfram, þá er þetta ekki upphaf og endir alls í stjórn- málum, og menn mega ekki missa móðinn. Ég lít svo á að þessir flokkar eigi möguleika á því að starfa áfram saman sem meirihluti í Reykjavík og fá umboð kjósenda til þess,“ segir Árni. n

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.