Morgunblaðið - 22.08.2005, Side 10

Morgunblaðið - 22.08.2005, Side 10
10 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARNÓTT ÞRÁTT FYRIR talsverða eftirvænt- ingu eftir hinum ýmsu atburðum Menningarnætur var greinarhöf- undur ekki árrisulli en svo að fyrsta sýn dagsins voru rennsveittir mara- þonhlauparar sem hlupu eftir Sæ- brautinni. Menningarnótt var sem sé formlega hafin og ekki eftir neinu að bíða með að bregða sér í bæinn og taka þátt í gleðinni. Áður en lengra er haldið er þó vert að vekja athygli á nafngiftinni Menningarnótt sem er heldur und- arlegt nafn á dagskrá sem stendur frá klukkan 11 til 23. En nóg um það, hér skal drepið á því helsta sem blaðamaður og ljósmyndarar Morg- unblaðsins urðu vitni að þennan um- rædda dag. Draugagangur í Trygginga- miðstöðinni var ofarlega á óskalist- anum yfir það sem blaðamann lang- aði að sjá. Það kom í ljós að flestir gestir Menningarnætur höfðu í fór- um sínum samskonar óskalista þar sem röðin við Aðalstrætið var feiknalöng og minnkaði ekkert á þeim tíma sem sýningin var opin, frá klukkan 13 til 21. Fjöldi fólks stóð og hvatti hlaupa- garpa Reykjavíkurmaraþonsins síð- ustu metrana. Hlauparar voru að tínast í mark fram eftir degi enda hljóp hver á sínum hraða. Einn veg- farenda, sem sjálfur hafði ekki hlaupið, heyrðist hvísla í hæðnistón að félaga sínum; „Þarna koma þeir síðustu loksins í mark.“ Hljómsveitin Todmobile var eitt af stóru númerum kvöldsins en tók smá forskot á sæluna um miðjan daginn, líklega til æfingar og gæða- prófunar á hljóðkerfinu. Örfár hræður fylgdust með sveitinni taka nokkur lög, enda atburðurinn ekki hluti af auglýstri dagskrá. Einhver frumlegasti atburður Menningarnætur var tónlistar- manntafl sem att var á útitaflinu við Lækjargötu. Liðsmenn í Lúðrasveit Reykjavíkur voru í hlutverkum tafl- manna og léku á hljóðfæri sín eftir því hvernig leikurinn þróaðist. Bráð- fyndin hljóð bárust til dæmis úr blást- urshljóðfærunum þegar einhver tafl- mannanna var drepinn. Skákin var svo knúin áfram af namibískum skák- manni og Grænlandsmeistaranum í íþróttinni. Einhver skapandi sumarhópa Hins hússins hafði komið sér fyrir á horni Pósthússtrætis og Austurstrætis þar sem þátttakendur dilluðu sér í takt við tónlist sem þeir einir heyrðu. Út á götu bárust svo hressilegir tónar hljómsveitarinnar Llama sem lék fyr- ir viðstadda. Aðstandendur vefsíðunnar ljod.is leyfðu gestum og gangandi að spreyta sig í ljóðagerð á Lækjarorgi en þátttakendur máttu nota þau orð sem fyrir koma í íslenska þjóð- söngnum til að búa til ný ljóð. Næst lá leiðin í húsnæði KB banka við Austurstræti þar sem ísskúlptúr- ar með merki bankans máttu muna sinn fífil fegri vegna sólskinsins. Inni í mannhafinu í bankanum léku hinir spilaglöðu South River Band á alls oddi og komu þess á milli með til- kynningar um ágæti lánakjara KB banka. Metal-hljómsveitin Amor e Morte frá Akureyri lék fyrir hóp fólks við Laugarveg 46 og virtust ungir sem aldnir kunna að meta tónlistina. Ung stúlka, á að giska fjögurra ára, hnykkti til höfðinu í takt við hávaða- samt rokkið. Samkomulag við veðurguðina Landsbankinn bauð upp á fjöl- breytta tónleikadagskrá í tilefni dagsins. Vegna mannmergðar var það ekki á allra færi að komast inn fyrir til að hlýða á fagra tóna og því var vel til fundið að útvarpa þeim í há- tölurum út á Austurstrætið svo gang- andi vegfarendur gætu notið þeirra líka. Margt var um manninn í Ljós- myndasafni Reykjavíkur þar sem stendur yfir sýning átta suður-afrískra ljósmyndara. Alseny and the African Voices fluttu stórskemmtilega tónlist á bongótrommur og fengu misfeimin börn til að dansa í takt við trumbuslátt- inn. Í Ljósmyndasafninu var jafnframt hægt að klæða sig upp í ýmsa skemmti- lega búninga og láta smella af sér einni mynd, tilvalið í jólakortin! Auk áðurtalinna atburða var jafn- framt hægt að gera góð kaup á úti- markaði í porti Sirkuss, keyra einn hring á mótorhjóli ásamt einhverjum úr Sniglunum, smakka á heilsteiktu nauti við Vesturgötu 1, kaupa listaverk á uppboði undir stjórn Þorsteins Guð- mundssonar, fræðast um sýningu Die- ters Roths í Listasafni Reykjavíkur undir leiðsögn Björns, sonar lista- mannsins, og er þá langt því frá allt upptalið. Það er kosturinn við hátíða- höld af þessu tagi að klisjan um að „all- ir geti fundið eitthvað við sitt hæfi“ á vel við. Maður verður bara að gera sér grein fyrir því í upphafi að það er ekki möguleiki að ná að sjá allt sem í boði er til að þjást ekki af valkvíða. Tugþúsundir manna komu svo sam- an á Miðbakkanum en þar fóru fram stórtónleikar Rásar 2 og Rauða kross- ins þar sem fram komu Hjálmar, Í svörtum fötum, KK og Maggi Eiríks og Todmobile. Menningarnótt lauk svo með flugeldasýningu að vanda. Var engu líkara en að veðurguðirnir hefur gert samkomulag við skipuleggjendur hátíðarinnar því þrátt fyrir smá skúrir yfir daginn byrjaði ekki að rigna fyrr en nokkrar mínútur voru eftir af há- tíðahöldunum í miðbæ Reykjavíkur. Mikið var um ólæti og ölvun í bænum eftir að dagskránni lauk en fram að því voru hátíðahöldin til fyrirmyndar, að sögn lögreglu. Manntafl, ljóðasmíð og heilsteikt naut Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is Mikill áhugi var á draugasýningunni. Fólk þurfti að bíða lengi í biðröð, en á meðan var hægt að horfa á línudansara á Ingólfstorgi. Þessi kona sýndi listir sínar í indverskum Bollywood-dansi í Jónsi söng með Lögreglukórnum og hljómsveit sinni, Í svörtum fötum, á Mið South River Band lék af miklum móð í húsakynnum KB banka.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.