Morgunblaðið - 03.10.2005, Blaðsíða 12
Ljósmynd/Hilmar Sigvaldason
Akranes | Nærri 900 hundruð ungmenni frá
19 stöðum á landinu tóku þátt í landsmóti
Samtaka íslenskra skólalúðrasveita um
helgina, mótið fór fram á Akranesi. Það var
frekar kalsamt á Skaganum um helgina en
tónlistarfólkið lét það ekki á sig fá en klæddi
sig í ullarpeysur og húfur og þrammaði um
götur bæjarins með hljóðfærin sín. Heima-
menn og aðrir gestir fylgdust ánægðir með
og nutu tónlistarinnar.
Á landsmótinu tóku allar hljómsveitirnar
þátt í stóru námskeiði sem bar nafnið „Skap-
andi tónlistarmiðlun“. Í lok mótsins léku allir
þátttakendurnir í einni risastórri skólalúðra-
sveit. Barst lúðraþyturinn um mestallan
Skagann.
Lúðraþytur
á Akranesi
12 MÁNUDAGUR 3. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
www.felagsmalaraduneyti.is
FÉLAGSMÁLARÁ‹UNEYTI‹
Umræ›ur um sameiningu sveitarfélaga
RÁ‹HERRASPJALL
Í dag frá kl. 14-15
ÞAÐ REYNDIST Helgu Björk
Bjarnadóttur ekki auðvelt að
ferðast um í hjólastól í rokinu á
miðvikudaginn. Hún er há-
skólanemi í Borgarnesi og vinnur
nú verkefni um ferlimál fatlaðra.
Hana langaði til að kanna þessi
mál í sínum heimabæ og fékk lán-
aðan hjólastjól hjá Ingu Björk
Bjarnadóttur og naut leiðsagnar
hennar á ferð sinni um bæinn.
Inga Björk er eina unga mann-
eskjan í Borgarnesi sem bundin er
við hjólastól og hefur verið það frá
því hún var lítil. Hún og foreldrar
hennar hafa því lent í því hlutverki
að benda á ýmislegt sem betur má
fara í bæjarfélaginu. Margrét
Grétarsdóttir, móðir hennar, segir
að stundum hafi þau upplifað sig
eins og að þau væru síkvartandi,
en segir jafnframt að það sé erfitt
fyrir fólk sem á við fötlun að stríða
að finnast eins og alltaf sé litið á
það sem annars flokks borgara.
Helga tekur undir það og segir
ekki nógu gott ef alltaf sé ætlast til
að fatlaðir einstaklingar notist við
bakdyr.
Bílastæðið nýtist
ekki hjólastólafólki
Leið þeirra Helgu og Ingu lá
fyrst í Íþróttamiðstöðina í Borg-
arnesi. Þær fóru á hjólastólunum
alla leið frá heimili Ingu, þó nokk-
urn spotta. Inga var í rafknúnum
stól og fór þetta léttilega en Helga
þurfti oft að standa upp úr stóln-
um og ýta honum á undan sér, t.d.
upp brekkur. Hún sagði þetta hafa
verið miklu erfiðara en hún bjóst
við og hömlurnar í umhverfinu
fleiri.
Það fyrsta sem vakti athygli við
íþróttamiðstöðina var að þar var
sérmerkt bílastæði fyrir fatlaða.
Það var breitt og gott, en Inga
sagði að því miður gæti ein-
staklingur sem bundinn væri
hjólastól ekki notað þetta stæði
þar sem hann kæmist ekki upp á
gangstéttina vegna þess hve kant-
urinn við bílastæðið er hár.
Við enda gangstéttarinnar var
hins vegar tekið úr kantinum, en
samt sem áður reyndist það Helgu
erfitt að komast upp á gangstétt-
ina. Betra er að koma yfir gang-
braut á götunni og þaðan beint að
Íþróttamiðstöðinni. Þegar komið
var að dyrunum vandaðist málið
enn. Þær komust þó báðar inn, en
með erfiðismunum. Til dæmis
þurftu þær að teygja sig í hurðina
til að opna og í leiðinni að reyna að
troða sér inn. Þetta hafðist þó að
lokum, en í ljós kom að varla er
hægt að komast þarna inn í hjóla-
stól nema með aðstoð.
Lyftur í íþróttahúsi og skóla
Sigurður Páll Harðarson bæj-
arverkfræðingur sagði í samtali
við Morgunblaðið að á síðustu ár-
um hafi bæjaryfirvöld reynt að
bæta aðgengi fatlaðra á mörgum
sviðum. Hvað íþróttahúsið varðaði
hefði verið settur rafknúinn opnari
við hurð á neðri hæð hússins.
Hann nýttist þó ekki sem skyldi
vegna þess að afgreiðslan er á efri
hæðinni. Lausn þyrfti að finna á
því máli. Einnig var sett upp lyfta í
íþróttahúsinu, salerni og bún-
ingaaðstaða fyrir fatlaða og raf-
drifnar hurðir með skynjara út á
laugarsvæðið.
Í Grunnskólanum í Borgarnesi,
þar sem Inga Björk stundar nám í
7. bekk, hefur einnig verið sett upp
lyfta.
„Bæjarskrifstofurnar í Borg-
arbyggð eru nú að flytjast yfir í
fyrrum húsnæði Sparisjóðs Mýra-
sýslu og okkar fyrsta hugsun var
að það þyrfti að bæta aðgengi fatl-
aðra einstaklinga,“ sagði Sigurður
Páll. „Mér finnst eins og fólk sé al-
mennt orðið mun meðvitaðra um
þessi mál og þegar ný hús eru
byggð er í flestum tilfellum hugsað
fyrir góðu aðgengi fatlaðra. Hér í
bænum eru mörg eldri hús þar
sem greinilegt er að það hefur ekki
verið gert og það tekur tíma að
bæta úr því. Í flestum tilfellum er
það hægt, en það kostar allt sitt og
tekur sinn tíma. Það má samt ekki
gleyma því sem gert er og það hef-
ur verið þó nokkuð.“
Jákvætt að fólk sé meðvitað
Sigurður segir að mikil vinna sé
framundan í að taka niður gang-
stéttir og einnig að huga að gang-
brautum yfir götur. „Ég held að
besta lausnin væri að hækka gang-
brautirnar svo þær verði í sama
plani og gangstéttir.“ Þannig
mundu gangbrautirnar virka sem
hraðahindrun í leiðinni.
„Það er jákvæð þróun að fólk sé
almennt meðvitað um gott aðgengi
fyrir fatlaða einstaklinga. En það
tekur tíma að uppfylla allar óskir
og þarfir þeirra og einhver tími
mun líða þar til hægt verður að
segja að aðgengið sé almennt gott.
Hvað varðar verslanir og þjón-
ustufyrirtæki má einnig margt
betur fara. Oft koma ábendingar
um ýmis atriði sem virðast vera
smá og auðvelt að laga en hefta för
fatlaðra.“
Þær Helga Björk, Inga Björk og
Margrét nefna ýmis slík atriði. Í
einni versluninni í Borgarnesi eru
til dæmis fínar rafknúnar dyr sem
opnast sjálfkrafa með skynjara.
Vandamálið er hins vegar að þegar
komið er inn um þær tekur við
stór motta sem hjólastóllinn drífur
ekki yfir. Á fjölförnum stað í Borg-
arnesi eru útidyrnar þannig að erf-
itt er að opna þær úr hjólastól
hvað þá að komast inn um þær.
Þær eru sannfærðar um að ef
þetta yrði lagað myndu viðskiptin
aukast enn.
Litlu auðleysanlegu
atriðin hamla oft för
Helga Björk nærri búin að velta.
Helga Björk í pásu en Inga Björk fór brekkuna leikandi á rafknúna stólnu.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Eins gott að passa puttana þegar
farið er inn í íþróttamiðstöðina.
Eftir Ásdísi Haraldsdóttur
asdish@mbl.is
VESTURLAND
á morgun
Umræðan
Daglegt
málþing
þjóðarinnar
FÉLAGSFUNDUR Vinstri
grænna á Akranesi og nærsveitum
telur að auka þurfi fjölbreytni í at-
vinnulífi á svæðinu. Fundurinn
hvetur sérstaklega til þess að
fjölga þurfi störfum í þekkingar-
iðnaði, til dæmis með því að efla
starfsemi Fjölbrautaskóla Vestur-
lands.
Jafnframt lýsir fundurinn yfir
stuðningi við framkomna tillögu
um stofnun háskólaseturs á Akra-
nesi með áherslu á iðn- og tækni-
greinar.
Aukin fjöl-
breytni
í atvinnu-
málum