Morgunblaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 25
Aðalbjörg ætíð tandurhreinni og var það ærinn starfi yfir háannatímann vegna þess mikla fjölda ferðamanna sem lengi hefur lagt leið sína á stað- inn. Félagsstörf skipuðu mikilvægan sess í lífi Aðalbjargar. Til sveita var um fátt annað að velja en þátttöku í kvenfélagi og kirkjukór. Hvort tveggja naut krafta hennar til hins ýtrasta en eigi að velja á milli er ótví- rætt að Kirkjukór Grenjaðarstaðar- kirkju var henni hjartfólgnari. Hún lagði vissulega upp úr góðum prédik- unum og annarri frammistöðu manns síns, en ef söngurinn var slak- ur, einkum í heimakirkjunni, mátti heita að athöfnin væri ónýt. Þar gerði hún stífar kröfur til bæði sjálfrar sín og annarra. Síðustu tvo áratugina var Friðrik Jónsson á Halldórsstöðum organisti og söng- stjóri kórsins á Grenjaðarstað. Með honum og Aðalbjörgu tókst einkar náið samstarf og oft drakk hann kaffi í eldhúskróknum hjá henni. Það er því ekki undarlegt að tónsmíðar Fikka hafi verið Aðalbjörgu kærar og tvær þeirra, Rósin og Við gengum tvö, fylgja henni síðasta spölinn á út- farardegi. Ég kveð kæra tengdamóður er var mér sem besta móðir í full þrjátíu ár. Hún er að öllum öðrum ólöstuðum einhver mikilhæfasti einstaklingur sem ég hef þekkt. Það var sannköll- uð gæfa að fá að skrifa sameiginlega sögu hennar og Sigurðar tengdaföð- ur míns fyrir rúmum áratug. Þá gafst mér einstakt tækifæri til þess að kynnast þeim báðum býsna náið og að því mun ég búa ævilangt. Nú hverfur hún af vettvangi að loknu löngu dagsverki og ég er sannfærður um að á himnum verður koma henn- ar ekki grátin þótt við hin sem jarð- nesk erum verðum voteyg um sinn. Bragi Guðmundsson. Undir háu hamrabelti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængjavíddir, vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan hjartasláttinn, rósin mín, er kristalstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað. Krjúpa niður kyssa blómið, hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað, yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist aldrei það er minning þín. (Guðm. G. Halld.) Við viljum með örfáum orðum fá að kveðja hana Aðalbjörgu ömmu okkar. Það voru skemmtilegir tímar sem við áttum með henni og afa þeg- ar við komum norður. Tekið var á móti okkur með opnum örmum og hlýhug. Amma var vinnusöm og munaði ekkert um að taka á móti stórfjölskyldu frá Hvanneyri. Þegar við komum eftir langa ferð beið okk- ar kvöldkaffi og uppábúin rúm. Minningarnar eru margar og erf- itt að taka einhverjar umfram aðrar. Ein minning er þó sterk hjá okkur systkinunum. Þegar búið var að opna pakkana á aðfangadagskvöldið var beðið eftir því að amma og afi hringdu. Við systkinin kepptumst um símtólið og sögðum frá jólagjöf- unum sem við höfðum fengið. Einnig er okkur minnisstætt þeg- ar amma fór með okkur í gamla bæ- inn á Grenjaðarstað og sýndi okkur alla gömlu hlutina. Hún sagði okkur til hvers hlutirnir voru notaðir og bú- um við vel að því enn þann dag í dag. Annað sem við systkinin munum eftir, er þegar við kvöddum ömmu þá fengum við alltaf koss á kollinn. Í seinni tíð eftir að amma og afi fluttu til Akureyrar fengu barnabarna- börnin einnig koss á kollinn í kveðju- skyni svo að sumt breytist aldrei. Og eitt er það sem aldrei gleymist og það er minning okkar yndislegu ömmu. Elsku afi, við hugsum til þín, guð veri með þér í sorg þinni. Þegar lífsins leiðir skilja, læðist sorg að hugum manna. En þá sálir alltaf finna yl frá geislum minninganna. (Helga Halld. frá Dagverðará.) Ástríður, Sigurður, Kristján og Davíð Guðmundsbörn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sér horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Hvíl í friði, elsku langamma. Takk fyrir allt. Halldór Stefán, Hadda Mar- grét og Harpa Elín. Undarlegt er allífið, elsku börnin mín með ömmunum og öfunum og undralöndin sín. Það getur verið grimmilegt og grátlegt sérhvern dag en oft er eins og syngi englar spánýtt lag. En einhvern veginn er það að allt sem fyrir var það fer í framtíð ykkar og fegurðin er þar. Og ekki gráta ömmu sem er í nýjum stað því hún er alltaf hjá ykkur og hjartað veit um það. Sigurður Ingólfsson. Víst er það mikið happ fyrir ungt fólk, sem er á leið út í lífið, að fá leið- sögn og handleiðslu þeirra sem eldri eru og reyndari. Við, prófastshjónin í Laufási, vor- um svo heppin á okkar fyrstu sam- búðarárum að eiga prófastshjónin á Grenjaðarstað, þau Aðalbjörgu og sr. Sigurð, sem trausta vini og leið- beinendur. Og mörg sporin hafa þau hjón síðan fetað á undan okkur og verið okkur mikilvægar fyrirmyndir. Þau hjón hafa alltaf tekið okkur eins og við værum börnin þeirra, sýnt okkur skilning og hlýju. Þau hafa hvatt okkur til dáða og stutt okkur þegar í móti hefur blásið. Aðalbjörg var ein af þessum sí- vinnandi prestsfrúm, sem voru e.t.v. ekki eins áberandi og eiginmenn þeirra. En verkin sögðu sitt, og hlý- leiki Aðalbjargar og gestrisni veitti gestum og gangandi þá tilfinningu, að sérhver sem kom í heimsókn var innilega velkominn. Aðalbjörg hefur í gegnum áratug- ina staðið við hlið sr. Sigurðar og stutt hann á marga vegu í annasömu starfi. Og heimili þeirra hjóna hefur ver- ið söfnuðum og vinum sem annað heimili. Þar fóru kirkjukórsæfingar fram og margs konar fundir haldnir, að ógleymdum skólarekstri. Og árin liðu, samskiptin ávallt hlý og vináttan traust, og þegar þau vígslubiskupshjón luku starfsferli sínum og fluttu frá Hólum til Ak- ureyrar áttuðuðum við okkur fyrst á því, að þau hjón voru farin að eldast. Og við gerðum okkur grein fyrir því, að heilsu Aðalbjargar hnignaði meir en sr. Sigurðar. Og nú síðustu miss- erin var ljóst að heilsa Aðalbjargar var orðin svo slök, að erfitt var fyrir sr. Sigurð og dætur þeirra á Akur- eyri að sinna henni sem skyldi. Og nú er Aðalbjörg gengin til him- insins heim, en eftir lifir hlý minning um konu sem lagði sig af lífi og sál í þjónustustarf fyrir kirkju og kristni. Við þökkum henni trausta vináttu, gott uppeldi og notalegt samstarf lið- inna áratuga. Við vottum sr. Sigurði og fjöl- skyldu hans innilega samúð og biðj- um Guð að blessa minningu Aðal- bjargar. Inga og Pétur, Laufási. Útsýnisferð í Bárðardal á sól- breyskju sumardegi fyrir tveimur árum. Jökulgormað Skjálfandafljót mætir tærri Svartá. Vatnsföllin bugðast samhliða norður úr svo langt sem augað eygir. Eins og tvær persónur, svo ólík, svo náin. Í aft- ursætinu Aðalbjörg og sr. Sigurður, ólík, náin, heilsteypt eins og nátt- úruöfl. Í framsætinu dóttir þeirra Þor- gerður, kær sambýliskona mín í tæp- an áratug, í síðustu heimsókn til Norðurlands. Að ferðast með þessu fólki var alltaf eins og að vera í op- inberri heimsókn. Aðalbjörg og Sig- urður voru ævintýralyklar að landi og þjóð. Ferðin er í minningunni eins og samnefnari ferðalaganna og sam- skiptanna, heit og faðmandi. Aðalbjörg tók mér einkar hlýlega þegar Þorgerður kynnti mig fyrir fjölskyldunni og hún lét sér annt um mig í smáatriðum í þau fjölmörgu skipti sem við gistum hjá þeim hjón- um á Akureyri. Ég er Aðalbjörgu óendanlega þakklátur fyrir um- hyggju og ástúð. Og það eru svo margir aðrir sem þakka og virða. Aragrúi nafna og þakkarorða í fjölda gestabóka spanna tugi ára á heim- ilinu. Við utan-þjóðkirkjufólk í vina- hópnum erum kannski ekki síst þakklát, Aðalbjörg og Sigurður hafa hjálpað okkur að skynja betur, meta og virða þjóðkirkjuna. Aðalbjörg Halldórsdóttir hafði mikla og merka reynslu, sterka nær- veru og áhrifaríkt viðmót. Hún átti inni fyrir því að vera skorinorð og skoðanaföst. Hún sagði það sem hún meinti og meinti það sem hún sagði. En gat líka verið uppátækjasöm sagnakona. Oft rakti hún fyrir mér liðna tíð í bundnu og lausu máli og skondnum lýsingum. Hún kom merkingu og tilfinningu í stuttar og hnitmiðaðar setningar. Þannig var kímnigáfa hennar líka. Lífsstarf Aðalbjargar var mikið og uppskeran er ríkuleg í glæsilegri og öflugri fjölskyldu. Áhrif hennar hafa síast víða út í samfélagið. Ég bið Guð að blessa Aðalbjörgu Halldórsdóttur og minningu hennar. Ólafur H. Torfason. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 25 MINNINGAR Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og systir, JÓNA VILBORG PÉTURSDÓTTIR, Fannborg 1, Kópavogi, áður til heimilis á Siglufirði, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju þriðjudag- inn 4. október kl. 13:00. Jóhann Örn Matthíasson, Hulda Ágústsdóttir, Elísabet Kristjana Matthíasdóttir, Jón Einar Valgeirsson, Hjördís Sigurbjörg Matthíasdóttir, Einar Þór Sigurjónsson, Pétur Björgvin Matthíasson, Ólafía Einarsdóttir, Halldóra Sigurjóna Matthíasdóttir, Snævar Valentínus Vagnsson, Matthildur Guðmunda Matthíasdóttir, Gunnar Júlíus Jónsson, Stella María Matthíasdóttir, Ásgeir Þórðarson, Kristján Jóhann Matthíasson, Sigríður Halldóra Ragnarsd., Braghildur Sif Matthíasdóttir, Ásgrímur Ari Jósefsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, ANNA EINARSDÓTTIR, Ársölum 3, Kópavogi, verður jarðsungin frá Digraneskirkju miðviku- daginn 5. október kl. 13:00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Minningarsjóð MND félagsins. Ragnar Jón Jónsson, Ragnar Helgi Ragnarsson, Maren Kjartansdóttir, Heiðrún Ragnarsdóttir, Ragnar F. Magnússon, Ragnheiður Anna Ragnarsdóttir, systkini og aðrir aðstandendur. Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSKELL EINARSSON fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga, sem lést sunnudaginn 25. september sl., verður jarðsunginn frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 8. október nk. kl. 14.00. Guðrún Áskelsdóttir, Örn Gíslason, Steinunn Áskelsdóttir, Birgir Steingrímsson, Ása B. Áskelsdóttir, Stefán Ómar Oddsson, Ólafía Áskelsdóttir, Haraldur Jóhannsson, Einar Áskelsson, María Sif Sævarsdóttir, Valdimar Steinar Guðjónson, Eygerður Bj. Þorvaldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR JÓNSSON hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi forstjóri Olíufélagsins hf., lést á Droplaugarstöðum föstudaginn 30. september. Málfríður I. Vilhjálmsdóttir, Sigurlaug Vilhjálmsdóttir, Jón Vilhjálmsson, Jóhanna Rósa Arnardóttir, Arnar Sch. Thorsteinsson, Harpa Guðfinnsdóttir, Sverrir Sch. Thorsteinsson, Rannveig Þorvaldsdóttir, Vilhjálmur Jónsson, Svavar Brynjúlfsson, Erna Dís Brynjúlfsdóttir, Valur Tómasson, Katrín Sigríður Arnarsdóttir, KAMILLA BRIEM frá Melstað, Grettisgötu 74, Reykjavík, lést að elliheimilinu Grund 1. október. Soffía Briem og fjölskylda. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgunblaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minningar/afmæli“ ásamt frekari upplýsingum). Skilafrestur Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyr- ir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur renn- ur út. Lengd Minningargreinar séu ekki lengri en 2.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvadd- ur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minn- ingargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.