Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
– Lárus Jóhannesson í 12 Tónum
BÓKAÚTGÁFAN HÓLAR
Gildir til 15. nóvember 2005
30% afsláttur
,,Ég gat bara ekki staðið upp
frá bókinni fyrr en ég var
kominn með svo mikinn
hláturkrampa að ég varð
að standa upp."
Magnús Kjartansson
Kristján Hreinsson segir sögu
Péturs af hreinni snilld og er
trúr minningu popparans.
Pétur poppari,
grátið með bros á vör
HÚSFÉLAG Skúlagötu 32 til 34
vinnur nú að, í samráði við lög-
fræðinga sína, að kæra ákvörðun
borgarinnar um byggingu á svo-
kölluðum Barónsreit sem afmark-
ast af Vitastíg, Skúlagötu, Bar-
ónsstíg og Hverfisgötu. Þar er
fyrirhuguð bygging tveggja íbúða-
húsa, með um hundrað íbúðir fyrir
stúdenta, á fjórum og fimm hæð-
um. Meðal þeirra athugasemda
sem gerðar verða eru vegna
skerðingar á birtu en nokkrar
íbúðirnar eru aðeins með glugga
að reitnum. Þá er einnig gerð at-
hugasemd við götumyndina sem
húsfélagið telur að muni ekki
halda sér með framkvæmdunum.
Kristófer Már Kristinsson, íbúi í
húsinu, segir að þegar hann hafi
keypt íbúðina hafi bygging á
svæðinu verið fyrirhuguð en sam-
kvæmt deiliskipulagi þá hafi verið
gert ráð fyrir tveimur byggingum
sem hvor um sig myndu vera tvær
hæðir og ris. „Síðan komu fram
breytingartillögur sem virtust
búnar til svo síðar væri hægt að
koma með málamiðlun. Fyrst kom
tillaga um sjö hæða hús en nið-
urstaðan verður semsé fimm hæð-
ir,“ segir Kristófer sem hefur
áhyggjur af því að íbúð hans, sem
er á þriðju hæð, endi sem kjall-
araíbúð í samanburði við nýbygg-
ingarnar sem standi talsvert
hærra en Skúlagata 32 til 34.
Ingi Björn Poulsen, formaður
húsfélagsins, segir jafnframt at-
hyglisvert að fyrirhugað sé að
byggja um hundrað námsmanna-
íbúðir en ekki sé gert ráð fyrir
neinum bílastæðum. Segir hann að
ráða megi af fundi skipulagsráðs
að það sé stefna hjá borginni og
gera megi því ráð fyrir því að þær
námsmannaíbúðir, sem byggðar
verða í framtíðinni, muni fylgja
sömu stefnu. „Hundrað íbúðir er
ekki lítið og það er alveg fyrirséð
að bílastæðavandinn á svæðinu,
sem er slæmur fyrir, á eftir að
fara vaxandi.“
Einn aðili í skipulagsráði
greiddi atkvæði
Að auki er gert ráð fyrir bygg-
ingu þriggja fimmtán hæða íbú-
ðaturna við Skúlagötu og bílakjall-
ara fyrir þá.
Ingi Björn bendir á að fyrir
nokkrum árum voru gerðar end-
urbætur á Skúlagötu 32 til 34 og
einnig á hóteli sem samfast er
byggingunni. Þá hafi aðeins feng-
ist leyfi fyrir að bæta einni hæð
ofan á húsin en hærri húsum neit-
að á þeim forsendum að deili-
skipulagið gerði ekki ráð fyrir
hærri húsum og að þau þyrftu að
liggja vel í götumyndinni. „Síðan
tveimur til þremur árum síðar er
búið að teikna upp fimmtán hæða
turna sem eru í engu samræmi við
götumyndina,“ segir Ingi Björn og
bendir jafnframt á að það hljóti að
vera furðuleg vinnubrögð að að-
eins einn aðili í skipulagsráði hafi
greitt tillögunni um Barónsreitinn
atkvæði en allir hinir hafi setið
hjá, meðal annars á grundvelli
mótmæla húsfélagsins. Í borg-
arráði hafi svo þrír aðilar greitt
atkvæði en aðrir setið hjá. „Það
vekur því athygli, allavega mína,
að þarna getur einn aðili og svo
þrír þrýst svona mikilli breytingu
á miðborginni í gegn með hand-
afli.“
Mikil lyftistöng
fyrir miðborgina
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs, segir framkvæmd-
irnar vera hluta af stóru verkefni
við andlitslyftingu svæðisins í
kringum Hlemm og með þeim sé
verið að styrkja bakland miðborg-
arinnar. Hann segir málið hafa
verið töluvert lengi í vinnslu og
nokkrar útfærslur hafi verið lagð-
ar fram. Hann segir að málið hafi
verið nokkuð umdeilt, einkum þar
sem námsmannaíbúðirnar eiga að
rísa, en dregið hafi verið úr hæð
bygginganna til að koma til móts
við ábendingar íbúa á svæðinu.
„Nú er þetta í sæmilegu samræmi
við það skipulag sem var í gildi.
Að minnsta kosti þannig að
skuggavarpið er ekki verra heldur
en það sem fyrir var þó það breyt-
ist aðeins. Það komu ábendingar
um það að þessi uppbygging væri
of mikil, sérstaklega inni á reitn-
um. Við tókum mið af því eins og
við gátum en það er ekki hægt að
koma til móts við alla en við lögð-
um okkur sannarlega fram og
gerðum okkar besta,“ segir Dagur
og bætti við að þarna þyrfti að
byggja upp og gera það almenni-
lega.
Hann segir námsmannaíbúð-
irnar verða mikla lyftistöng fyrir
miðborgina og yfirvöld vilji fá
stúdenta þangað. Hann segir að
gert sér ráð fyrir að íbúðirnar
verði valkostur fyrir þá nema sem
annaðhvort séu ekki á bíl eða
kaupi sér einfaldlega bílastæði í
nærliggjandi bílastæðahúsum.
Um fimmtán hæða turnana sem
rísa eiga við Skúlagötu segir Dag-
ur að töluvert langt sé síðan sú
lína var lögð að byggðin teygði sig
nokkuð til himins næst Skúlagöt-
unni. Það sé í ágætis samræmi við
strandlengjuna þó svo að ákvörð-
unin hafi verið umdeild á sínum
tíma.
Húsfélag Skúlagötu 32 til 34 áformar að kæra ákvörðun um byggingu á svokölluðum Barónsreit
Segja breytingu á
miðborginni þrýst
í gegn af fáum
Morgunblaðið/Golli
Gert er ráð fyrir eitt hundrað námsmannaíbúðum í 4–5 hæða húsum á Barónsreitnum. Einnig er áformað að bygg-
ingar á horni Skúlagötu og Vitastígs verði rifnar og þrír fimmtán hæða íbúðaturnar verði byggðir þar í staðinn.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur hnekkt frá-
vísunarúrskurði Héraðsdóms
Reykjaness varðandi ákæru sýslu-
mannsins í Keflavík á hendur fyr-
irsvarsmanni tveggja fyrirtækja
sem hafði sex útlendinga í vinnu hér
á landi. Hann var ákærður fyrir
brot á lögum um atvinnuréttindi út-
lendinga. Héraðsdómi þótti vera
það miklir annmarkar á ákærunni
að vísa ætti henni frá dómi.
Í ákæru hafi m.a. sagt að sex-
menningarnir hafi verið ráðnir til
starfa við byggingarvinnu á vegum
tiltekins félags frá því í september
2002 með hléum fram í september
2003 en hið rétta væri að þeir unnu
fyrir áramót við niðurrif verksmiðju
en það verk var ekki á vegum um-
rædds félags. Þá væri nokkuð á
reiki í málinu á hvaða tíma hver og
einn þeirra vann við framkvæmdir á
vegum félagsins. Vísaði héraðsdóm-
ur því ákærunni frá en úrskurður
þess efnis var kærður til Hæsta-
réttar sem felldi hann úr gildi.
Að mati Hæstaréttar var ekki
ástæða til að vísa málinu frá vegna
óskýrleika í málatilbúnaði ákæru-
valdsins. Taldi Hæstiréttur að
ákæruvaldið hefði með útgáfu
ákæru tekið afstöðu til sakarefn-
isins samkvæmt mati sínu á fyr-
irliggjandi sönnunargögnum. Fælist
því í ákærunni fullyrðing um máls-
atvik og yrði málinu hvorki vísað frá
vegna óskýrleika né af öðrum
ástæðum. Var úrskurður héraðs-
dóms því felldur úr gildi og lagt fyr-
ir héraðsdómara að taka málið til
efnismeðferðar.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Hrafn Bragason, Árni Kol-
beinsson og Ingibjörg Benedikts-
dóttir. Jón Eysteinsson sýslumaður
flutti málið fyrir ákæruvaldið og
Jón Einar Jakobsson hdl. fyrir
ákærða.
Ekki fallist
á frávísun
ákæru
ÁRNI M. Mathiesen, fjármálaráð-
herra, sat fund fjármálaráðherra
EFTA og ESB ríkjanna í gær þar
sem fjallað var um atvinnusköpun,
hagvöxt og hnattvæðingu.
Gordon Brown, fjármálaráðherra
Bretlands, bauð EFTA ríkin vel-
komin á fundinn og sagði mikilvægt
að ræða um hvað ríkin gætu gert til
að bregðast við hnattvæðingunni,
en hún gerir sömu kröfur til þeirra
allra.
Árni veitti sendinefnd EFTA
ríkjanna forystu og flutti erindi af
því tilefni um sameiginlegar
áherslur EFTA ríkjanna og góða
reynslu Íslendinga af EES samn-
ingnum og skipulagsbreytingum í
efnahagsmálum.
Ráðherrar Noregs, Sviss og
Liechtenstein tóku einnig til máls
og þá ráðherrar Hollands, Slóveníu,
Póllands og Bretlands. Það var
sameiginleg niðurstaða ráð-
herranna að ljóst væri hvað þyrfti
að gera, vandinn væri að koma því
framkvæmd, segir í frétt frá ráðu-
neytinu.
Ráðherrar ræða
áhrif hnattvæðingar
Árni M. Mathiesen og Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands.
ÖKUMENN sem aka á búfénað
þurfa að sitja uppi með tjónið
sjálfir að sögn lögreglunnar á
Blönduósi. Tryggingafélög koma
ekki til móts við tjón ökumanna
og því hafa vaknað spurningar
um til hvers bann við lausa-
göngu búfjár hafi verið sett úr
því það breyti engu.
Fyrir skemmstu var ekið á á
annan tug kinda þar sem lausa-
göngubann er í gildi og í fyrra-
kvöld var ekið á hross í Húna-
þingi eystra þar sem ekki er
lausagöngubann.
Burtséð frá þessu hefur ekki
kveðið rammt að lausagöngu í
Húnaþingi vestra og eystra. Í
Húnaþingi vestra sér Vegagerð-
in um að taka út girðingar með-
fram vegum vegna lausagöngu-
bannsins og ábyrgist hún að
þær séu í lagi. Lögreglan á
Blönduósi segir núorðið lítið um
að skepnur fari út á hringveginn
en hins vegar geti slíkt hent
þegar girðingar fenni í kaf.
Einnig bendir lögreglan á að við
marga bæi séu ristarhlið sem
geti fyllst af snjó með þeim af-
leiðingum að skepnur komast
yfir með tilheyrandi hættu fyrir
þær jafnt sem ökumenn. Þess
vegna verði bændur að fylgjast
vel með hliðunum til að fyrir-
byggja þennan vanda.
Ökumenn sitja uppi
með tjónið sjálfir