Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 29 UMRÆÐAN BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is VIÐ VILJUM veita börnunum okk- ar það besta. Við setjum því markið hátt í þeim málefnum sem snerta ungu kynslóðina. Í Garðabæ hefur verið lögð gríðarleg áhersla á barna- og unglingastarf undanfarin miss- eri. Flaggstöng okkar eru skól- arnir. Í Garðabæ er unnið markvist að því að skólar bæjarins séu í forystu hvað varðar árangur og vellíðan nem- enda. Starfsmenn eiga að geta notið sín í starfi og hafa möguleika á því að auka þekkingu sína og reynslu. Við förum fram á faglegan metnað, skilvirkni, fjölbreytni og val í skólum bæjarins. Skólastefna Garðabæjar sem samþykkt var af bæjarstjórn árið 2002 er metnaðarfull og hefur verið bæjarfélaginu til sóma enda hefur Garðabær verið í forystu á landsvísu á sviði menntamála. En betur má ef duga skal! Nú stendur yfir endurskoðun á skólastefnu Garðabæjar og kallað er eftir þínum sjónarmiðum. Fimmtu- daginn 10. nóvember verður haldið skólaþing í sal Flatarskóla og hefst skólaþingið kl. 19.30. Þar gefst íbú- um og starfsmönnum bæjarins færi á að koma sínum hugmyndum og skoðunum á framfæri. Markmið skólaþingsins er að fara yfir málefni leikskóla, grunnskóla og tónlistar- skóla með íbúum og starfsmönnum bæjarins með það að leiðarljósi að Garðabær verði áfram í forystu- hlutverki á sviði skólamála á Íslandi. Búum saman til metnaðarfulla og framsækna skólastefnu með skýra framtíðar- og heildarsýn. Ég skora á þig að sýna ábyrgð með þátttöku í stefnumörkun og mótun skólastafs í Garðabæ. Höld- um Garðabæ áfram í forystu. Taktu þátt. Sjáumst á fimmtudag! ÁSLAUG HULDA JÓNSDÓTTIR, formaður Leikskólanefndar Garðabæjar. Skólaþing í Garðabæ – sjáumst á fimmtudag! Frá Áslaugu Huldu Jónsdóttur: Áslaug Hulda Jónsdóttir VANDINN við kosningaundirbún- ing er meðal annars sá að það skapast sjaldan friður til að tala um grund- vallaratriði. Nú þegar prófkjöri sjálf- stæðismanna í Reykjavík er lokið er mörgum létt og kannski skapast rými fyrir umræðu um meg- inatriði. Það hefur út af fyrir sig verið fróðlegt að fylgjast með áherslupunktum fram- bjóðenda Sjálfstæð- isflokksins en þeir hafa að jafnaði verið afar þokukenndir og flatir og reynt er að fela allan ágreining í slagorðum og innihaldsleysið er átakanlegt. Markmiðið er auðvitað að styggja engan kjósanda Sjálf- stæðisflokksins; og það segir sig sjálft að við þær aðstæður er ekki mikið pláss fyrir frumlega hugs- un. En nú er grímudansleiknum lokið og komið að því að einstaklings- og auðhyggjan komi fram, grímulaus. Andlit Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningabaráttu heitir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmson sem fyrst var kosinn í borgarstjórn 1982 – fyrir 24 árum í vor – fyrir gamla borgarstjórn- aríhaldið, og sat þar sem einn af liðs- mönnum þess í 12 ár þar til R-listinn kom til valda. Reykvíkingar eiga sig sjálfir Á akri R-listans spretta nú ný grös sem aldrei fyrr. Innan raða vinstri grænna er mikil nýsköpun, fleiri koma til liðs við flokkinn, nýjar hug- myndir kvikna, reynsla og framtíð- arsýn kallast á. Kjósendur í borginni sjá flokkana sem buðu fram undir merkjum R-listans og störfuðu í því umboði árum saman draga fram sín sérkenni og sína pólitík. Munurinn er mörgum ekki ljós ennþá en smám saman munu línur skýrast og ein- kenni skerpast. Sköpunarkrafturinn er mikill, tækifærin næg. Samkvæmt nýjum skoðanakönnunum er fjórð- ungur kjósenda í Reykjavík enn óráð- inn með sitt atkvæði auk þess sem fjöldi fólks hreifst með í bylgju sjálfstæðismanna í að- draganda prófkjörs. All- ur þessi hópur, fleiri þúsund Reykvíkingar, á eftir að taka afstöðu og móta sér skoðun, velja á grundvelli myndarinnar sem á eftir að skýrast eftir því sem um- ræðunni vindur fram. Enginn á hinn frjóa ak- ur R-listans, ekki heldur gamlir óðalsbændur sem gera tilkall til nýgræðingsins, þykjast eiga hvert strá og hverja þúfu. Reykvíkingar eiga sig sjálfir, skoðanir sínar og atkvæði. Stjörnur verða að skína á eigin verðleikum en ekki vegna fornrar og dvínandi frægðar. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur nú þegar valið sitt fólk í fremstu víglínu. Aðrir bíða fram yfir áramót. Þeim andlitum sem standa fyrir stefnu og pólitík fer fjölgandi á næstu mánuðum. Bítandi, hægt en örugglega hefst baráttan um grunn- tóninn og meginlínurnar í stjórn borgarinnar. Það reynir mikið á borgarbúa í andrúmslofti auglýsinga- mennsku, heilsíðuauglýsinga, að taka upplýsta afstöðu um það sem máli skiptir og má búast við að önnur hol- skefla innihaldsleysis og yfirborðs- mennsku ríði yfir í janúar og febrúar þegar aðrir flokkar heyja sín próf- kjör. Gegn peningadekrinu og með manngildinu Vonandi tekst í gjörningahríð aug- lýsingamennskunnar að grilla í aðal- atriðin. Stóru spurningarnar eru hvort Reykvíkingar vilja frelsi hinna ríku þar sem hægt er að kaupa for- réttindi í menntun og heilsu. Vilja Reykvíkingar nálgast Bandaríkin í skipulagi og innviðum eða viljum við vera nær norrænu samfélagsgerðinni þar sem keppt er að jöfnuði og þar sem mannlífi er skipað ofar og æðra en þörfum fjármagnsins og mark- aðarins? Það er mín sannfæring að Reykvíkingar vilji borg í faðmi fé- lagshyggju, borg þar sem fólk er í fyrirrúmi, betri borg fyrir börnin, sköpunina, gamla fólkið, mannlífið, alla. Líka þá sem ekki eiga peninga. Við getum tryggt að svo verði ef við leyfum akri R-listans að njóta frjó- seminnar og tökum ekki til við bar- daga um þúfur heldur færum út girð- inguna og sækjum fram af nýjum krafti með ungu fólki, hugsjónum og framtíðarpólitík. Gegn afturhaldinu og peningadekrinu, með borgarbúum og manngildinu. Borg okkar allra Svandís Svavarsdóttir fjallar um borgarstjórnarmál Svandís Svavarsdóttir ’Enginn á hinn frjóaakur R-listans, ekki heldur gamlir óðals- bændur, sem gera tilkall til nýgræðingsins, þykj- ast eiga hvert strá og hverja þúfu. ‘ Höfundur er í 1. sæti V-listans í vor. RAFLAGNA ÞJÓNUSTA RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Opnunartími virka daga frá kl. 14.00-18.00, um helgar frá kl. 10.30-18.00 Sendum út á land - Upplýsingasími 511 1055 í Perlunni catmandooR Ö H N I S C H AND1 Firefly Verðdæmi: Okkar verð: Fullt verð: Stakar íþróttabuxur 1.600 kr. 3.990 kr. NIKE stuttbuxur 1.400 kr. 3.600 kr. ADIDAS/NIKE/SPEEDO sundbolir Frá 1.000 kr. RUCANOR sokkar 3 í pakka 500 kr. ADIDAS innanhússkór STABIL 4.000 kr./7.000 kr. 7.990 kr./13.990 kr. NIKE alhliðaskór TERRA SEBEC 4.000 kr. 7.990 kr. NIKE innanhússkór MULTICOURT 2.300 kr. 4.600 kr. FIRE FLY barnaskór 1.200 kr. 3.990 kr. NIKE AIR DEFIANT körfuboltaskór 5.500 kr. 10.990 kr. NIKE anorakkar, fóðraðir 3.500 kr. 10.490 kr. NIKE gallar, stórar stærðir 3.500 kr. 11.990 kr. 50% afsláttur frá okkar verðum á öllum vörum Okkar takmark: 50-80% lækkun frá fullu verði Síðasti dagur miðvikudagurinn 9. nóvember

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.