Morgunblaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 267. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Friðrik Ómar
góður Presley
Það var „Las Vegas-stemning“ í
Broadway á föstudagskvöld | 35
Fasteignir | Vindmyllur Glæsibygging Verðspá Nýbýli
Íþróttir | Borgvardt og Laufey valin best Brynjar Björn hetja
Reading Guðjón Valur markahæstur Haukar sjálfum sér verstir
Dresden. AP, AFP. | Kristilegir demó-
kratar báru sigur úr býtum í borg-
inni Dresden í Þýskalandi en þar var
kosið til þings í gær, hálfum mánuði
síðar en annars staðar í landinu.
Kosningunum í Dresden var frest-
að vegna andláts eins frambjóðand-
ans en niðurstaðan í gær var sú, að
kristilegir demókratar fengu 37,0%
atkvæða en jafnaðarmenn 32,1%.
Þótt niðurstaðan breyti litlu á lands-
vísu, er hún samt mikilvægur sigur
fyrir Angelu Merkel, leiðtoga kristi-
legra demókrata, og styrkir enn
frekar kröfu hennar til kanslara-
embættisins.
Strandar ekki á
kanslaraembættinu
Gerhard Schröder, fráfarandi
kanslari og leiðtogi jafnaðarmanna,
hefur einnig krafist þess að verða
kanslari í hugsanlegri samstjórn
stóru flokkanna en yfirlýsingar ým-
issa frammámanna jafnaðarmanna
benda þó til, að ekki muni stranda á
þeirri kröfu, náist samningar að öðru
leyti.
Merkel fékk mann í Dresden
AP
Angela Merkel, leiðtogi og kansl-
araefni kristilegra demókrata.
PÁLL Pálsson frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal smal-
aði ásamt fleirum fé úr Hálsi á laugardag, þar
sem Hálslón Kárahnjúkavirkjunar verður í
framtíðinni. Vegna snjóa þurftu gangnamenn að
fara með féð eftir Kárahnjúkaveginum.
Farið var á tveimur vélsleðum vítt og breitt
um Hálsinn í yndislegu vélsleðaleiði en hvergi
fannst fé nema á litlu svæði í Lindum. Um 50
kindur voru í Hálsinum og úti á Dysjarárdal
voru rúmlega tuttugu.
„Féð var að hluta talsvert mikið brynjað, sem
er ósköp eðlilegt því þarna var hrakningsveður á
tímabili,“ sagði Páll í gær. Þá var komið indæl-
isveður í Hrafnkelsdal eftir leiðinlegan óveðurs-
kafla með hraglanda og hvassviðri.
Ljósmynd/Andrés
Brynjuð lömb úr Lindum
Bagdad. AP, AFP. | Bandarískir her-
menn hertu í gær sóknina gegn
skæruliðum í og við borgina Sadah í
Vestur-Írak, skammt frá sýrlensku
landamærunum. Sagt er, að hundruð
manna hafi flúið þaðan og úr nálæg-
um þorpum og yfir til Sýrlands.
Um 1.000 hermenn taka þátt í
sókninni og vöruðu þeir fólk í nokkr-
um þorpum, þar á meðal Karabila og
Rumana, við að fara út úr húsi. Haft
var eftir vitnum, að skotið hefði verið
á nokkur hús úr þyrlum.
Vill að al-Jaafari segi af sér
Kúrdinn Jalal Talabani, forseti
Íraks, hefur skorað á sjítann Ibra-
him al-Jaafari, forsætisráðherra
landsins, að segja af sér. Kom það
fram hjá talsmanni Talabanis í gær
en vaxandi væringar eru með tveim-
ur stærstu fylkingunum, Kúrdum og
sjítum, á þingi og í stjórn landsins.
Kúrdar saka sjíta um að einoka
allt vald í landinu og að neita að ræða
ýmis mál, til dæmis að leyfa Kúrd-
um, sem Saddam Hussein, fyrrver-
andi forseti, rak frá borginni Kirkuk,
að setjast þar að aftur.
Talsmaður Talabanis vildi ekki
svara því hvort Kúrdar myndu hugs-
anlega segja sig úr stjórn en Talab-
ani hefur verið með óbeinar hótanir
um það.
Hert á
sókn í
V-Írak
Talabani vill
afsögn Jaafaris
FÓLSKULEG líkamsárás átti sér
stað í Garðabæ aðfaranótt sunnu-
dags þegar fjórir átján ára piltar
réðust á tvo jafnaldra sína með
stóru eggvopni. Særðist annar
drengurinn alvarlega en hinn
minna. Liggur sá alvarlegar slas-
aði nú á Landspítala með alvarlega
áverka á höndum og höfði.
Tildrög málsins voru þau að
ungu piltarnir tveir mættu ásamt
vinum sínum í samkvæmi í heima-
húsi þar sem árásarmennirnir
voru fyrir. Ku árásarmönnum ekki
hafa hugnast viðvera þeirra. Upp-
hófust þá átök sem bárust út á
götu þar sem hópurinn veittist að
drengjunum tveimur. Sá sem
reglumönnum frá ríkislögreglu-
stjóra og lögreglunni í Reykjavík,
að húsinu þar sem samkvæmið var
skömmu síðar og leitaði árásar-
mannanna, en þá var samkvæmið
enn yfirstandandi. Fjöldi vitna
voru að árásinni og var þegar ljóst
hverja lögregla þurfti að sækja.
Árásarmennirnir hafa allir komið
áður við sögu lögreglu vegna of-
beldismála. Þeir voru yfirheyrðir í
gær og var óskað eftir gæsluvarð-
haldi yfir þremur af hinum fjórum
sem handteknir voru. Sá sem
fremstur fór í atlögunni hefur ver-
ið úrskurðaður í gæsluvarðhald til
7. október en enn var beðið úr-
skurðar dómara þegar Morgun-
blaðið fór í prentun. Hlutur þess
fjórða var ekki mikill í málinu og
taldist upplýstur.
særðist alvarlegar er með slæm
sár á höfði og höfuðkúpubrotinn.
Þá er hann með alvarleg sár á
höndum eftir að hafa reynt að
verjast höggum árásarmannsins.
Áverkar hins drengsins voru öllu
minni, en hann reyndi að ganga á
milli og koma félaga sínum til að-
stoðar.
Óskað eftir gæsluvarðhaldi
Árásarmennirnir skildu við
drenginn þar sem hann lá í göt-
unni og fengu þeir félagar far með
vinafólki sínu á slysadeild Land-
spítalans – háskólasjúkrahúss
(LSH), en þaðan var lögreglu gert
viðvart um alvarlega áverka
drengsins.
Lögreglumenn frá lögreglunni í
Hafnarfirði mættu, ásamt lög-
Piltar höggnir
með eggvopni
Óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir þremur mönnum
Eftir Svavar Knút Kristinsson
svavar@mbl.is
„ÞETTA er stór-
kostleg flug-
eldasýning þar
sem hæfi-
leikaríkasti leik-
ari þjóðarinnar
sýnir algera virt-
úósatakta,“ segir
í dómi Þorgeirs
Tryggvasonar
um frammistöðu
Hilmis Snæs Guðnasonar í leikrit-
inu Ég er mín eigin kona, sem
frumsýnt var í Iðnó á föstudags-
kvöld. Leikstjóri sýningarinnar er
Stefán Baldursson.
Leikritið Ég er mín eigin kona er
byggt á ótrúlegu lífshlaupi klæð-
skiptingsins Charlottu von Mahls-
dorf, sem var uppi á árunum 1928–
2002.
Alls leikur Hilmir Snær 35 hlut-
verk í sýningunni, að aðalhlutverk-
inu meðtöldu.
Í dómi sínum segir Þorgeir enn-
fremur: „Fyrir þá sem njóta þess að
upplifa list leikarans þar sem hún
er hvað sýnilegust er Ég er mín eig-
in kona einhver stærsti og safarík-
asti konfektmoli sem boðið hefur
verið upp á hér um árabil.“ | 32
„Hvílíkur
leikari!“
Fasteignir og Íþróttir í dag
New York. AP, AFP. | Tuttugu og einn
maður fórst er báti, með 49 manns
um borð, hvolfdi á vatni í New York-
ríki í gær.
Báturinn var í útsýnisferð með
fólk frá Kanada og veðrið mjög gott
og vatnið spegilslétt. Er ekki vitað
hvað olli því, að bátnum hvolfdi en
yfirvöld segjast vera að kanna hvort
annar bátur, sem sigldi hjá, hafi átt
þátt í slysinu. Vatnið, Georgsvatn, er
mjög vinsælt hjá ferðafólki.
Báti hvolfdi
og 21 fórst
♦♦♦