Morgunblaðið - 22.08.2005, Page 22
22 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
AUKIÐ hreyfingarleysi barna í
nútímasamfélagi er orðið umhugs-
unarefni vegna þeirra fylgifiska
sem það hefur í för með sér. Í
þessu sambandi er oftast bent á
offitu sem helstu afleiðingu hreyf-
ingarleysis en í umræðunni hafa
gleymst aðrir mik-
ilvægir þættir.
Hreyfingarleysið hef-
ur nefnilega ekki að-
eins áhrif á holdafar
barna heldur hefur
það einnig neikvæð
áhrif á almenna
þroskaþætti þeirra,
s.s. hreyfi- og fé-
lagsþroska. Hreyfing-
arleysinu fylgja
keðjuverkandi áhrif
sem geta komið niður
á eðlilegri þróun
þessara þroskaþátta. Þau börn
sem ekki taka þátt í íþróttum og
leikjum með öðrum eiga það á
hættu að fá ekki næga hreyfiörvun
og staðna því að hluta til í hreyfi-
þroska. Ef það gerist veigra börn
sér við því að taka þátt í íþróttum
og leikjum og eiga þá oft erfitt
með að öðlast félagslega við-
urkenningu jafningjahópsins.
Ný íslensk rannsókn sem gerð
var á tengslum hreyfiþroska barna
og félagslegrar stöðu þeirra innan
jafningjahópsins (Heiðrún Björk
Jónsdóttir og Pétur Veigar Pét-
ursson 2005) sýnir fram á sterk
tengsl milli þessara tveggja þátta.
Þau börn sem fengu háa einkunn á
hreyfifærniprófi (Movement ABC)
komu yfirleitt einnig vel út á fé-
lagstengslaprófi (sociometry).
Þessu var einnig öfugt farið, þ.e.
að þau börn sem fengu lágt á
hreyfifærniprófi komu yfirleitt
verr út á félagstengslaprófi en
þeir sem höfðu yfir góðum heyfi-
þroska að ráða. Fylgni rannsókn-
arþáttanna tveggja var marktæk
miðað við tölfræðileg öryggismörk
0,01, sem þýðir að hægt er að
segja með 99% vissu að tengslin
eru ekki til komin fyr-
ir tilviljun.
Í ljósi þessa er mik-
ilvægt að þeir sem
standa á bak við
barna- og unglingaí-
þróttir, þjálfarar og
aðrir stjórnendur, til-
einki sér fagleg vinnu-
brögð því á herðum
þeirra hvílir mikil
ábyrgð. Iðkendur eiga
að fá krefjandi verk-
efni við hæfi og með
því fá þeir tækifæri til
að efla líkams- og félagsþroska
ásamt öðrum þroskaþáttum.
Knattspyrnufélagið Valur mót-
aði árið 2003 stefnu félagsins í
málefnum barna og unglinga í
samstarfi við Íþróttabandalag
Reykjavíkur. Markmið stefnumót-
unarinnar var að auka almennt
faglega starfsemi félagsins á öllum
sviðum, t.d. í málefnum þjálfunar,
stjórnsýslu, vímuvarna, eineltis og
jafnréttis. Stefnunni voru gerð góð
skil í útgefinni íþróttanámskrá
Knattspyrnufélagsins Vals.
Til að sinna þeirri samfélagslegu
skyldu sem Valur gegnir býður fé-
lagið upp á skipulagða íþrótta-
iðkun fyrir börn allt frá þriggja
ára aldri. Í haust er ráðgert að
Valur bjóði í fyrsta skipti upp á
íþróttaskóla fyrir 3–6 ára börn þar
sem unnið verður markvisst að efl-
ingu hreyfi- og félagsþroska
barnanna. Einnig býður Valur upp
á íþróttaskóla barnanna í sam-
starfi við hverfisskólana, ÍTR og
ÍBR fyrir börn í 1. bekk grunn-
skóla. Íþróttaskólarnir verða starf-
ræktir á veturna en á sumrin býð-
ur Valur upp á Sumarbúðir í borg
(sjá upplýsingar á valur.is) sem er
leikjanámskeið fyrir 5–10 ára börn
þar sem boðið er upp á fjölbreytta
og skemmtilega dagskrá. Frá sex
ára aldri gefst börnum kostur á að
hefja æfingar innan deilda félags-
ins m.t.t. iðkendalista og geta þá
byrjað að æfa knattspyrnu, hand-
knattleik og körfuknattleik. Á öll-
um sviðum og á öllum aldurs-
skeiðum býður Valur upp á
faglega þjónustu sem hefur það að
markmiði að efla almennan þroska
einstaklingsins í gegnum leik og
starf.
Mikill uppgangur er innan
Knattspyrnufélagsins Vals og
bjóðum við börn og unglinga vel-
komna til leiks með okkur. Segjum
hreyfingarleysinu stríð á hendur
og leyfum börnunum okkar að
stunda uppbyggilegar, þroskandi
og skipulagðar íþróttir og hreyf-
ingu.
Hugum að hreyfingu og
hreysti meðal barnanna okkar
Pétur Veigar Pétursson fjallar
um gildi þess að börn fái næga
hreyfingu
Pétur Veigar Pétursson
’Þau börn sem fenguháa einkunn á hreyfi-
færniprófi komu yf-
irleitt einnig vel út á fé-
lagstengslaprófi …‘
Höfundur er íþróttafulltrúi
Knattspyrnufélagsins Vals.
DAGFORELDRAR reka einka-
dagvistun á heimilum sínum eða
leigja húsnæði undir
starfsemi sína.
Ég álít að flestir
geri sér grein fyrir að
öll einkafyrirtæki
bera fulla ábyrgð á
fyrirtæki sínu og
þurfa að borga það
sem kostar að reka
fyrirtækið. Hvað varð-
ar þessi mikilvægu
verktakafyrirtæki
virðist það standa í
mörgum að þau eiga
alfarið allan þann rétt
sem önnur einkafyr-
irtæki hafa en að sjálfsögðu einnig
þær skyldur sem fylgja rekstr-
inum.
Mikils misskilnings virðist gæta í
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar um
þessi atriði. Allt frá því að Reykja-
víkurlistinn tók við stjórn borg-
arinnar hefur barátta dagforeldra
við stjórnsýsluna einkennst af því
að þurfa að verja rétt sinn daginn
út og inn. Virðist öll afgreiðsla
mála einkennast af að þeir sem
koma að þessari stétt frá borg-
arinnar hálfu séu ekki
færir um að gera sér
grein fyrir að dagvist-
unin sé rekin sem
einkafyrirtæki en álíta
að þeir megi skipta
sér af daglegum
rekstri þess eins og að
borgin reki það.
Mitt álit er að borg-
arstarfsmenn hafi að-
eins leyfi til að huga
að barnavernd og ör-
yggismálum innan
íbúðarinnar. Ég byggi
þetta á þeim lögum
sem gilda um starfsemina og tel
mig vera vel inni í þeim málum þar
sem ég var í forustu til margra ára
til að fá þau lög gerð og með í að
gera reglugerðina.
Því miður einkennist starfsemi
umsjónaraðila mjög oft af hroka og
er eins og þeir ásamt stjórn Leik-
skóla Reykjavíkur geri sér ekki
grein fyrir í hverju starfsemi
þeirra felst.
Umboðsmaður Alþingis hefur
dæmt í máli tveggja dagmæðra þar
sem kom fram að stjórnsýslan frá
A til Ö hafði brotið á rétti þeirra
til réttrar málsmeðferðar. Virðist
vera að stjórnsýslufólkið hafi fyrst
og fremst reynt að verja eigin
starfsmenn í þeirra lögleysu og
órétti gagnvart dagmæðrunum.
Þetta kostaði um það bil 600.000
kr. sem dagmæðurnar og „Barna-
vistun“, félag dagforeldra í Reykja-
vík borguðu. Það gefur auga leið
að dagforeldrar hafa ekki efni á að
standa í svona stríði við stjórn-
sýsluna.
Nú hefur komið upp rannsókn á
skattamálum þessara einkafyr-
irtækja. Þau mál hafa verið mjög
einkennileg frá upphafi og er nauð-
synlegt að gengið sé rétt frá þeim
á landsvísu og þess verði gætt að
þessi fyrirtæki fái sinn lagalega
rétt og einnig borgi þá rétta skatta
eftir landslögum. Svo einkennilega
er unnið að þessum málum að í
nóvember 2004 eru Leikskólar
Reykjavíkur beðnir um að gefa
upp það sem þeir hlutuðust til um
að borga fyrir foreldrana til dag-
foreldranna. Borgin styrkir ekki
dagforeldrana um eina krónu en
foreldrar vistaðra barna fá nið-
urgreiðslu frá borginni. Gögnin
voru send án þess að láta dagfor-
eldra vita og þeir sem unnu fyrir
skattstjóra að þessu máli höfðu
aldrei samband við rétta aðila eins
og gert er við sjálfstæð fyrirtæki.
Þarna varð algjör trúnaðarbrestur
milli flestra dagforeldra og starfs-
manna Leikskóla Reykjavíkur. Síð-
an hafa þessir starfsmenn skatt-
stjórans verið að funda með
starfsmönnum Leikskóla Reykja-
víkur en ekki talað við for-
ustumenn félags dagforeldra.
Ég tel þetta lögleysu og algjöra
lítilsvirðingu við starfsemi dagfor-
eldra. Mun þessu verða mótmælt
af hörku og því miður þarf að
kosta til lögfræðiaðstoð einu sinni
enn til að verjast stjórnsýslu op-
inberra starfsmanna Reykjavík-
urborgar. Einnig þarf að ganga úr
skugga um að starfsmenn skatt-
stjórans fari eftir lögum og séu
ekki að kalla til fólk sem hefur
engan rétt til að fjalla um fjármál
dagvistunar á einkaheimilum.
Lögð hefur verið inn beiðni til
Fjármálaráðuneytisins að vinna að
reglugerð um þessa dagvistun
vegna skattamálanna sem mun þá
vera fyrir allt landið. Var mjög vel
tekið í að athuga þetta mál og hef
ég verið beðin um að fylgja þessum
málum eftir fyrir hönd dagfor-
eldra.
Dagvistun á einkaheimilum
Selma Júlíusdóttir fjallar
um dagvistarmál
Selma Júlíusdóttir
’Borgin styrkir ekkidagforeldrana um
eina krónu en foreldrar
vistaðra barna fá
niðurgreiðslu frá
borginni.‘
Höfundur er fyrrverandi formaður
dagforeldra í Reykjavík.
FRÁ blautu barnsbeini stefna
flestir að því að mennta sig, koma
sér upp heimili, eignast börn, hvítt
grindverk og allan pakkann. Þetta
er það sem samfélagið ætlast til
og ber í raun hag af. En hvernig
styður það umhverfi sem við búum
við þessa „gullnu“ leið? Húsnæð-
isverð fer hækkandi, en er leyst
með hærri lánum sem hægt er að
borga af það sem eftir er af lífinu
og jafnvel arfleiða börnin sín að.
Krafa um menntun er alltaf að
aukast og fólk er því lengur en áð-
ur að koma sér upp því lífi sem
það stefnir að.
Breyting á lögum
Á þessu ári tóku í
gildi ný lög um fæð-
ingarorlof sem segja
að nú skuli reikna
greiðslur orlofsins
miðað við laun til-
vonandi foreldra tvö
ár til baka, í stað
eins árs áður.
Þegar fólk er að
koma á vinnumark-
aðinn eftir langt og
strangt framhalds-
nám tekur það ein-
hvern tíma að komast í þann
launaflokk sem það stefnir að.
Fólk á barneignaraldri er það fólk
sem hækkar hvað hraðast í laun-
um og stendur auk þess oft á tíð-
um undir hærri afborgunum en
þeir sem náð hafa lengri starfs-
aldri.
Greiðslur úr Fæðingaorlofssjóði
fá foreldrar sem hafa verið sam-
fellt í starfi í a.m.k. sex mánuði
fyrir töku fæðingarorlofs. Mán-
aðarleg greiðsla til foreldra í fullu
orlofi nemur 80% af meðallaunum
síðustu tveggja ára. Þá skiptir
ekki máli hvort viðkomandi er ný-
kominn á vinnumarkaðinn eða
ekki. Þess má einnig geta að rík-
isstarfsmenn fá 100% laun greidd
í fæðingarorlofi en borga þó hlut-
fallslega jafnháan skatt og þeir
sem vinna hjá einkareknum fyr-
irtækjum.
Útreikningur orlofsins
hjá námsmönnum
Einstaklingur sem er nýkominn
úr námi og hefur unnið í eitt ár
fær fæðingarorlof samkvæmt
þessu eina ári. Auk þess eru
reiknaðir með þeir mánuðir sem
viðkomandi vann í sumarvinnu
meðan á námi stóð, í þessu tilfelli
eitt sumar. Þeir mánuðir sem við-
komandi var í skóla eru reyndar
frátaldir. Þetta gefur ekki raun-
verulega mynd af tekjum viðkom-
andi því sumarvinna gefur í flest-
um tilfellum lægri laun en fram-
tíðarstarf og oft á
tíðum munar þetta
drjúgri upphæð. Þegar
litið er til þess að við-
komandi á mjög líklega
eftir að vera á vinnu-
markaðnum í mörg ár
og hækka nokkuð hratt
í launum, er þetta „lé-
leg tímasetning“ til að
eignast barn. Við erum
jú flest að mennta okk-
ur meðal annars til
þess að eiga möguleika
á hærri launum.
Við útreikning á fæð-
ingarorlofsgreiðslum er miðað við
tvö tekjuár fyrir fæðingu barns
sem þýðir að síðasti mánuður sem
tekinn er með í reikninginn er
desember. Greiðsluviðmiðunin fer
því algerlega eftir því hvenær
barnið fæðist. Ef það fæðist í jan-
úar eru allir mánuðir teknir með í
reikninginn að fæðingu barnsins.
Aftur á móti ef barnið fæðist í
nóvember skiptir ekki máli hvort
laun hafi hækkað síðasta árið. Ef
hægt er að horfa til baka tvö ár
launalega séð hversvegna er þá
ekki hægt að taka tillit til launa
síðustu mánuði fyrir fæðingu
barns?
Mín skoðun er sú að vinnufært
fólk eigi að skila sínu til sam-
félagsins og uppskera samkvæmt
því. Það er ekki hægt að horfa
framhjá því að við borgum öll
skatt af laununum okkar. Er því
ekki eðlilegt að fæðingarorlof sé
reiknað miðað við þær tekjur sem
einstaklingur hefur rétt fyrir fæð-
ingu barns og á líklega eftir að
hafa í framtíðinni, en ekki miðað
við laun löngu fyrir fæðingu
barnsins og á námstíma.
Fæðingarorlof
námsmanna
Kristín Þorleifsdóttir fjallar um
fæðingarorlofsrétt ’Er því ekki eðlilegt aðfæðingarorlof sé reikn-
að miðað við þær tekjur
sem einstaklingur hefur
rétt fyrir fæðingu barns
og á líklega eftir að hafa
í framtíðinni...‘
Kristín Þorleifsdóttir
Höfundur er varaformaður Banda-
lags íslenskra námsmanna (BÍSN).
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Jónína Benediktsdóttir: Sem
dæmi um kalrifjaðan siðblindan
mann fyrri tíma má nefna Rocke-
feller sem Hare telur einn spillt-
asta mógúl spilltustu tíma...
Sturla Kristjánsson: Bráðger
börn í búrum eða á afgirtu svæði
munu naumast sýna getu sína í
verki; þeim er það fyrirmunað og
þau munu trúlega aldrei ná þeim
greindarþroska sem líffræðileg
hönnun þeirra gaf fyrirheit um.
Kristján Guðmundsson: Því
miður eru umræddar reglur nr.
122/2004 sundurtættar af óskýru
orðalagi og í sumum tilvikum
óskiljanlegar.
Sigurjón Bjarnason gerir grein
fyrir og metur stöðu og áhrif
þeirra opinberu stofnana, sem
heyra undir samkeppnislög,
hvern vanda þær eiga við að glíma
og leitar lausna á honum.
Þorsteinn H. Gunnarsson:
Nauðsynlegt er að ræða þessi mál
með heildaryfirsýn og dýpka um-
ræðuna og ná um þessi málefni
sátt og með hagsmuni allra að
leiðarljósi, bæði núverandi bænda
og fyrrverandi.