Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 15
ERLENT
ÍTALSKA ríkissjónvarpið, RAI,
hefur sýnt heimildamynd þar sem
bandaríski herinn er sakaður um
að hafa beitt íkveikjusprengjum,
fosfórsprengjum, gegn óbreyttum
borgurum í árásum á borgina Fall-
ujah í Írak.
Í myndinni segja vitni og fyrr-
verandi bandarískir hermenn, sem
gegndu herþjónustu í Írak, frá því,
að hvítum fosfórsprengjum hafi
verið varpað á íbúðahverfi. Er því
haldið fram í myndinni, að þetta
jafnist á við að beita efnavopnum,
sem er ólöglegt.
Talsmenn Bandaríkjahers viður-
kenna, að hvítum fosfórsprengjum
hafi verið beitt í Írak en segja, að
þær hafi aðeins verið notaðar til að
lýsa upp vígvöllinn en ekki varpað
á mannabústaði. Bandaríkjastjórn
hefur hins vegar ekki samþykkt al-
þjóðlega sáttmála, sem takmarka
notkun slíkra vopna að því er segir
á fréttavef BBC, breska ríkisút-
varpsins.
Ársafmæli árásarinnar
RAI sýndi heimildamyndina
daginn eftir að Jalal Talabani, for-
seti Íraks, kom í fimm daga op-
inbera heimsókn til Ítalíu. Bar
sýninguna einnig upp á ársafmæli
árásarinnar á Fallujah en þá var
borgin lögð í rúst að miklu leyti og
flestir íbúanna, 300.000 manns,
hraktir brott.
Myndin hófst með því, að sýnt
var frá afleiðingum napalm-árása
Bandaríkjamanna í Víetnam-stríð-
inu og birtar myndir af líkum þar
sem fötin voru óskemmd en allt
hold brunnið af. Sagt var, að hvítar
fosfórsprengjur hefðu sömu áhrif.
Í myndinni er sagt, að Banda-
ríkjastjórn hafi skipulega reynt að
eyða öllum myndum, sem teknar
voru af afleiðingum fosfórspreng-
juárásanna á óbreytta borgara í
Fallujah.
Sagðir hafa beitt fos-
fórsprengjum í Írak
Ítalska ríkis-
sjónvarpið sakar
Bandaríkja-
menn um efna-
vopnahernað
HU Jintao, forseti Kína, kom í opinbera heimsókn til
Bretlands í gær og var honum fagnað með kostum og
kynjum, meðal annars ekið í gullnum vagni á vit El-
ísabetar II í Buckinghamhöll. Í London tóku líka á móti
honum nokkur hundruð manna, sem kröfðust þess, að
bundinn yrði endi á kúgun Kínverja í Tíbet. Varðaði
fólkið veginn, sem vagninum var ekið eftir. Þá tilkynnti
talsmaður Falun Gong-hreyfingarinnar, að höfðað yrði
mál í Bretlandi og þess krafist, að Bo Xilai, við-
skiptaráðherra Kína, sem er í för með Hu, yrði handtek-
inn fyrir að bera ábyrgð á pyntingum Falun Gong-
félaga. Erindi Hus til Bretlands er annars að ræða við-
skipti, alþjóðleg öryggismál og loftslagsbreytingar. Mun
hann einnig leggja leið sína til annarra Evrópuríkja.
Reuters
Krefjast frelsis í Tíbet
Ósló. AFP. | Fjórir Norðmenn
gengu inn í kvikmyndahús
snemma síðastliðinn föstudag
og komu út í gær, 38 kvikmynd-
um, 70 klukkustundum og 33
mínútum síðar. Mun það vera
nýtt heimsmet í kvikmynda-
glápi.
Heimsmethafarnir, þrír karl-
menn og ein kona, voru gráir og
guggnir þegar þeir komu aftur
út undir bert loft eftir að hafa
horft á hverja myndina á fætur
annarri í þrjá sólarhringa. Voru
þær af ýmsu tagi, allt frá „Kalla
og súkkulaðiverksmiðjunni“ til
„Zozo“, sögu af ungum Líbana
sem á erfitt með að aðlagast í
Svíþjóð.
„Í morgun kastaði ég upp.
Ég gat ekkert borðað og skalf
eins og strá í vindi. Mér leið
verulega illa,“ sagði einn met-
hafanna, táningurinn Mats
Peder Nilsen.
Þau voru raunar 11, sem hófu
maraþonglápið á föstudag, en
sjö þeirra sigraði svefninn.
Heimsmet í
kvikmynda-
glápi
Bagdad. AFP. | Lögmaður sem ráðinn
hafði verið til að halda uppi vörnum í
máli eins af undirsátum Saddams
Hússeins Íraksforseta var skotinn til
bana í Bagdad í gær. Félagi manns-
ins og starfsbróðir særðist í árásinni.
Lögmaðurinn, Adel Mohammed
Abbas, var verjandi Taha Yassin
Ramadans, fyrrverandi varaforseta
Íraks, sem sakaður er um að hafa
ásamt fleiri ráðamönnum borið
ábyrgð á fjöldamorði í sjíta-þorpi ár-
ið 1982. Starfsbróðir hans, Tamer
Hammud Hadi, kom að undirbúningi
varnar Barzan Ibrahim al-Tikriti,
hálfbróður Saddams.
Þetta er í annað skiptið að vitað er
sem lögmönnum í máli Saddams og
undirmanna hans er sýnt banatil-
ræði. Í október var lögmanninum
Sadoun Nasouaf al-Janabi rænt og
hann síðan myrtur.
Verjendur í málinu hafa lagt til að
réttarhaldið verði flutt úr landi þar
sem allir er því tengjast séu augljós-
lega í lífshættu.
Lögmaður
myrtur í Írak
Peking. AFP. | Bandarískt fyrirtæki,
Lunar Embassy, hefur verið svipt
leyfi til að starfa í Kína en fyr-
irtækið hugðist reyna að selja þar-
lendum jarðir á tunglinu.
Fyrirtækið hugðist setja upp
útibú í Peking og var ætlunin að
nýta sér þannig aukinn áhuga með-
al Kínverja á geimferðum. Kína
hefur tvisvar sent á loft mannað
geimfar. Ekran á tunglinu átti að
kosta 37 dollara eða um 2.300 krón-
ur.
Gerður var alþjóðlegur samn-
ingur 1967 þar sem ríkjum var
bannað að krefjast til eigna úti í
geimnum. Ekki er þó minnst á
einkafyrirtæki í samningnum og
hefur Lunar Embassy notfært sér
þá smugu. Fyrirtækið segir að alls
hafi um 3,5 milljónir manna keypt
sér lóð á tunglinu.
Bannað að selja tungljarðir