Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 45 KEFLAVÍKÁLFABAKKI KRINGLAN Óskarsverðlaunhafi nn Al Pacino er í essinu sínu og hefur aldrei verið betri. Frá hÖfundi LEthal weApon. L.I.B. / topp5.is  H.J. / Mbl. Enn eitt snilldarverkið frá Tim Burton (“Charlie and the ChocolateFactory”). Með hinum eina sanna Johnny Depp. Ein frumlegasta mynd ársins. topp5.is DV Spenntu beltin og undirbúðu þig undir háspennumynd ársins með Óskarsverðlaunahafanum Jodie Foster. „Meistaraverk!” - San Fran Chronicle „Fullkomin!“ - The New Yorkera „Langbesta mynd ársins!“ - Slate TWO FOR THE MONEY kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 12 TWO FOR THE MONEY VIP kl. 5.30 - 8 - 10.30 CORPSE BRIDE kl. 4 - 6 - 8 - 10.10 KISS KISS BANG.. kl. 3.50 - 6 - 8.15 - 10.30 B.i.16 FLIGHT PLAN kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 12 WALLACE AND GROMIT - Ísl tal. kl. 4 WALLACE AND GROMIT- ensku.tali kl. 6 - 10.30 THE 40 YEAR OLD VIRGIN kl. 8 B.i. 14 SKY HIGH kl. 4 TWO FOR THE.. kl.8 - 10 B.i.12 FLIGHT PLAN kl. 10 MUST LOVE DOGS kl. 8 AKUREYRI KynLíf. MoRð. DulúÐ. Velkomin í partýið. GlettiLega gÓð og frumLEg spEnnuGrínmynd með töFf leiKUrum. TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI 2 VIKUR Í RÖÐ Ó.Ö.H / DV Val Kilmer Robert Downey Jr. TWO FOR THE MONEY kl.5.30 - 8 - 10.30 B.i. 12 KISS KISS BANG BANG kl. 6 - 8.15 - 10.30 B.i. 16 FLIGHT PLAN kl. 8 - 10 B.i. 12 WALLACE AND GROMIT - Ísl tal. kl. 6 TRANSPORTER 2 kl. 8 HISTORY OF... kl. 8 M.M.J. / Kvikmyndir.com Kvikmyndir.is  Roger Ebert S.V. / MBL  En auk hans fara þau Matthew McConaughey („Sahara“) og Rene Russo („The Thomas Crown Affair“) á kostum í kraftmikilli mynd  TOPP5.is S.V. / MBL Peysudagar 20% afsláttur af peysum í nokkra daga TÓNLIST Geisladiskur Daníel Ágúst - Swallowed a Star  Öll lög og textar eru eftir Daníel Ágúst Haralds- son að undanskildu „Intersection“ em er eftir Daníel og Bix og textanum við „Someone Who Swallowed a Star“ sem er eftir Gabríelu Frið- riksdóttur. Upptöku önnuðust Arnar Guð- jónsson, Sveinn Kjartansson og Rick Parker. Hljóðblöndun var í höndum Daníels og Bix. Daníel útsetti fyrir strengjahljóðfæri. One Little Indian gefur út. Á ANNARRI plötu Gusgus, This is Normal, mátti finna lagið „Bambi“ í miðju plötunnar, innan um misgóða húss- melli. Lagið var sungið af Daníel Ágústi Haraldssyni, samanstóð af strengja- hljóðfærum, sparsömum slagverksleik og hugljúfum texta, og reyndist vera eitt besta lag plötunnar. Þeir tónar sem voru viðraðir í því lagi virt- ust þó gleymdir á plöt- unni Attention, enda hafði Daníel þá sagt skilið við sveitina. Nú, fimm árum síðar, hljóta þessir tónar upp- reisn æru með útgáfu sólóplötunnar Swallowed a Star. Hér er á ferðinni sann- kallað kammerpopp; lágstemmd popplög útsett fyrir strengjakvintett og sinfónískt slagverk, krydduð með smávægilegum rafgöldrum. Útkoman er virkilega áhuga- verð plata sem vex við hverja hlustun. Til vitnis um gæði laganna og útsetn- inganna á plötunni má benda á lagið „Int- ersection“. Það er eina lag plötunnar sem er ósungið, en þrátt fyrir það er það með betri lögum á plötunni. Hógvær útsetn- ingin fyrir klarínett, trompet, píanó, strengi, hljóðbrellur og slagverk undir- strikar einfaldan en fagran hljómagang- inn og umvefur hlustandann dularfullri hlýju. Hlýja er lykilorð plötunnar; lög, hljómur og textar eru afskaplega hlýleg svo úr verður tónverk sem er afskaplega kærkomið þessa köldu vetrardaga. Þótt draga megi þá ályktun af ofan- greindum lýsingum að platan líkist Five Leaves Left með Nick Drake þá stendur hún mun nær Bryter Layter ef eitthvað er. Lögin eru oft á tíðum ansi hressileg - lagið „The Sting Ray“ minnir t.d. á Tom Waits, þó rödd Daníels sé öllu þýðari. Þá myndar óvenjulegur hljóðheimurinn oft á tíðum skemmtileg „grúv“ sem auðvelt er að kinka kolli við. Þessi grúv enduróma síðan í raddnotkun Daníels sem minnir á köflum á sálar- eða gospelsöngvara, t.d. í hinu frábæra „Sparks Fly“. Í því lagi er einnig að heyra eina smekklegustu notk- unina á rafeindahljóðum. Það er óumflýjanlegt að líkja Swallow- ed a Star við Homogenic Bjarkar, eins besta samruna klassískra hljóðfæra og rafeindafikts sem út hefur komið. Röddin sem slagverkshljóðfæri er einnig í stóru hlutverki hér og vekur því upp hugrenn- ingatengsl við Medúllu. Þótt plata Daní- els slái ekki Homogenic við þá gengur hann að sumu leyti lengra en Björk í bræðingi hins nýja og hins gamla því hann sækir sér föng á fleiri staði og fleiri tímabil eins og fram hefur komið. Platan hefur geysilega víða skírskotun fyrir vik- ið. Swallowed a Star gæti vel verið nýtt upphaf á ferli Daníels Ágústs sem fram- sækins söngvara og það kæmi mér ekki á óvart ef platan myndi slá í gegn erlendis þegar dómar birtast og fólk fer að skiptast á skoðunum (og tölvuskrám). Það er því um að gera að krossleggja fingur og vona að stjarnan sem Daníel gleypti hafi hann með sér upp á stjörnu- himininn, hún hefur alla burði til þess. Atli Bollason Með stjörnuna í hálsinum                                        !                                                              ! !       " # $            %#       ' (  )     (   !    ) Á HEIMASÍÐU Iceland Airwav- es-hátíðarinnar er hægt að nálg- ast svokallaða Podcast-þætti sem teknir voru upp meðan á hátíð- inni stóð. Þættirnir fjórir inni- halda viðtöl við gesti hátíð- arinnar, blaðamenn og listamenn en á síðunni er bæði hægt að sækja hvern þátt fyrir sig og ger- ast áskrifandi að væntanlegum þáttum þegar þeir komast í um- ferð. Samkvæmt Arnþóri Snæ Sæv- arssyni, sem sá um framkvæmd Airwaves Podcast ásamt Stuart Rogers, njóta þættirnir þegar mikilla vinsælda og hafa rúmlega 300 manns gerst áskrifendur að Airwaves Podcast auk þess sem hver þáttur hefur verið sóttur af 700 notendum frá því hátíðinni lauk. Því hefur verið ákveðið að búa til sérstakan aukaþátt af því efni sem tekið var upp á Airwav- es í ár, sem hlotið hefur nafnið Episode X og reiknar Arnþór með því að hann komi út í næsta mánuði. Stefnt er að því að bjóða síðan upp á fleiri Airwaves Pod- cast-þætti þegar nær dregur næstu Airwaves-hátíð og verða áskrifendur þeirra látnir vita um leið og nýir þættir eru tilbúnir. „Broadcast“ – „Podcast“ Faðir Podcastsins er hinn kunni umsjónarmaður MTV Adam Curry, sem hóf feril sinn sem umsjónarmaður Headbang- ers Ball. Curry kynnti Airwaves- Podcastið sérstaklega í sínum eigin Podcast-þætti sem nýtur mikilla vinsælda og virðingar meðal Podcast-áhugamanna um allan heim. Adam skapaði Pod- castið fyrir rúmu ári þegar hann víraði saman tækni sem var til á sínum tíma til þess að grípa hljóðskrár á netinu og setja þær á mp3-spilara og skýrði það „podcasting“ með vísun í enska orðið fyrir útsendingu; „broad- casting“. Síðan þá er óhætt að segja að Podcast-tæknin hafi far- ið sigurför um heiminn. Tónlist | Iceland Airwaves færir út kvíarnar á netinu Morgunblaðið/Árni TorfasonIceland Airwaves-hátíðin var stærri en nokkru sinni áður í ár. www.icelandairwaves.com Airwaves í spilastokki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.