Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 25 Í grein sem ég ritaði um mála-ferlin gegn stjórnendumHafskips og Útvegsbankansí ljósi Baugsmálsins komst ég að þeirri niðurstöðu að margt væri líkt en þó einnig margt afar ólíkt með þessum umfangsmiklu æsingamálum. Ég vil nú gera nán- ari grein fyrir því hvernig ég tel að einelti fjölmiðla og raunar sumra alþingismanna hafi skaðað Hafskip og komið í veg fyrir að tókst að selja það í rekstri og koma þannig í veg fyrir gjaldþrot þess. Erfiðleikar Hafskips á árinu 1984 Eftir að sæmilega hafði gengið á árunum á undan varð verulegt tap á rekstri Hafskips árið 1984. Það stafaði að verulegum hluta af ástæðum sem voru óviðráðanlegar fyrir stjórnendur félagsins, t.d. missti það flutninga fyrir varn- arliðið vegna ákvæða í gömlum bandarískum lögum. Þessir flutningar voru mikil kjölfesta í rekstri þess. Stjórnin ákvað í lok ársins að mæta þessu með verulegri hlutafjár- aukningu og útrás eins og nú er kölluð, þ.e. með því að taka upp siglingar beint á milli Evrópu og Bandaríkjanna án við- komu á Íslandi. Í febrúar á árinu 1985 ákvað hluthafafundur að ráðast í þessa aukningu hluta- fjár. Þess má geta að bankastjórn Útvegsbankans ákvað að styðja þessa aðgerð með því að lána fé- laginu peninga með tryggingu í skuldabréfum, sem gefin voru út vegna hlutafjárloforðanna. Það var raunar eina aukningin á útlán- um til félagsins í tíð starfandi bankastjóra, enda var tekið fram í rökstuðningi sýknudóms í máli þeirra að dómarar Sakadóms teldu þá með þessu og fleiru hafa staðið í „björgunaraðgerðum“ fyr- ir félagið og bankann. Í þessari út- rás þurfti félagið á mikilli tiltrú að halda bæði hér heima en ekki síst erlendis. Að þeirri tiltrú var auð- vitað vegið með þessum æsiskrif- um. Atgangur fjölmiðla hófst á árinu 1985 Í júní eftir ákvörðun um hluta- fjáraukninguna og rétt fyrir aðal- fund félagsins birtist fræg grein í Helgarpóstinum sem bar heitið: „Er Hafskip að sökkva?“ Þar var ráðist mjög hart að fyrirtækinu með dylgjum um tvöfalt meira tap á árinu 1984 en kom fram í reikn- ingum, skip þess væru lítils sem einskis virði og spurt: „Fer Haf- skip á hausinn?“ Innan skamms tóku aðrir fjölmiðlar undir þennan söng og málið var tekið upp á Al- þingi í sama dúr. Það skal tekið fram að Morgunblaðið skar sig úr í þessari umræðu og hélt sig við staðreyndir í skrifum sínum og fréttaflutningi. Auðvitað stórskað- aði þessi ofsafengna og neikvæða umræða fyrirtækið. Þó varð tjónið mest eftir að stjórn Hafskips og bankastjórn Útvegsbankans tóku sameiginlega ákvörðun á síðari helmingi ársins 1985 að eina leiðin til þess að forðast stórslys, eins og það var orðað, væri að selja fyr- irtækið í rekstri. Til þess þurfti auðvitað að koma í veg fyrir rekstrarstöðvun þess og kaupandi að finnast sem vildi kaupa við- skiptasambönd eða „goodwill“ þess á einhverju umtalsverðu verði. Í augum uppi liggur að þessi umræða var afskaplega þung í skauti fyrir stjórnendur fé- lagsins og Útvegsbankans sem tóku þátt í þessum sölutilraunum. Þessi ákvörðun um sölu Hafskips í rekstri var tekin eftir að í ljós kom töluverðu eftir birtingu grein- arinnar í Helgarpóstinum að álíka tap varð á fyrstu mánuðum ársins 1985 eins og nam tapi á öllu árinu 1984 og nýtt hlutafé því allt tapað og miklu meira til. Verðmæt eign Hafskips eyðilögð Síðari hluta ársins 1985 voru stjórnendur Hafskips og síðar Út- vegsbankans í viðræðum við for- ráðamenn Eimskips um sölu á Hafskip í rekstri. Af hálfu Eim- skips tóku þátt í viðræðunum þeir Halldór Jónsson stjórnarformað- ur, Indriði Pálsson og Hörður Sig- urgestsson forstjóri. Í viðræðun- um kom í upphafi fram að þeirra mat var að viðskiptasambönd eða „goodwill“ fyrirtækisins væri 8 millj. dollara virði. Þótt þetta sýn- ist ekki há fjárhæð á nútíma- mælikvarða nam hún mun hærri upphæð en uppsöfn- uðu tapi fyrirtæk- isins. Ég er sann- færður um og fullyrði að með sölu á fyrirtækinu í rekstri á eðlilegu verði m.v. fram- angreint verðmæti viðskiptavildar, hefði aldrei þurft að koma til þess að félagið yrði gjaldþrota. Einmitt á þessum tíma stóð einelti fjöl- miðla sem hæst og Jón Baldvin Hannibalsson tók málið upp á Alþingi á sömu nótum og Helgarpósturinn. Hann mót- mælti því sem hluthafi í Eimskip að það keypti Hafskip í rekstri. „Hvað á Eimskip að kaupa?“, spurði hann og í málskrúði hans fólst að eignir Hafskips væru nokkur úrelt skip, sem væru lítils sem einskis virði. Skipadeild SÍS sýndi um þetta leyti áhuga á að stofna hlutafélag til kaupa á Haf- skip í rekstri. Sú hugmynd for- ráðamanna Sambandsins var felld með naumum meirihluta í stjórn, en fáheyrt var að stjórn SÍS á þessum tíma tæki afstöðu gegn til- lögum forstjóra þess fyrirtækis. Þá var Eimskip orðið eitt um hit- una og einelti fjölmiðlanna í há- marki. Alkunna er hvernig þessi at- burðarás endaði. Hafskip var úr- skurðað gjaldþrota í desember 1985 og þar með glötuðust þau verðmæti sem forráðamenn Eim- skips mátu fyrr í viðræðunum á 8 millj. dollara. Þess er rétt að geta að allan tímann sem þessar sölu- viðræður áttu sér stað settu fyrr- greindir forráðamenn Eimskips fram þá óskiljanlegu kröfu að Út- vegsbankinn ábyrgðist að Eim- skip fengi ákveðið hátt hlutfall af þeim viðskiptum, sem Hafskip hafði haft í skipaflutningum. Ljóst er að ómögulegt var fyrir bankann að tryggja þetta og með öllu óeðli- legt. Hins vegar skiptu fyrrgreind æsiumræða í fjölmiðlum og á Al- þingi sköpum um samningsstöðu forráðamanna Hafskips og Út- vegsbankans. Gjörbreytt umhverfi í viðskiptalífinu Þegar menn rifja upp þessi ósköp þurfa menn að hafa í huga að í dag er gjörbreytt umhverfi á Íslandi í viðskiptalífinu, bankar og fjármálastofnanir hafa nú enda- lausa möguleika miðað við það sem var á þessum tíma til þess að kljást við slík mál ef þau koma upp. Margir hafa velt því upp hvort Hafskip hafi í raun aldrei verið gjaldþrota. Þá benda menn á að allt að 70% af kröfum í þrotabú- ið fengust greidd til kröfuhafa. Líta verður í því sambandi á að þrátt fyrir allt tókst að selja Eim- skip áþreifanlegar eignir þrotabús Hafskips í einu lagi sem var tví- mælalaust mjög hagstætt fyrir búið. Einnig þarf að hafa í huga hversu margfaldri fjárhæð nýs hlutafjár fyrirtækið tapaði á árinu 1984 og 1985. Markaðsverð skipa þeirra var mjög lágt og veð engin til staðar. Hvaðan átti félaginu að koma fjármagn til áframhaldandi rekstrar? Ólík rulla fjölmiðla í Hafskips- og Baugsmáli Ef menn skoða staðreyndir um þátt fjölmiðla og alþingismanna í þessum málum gegn stjórnendum Hafskips og Útvegsbankans ann- ars vegar og forráðamönnum Baugs hins vegar held ég að eng- um dyljist að hér er gjörólíku saman að jafna. Því miður held ég að ekkert sé ofsagt í því að um- ræðan í fjölmiðlum og á Alþingi sem átti mikinn þátt í múgæsingu meðal þjóðarinnar þegar Haf- skipsmálið var og hét megi líkja við einelti þar sem ekkert var sparað til þess að koma félaginu á kné. Ég sé ekki betur en að fjöl- miðlar séu nú í því hlutverki að verja þá sem sæta ákærum í Baugsmálinu áður en málið kemur til efnislegrar meðferðar dóm- stóla. Það er þó líkt með þessum tveimur málum að umfjöllunin er ofsafengin, oft á tíðum ekki sæm- andi og hefur valdið múgæsingu sem heltekið hefur þjóðina. Hvenær brotnar fjöreggið? Að lokum vil ég gera breyt- ingum á lífsskilyrðum þjóðarinnar undanfarna áratugi örlítil skil. Það er margt sem gerist í við- skiptalífi þjóðarinnar. Það kraum- ar og vellur í þessum ferlegu átök- um, sem eiga sér stað í bardögum gróðaaflanna innbyrðis. Ég er orðinn aldraður maður, en man þó allvel heimskreppuna í byrjun fjórða áratugs síðustu aldar. Þá var gífurleg fátækt og atvinnu- leysi, höft á innflutningi og of- stjórn á öllum sviðum. Bann var við allflestum framkvæmdum og stöðnun lífskjara. Fram- kvæmdamenn voru kærðir og sektaðir fyrir að byggja íbúðir og atvinnuhúsnæði. Nú er öldin önn- ur. Fjárfestarnir eins og þeir eru nú kallaðir eru að kaupa áhrif á Norðurlöndum, Eystrasalts- ríkjum og meira að segja hjá breska heimsveldinu. Á barnsaldri las maður sögur um tröllin sem köstuðu fjöreggi á milli sín og hlutu dauða ef ekki tókst að grípa. Nú kasta auðmenn fjöreggi sín á milli. Hvenær kem- ur sú stund að fjöreggið brotnar? Hvað tekur þá við? Fjölmiðlar og alþingis- menn lögðu stjórnend- ur Hafskips í einelti Eftir Matthías Bjarnason ’Ef menn skoða stað-reyndir um þátt fjöl- miðla og alþingismanna í þessum málum gegn stjórnendum Hafskips og Útvegsbankans ann- ars vegar og forráða- mönnum Baugs hins vegar held ég að engum dyljist að hér er gjör- ólíku saman að jafna.‘ Matthías Bjarnason Höfundur er fyrrv. alþingismaður og fyrrv. ráðherra, m.a. viðskipta- og bankamálaráðherra. Og beint milljónir Árið 2004 manna til and sem nuleysi og mjög fyrir stað,“ var usan Lec- rð í lestina dag. „Nei, t því slag nvel yfir- ndra fjöl- a þó for- ferðamála gnin „Al- tyrkneska nin „París ðum þang- herra seg- hafi flutt m. „Fólk Frakkland ð streymi, ekki hægt en það eru gir Bertr- ðbundnar igin raun. ginn und- ær. maðurinn ýr í hverf- eins eins ggu óeirð- drei hafa ennu var. etta á net- l.is,“ segir nt“ m múslím- ótin bein- nna hefur La Made- dí í fram- verslunar- meiddist m helgina. g araba á kanna en númer eitt sráðherra i á dögun- rir ofbeldi um borga og bæja væru „skítapakk“. „Fólk er yfirspennt og það þurfti aðeins lítinn neista til að kveikja bál- ið. Sá neisti var Nicolas Sarkozy. Hann ætti að skammast sín,“ segir Youssef Larraji, 39 ára starfsmaður á spítala. „Sarkozy er sökudólgur- inn. Hefði hann ekki svívirt íbúa út- hverfa hefði ekki soðið upp úr. Þeir sem misst hafa bíla sína eiga að lög- sækja ráðherrann,“ sagði vinur hans Jamel, 32 ára starfsmaður fé- lagsþjónustunnar. Eldri kynslóðir norður-afrískra innflytjenda segjast hafa skilning á ofbeldinu þótt þeir styðji það ekki. Ekkert sé fyrir unga fólkið við að vera – það sé fátækt og eigi enga framtíð fyrir sér. Við þetta hafi síðan bæst svívirðingar Sarkoz. „Vita- skuld er ekki rétt að kveikja í bílum, en Sarko hefði aldrei átt að stökkva olíu á eldana,“ sagði eldri maður við blaðamann á götu úti. Frönsk kona blandaði sér í málið. „Láttu ekki svona, ég skil ekki hvernig fólk reynir að búa til afsak- anir fyrir unglingana sem tóku þátt í ofbeldinu. Öll þekkjum við þá, það eru þessir í nýjustu Nike-skónum og með nýju farsímana,“ sagði hún. „Ég er svo eyðilögð. Hér hef ég búið í 30 ár og aldrei höfum við kynnst öðru eins,“ bætti konan, Marie-George Lebrun, 57 ára borgarstarfsmaður á eftirlaunum, við. „Auðvitað er einhver veila hér á ferð – það eru brestir alls staðar. En það reitir mig til reiði hvernig for- eldrar afsaka og leysa börnin, sem að ofbeldinu stóðu, undan ábyrgð. Hvaða erindi áttu þessir 13 og 14 ára unglingar fyrir það fyrsta út á göt- urnar seint að kvöldi?“ spurði Le- brun. Hópur hvítra manna stóð í hnapp við bíl og ræddi málið. „Að okkur setur viðbjóð. En auðvitað getum við ekkert sagt. Við verðum bara að sitja og horfa á þetta,“ sagði Jules, 38 ára gamall bifvélavirki. „Við ólumst upp með foreldrum þessara krakka. Spil- uðum við þá fótbolta, gengum í sama skóla og tuskuðumst stundum á. En það var aldrei talað um kynþáttafor- dóma. Og nú dragast þeir inn í þetta ofbeldi og réttlæta gjörðir barna sinna. Auðvitað ríkir gremja. Ég er reiður líka, allir eru reiðir. Ég er í skítavinnu og á lélegu kaupi, á skrjóð fyrir bíl. En geng samt ekki um eyði- leggjandi fyrir öðrum,“ bætir Jules við. Ofbeldið í frönsku úthverfunum þykir og varpa ljósi á upplausn for- eldravalds í fjölskyldum innflytj- enda. Þar hafi mæður og feður enga stjórn lengur á mótþróafullum börn- um sínum. Langflestir þeirra hund- raða manna sem handteknir hafa verið í óeirðum undanfarin 12 kvöld og nætur eru táningar og jafnvel yngri en það. Nær allir eru þeldökk- ir eða af arabísku bergi brotnir. „Í augum barna minna er ég hold- tekja hins misheppnaða manns,“ segir Meziane, fimmtugur fyrrver- andi blaðamaður sem flutti frá Alsír til Frakklands seint á níunda áratug nýliðinnar aldar og býr í Parísarút- hverfinu La Courneuve. Hann er þriggja barna faðir og hefur starfað sem húsamálari og þjónn en gengur nú atvinnulaus. „Er við því að búast að börnin taki tillit til mín eða vilji feta í fótspor mín þegar ég get aldrei veitt þeim neitt sem hugur þeirra girnist? Og það í samfélagi þar sem þau eru undir stöðugum þrýstingi neyslunnar,“ bætir hann við. Er hundruð þúsunda afrískra inn- flytjenda streymdu til Frakklands á sjöunda og áttunda áratug nýliðinn- ar aldar fluttust þeir flestir í úthverfi Parísar. Ólíkt afkomendum þeirra í dag áttu þeir tiltölulega auðvelt með að fá vinnu. Saga Sadeks nokkurs, 31 árs framhaldsskólagengins manns, þykir dæmigerð fyrir þá og endur- spegla í hnotskurn atvinnumögu- leika barna og barnabarna íslamskra innflytjenda í Frakklandi. Þau kunna vera frönsk á pappírunum en eru meðvituð um að Ali og Rachid munu að öllum líkindum þurfa að víkja fyrir Alain eða Richard. Sadek hætti nýlega að sendast með heimpantanir nýlenduvöru- verslunar í hverfinu Saint-Denis í norðurjaðri Parísar því hann var orðinn þreyttur á að þramma upp margar hæðir með þunga poka. Hann dreymir um betra starf. En hann gerir sér grein fyrir að mögu- leikarnir eru takmarkaðir. „Með nafn eins og mitt get ég ekki fengið sölustarf,“ segir hann. Starf við símasölu væri að vísu mögulegt – þar sem arabískur upp- runi hans væri ósýnilegur. En hann yrði þó að nota annað nafn í því starfi. Óttast efnahagssamdrátt Franskir hagfræðingar óttast að óeirðirnar kunni að draga úr al- mennri eftirspurn neytenda og einn- ig fjárfestingu útlendinga í frönsku efnahagslífi. Búist hefur verið við að hagvöxtur nemi 1,5% í Frakklandi í ár en Marc Touati hagfræðingur hjá bankanum Natexis Banques Populaires segir að upplausn og skortur á röð og reglu í samfélaginu kunni að bitna á neyslu á lokafjórðungi ársins sem sé einn sá mikilvægasti fyrir smásölu- verslunina. Kunni því að hægja á vexti á næsta ári. Óeirðirnar knýja frönsk yfirvöld til að takast á við reiði sem grafið hefur um sig í áratugi í vanræktum úthverfum meðal barna arabískra og annarra afrískra innflytjenda sem fædd eru í Frakklandi. Sáttatónn þótti vera í Jacques Chirac forseta er hann játaði á mánudag, að Frökk- um hefði mistekist að aðlaga börn innflytjenda frönsku samfélagi sem skyldi. Þá sagði Chirac – fyrrum borgarstjóri Parísar – að „gettóa- væðing“ franskra borga væri for- kastanleg. Rúmlega sjö af hverjum 10 Frökkum telja að stefna yfirvalda í málefnum fátækari úthverfa hafi mistekist, samkvæmt skoðanakönn- un sem birt var í fyrradag. Er spurt var almennt um afstöðu ríkisstjórn- arinnar til „ástands í úthverfum“ – án sérstakrar skírskotunar til óeirð- anna – sögðu 71% aðgerðir stjórn- arinnar hafa stefnt í öfuga átt. Aðeins fimmtungur studdi að- gerðir ríkisstjórnarinnar, sam- kvæmt könnuninni sem gerð var fyr- ir vefsetrið Yahoo, blaðið Liberation og fréttasjónvarpsstöðina iTele. Þá sögðust 58% aðspurðra ósátt við stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart atvinnuleysi – meginástæðu uppþot- anna – en aðeins 33% lýstu sig fylgj- andi stefnu stjórnarinnar. smun- grunar ozy Reuters hverfa Toulouse í suðvesturhluta Frakklands. agas@mbl.is ’Er við því að búast aðbörnin taki tillit til mín eða vilji feta í fótspor mín þegar ég get aldrei veitt þeim neitt sem hugur þeirra girnist? Og það í samfélagi þar sem þau eru undir stöðugum þrýstingi neyslunnar.‘

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.