Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 304. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Keppt í fegurð
í Sanya í Kína
Unnur Birna heldur dagbók um
keppnina og ferðalagið á mbl.is | 42
Úr verinu | Súpa úr hákarlauggum Laxaslátrun á Djúpavogi
Tekjur sjómanna lækka mikið Íþróttir | Handboltakonur í
erfiða keppni á Ítalíu Hörður hugsanlega til Danmerkur
Miami. AP. | Áhöfn á bandarísku skemmti-
ferðaskipi fældi í vikunni burt sjóræn-
ingja, sem réðust á það undan ströndum
Sómalíu, með því að beita gegn þeim svo-
kölluðu hljóðvopni. Sendir það frá sér eins
konar hljóðgeisla, sem getur gert hvern
mann brjálaðan, sem fyrir verður.
Skemmtiferðaskipið Seabourn Spirit
var á Indlandshafi, um 160 km undan Sóm-
alíuströnd, þegar sjóræningjarnir skutu á
það úr sprengjuvörpu og með vélbyssum
um leið og þeir gerðu sig líklega til að ráð-
ast um borð. Um borð í skipinu var hins
vegar LRAD, langdrægt hljóðtæki eða
-vopn, sem Bandaríkjaher lét smíða eftir
árásina á herskipið Cole árið 2000.
Tækið er um 20 kílóa þungt, disklaga og
gefur frá sér geysilega háan og ærandi
hljóðgeisla. Hávaðinn getur farið í 150
desíbel sem er mun hærra en hljóð í
hreyflum farþegaþotu. Lætur geislinn í
friði þá, sem nota tækið, og aðra, sem
hljóðgeislanum er ekki beint að.
Hljóðvopn gegn
sjóræningjum
Fort Myers. AP. | Kona í Flórída, Jill Knispel,
hefur verið handtekin fyrir að stela sjald-
gæfum og verðmætum páfagauk og leyna
honum í brjósta-
haldaranum.
Gaukurinn er af
tegundinni Green-
wing og hugðist
Knispel skipta á
honum og sport-
legum fornbíl frá
1964 af gerðinni
Volkswagen Kar-
mann Ghia.
Knispel vann í
gæludýraverslun og þar stal hún fuglinum
sem metinn er á 2.000 dollara eða liðlega
120 þúsund krónur. Hún stóðst hins vegar
ekki mátið og sagði bíleigandanum frá
páfagauksráninu. Svo vildi til að maðurinn
var vinur eiganda gæludýrabúðarinnar.
„Málavextir eru þeir skringilegustu sem
ég hef nokkru sinni komist í tæri við,“ sagði
Lenny Barshinger, starfsmaður er sér um
rannsóknir fyrir ráð sem hefur umsjón með
vernd villtra dýra og fiska í Flórída.
Stolinn páfagaukur
á mjúkum felustað
ARNALDUR Indriðason hlaut í gær Gullna rýt-
inginn í Bretlandi fyrir skáldsögu sína Graf-
arþögn en þessi virtu verðlaun voru afhent í 50.
sinn við hátíðlega athöfn í London í gær. Það eru
Samtök breskra glæpasagnahöfunda sem veita
verðlaunin og hlaut Barbara Nadel Silfurrýting-
inn við sama tækifæri og Henry Porter hlaut
Stálrýtinginn sem Ian Fleming stofnunin veitir.
„Ég er feikilega ánægður með þetta,“ sagði
Arnaldur og kvað úrslitin hafa komið sér verulega
á óvart. „Ég bjóst ekki við að höfundur frá Íslandi
hlyti þennan heiður í bráð.“ Tvær af bókum Arn-
aldar, Grafarþögn og Mýrin, hafa komið út í Eng-
landi en Arnaldur kveðst mjög ánægður með að
Grafarþögn hafi orðið fyrir valinu. „Þetta er saga
sem stendur mér nærri og fjallar um heimilis-
ofbeldi sem er einhver viðurstyggilegasti glæpur
sem til er, leyndur glæpur, og ef verðlaunin yrðu
til þess að draga fleiri lesendur að bókinni þá
þætti mér það hið besta mál þess vegna.“
Arnaldur sagði að athöfnin hefði verið mjög
skemmtileg. „Þetta er hádegisverður, ákaflega
fjörlegur, eins og fuglabjarg og eftir hann, þegar
allir eru orðnir léttir og glaðir þá er byrjað að út-
býta verðlaunum. Mér skilst að óvenju mikið hafi
verið viðhaft vegna 50 ára afmælis verð-
launanna.“
Í tilefni afmælisins var Rýtingur rýtinganna af-
hentur í fyrsta sinni og féll hann í skaut John le
Carré fyrir Njósnarann sem kom inn úr kuld-
anum. Auk Arnaldar voru Karin Fossum, Fried-
rich Glauser, Carl Hiaasen, Barbara Nadel og
Fred Vargas tilnefnd til verðlaunanna. Verð-
launaféð nemur þremur þúsundum punda.
Samtök glæpasagnahöfunda hafa bækistöð
sína í Bretlandi og eru þau þekktustu í heiminum
í dag. Einungis eru tilnefndar bækur sem komið
hafa út á ensku, en meðlimir samtakanna eru vel
á fimmta hundrað glæpasagnahöfunda víða um
heim.
Arnaldur Indriðason með Gullna rýting-
inn en verðlaunin voru afhent í gær.
Arnaldur Indriðason hlaut viðurkenningu breskra glæpasagnahöfunda
Kom verulega á óvart
Úr verinu og Íþróttir í dag
MJÖG algengt er að ekklar vitji reglulega
leiða látinna eiginkvenna sinna, þeir tala til
þeirra og flesta karlmenn dreymir eigin-
konur sínar. Ekklar breyta litlu innanhúss
eftir makamissi, allt verður að vera á sínum
stað. Þetta kemur fram í meistaraprófs-
rannsókn sem séra Bragi Skúlason sjúkra-
húsprestur gerði á högum íslenskra ekkla.
Fáir ekklar höfðu farið í nýja sambúð
einu til þremur og hálfu ári eftir lát kon-
unnar. Það er að sögn Braga í svolítilli þver-
sögn við þá goðsögn að karlar séu fljótir til
að fara í annað samband.
Ekklar hafa sjaldan frumkvæði að því að
sækja sér stuðning úti í bæ og þeir senda
frá sér skilaboð um að þeir ráði við aðstæð-
ur sínar. Þeir sækja ekki svokallaða stuðn-
ingsfundi en mæta frekar séu þeir kallaðir
upplýsingafundir.
Ekklar tala
til látinna
eiginkvenna
Ekkla dreymir | 20
FRÖNSK yfirvöld lýstu í gær yfir
neyðarástandi í borgarhverfum
þar sem óeirðir hafa nú geisað hátt
í tvær vikur. Ríkisstjórnin í París
hélt í gærmorgun fund undir for-
sæti Jacques Chirac forseta og var
þar ákveðið að grípa til 50 ára gam-
alla laga sem heimila margvíslegar
ráðstafanir til að tryggja öryggi
borgaranna. Amiens varð fyrst til
að nýta sér heimildirnar í gær, sett
var útgöngubann um nóttina fyrir
unglinga undir 16 ára aldri væru
þeir ekki í fylgd með fullorðnum.
Umrædd lög voru sett 1955 þeg-
ar uppreisn var nýhafin í Alsír sem
þá var frönsk nýlenda en þeim hef-
ur ekki fyrr verið beitt í Frakk-
landi sjálfu. Veita þau m.a. heimild
til að lýsa yfir neyðarástandi í hluta
landsins eða öllu Frakklandi í allt
að 12 daga, leita þarf samþykkis
þingsins til að framlengja það. Yf-
irvöld í borgum og bæjum mega
banna fjöldafundi og setja á út-
göngubann og getur fólk fengið allt
að tveggja mánaða fangelsi fyrir að
brjóta bannið. Einnig hefur lög-
reglan leyfi til að gera skyndileit í
húsum hvenær sem er sólarhrings-
ins. Stjórnvöld mega einnig hefta
frelsi fjölmiðla.
Dominique de Villepin forsætis-
ráðherra kynnti í gær ýmsar ráð-
stafanir sem gripið verður til í því
skyni að lægja ólguna. „Stund
sannleikans er runnin upp í lýð-
veldinu,“ sagði hann. „Spurt er
hvort stefna okkar varðandi aðlög-
un [innflytjenda] hafi reynst ár-
angursrík“. Búin verður til stofnun
sem á að berjast gegn misrétti, um
20.000 manns í fátækum úthverf-
um fá störf á vegum ríkisins, ýmis
samtök sem starfa í hverfunum fá
aukið fé sem svarar rúmlega sjö
milljörðum króna.
Yfir 1.500 handteknir
Flestir unglinganna sem taka
þátt í óeirðunum eru innflytjendur
frá arabalöndum og Afríku eða
börn innflytjenda frá þessum
svæðum og þorri þeirra íslamstrú-
ar. Alls hafa um 1500 manns verið
handteknir og yfirheyrðir vegna
óeirðanna og fá mál þeirra flýti-
meðferð fyrir dómstólum. Tugir
manna hafa þegar hlotið dóma.
Mannréttindahópar vara við því að
flýtimeðferðin muni auka á tor-
tryggni og andúð á yfirvöldum í
röðum unglinganna.
Mjög dró úr átökum í París að-
faranótt þriðjudags en óljóst var
hvort aðeins væri um stutt hlé að
ræða. Ekkert lát var á ofbeldi í
mörgum öðrum borgum og bæjum,
þ. á m. Toulouse og var kveikt í
meira en þúsund bílum. Kveikt var
í tveim skólum norðan við París.
Reuters
Brunnin bílflök í Strassborg. Enn kom til átaka í einu af úthverfum Toulouse í gærkvöldi milli unglinga og lögreglu, kveikt var í nokkrum bílum.
Neyðarlög í Frakklandi
De Villepin segir „stund sannleikans“
runna upp og menn spyrji hvort inn-
flytjendastefna Frakka hafi brugðist
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Opinberun mismununar | 24
♦♦♦