Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 11 FRÉTTIR RÚMLEGA 100 kennarar í fimm framhaldsskólum mótmæltu stytt- ingu náms til stúdentsprófs á Aust- urvelli eftir hádegi í gær. Hugðist hópurinn afhenda mennta- málaráðherra undirskriftalista úr skólunum, en þar sem ráðherra var staddur á Akureyri tók Sólveig Pét- ursdóttir, forseti Alþingis, við undir- skriftalistunum. Um var að ræða kennara úr Menntaskólanum í Reykjavík, Kvennaskólanum, Menntaskólanum við Sund, Verzlunarskóla Íslands og Menntaskólanum á Akureyri. Allir eru skólarnir bekkjarkerfisskólar, og hafa forsvarsmenn kennaranna m.a. áhyggjur af því að stytting náms komi illa niður á skólunum, auki einhæfni og takmarki mögu- leika til sérhæfingar. Ekkert hefur komið fram um hvort eða hvernig eigi að taka tillit til sérstöðu bekkjarkerfisskólanna, segir Sigurður Hlíðar, líffræðikenn- ari í Verzlunarskólanum, einn þeirra sem mótmæltu á Austurvelli. Hann sagðist ekki vongóður um að mark yrði tekið á mótmælum og undir- skriftalistum. „En auðvitað vona ég að málið verði skoðað til hlítar. Það þarf að skoða styttinguna í meira heildar- samhengi, skoða námsferilinn alla leið, ef á annað borð á að stytta. En svo eru auðvitað til ansi margar leið- ir fyrir nemendur til þess að stytta nám sitt nú þegar og óþarfi að hrófla við skólaumhverfinu, kerfið er ágætt eins og það er. Það hentar ekki öllum að stytta nám sitt en þeir sem það vilja gera geta farið ýmsar leiðir til þess,“ segir Sigurður. Útilokað að kenna efnið á 3 árum „Það er augljóst að með þessu er verið að skerða menntun,“ segir Sigríður Arnbjarnardóttir, ensku- kennari í MR, sem segir að frekar sé hægt að gefa möguleika á því að ljúka grunnskólanámi á skemmri tíma en að stytta nám í framhalds- skóla. „Það vita það allir kennarar og nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík að það er útilokað að kenna það efni sem er kennt þar á þremur árum. Nemendunum er haldið við efnið þar, og maður hugs- ar stundum um hvað þetta er dug- legt fólk að komast í gegnum þetta, því kröfurnar eru svo miklar.“ Sigríður segir íslensk ungmenni sem ljúka stúdentsprófi mjög vel undirbúin fyrir háskólanám. „Í Bandaríkjunum fá íslenskir stúd- entar að taka BA- eða BS-nám á þremur árum en ekki fjórum eins og tíðkast þar. Það myndi væntanlega breytast. Krakkar myndu því ljúka námi yngri, en það er alls ekki víst að þau hefðu sama aðgang að skól- um í öðrum löndum.“ Fórna ýmist dýpt eða breidd Enn hefur ekki gefist tækifæri til þess að meta árangur af nýrri nám- skrá sem komið var í gagnið árið 1999, enda fyrstu nemendurnir sem stunduðu nám samkvæmt þeirri námskrá útskrifaðir á síðasta ári, segir Sigríður Hlíðar, stærð- fræðikennari í MR. Hún segir mikla vinnu hafa farið í bæði að gera nám- skrána og aðlaga starf skólanna að henni, og kostað mikla baráttu fyrir bekkjarskólana að halda sérkennum skólanna. „Hvað þýðir það ef við tökum þá stefnu í Menntaskólanum í Reykja- vík að halda dýptinni í fögunum, keyra þetta í gegn á þremur árum. Þá eru krakkarnir kannski í 10 stærðfræðitímum á viku í þrjú ár, þá fá þau þessar 30 einingar sem þau hafa verið að fá í eðlisfræðideild almennt. Hvað hverfur þá, er það þýskan? Eða mannkynssagan? Það er alveg ljóst að þetta hefur áhrif, spurningin er hverju verður fórnað, dýptinni eða breiddinni,“ segir Sig- ríður Hlíðar. Hún bendir á að áform um að færa fyrstu áfangana í stærðfræði í efsta bekk grunnskólans sé viðsnún- ingur, sú stærðfræði hafi verið flutt upp í menntaskólana þegar lands- prófið var fellt niður þar sem þessi stærðfræði þótti ekki vera fyrir alla. Ekkert hafi breyst síðan það var gert. Kennarar í bekkjarkerfisskólum mótmæltu skerðingu náms til stúdentsprófs Ekki tekið tillit til sérstöðu skólanna Morgunblaðið/Golli Á annað hundrað kennara úr fimm menntaskólum mótmælti skerðingu náms til stúdentsprófs á Austurvelli í gær. Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is Sigurður Hlíðar Sigríður Arnbjarnardóttir Sigríður Hlíðar KJARTAN Valgarðsson markaðs- stjóri hefur ákveðið að gefa kost á sér í eitt af efstu sætum Samfylking- arinnar í Reykja- vík í prófkjöri flokksins 10.–11. febrúar nk. Kjartan hefur starfað í Samfylk- ingunni frá stofn- un hennar og tek- ið virkan þátt í störfum flokks- ins, m.a. í stjórn Samfylkingar- félagsins í Reykjavík, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Baráttumál Kjartans eru að öll börn og unglingar njóti gæða borg- arsamfélagsins, að grunn- og leik- skólar verði bættir og að öldrunar- þjónustan verði endurskoðuð frá grunni. Í tilkynningu vegna fram- boðs Kjartans segir að hann vilji láta gera samstillt átak til að aðstoða þau börn sem lenda utangátta vegna of- beldis, eineltis, drykkju eða eitur- lyfjavanda heimafyrir, ofvirkni, námsörðugleika, fátæktar eða vegna þess að þau hætta í skóla. Kjartan hyggst berjast fyrir minni miðstýr- ingu í grunn- og leikskólum, því að fleiri leikskólakennarar komi til starfa og gjaldfrjálsum leikskóla. Hann vill að laun leiðbeinenda verði hækkuð án tafar. Í öldrunarmálum vill Kjartan beita sér fyrir því að borgin vinni í því að taka þennan málaflokk yfir frá ríkinu. Gefur kost á sér í eitt af efstu sætum Kjartan Valgarðsson ♦♦♦ HALLDÓR Ásgrímsson forsætis- ráðherra hefur leyst Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur undan störfum í stjórnarskrárnefnd að ósk hennar sjálfrar. Í hennar stað hefur forsæt- isráðuneytið að tillögu Samfylking- arinnar skipað Kristrúnu Heimis- dóttur lögfræðing í nefndina. Þetta er í annað sinn á fimm vikum sem mannabreytingar verða í nefnd- inni frá því hún var sett á laggirnar í byrjun þessa árs. Í lok september tók Bjarni Benediktsson alþingis- maður við nefndarsetu af Geir Haarde þáverandi fjármálaráðherra og núverandi utanríkisráðherra sem jafnframt var varaformaður nefnd- arinnar. Þorsteinn Pálsson fyrrver- andi sendiherra er nú varaformaður og Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra formaður frá upphafi. Þá sitja fjórir aðilar í séfræðinga- nefnd sem starfar náið með stjórn- arskrárnefnd. Þeir eru lagaprófess- orarnir Eiríkur Tómasson og Björg Thorarensen, Gunnar Helgi Krist- insson prófessor í stjórnmálafræði og Kristján Andri Stefánsson lög- fræðingur. Ritari beggja nefnda er Páll Þórhallsson lögfræðingur í for- sætisráðuneytinu. Breyting á stjórnar- skrárnefnd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.