Morgunblaðið - 22.08.2005, Page 28
28 MÁNUDAGUR 22. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Raðauglýsingar 569 1100
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar
um matsskyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtalin framkvæmd skuli ekki háð mati á um-
hverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000
um mat á umhverfisáhrifum:
Virkjun Fjarðarár í Seyðisfirði, Seyðis-
fjarðarkaupstað
Ákvörðunin liggur frammi hjá Skipulagsstofn-
un, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Hana er einn-
ig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnunar,
www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til
umhverfisráðherra og er kærufrestur til
19. september 2005.
Skipulagsstofnun
FRÉTTIR
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 18.8.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Jón Hallgrímss. - Björn Pétursson 244
Ægir Ferdinandsson - Geir Guðmss. 242
Oliver Kristófss. - Sæmundur Björnss. 242
Árangur A-V
Ólafur Ingvarss. - Jóhann Lúthersson 282
Einar Einarsson - Lilja Kristjánsd. 250
Oddur Jónsson - Kári Sigurjónsson 248
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 19. ágúst var spilað á
sjö borðum og urðu úrslitin þessi í
N/S:
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 200
Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 179
Sverrir Gunnarss. – Sigurður Hallgríms. 178
A/V
Ingimundur Jónsson – Helgi Einarsson 185
Sófus Berthelsen – Kristján Þorláksson 177
Guðm. Árnason – Maddý Guðmundsd. 174
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
XXIV. Evrópumót kylfinga 55 ára
og eldri fór fram dagana 10.–12.
ágúst sl. á völlum golfklúbbsins
Frilford Heath í Abington í ná-
grenni Oxford í Englandi í góðu
veðri á skemmtilegum völlum. Það
var 21 Evrópuþjóð, sem sendi lið
til keppninnar, sem er sveita-
keppni. Hver þjóð sendir tvær 6
manna sveitir og keppir önnur
þeirra án forgjafar, en hin með
forgjöf. Leiknir eru þrír hringir
og telja fjórir bestu í hverju liði í
hverjum hring.
Meðal keppenda mátti finna
marga góða kylfinga og má m.a.
geta þess, að einn keppandi, Breti
var með +2.8 í forgjöf og annar
með +1.5 í forgjöf og nokkrir við 0
í forgjöf.
Íslendingar hafa verið með í
þessari keppni sl. 20 ár og liðið
sem keppir án forgjafar náði að
þessu sinni mjög góðum árangri
og hafnaði í 9. sæti og lék á sam-
tals 992 höggum. Sveitina skipuðu
þeir Þorsteinn Geirharðsson, GS,
Bjarni Jónsson, GR, Friðgeir
Guðnason, GR, Gunnsteinn Skúla-
son, GR, Jón Ólafsson, GKG og Jó-
hann Reynisson, NK. Liðsstjóri var
Jón Ólafur Jónsson, GS. – Ítalir
sigruðu með yfirburðum og léku á
915 höggum. Finnar urðu í 2. sæti
á 940 höggum og Spánverjar í 3.
sæti á 941 höggum.
Í keppni með forgjöf hefur Ís-
lendingum oft gengið betur en að
þessu sinni, en þeir höfnuðu nú í
16. sæti á 911 höggum, en sveitina
skipuðu þeir Steinar Sigtryggsson,
GS, Ingvar Ingvarsson, GS, Einar
Guðberg, GS, Björn Karlsson, GK,
Friðþjófur Einarsson, GSE og
Björn Eysteinsson, GSE. Liðsstjóri
var Helgi Daníelsson, GR. – Spánn
sigraði í þessum flokki á 837 högg-
um. Austurríki varð í 2. sæti á 839
höggum og Finnland í 3. sæti á
842 höggum.
Vegna mistaka fyrsta daginn
mættu Bretar, að hluta til, of seint
á teig fyrsta daginn og var sveit-
um þeirra vísað úr sveitakeppn-
inni, en þeir voru trúlega með
bestu sveitina í keppni án for-
gjafar.
Ríkarður Pálsson forseti sat
fund forseta Evrópusambanda,
sem jafnan er haldinn í tengslum
við mótið. Næsta EM karla 55 ára
og eldri verður haldið í Frakklandi
um miðjan júlí árið 2006.
Eldri kylf-
ingar í Evr-
ópukeppni í
Englandi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Ragnheiði M.
Ólafsdóttur hdl. vegna fréttar sem
birtist í Morgunblaðinu laugardag-
inn 13. ágúst sl. Í þeirri frétt er að
finna athugasemdir eiganda heild-
verslunarinnar Arnarvíkur vegna
umfjöllunar um dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 19. júlí sl. í máli fé-
lagsins vegna sölu þess á vörunni
Life Extension.
„Með ofangreindum dómi var
Arnarvík dæmd til greiðslu skaða-
bóta vegna brota á vörumerkjarétti
félagsins Celsus, og staðfest var
lögbann það sem lagt hafði verið á
Arnarvík við því að félagið seldi
vöruna Life Extension í þeim um-
búðum og með því útliti sem að hún
hafði verið seld í. Nauðsynlegt er að
koma að leiðréttingum og skýring-
um vegna þessara athugasemda þar
sem vegið er að heiðri Celsus sem
hefur um árabil selt umrædda vöru
undir vörumerki sínu við góðan
orðstír.
Málið snerist um brot Arnarvíkur
á vörumerkjarétti Celsus sem fólst í
því að umrædd vara var flutt inn í
eins umbúðum og með útliti sem
augljóslega var eftirlíking af útliti
vöruumbúða Celsus. Útlit um-
búðanna var augljóslega til þess
fallið að neytendur rugluðust á vör-
unum, eins og Héraðsdómur
Reykjavíkur staðfestir með þeim
orðum að ekki verði „hjá því komist
að sjá hvað merkin eru lík“ og að
telja verði „að veruleg ruglings-
hætta sé fyrir hendi“.
Mál þetta snerist alls ekki um
það að koma í veg fyrir heilbrigða
samkeppni á markaði eins og ýjað
er að í athugasemdum Arnarvíkur.
Málið snerist einmitt um það að fá
viðurkenningu með dómi um að
samkeppni á markaði eigi að vera
heilbrigð og rétt, henni sé ekki
komið á með brögðum þar sem til-
gangurinn er vísvitandi að láta
neytendur ruglast á vörum og hagn-
ast þannig á áralöngu markaðsstarfi
þeirra sem fyrstir voru til. Arnarvík
var dæmd til greiðslu skaðabóta
vegna þessa athæfis. Það kallast
ekki heilbrigð samkeppni þegar að-
ili kemur með vöru á markað undir
heiti og útliti sem líkist vörumerki
annars aðila sem hefur eytt miklum
tíma og fjármunum í að byggja upp
vörumerki sitt og kynna. Þess
vegna er staðinn vörður um vöru-
merkjarétt aðila og mikilsvert að fá
staðfestingu á þýðingu vörumerkja-
verndar með dómum eins og þess-
um.
Í ofangreindu máli var ekki deilt
um vöruna sjálfa eða innihald henn-
ar eins og eigandi Arnarvíkur lætur
liggja að, heldur eingöngu um vöru-
merkið og útlit umbúða þeirra sem
varan var seld í.
Eigandi Arnarvíkur lýkur at-
hugasemdum sínum með því að
auglýsa að vara hans muni verða fá-
anleg á ný „með nýjum límmiðum“.
Við vonum að um frumlegri útgáfu
umbúða verði að ræða í þetta skipt-
ið – heilbrigð samkeppni er góð.“
Life Extension –
heilbrigð samkeppni
Jónas eru margar, ljóslifandi og góð-
ar. Með þessum brotum úr þeim kveð
ég Margréti Ólafsdóttur með þökk og
virðingu. Ég færi Sólveigu Helgu og
Ásgeiri og fjölskyldum þeirra mínar
innilegustu samúðarkveðjur.
Mikil sómakona er gengin. Ég
minnist hennar með hlýhug.
Kristján L. Möller.
Þegar við fréttum af andláti Möggu
í Hlíð eins og hún var alltaf í okkar
huga hrönnuðust upp minningar um
hana og Jónas sem voru okkar næstu
nágrannar á Hlíðarveginum í nokkur
ár, og okkur fannst að við yrðum að
minnast hennar með nokkrum orðum.
Þegar við byggðum húsið okkar á
Hlíðarveginum 1961 og hófum að fylla
það af börnum, voru næstu nágrann-
ar okkar Magga og Jónas sem bjuggu
í Hlíð. Hjá þeim var þá Sigfús Ólafs-
son, afi Möggu, og börnin þeirra Sól-
veig og Ásgeir.
Mikill samgangur var á milli heim-
ilanna og voru þau Magga og Jónas
bæði töluvert upptekin af að fylgjast
með hvernig okkur tækist uppeldi
barnanna. Fylgdust þau vel með
börnum okkar og voru miklir vinir
þeirra. Við Jónas áttum það til að fara
saman í bíó ef frí gafst og oft stóð
hann á götunni og var að fara á taug-
um yfir hve seinn ég var að taka mig
til. Kom þá Magga oft yfir til Auðar
og þær náðu góðu spjalli þegar við
vorum hvergi nærri, en í kringum
Jónas var aldrei nein lognmolla. Hann
var landsfrægur skíða- og íþrótta-
maður sem borið hafði nafn Siglu-
fjarðar á erlendri grundu og kunni að
segja þannig frá að menn veltust um
af hlátri.
Þegar við lítum til baka er þessi
tími svo ótrúlega stuttur, því Jónas
hættir með verslunina Ásgeir sem
hann rak í nokkur ár og flytur til
Reykjavíkur 1967 eða 1968, þegar
síldin yfirgaf Siglufjörð.
Ég hafði þá tekið við starfi rafveitu-
stjóra og vann Magga hjá okkur á raf-
veituskrifstofunni í a.m.k. tvö ár eftir
að Jónas fór suður. Bæði var það að
hún var mikill Siglfirðingur og vildi
búa hér og einnig fannst henni erfitt að
taka sig upp og flytja til Reykjavíkur.
Ég minnist þess tíma með ánægju,
því Magga var einstaklega ljúf og
elskuleg í framkomu og átti hug okk-
ar allra sem unnum hjá Rafveitu
Siglufjarðar á þeim tíma svo og við-
skiptavina sem við vorum í samskipt-
um við.
Eftir að þau fluttu til Reykjavíkur
áttu þau þar svo sannarlega góð ár, en
samverustundirnar við þau urðu allt
of fáar, en við reyndum þó að hitta
þau eins oft og tök voru á.
Við kveðjum Möggu með þökk fyr-
ir áralöng kynni og margar ánægju-
stundir sem við áttum með þeim á
heimili þeirra Hlíð á Siglufirði og í
Reykjavík þar sem hjartahlýja og
gestrisni voru í fyrirrúmi.
Aðstandendum sendum við okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Auður og Sverrir.
MARGRÉT
ÓLAFSDÓTTIR
Elsku mamma.
Mín mesta huggun
er að við töluðum oft
um að ævi hvers manns væri fyr-
irfram ákveðin og þegar við ættum
að fara þá yrði ekkert við því gert og
þetta lægi fyrir okkur öllum. Það er
svo margs að sakna, þessara litlu
hversdagslegu hluta sem voru svo
sjálfsagðir. En það er ekkert sjálf-
sagt í þessu lífi. Hvert augnablik svo
dýrmætt. Ég sakna þess að sitja
með þér að horfa á vini okkar í sjón-
varpinu í hádeginu. Ég sakna litlu
ferðanna sem við fórum svo oft.
Hvort sem það var að kaupa litlar
hirslur, sækja rúmið hennar Snæ-
dísar eða fara í Garðheima. Svo
margar ferðir sem virtust svo litlar
en eru mér svo kærar núna. Mér eru
sérstaklega kær jólin 2002 sem við
héldum í Vík. Allar stundirnar í
Lautinni, í Ullukotinu. Ég mun
sakna þess að sjá þig þegar komandi
minningar verða til en ég veit að þú
verður hjá okkur. Það var alltaf
hægt að stóla á stuðning frá þér
þegar eitthvað bjátaði á og engin
vandamál voru óyfirstíganleg. Ég
man þegar Snædís kom í heiminn
hvað þú ljómaðir. Það leið ekki á
ÞÓRHALLA
EGGERTSDÓTTIR
✝ Þórhalla Egg-ertsdóttir fædd-
íst í Hraungerði í
Álftaveri í V-Skaft.
29. janúar 1948.
Hún lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans 2. ágúst
síðastliðinn og fór
útför hennar fram
frá Bústaðakirkju
12. ágúst.
löngu þangað til þið
voruð orðnar nánast
óaðskiljanlegar enda
finnur góður alltaf
góðan. Hún hefði ekki
getað eignast betri
ömmu eða betri félaga
og mun hún bera þess
merki alla sína ævi að
hafa fengið að alast
upp þessi ár undir
væng þínum og eru
allir hennar bestu
kostir tilkomnir vegna
handleiðslu þinnar.
Ég veit ekki hvernig
er best að þakka þér fyrir allt það
sem þú gafst okkur. Nema að halda
áfram á þeim vegi sem þú sýndir
okkur. Sönn hamingja felst ekki í
veraldlegum hlutum. Heldur í þeim
hug sem maður ber til annarra.
Mig langar að lokum að kveðja
þig með því sem ég kalla Móðurást-
in: Frá fyrsta slagi, til síðasta and-
artaks. Ég mun hvetja þig áfram,
þegar á móti blæs. Ég mun hjúkra
þér, sama hvað fallið er hátt. Ég er
tárið í auga þér, brosið á vörum þér
og stoltið í hjarta þér, þegar þú lítur
fyrst í augun þín. Með fyrsta slagi
kom ég, með síðasta andartaki fer
ég með þér. En við lifum saman að
eilífu, í augunum þínum.
Árni Eggert.
Elsku amma mín.
Ég elska þig svo mikið. Þú ert
núna engill hjá Guði og brosir alltaf
til mín með sólinni. Þú varst alltaf
svo góð og ég sakna þín svo mikið.
Bless amma,
Snædís Birna Árnadóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á
reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/
afmæli“ ásamt frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir há-
degi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í To-
ols/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án
þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar