Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.08.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 225. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Framtíð Evrópu björt Vaclav Klaus varar við samevrópskri stjórnarskrá 15 Fasteignir | Hús með sál við Sólvallagötu  Lóðir eftirsóttar í Árborg Íþróttir | Handboltalið Víkinga í vandræðum  Heppnismark Drogba réð úrslitum Íraska þingið sent heim? HUGSANLEGT er að fulltrúar stríðandi fylkinga í Írak fari fram á lengri frest til að ljúka gerð stjórnarskrár fyrir landið en hann rennur út í dag. Höfðu fulltrúar sjíta, súnníta og Kúrda í gær enn ekki náð sam- an um nokkur helstu ágreiningsefnin og óvíst var hvort samkomulag næðist í tæka tíð. Leith Kubba, talsmaður Ibrahims al-Ja- afari forsætisráðherra, sagði tvo kosti í stöðunni ef ekki næðist samkomulag; ann- að hvort að fara fram á lengri frest, en stjórnarskrárnefndin átti upphaflega að skila af sér fyrir viku, eða leysa upp þingið og þá myndi núverandi ríkisstjórn sitja áfram til bráðabirgða. Segir í frétt BBC að menn virðist hins vegar lítinn áhuga hafa á því að efna til nýrra kosninga – en Írakar gengu að kjör- borðinu í janúar – og því sé líklegra að frestur sá sem stjórnarskrárnefndin hafði verði framlengdur. Helstu deilumál meðlima nefndarinnar, sem falið var að semja stjórnarskrá fyrir Írak, víkja að kröfu Kúrda um réttinn til fullveldis í eigin málum, hlutverki íslams í lögum landsins og hvernig þjóðarauðnum verður skipt milli þjóðarbrotanna. Stefnt hefur verið að því að stjórnarskrárdrög fyrrgreindrar nefndar verði lögð í dóm kjósenda í október. Ágreiningur um stjórn- arskrána enn óleystur Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is ALDREI hafa verið fleiri gestir á fyrri hluta dags Menning- arnætur sem var nú haldin í 10. sinn á laugardag. Talið er að 30- 40 þúsund manns hafi verið í bænum um miðjan daginn, en alls tóku um 90 þúsund manns þátt í hátíðinni í ár. Var engu líkara en að veð- urguðirnir hefðu gert sam- komulag við skipuleggjendur hátíðarinnar því þrátt fyrir smá skúrir yfir daginn byrjaði ekki að rigna fyrr en nokkrar mín- útur voru eftir af hátíðahöld- unum í miðbæ Reykjavíkur. Hefð hefur skapast fyrir því að Reykjavíkurmaraþonið sé upphafspunktur hátíðarinnar en það var ræst kl. 11 og í fram- haldinu hófst formleg dagskrá. Metþátttaka var í ár og hlupu yf- ir sjö þúsund manns ýmsar vega- lengdir. Gestum og gangandi stóð heil- margt til boða í ár líkt og und- anfarin ár. Ómögulegt væri að gera öllu því sem í boði var skil en ljóst að eitthvað var að finna fyrir alla. Þó má nefna tónleika, mann- tafl, ljóðasmíð og heilsteikt naut sem dæmi um fjölbreytileikann. Hátíðinni lauk svo að vanda með glæsilegri flugeldasýningu á Mið- bakkanum. | 10 Morgunblaðið/Jim Smart Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Í sveiflu á Menningarnótt Um þriðjungur þjóðarinnar skemmti sér saman í Reykjavík FH-ingar tryggðu sér Íslands- meistaratitilinn í knattspyrnu annað árið í röð þegar þeir báru sigurorð af Valsmönnum, 2:0, á heimavelli sínum í Kaplakrika. Á fjórða þúsund manns mætti til að fylgjast með leik tveggja efstu liðanna og í leikslok braust út mikill fögnuður í herbúðum FH- liðsins. FH-ingar hafa unnið alla fimmtán leiki sína í Landsbanka- deildinni og þegar þrjár umferðir eru eftir hefur liðið fjórtán stiga forskot á Val. „Við erum með frábært lið, góða umgjörð í alla staði og eig- um fullt af ungum og efnilegum strákum sem farnir eru að banka fast á dyrnar. Við höfum því alla möguleika og burði til að halda áfram á þeirri braut sem við höf- um verið á undanfarin ár og það er stefnan að gera það,“ sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH- inga, við Morgunblaðið eftir leik- inn. FH-ingar hafa leikið 31 deild- arleik í röð án taps og eiga góða möguleika á að slá stigametið í deildinni. ÍA og Fram eiga metið, 49 stig, en FH er með 45 stig og enn eru níu stig eftir í pottinum. Morgunblaðið/Jim Smart FH Íslandsmeist- ari annað árið í röð  Íþróttir ♦♦♦ Lissabon. AFP. | Jorge Sampaio, for- seti Portúgals, hvatti landa sína í gær til að sýna sam- stöðu á erfiðleika- tímum en miklir eldar leika Portúgal nú afar grátt. Hafði Jose Socrates for- sætisráðherra áður viðurkennt að stjórnvöld réðu ekki lengur við vandann og fór hann fram á neyðaraðstoð frá Evrópusambandinu af þessum sökum. Sumarið hefur einkennst af mestu þurrk- um í manna minnum í Portúgal sem stuðlað hefur að því að á um fjörutíu stöðum í land- inu geisa miklir eldar, sem illa gengur að slökkva. 3.200 slökkviliðsmenn hafa unnið yfirvinnu síðustu daga, með aðstoð 30 flug- véla og bæði hers og lögreglu. En allt kem- ur fyrir ekki. „Þetta er afar erfiður tími fyr- ir Portúgal,“ sagði Sampaio. Talið er að eldarnir hafi eyðilagt meira en 140.000 hektara skóglendis og ræktarlands. Þá hafa ellefu slökkviliðsmenn og fjórir aðr- ir dáið í baráttunni við eldana. Fara fram á aðstoð ann- arra ríkja Fasteignir og Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.