Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 17 MINNSTAÐUR HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Á skólaþinginu verða umræður um framtíðarsýn skólanna og einnig verður unnið í hópum þar sem hvert skólastig verður tekið fyrir. Í umræðunni verður notuð aðferð sem gerir öllum mögulegt að tjá skoðanir sínar á auðveldan og skemmtilegan hátt. Foreldrar og aðrir Garðbæingar eru hvattir til að grípa tækifærið og taka virkan þátt í að móta stefnu skólanna í bænum. Dagskrá skólaþingsins er á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is Garðabær | Öllum Garðbæingum er boðið að taka þátt í að móta stefnu skólanna í Garðabæ til næstu ára á skólaþingi sem haldið verður í Flataskóla á morgun kl. 19.30–22. Á þinginu verður fjallað um leikskóla, grunnskóla og Tónlistar- skólann í Garðabæ. Yfirskrift þingsins er „Skólar framtíðar – nemandinn í nær- mynd“ en þingið er liður í vinnu við endurskoðun heildstæðrar skólastefnu Garðabæjar sem nær til leikskóla, grunnskóla og tónlist- arskóla bæjarins. Núgildandi skólastefna var samþykkt árið 2002 og nær til ársins 2005. Með samþykkt hennar var Garðabær eitt af fyrstu sveitarfélögum lands- ins til að móta heildstæða stefnu í skólamálum sem tekur til allra þeirra skóla sem bærinn rekur. Skólastefnan hefur, að sögn bæj- aryfirvalda, skilað margvíslegum ávinningi ekki síst hvað varðar samfellu og samstarf á milli skóla- stiga. Skólaþing í Garðabæ Heilbrigðiseftirlitið mælir magnPAH-efna á Hvaleyrarholti Vilja þekkja stöðuna í íbúabyggð Hafnarfjörður | Starfsmenn Heil- brigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis (HHK) mæla reglulega magn ýmissra eiturefna sem finna má í andrúmsloftinu. Þar á meðal má nefna mælingar á loft- mengun á Hvaleyrarholti vegna iðnaðarsvæðisins fyrir sunnan Hafnarfjörð. Þannig hafa mælingar m.a. á brennisteinsdíoxíði og flúor- samböndum staðið yfir að mestu óslitið frá lokum níunda áratugar- ins og svifryksmælingar frá miðjum tíunda áratugnum. Í ár ákvað Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis að gera tilraunir með mælingar á efnum úr efnisflokknum PAH (Polýarómatískar vetniskolefnis- sameindir) í andrúmsloftinu, en nokkur af hinum ólíku PAH-efnum eru eitruð, geta skaðað erfðaefni líkamans og valdið krabbameini. Þá geta sum efni í PAH-flokkn- um virkað sem hormón og truflað eðlilega starfsemi líkamans, m.a. æxlun. PAH-efni verða til við ófull- kominn bruna á lífrænu efni, en slíkur bruni á sér m.a. stað í umferð og ýmiss konar iðnaðarstarfsemi, m.a. malbikunarstöðvum, álverum og fleiri stöðum. Mælast í sjávarfangi PAH-efni hafa mælst í skelfiski nálægt álverum og í seinni tíð hafa þau fundist í nokkru magni í fiski og þá sérstaklega í lifur fisks. Manneldisyfirvöld í Noregi hafa m.a. mælt með takmörkun á neyslu fisks og skelfisks úr nokkrum norskum fjörðum vegna PAH- mengunar. Að sögn Tore Skjenstad, heil- brigðisfulltrúa hjá HHK, var það vilji heilbrigðisnefndar að sjá hversu langt mengun frá iðnaðar- svæðum dreifðist. „M.a. skoðum við hvernig mengunin frá álverinu í Straumsvík og fleiri fyrirtækjum dreifist,“ segir Tore. „Magn brenni- steinstvíildis og flúorssambanda hefur verið vel undir viðmiðunar- mörkum og við bjuggumst ekki við öðru. Þessar sýnatökur voru upp- haflega svolítið slitróttar, vegna mikils kostnaðar við efnamælingar, en nú hafa þær verið mun reglu- bundnari um nokkurt skeið.“ Ekki búist við miklu Tore segir heilbrigðisfulltrúa ekki búast við því að PAH-meng- unin sé yfir viðmiðunarmörkum, en mikilvægt sé að gera slíkar mæl- ingar til að þekkja stöðuna. „Þetta eru líka, frá umhverfislegu sjónar- miði séð, sérstaklega spennandi mælingar þegar haft er í huga að PAH-efni hafa aldrei verið mæld fyrr utandyra hér á landi,“ segir Tore, en mælingarnar hafa staðið frá því í september með nokkurri slembidreifingu. „Við vonumst til að fá vísbendingar um hvort PAH- efni greinist í námunda við iðnaðar- hverfi og ef svo er hvort það verði eitthvað í námunda við viðurkennd umhverfismörk. Það má búast við bráðabirgðaniðurstöðum innan nokkurra vikna frá því að við send- um sýnin til greiningar út til NILU (Norsk Institut for Luftforurens- ing) í Noregi) nú í lok nóvember. Við höfum leigt sýnabúnað frá þeim og þeir hafa kennt okkur á sýnatök- urnar. Við ættum síðan að hafa eitt- hvað í höndunum rétt eftir áramót.“ Árvökull Tore Skjenstad stillir mengunarmælingartækin á ný. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.