Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR SUÐURNES Sandgerði | Hópur meistara- og doktorsnema frá öllum Norð- urlöndunum, Eistlandi og Bandaríkjunum eru þessa dagana á nám- skeiði í Háskólasetri Suðurnesja í Sandgerði til að læra á forrit sem notað er við að greina og lýsa óþekktum dýra- og plöntutegundum. Með kennurum, sem meðal annars koma frá Ástralíu þar sem for- ritið var hannað, telur hópurinn um 28 manns. Jörundur Svavarsson, prófessor í sjávarlíffræði við Háskóla Ís- lands og formaður stjórnar Háskólasetursins í Sandgerði, segir að forritið hafi reynst vel við lýsingu á áður óþekktum dýra- og plöntu- tegundum og endurlýsingu á þekktum tegundum, auk þess sem nota megi það til að útbúa hefðbundna eða gagnvirka greining- arlykla. Þá sé forritið ákaflega gagnlegt á svæðum þar sem menn vinni með fjölbreytilegt lífríki. Segir Jörundur að þetta forrit hafi verið lítið notað á Norðurlönd- unum og því hafi verið ákveðið að standa sameiginlega að nám- skeiðinu. Það er styrkt af norrænum sjóði, Nordic Marine Academy. Líffræðistofnun Háskóla Íslands stendur að framkvæmdinni ásamt Háskólasetrinu. Í Sandgerði er unnið að verkefninu Botndýr á Íslandsmiðum og telur Jörundur að forritið geti komið að góðum notum þar. Þá segir hann að kjöraðstæður séu til að halda námskeið sem þetta í Sand- gerði og því hafi staðurinn orðið fyrir valinu. Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Greining Meistara- og doktorsnemar frá Norðurlöndunum og víðar sækja námskeið um Delta-forritið í Háskólasetrinu í Sandgerði. Norrænir meist- aranemar læra á greiningarforrit Reykjanesbraut | „Auðvitað er maður ánægður með að hafa nóg að gera en við hefð- um viljað hafa verðin hærri,“ segir Karl Hannesson, stjórnarformaður Jarðvéla ehf. í Kópavogi, sem átti lægsta tilboð í annan áfanga breikkunar Reykjanesbraut- ar. Nýi vegurinn liggur frá enda tvöfalda kaflans á Strandarheiði og endar í mis- lægum gatnamótum í Njarð- vík. Hann er liðlega 12 kíló- metrar að lengd með fernum gatnamótum, mislæg tveggja brúa gatnamót verða við Vogaveg, Grindavíkurveg og við Tjarnahverfi í Innri Njarðvík og að auki brýr við Skógfellaveg sem er útivist- arvegur. Gert er ráð fyrir því að lögð verði ný akbraut sunnan við núverandi braut, síðan verði tengt saman beggja vegna og eftir það byggðar brýr á núverandi Reykjanesbraut. Fram- kvæmdum á að vera lokið í júní 2008 en verktakinn get- ur fengið aukagreiðslu ef hann skilar fyrr af sér. Glæsileg tilboð Tilboð voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær. Átta til- boð bárust, auk eins frávik- stilboðs. Jarðvélar ehf. í Kópavogi áttu lægsta tilboð- ið, liðlega 1175 milljónir kr. sem er rétt yfir 75% af áætl- uðum verktakakostnaði sem var 1560 milljónir. Jarðvélar ina, koma upp aðstöðu, gera verkáætlun og útvega stór- virk tæki og mannskap. Seg- ist hann vonast til að geta hafist handa mjög fljótlega, jafnvel fyrir áramót. Trúlega verði reynt að ljúka verkinu fyrr en áskilið er til að fá aukagreiðslur, svokallað flý- tifé. Flytja verður til landsins stærstu tækin sem notuð verða enda segir Karl að tækin sem notuð hafi verið við fyrri áfangann séu flest komin úr landi. Áætlar hann að 40 til 50 manns verði við verkið, þegar mest gengur á, og var á Karli að heyra að erfitt gæti verið að fá viðbót- armannskap. tilboð, með öllum fyrirvörum um að þau reynist rétt. Það er glæsilegt að fá tilboð sem er 75% af kostnaðaráætlun, ekki síst þegar það kemur frá verktaka sem nýlega er stig- inn upp frá því að vinna fyrri áfanga verksins og þekkir allar aðstæður,“ segir Sturla Böðvarsson samgönguráð- herra sem var viðstaddur opnun tilboðanna. Vonast hann til að þetta tryggi hraða framvindu verksins. Þarf að flytja inn tæki Karl Hannesson, stjórnar- formaður Jarðvéla, segir að ef samið verði við fyrirtækið muni það hefjast strax handa við að undirbúa framkvæmd- unnu að fyrri áfanga tvöföld- unar Reykjanesbrautar ásamt Háfelli ehf. og Eykt hf. Svo vildi til nú að Háfell, í samvinnu við Ris hf., er helsti keppinautur Jarðvéla. Þeir buðu tæplega 1197 milljónir í verkið. Tvö önnur tilboð voru litlu hærri en hæsta tilboðið var 1654 milljónir. Starfsmenn Vegagerðar- innar munu nú fara yfir til- boðin og ganga til samninga við verktaka. Jón Rögnvalds- son vegamálastjóri vekur at- hygli á því að lægstu tilboðin séu tiltölulega þétt. Hann vonast til að verktakinn hefj- ist handa sem fyrst eftir að samið verður. „Mér líst mjög vel á þessi Lægsta tilboð í Reykjanesbrautina 75% af áætlun Vegagerðar Gott að hafa nóg að gera Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/RAX Tilboð Vegagerðin fékk níu tilboð frá alls þrettán verktökum í annan áfanga Reykjanes- brautar. Sumir stóðu saman að tilboði. Nú verður gengið til samninga við lægstbjóðanda. HEILDARTEKJUR Akureyrar- bæjar verða tæpir 10,7 milljarðar króna á næsta ári og heildarútgjöld um 10,3 milljarðar króna þannig að rekstrarafgangur verður um 400 þúsund krónur að því er fram kem- ur í fjárhagsætlun sem lögð var fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akureyrar síðdegis í gær. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri sagði vöxt og grósku einkenna bæjarlífið um þessar mundir, sem m.a. mætti sjá í íbúaþróun síðastlið- inna ára og í þróun á fasteigna- markaði. „Þessar tvær breytur segja mest um hvort vöxtur eða samdráttur er í samfélaginu,“ sagði Kristján Þór. Veltureikningur samstæðureikn- ings er 1.03 og eiginfjárhlutfall 0,36%. „Fjárhagur bæjarins er mjög sterkur,“ sagði bæjarstjóri. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár gerir ráð fyrir miklum framkvæmd- um, eða fyrir alls um 1,5 milljarða króna. Vegur þar stærst bygging dvalarheimilis fyrir aldraða við Hlíð og þá er gert ráð fyrir að hafist verði handa við byggingu menning- arhúss og eins við nýjan grunnskóla í Naustahverfi. Framkvæmdir við fráveitu- og gatnagerð á komandi ári nema um hálfum milljarði. Framkvæmdir vegna fræðslu- og uppeldismála verða þó nokkrar á árinu 2006, eða fyrir samtals 264 milljónir og 234 milljónir vegna æskulýðs- og íþróttamála. Áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdir á vegum Norðurorku nemi 155 millj- ónum og 82 milljónir á vegum Hafn- arsamlagsins svo eitthvað sé nefnt. Í marsmánuði næstkomandi verð- ur tekin í notkun nýr leikskóli, Hólmasól og verður hann einkarek- in, en það er nýmæli norðan heiða. Til marks um aukin umsvif í rekstri bæjarins má nefna að hann er með starfsemi í nær 95 þúsund fermetrum af húsnæði og hefur það aukist á fáum árum um nær 24 þús- und fermetra, en að auki eru leigðir tæpir 11 þúsund fermetrar húsnæð- is undir reksturinn. Gert er ráð fyrir að íbúar á Ak- ureyri verði um 16.800 í lok árs. Spár gerðu ráð fyrir að íbúum myndi fjölga um 300 á árinu en samkvæmt tölum sem lágu fyrir í gær hafði íbúum fjölgað um 257 alls. Um 42% hækkun á fermetra undanfarna mánuði Á liðnum misserum hefur verið úthlutað lóðum undir 640 íbúðir. Möguleiki er á að bæta við um 200 með því að þétta byggð og þá nefndi bæjarstjóri að unnt væri að byggja nokkur hundruð íbúðir í miðbænum. Gera mætti betur að sögn Kristjáns Þórs í því að bjóða lóðir undir ein- býlishús, eftirspurnin hefði verið meiri en framboðið að undanförnu, „og við munum mæta henni“. Hækkun hefur orðið á fasteigna- markaði á Akureyri á undanförnum mánuðum, en um 42% hækkun hef- ur orðið á fermetra síðastliðinn 21 mánuð, frá janúar 2004 til septem- ber í ár. Ekki er í fjárhagsáætlun gert ráð fyrir miklum breytingum á gjald- skrám vegna þeirrar þjónustu sem bærinn veitir, þannig verður gjald- skrá leikskóla óbreytt á næsta ári, en að líkindum verður einhver hækkun á sorpgjöldum. Útsvar- sprósenta verður sú sama og á yf- irstandandi ári, en bæjarstjóri taldi víst að lækkun yrði á fasteigna- gjöldum. Ekki væri þó hægt að taka ákvarðanir í þeim efnum strax, álagningagrunnurinn lægi enn ekki fyrir. Heildartekjur Akureyrarbæjar um 10,7 milljarðar króna á næsta ári Vöxtur og gróska einkenna bæjarlífið Morgunblaðið/Kristján Fjárhagsáætlun Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri kynnti fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár ásamt þeim Dan Brynjarssyni, sviðstjóra stjórnsýslusviðs, og Jóni Braga Gunnarssyni hagsýslustjóra. Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur maggath@mbl.is Leikskólalóð | Á fundi skóla- nefndar var lagt fram uppkast að er- indi til Fasteigna Akureyrarbæjar. Samþykkt var að fela deildarstjóra skóladeildar að senda erindi til Fasteigna Akureyr- arbæjar, þar sem óskað verði eftir að við endurskoðun á deiliskipulagi í Síðuhverfi verði hug- að að lóð fyrir nýjan leikskóla í hverfinu, þar sem samningur um að- stöðu í Glerárkirkju rennur út árið 2011 og óljóst er um framlengingu á þeim samningi.    Fundur | Spjallfundur UVG verður í kvöld, miðvikudagskvöldið 9. nóv- ember, í Hafnarstræti 98 og stendur frá k. 20 til 22. Sagt verður frá landsfundi Vinstri grænna, Hlynur Hallsson varaþing- maður segir frá heitustu málunum á þingi í vetur, spjallað verður um prófkjör og undirbúning fyrir bæj- arstjórnarkosningar auk þess sem landsmálin og heimsmálin verða rædd og starf UVG á Akureyri í vet- ur skipulagt.    Neytendur | Gísli Tryggvason tals- maður neytenda flytur fyrirlestur í dag, miðvikudaginn 9. nóvember, kl. 16.30 í stofu L201 á Sólborg en hann mun fjalla um brýnustu hagsmuna- og réttindamál neytenda. Embættið er nýtt, en hlutverk talsmanns er þrí- þætt – kynning, varðstaða og áhrif á réttindi og hagsmuni neytenda.    AKUREYRI Sorg | „Áföll við slys“ er heiti á er- indi sem sr. Arnaldur Bárðarson flytur á fundi Samhygðar, samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, á fimmtudagskvöld, 10. nóvember kl. 20, í safnaðarsal Akureyrarkirkju. Allir eru velkomnir á fundinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.