Morgunblaðið - 22.08.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 11
MENNINGARNÓTT
Morgunblaðið/Jim Smart
Megasukk lék fyrir gesti og gangandi. Félagarnir brugðust ekki aðdáendum sínum.Skífunni.
bakka Reykjavíkurhafnar. Jónsi er þekktur fyrir líflega sviðsframkomu.
Taflmaður í manntaflinu sem teflt var við Lækjargötu.
STJÓRN Menningarnætur telur að aldrei áður hafi
svo margir sótt hátíðina fyrri hluta dagsins, en talið er
að á milli 30 og 40 þúsund manns hafi verið í bænum
um miðjan daginn. Samkvæmt upplýsingum lögreglu
er áætlað að um það bil níutíu þúsund manns hafi verið
á tónleikum og horft á flugeldasýningu um kvöldið. Í
tilkynningu frá stjórn Menningarnætur segir að
stjórnin sé mjög ánægð með alla framkvæmd hátíð-
arinnar og skipulag og þakklát fyrir aðstoð og stuðn-
ing þeirra fjölmörgu sem að undirbúningi komu.
„Menningarnótt er fjölmennasta hátíð á Íslandi fyrr
og nú og því við því að búast að víða sé þröng á þingi
og biðraðir myndist víða. Öllum gestum Menning-
arnætur vill stjórnin þakka fyrir kurteisi, biðlund og
háttvísi í samskiptum hver við annan og við starfs-
menn hinna mörgu fyrirtækja og stofnana sem opn-
uðu dyr sínar þennan dag.“
Stjórnin vill sérstaklega þakka samstarf við lögregl-
una í Reykjavík, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins,
bráðadeild LHS, Saman-hópinn, Strætó bs. og alla
aðra sem komu að því að skipuleggja og sjá um eftirlit.
Aldrei fleiri gestir
fyrri hluta dags
HÁTÍÐ menningarnætur gekk vel
fyrir sig og mun fleira fólk var að
deginum til í bænum en í fyrra en
heldur færra á kvölddagskránni, að
sögn Geirs Jóns Þórissonar, yfirlög-
regluþjóns hjá lögreglunni í Reykja-
vík. Áætlað er að um 80–90 þúsund
manns hafi verið í miðborg Reykja-
víkur á laugardagskvöldið en um 100
þúsund manns voru á hátíðinni í
fyrra.
Geir Jón segir dagskrána yfir dag-
inn og fram yfir flugeldasýninguna
hafa gengið afar vel fyrir sig og verið
án óhappa og slysa. Um einn og hálf-
an tíma hafi tekið að koma umferð úr
bænum eftir flugeldasýninguna sem
þykir ekki langur tími miðað við hve
umferðin var mikil og þung.
Hins vegar hafi orðið breyting á
ástandinu þegar flugeldasýningunni
lauk og næturlífið tók við. „Þá tekur
við annar bragur sem við viljum al-
veg slíta úr tengslum við hátíð
menningarnætur,“ segir Geir Jón en
mikil drykkja og læti voru í bænum
um nóttina og mun meiri en í fyrra.
„Það var nóg að gera að taka á því,“
segir Geir Jón, sem telur að rigning
og kuldi kunni að hafa spilað þar inn
í.
Um 50 lögreglumenn á vakt
Lögreglan í Reykjavík var með
mikinn viðbúnað í bænum á laugar-
dag. Um nóttina og yfir daginn voru
alls um 50 lögreglumenn að störfum
og barst lögreglunni í Reykjavík
meðal annars liðsauki frá Snæfells-
nesi, Búðardal og Akranesi.
Lögreglumenn höfðu meðal ann-
ars afskipti af manni sem hafði risp-
ast á hálsi eftir hníf og blætt talsvert
og er talið að hnífsárið hafi komið til
í aðdraganda slagsmála sem urðu á
Ingólfstorgi.
Í Austurstræti var Daihatzu-bif-
reið velt og er talið að hópur manna
hafi tekið sig saman og velt bílnum.
Bíll frá Vöku var kallaður út og tók
bílinn burt.
Lögregla gerði athuganir á sjófar-
endum við höfnina í gær, en fjöldi
smábáta siglir út fyrir höfnina á
menningarnótt til að fylgjast með
flugeldasýningunni frá sjó. Kannað
var hvort sjófarendur hefðu neytt
áfengis og eins hvort þeir hefðu full
skipstjórnarréttindi og á nokkrum
bátum var misbrestur á þessu. Eitt
dæmi var um að björgunarbátur
væri læstur niðri í lest bátsins.
Eitthvað var um að skemmtistaðir
væru opnir lengur en löglegt er og
fóru lögreglumenn inn á tvo til þrjá
staði til að ýta við þeim sem reka
skemmtunina og fá þá til að loka.
Þá voru tólf ungmenni á aldrinum
12–14 ára tekin upp í lögreglubíl og
komið heim um klukkan tvö um nótt-
ina þar sem þau voru úti eftir að
leyfilegum útivistartíma þeirra var
lokið. Eins og áður sagði var mikið
um slagsmál í bænum og að sögn
lögreglu var eitthvað um að þau
leiddu til beinbrota.
Flestir voru farnir úr miðbænum
um áttaleytið á sunnudagsmorgun.
Um 90 þúsund manns voru í miðbæ Reykjavíkur
Mikil ólæti um nóttina
Morgunblaðið/Júlíus
Um 50 lögreglumenn voru að störfum og barst lögreglunni í Reykjavík m.a. liðsauki frá Snæfellsnesi, Búðardal og
Akranesi. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn er óánægður með drykkjulætin sem brutust út um nóttina.
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins