Morgunblaðið - 22.08.2005, Side 11

Morgunblaðið - 22.08.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 11 MENNINGARNÓTT Morgunblaðið/Jim Smart Megasukk lék fyrir gesti og gangandi. Félagarnir brugðust ekki aðdáendum sínum.Skífunni. bakka Reykjavíkurhafnar. Jónsi er þekktur fyrir líflega sviðsframkomu. Taflmaður í manntaflinu sem teflt var við Lækjargötu. STJÓRN Menningarnætur telur að aldrei áður hafi svo margir sótt hátíðina fyrri hluta dagsins, en talið er að á milli 30 og 40 þúsund manns hafi verið í bænum um miðjan daginn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu er áætlað að um það bil níutíu þúsund manns hafi verið á tónleikum og horft á flugeldasýningu um kvöldið. Í tilkynningu frá stjórn Menningarnætur segir að stjórnin sé mjög ánægð með alla framkvæmd hátíð- arinnar og skipulag og þakklát fyrir aðstoð og stuðn- ing þeirra fjölmörgu sem að undirbúningi komu. „Menningarnótt er fjölmennasta hátíð á Íslandi fyrr og nú og því við því að búast að víða sé þröng á þingi og biðraðir myndist víða. Öllum gestum Menning- arnætur vill stjórnin þakka fyrir kurteisi, biðlund og háttvísi í samskiptum hver við annan og við starfs- menn hinna mörgu fyrirtækja og stofnana sem opn- uðu dyr sínar þennan dag.“ Stjórnin vill sérstaklega þakka samstarf við lögregl- una í Reykjavík, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, bráðadeild LHS, Saman-hópinn, Strætó bs. og alla aðra sem komu að því að skipuleggja og sjá um eftirlit. Aldrei fleiri gestir fyrri hluta dags HÁTÍÐ menningarnætur gekk vel fyrir sig og mun fleira fólk var að deginum til í bænum en í fyrra en heldur færra á kvölddagskránni, að sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlög- regluþjóns hjá lögreglunni í Reykja- vík. Áætlað er að um 80–90 þúsund manns hafi verið í miðborg Reykja- víkur á laugardagskvöldið en um 100 þúsund manns voru á hátíðinni í fyrra. Geir Jón segir dagskrána yfir dag- inn og fram yfir flugeldasýninguna hafa gengið afar vel fyrir sig og verið án óhappa og slysa. Um einn og hálf- an tíma hafi tekið að koma umferð úr bænum eftir flugeldasýninguna sem þykir ekki langur tími miðað við hve umferðin var mikil og þung. Hins vegar hafi orðið breyting á ástandinu þegar flugeldasýningunni lauk og næturlífið tók við. „Þá tekur við annar bragur sem við viljum al- veg slíta úr tengslum við hátíð menningarnætur,“ segir Geir Jón en mikil drykkja og læti voru í bænum um nóttina og mun meiri en í fyrra. „Það var nóg að gera að taka á því,“ segir Geir Jón, sem telur að rigning og kuldi kunni að hafa spilað þar inn í. Um 50 lögreglumenn á vakt Lögreglan í Reykjavík var með mikinn viðbúnað í bænum á laugar- dag. Um nóttina og yfir daginn voru alls um 50 lögreglumenn að störfum og barst lögreglunni í Reykjavík meðal annars liðsauki frá Snæfells- nesi, Búðardal og Akranesi. Lögreglumenn höfðu meðal ann- ars afskipti af manni sem hafði risp- ast á hálsi eftir hníf og blætt talsvert og er talið að hnífsárið hafi komið til í aðdraganda slagsmála sem urðu á Ingólfstorgi. Í Austurstræti var Daihatzu-bif- reið velt og er talið að hópur manna hafi tekið sig saman og velt bílnum. Bíll frá Vöku var kallaður út og tók bílinn burt. Lögregla gerði athuganir á sjófar- endum við höfnina í gær, en fjöldi smábáta siglir út fyrir höfnina á menningarnótt til að fylgjast með flugeldasýningunni frá sjó. Kannað var hvort sjófarendur hefðu neytt áfengis og eins hvort þeir hefðu full skipstjórnarréttindi og á nokkrum bátum var misbrestur á þessu. Eitt dæmi var um að björgunarbátur væri læstur niðri í lest bátsins. Eitthvað var um að skemmtistaðir væru opnir lengur en löglegt er og fóru lögreglumenn inn á tvo til þrjá staði til að ýta við þeim sem reka skemmtunina og fá þá til að loka. Þá voru tólf ungmenni á aldrinum 12–14 ára tekin upp í lögreglubíl og komið heim um klukkan tvö um nótt- ina þar sem þau voru úti eftir að leyfilegum útivistartíma þeirra var lokið. Eins og áður sagði var mikið um slagsmál í bænum og að sögn lögreglu var eitthvað um að þau leiddu til beinbrota. Flestir voru farnir úr miðbænum um áttaleytið á sunnudagsmorgun. Um 90 þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur Mikil ólæti um nóttina Morgunblaðið/Júlíus Um 50 lögreglumenn voru að störfum og barst lögreglunni í Reykjavík m.a. liðsauki frá Snæfellsnesi, Búðardal og Akranesi. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn er óánægður með drykkjulætin sem brutust út um nóttina. Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is Morgunblaðið/Halldór Kolbeins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.