Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Uppgangur
í Borgarnesi
Loftorka,
golfhótelið og
Límtré/Vírnet
sótt heim
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
á morgun
BALDUR Ingólfsson, þýskukennari
og löggiltur dómtúlkur og skjala-
þýðandi í þýsku og íslensku, hlaut á
dögunum heiðursorðu frá þýska
ríkinu fyrir störf í þágu þýskrar
menningar og tungu á Íslandi. Það
var Johann Wenzl, sendiherra
Þýskalands á Íslandi, sem afhenti
Baldri orðuna í móttöku sem fram
fór í þýska sendiherrabústaðnum.
Orðunni fylgdi heiðursskjal und-
irritað af Horst Köhler, forseta
Þýskalands.
Baldur kenndi þýsku í áratugi.
Hann var kennari við Mennta-
skólann í Reykjavík í 30 ár, kenndi
á Akureyri í tvö ár og hefur kennt
þýsku víðar. Þá stóð hann fyrir
þýskukennslu í sjónvarpinu um
tíma. Baldur hefur í áratugi unnið
við skjalaþýðingar úr þýsku. Hann
hefur einnig þýtt nokkrar bækur úr
þýsku yfir á íslensku, meðal annars
eftir höfundana Heinrich Böll, Sig-
fried Lenz og Friedrich Dürren-
matt. Um þessar mundir er Baldur
að þýða skáldsögu eftir Dürren-
matt og hefur nýlokið við þýðingu
bókar um sögu Kötlugosa eftir
svissneskan höfund.
Johann Wenzl, sendiherrra Þýskalands á Íslandi, afhenti Baldri Ingólfssyni heiðursorðuna.
Hlaut heiðursorðu fyrir
störf í þágu þýskrar tungu
BEITA varð klippum til að ná
konu út úr bifreið eftir árekstur
hennar við stóra rútu skammt frá
Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi um há-
degi í gær. Konan var flutt með
þyrlu á slysadeild Landspítalans í
Fossvogi þar sem hún gekkst und-
ir aðgerð.
Slysið varð á Snæfellsnesvegi,
við veginn að Bjarnarhöfn. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni í Stykkishólmi rann bíll kon-
unnar til í hálku og skall af miklu
afli framan á rútuna. Einn farþegi
var í rútunni auk ökumanns og
skarst farþeginn á höku. Eftir að
slökkviliðsmönnum hafði tekist að
losa konuna úr bílnum var hún
flutt á sjúkrahús í Stykkishólmi og
síðan út á flugvöll þangað sem TF-
LÍF sótti hana. Konan, sem er á
þrítugsaldri, missti ekki meðvitund
við slysið og að sögn vakthafandi
læknis á slysadeild hlaut hún bein-
brot en ekki lífshættulega áverka.
Bíll konunnar er gjörónýtur og
rútan er stórskemmd.
Kona á þrítugsaldri flutt á slysadeild í þyrlu
Bíllinn skall framan á rútu