Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 14
SÍÐARI umferð forsetakosninga fór fram í Líberíu í gær og kjósend- urnir völdu þá á milli George Weah, þekktasta fótboltasnillings Afríku, og Ellen Johnson-Sirleaf, sem köll- uð hefur verið „Járnfrú“ Líberíu og stefnir að því að verða fyrst kvenna til að verða kjörin þjóðhöfðingi Afr- íkuríkis. Þetta eru fyrstu forsetakosning- arnar í Líberíu – elsta sjálfstæða lýðveldi Afríku – eftir fjórtán ára stríð. Weah fékk flest atkvæði í fyrri umferð kosninganna 11. októ- ber, eða 28,3%, og Sirleaf varð í öðru sæti með 19,8% fylgi. Annálaður höfðingi George Weah var valinn besti knattspyrnumaður heims árið 1995 og lék með nokkrum af þekktustu fótboltafélögum Evrópu: AC Milan, Chelsea, AS Monaco, Paris Saint Germain, Olympique Marseille og Manchester City. Weah er líklega þekktasti Líb- eríumaðurinn í heiminum og hefur verið kallaður „George konungur“ í landi sínu. Hann er annálaður höfð- ingi og margar sögur hafa verið sagðar um örlæti hans. Til að mynda er sagt að hann hafi eitt sinn staðið fyrir utan heimili sitt í Líberíu með poka fullan af pen- ingum og gefið þeim sem komu til hans sem samsvarar um 1,2 millj- ónum króna. Weah greiddi ferðakostnað lands- liðs Líberíu í fótbolta til að það gæti tekið þátt í alþjóðlegum mótum þegar knattspyrnusamband lands- ins var gjaldþrota. Þetta jók al- menningshylli hans og síðustu miss- erin hefur hann m.a. notað auð sinn til að reka útvarps- og sjónvarps- stöð í Líberíu til að koma pólitísk- um skilaboðum sínum á framfæri. „Framboð hans nýtur stuðnings í öllum ættflokkum og það sannar að fólkið vill frið,“ sagði Prince John- son, fyrrverandi stríðsherra sem er nú einn af mikilvægustu banda- mönnum Weah í kosningunum. Bandalag þeirra er harla undarlegt þar sem það var Prince Johnson sem lét pynta og myrða Samuel Doe forseta – pólitíska hetju Weah – árið 1990. „Þegar við bárumst á banaspjót lék hann fótbolta og sendi okkur peninga til að hvetja okkur til að koma á friði,“ sagði Johnson. Peð í höndum hentistefnumanna? Andstæðingar Weah, sem er 39 ára, segjast hafa mestar áhyggjur af því að menntunarskortur hans og reynsluleysi í stjórnmálunum verði til þess að hann reynist peð í hönd- um pólitískra ráðgjafa sinna. Á meðal nánustu samstarfsmanna hans eru vildarvinir Charles Taylor, fyrrverandi forseta sem sagði af sér í ágúst 2003 til að binda enda á ann- að af tveimur borgarastríðum sem geisað hafa í Líberíu frá 1989. „Í kringum hann eru henti- stefnumenn og höfðingjasleikjur sem hafa starfað með ótrúlega óskipulegum hætti,“ hafði frétta- stofan AFP eftir manni sem tekur þátt í hjálparstarfi í Líberíu. „Hvernig getur hann stjórnað land- inu ef hann hefur ekki stjórn á hópi vina sinna, getur ekki skipulagt þá sem styðja hann mest?“ „Hillary Clinton Líberíu“ Ólíkt Weah er Ellen Johnson- Sirleaf hámenntuð og nam hagfræði við Harvard-háskóla. Hún er sögð 67 ára og hefur tekið þátt í stjórn- málabaráttunni í landinu í 30 ár. Hún var fjármálaráðherra seint á áttunda áratugnum, starfaði fyrir Alþjóðabankann og var um skeið æðsti embættismaður Þróunaráætl- unar Sameinuðu þjóðanna í Afríku. Sirleaf fékk viðurnefndið „Járnfrúin“ vegna járnvilja hennar og staðfestu. Henni var tvisvar sinnum varpað í fangelsi á níunda áratug aldarinnar sem leið fyrir að gagnrýna herforingjastjórn Samu- els Doe. Hún studdi uppreisn Char- les Taylors en seinna skarst í odda milli þeirra og hún var ákærð fyrir landráð eftir að hann varð forseti. Hún fór tvisvar sinnum í útlegð vegna deilna við ráðamenn landsins. Andstaðan við Sirleaf stafar eink- um af eindregnum stuðningi hennar í fyrstu við Taylor sem á yfir höfði sér ákærur fyrir stríðsglæpi vegna meintra tengsla hans við uppreisn- armenn í grannríkinu Síerra Leóne. Andstæðingar Sirleaf hafa einnig varað við því að hún kunni að not- færa sér forsetaembættið til að hefna sín á gömlum óvinum. „Hún er mjög hörð í horn að taka og óvinir hennar eru margir,“ sagði stjórnarerindreki í Monróvíu, höf- uðborg landsins. „Hún er örugglega nokkurs konar Hillary Clinton Líb- eríu – stuðningsmenn hennar eru eins eldheitir í aðdáun sinni á henni og andstæðingar hennar eru í and- úðinni.“ 25 ára hörmungasaga Leysingjar frá Bandaríkjunum stofnuðu lýðveldið Líberíu árið 1847. Innfæddir Líberíumenn voru kúgaðir og fámenn yfirstétt afkom- enda bandarískra þræla fór með öll völd til ársins 1980 þegar Samuel Doe hrifsaði til sín völdin. Þar með hófst tímabil sem einkenndist af stríðsátökum og valdaránum sem hafa haft skelfilegar afleiðingar fyr- ir landsmenn. Í Líberíu eru ekki vatns- eða raf- veitur og ríkið rekur hvorki sjúkra- hús né skóla. Aðeins um 20% íbú- anna eru læs og um 80% eru án fastrar, launaðrar atvinnu. „George konungur“ etur kappi við „Járnfrú“ Líberíu Knattspyrnusnill- ingurinn Weah gegn konu sem vill verða fyrst kvenna til að verða kjörin þjóð- höfðingi í Afríku Forsetaefnið George Weah eftir að hafa greitt atkvæði í Monróvíu. Ellen Johnson-Sirleaf á kjörstað í bænum Tubmanaburg, nálægt Monróvíu. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is 14 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Motorlift Ke›judrifnu Chamberlain Motorlift bílskúrshur›aopnararnir eru öflugir og sterkbygg›ir og fást fyrir allar stær›ir og ger›ir bílskúrshur›a. Motorlift er me› kröftugum en hljó›látum mótor og flægilegri fjarst‡ringu sem au›veldar umgengni um bílskúrinn e›a geymsluhúsnæ›i› í hva›a ve›ri sem er. Motorlift fæst í byggingavöruverslunum um land allt. Íslenskar lei›beiningar fylgja bílskúrshur›aopnarar Sydney. AFP. | Stjórnvöld í Ástralíu kváðust í gær hafa náð að koma í veg fyrir „meiriháttar hryðjuverk“ í landinu. Sautján menn sem taldir eru fylgjendur íslamsks klerks voru handteknir. Mennirnir voru handteknir skömmu fyrir dögun í tveimur stærstu borgum Ástralíu, Mel- bourne og Sydney. Einn maður var særður skotsári er hann veitti lög- reglu viðnám. Rúmlega 450 þung- vopnaðir lögreglumenn, studdir þyrlum, tóku þátt í aðgerðinni. Er þetta umfangsmesta aðgerð vegna yfirvofandi hryðjuverkaógnar sem skipulögð hefur verið í Ástralíu. Mennirnir 17 voru leiddir fyrir dómara skömmu eftir handtökurn- ar. Sagði ákæruvaldið að í fórum þeirra hefðu fundist efni svipuð þeim sem notuð voru í árás rót- tækra íslamista í London í júlímán- uði þar sem 50 manns voru drepnir. Fyrir dómi í Melbourne var því haldið fram að mennirnir hefðu lýst yfir „heilögu stríði“ gegn áströlsku þjóðinni og að þeir hefðu ráðgert að drepa óbreytta, ástralska rík- isborgara. Þá hefðu mennirnir og rætt þann möguleika að fremja sjálfsmorðsárásir í landinu. Að minnsta kosti fimm þeirra sem handteknir voru eru ástralskir rík- isborgarar. Unnið hafði verið að rannsókn málsins í 16 mánuði. Sjö mannanna voru handteknir í Sydney og níu í Melbourne. Sveitir lögreglu rudd- ust inn á 20 heimili í borgum þess- um. Einn maður veitti viðnám er hann var handtekinn þar sem hann var á göngu nærri mosku einni í Sydney eftir að hinar handtökurnar höfðu farið fram. Greip hann til byssu sinnar en særðist alvarlega þegar lögregla hóf skothríð. Tals- menn lögreglu sögðu hugsanlegt að fleiri menn yrðu handteknir á næstunni. Á meðal hinna handteknu í Melbourne er íslamskur klerkur einn, Abu Bakr að nafni en hann gengur einnig undir nafninu Abdul Nacer Benrika. Klerkurinn er fæddur í Alsír en talið er að hann hafi verið leiðtogi beggja hryðju- verkahópanna. Bakr, sem er 45 ára, hefur ekki farið dult með aðdáun sína á hryðjuverkaleiðtoganum Osama bin Laden og meðal annars lýst honum sem „mikilmenni“. Klerkurinn var ákærður fyrir að stýra hryðjuverkasamtökum en hinir mennirnir voru ákærðir fyrir að tilheyra slíkum samtökum. Í máli ákæruvaldsins kom fram að einn mannanna hefði rætt um að fremja sjálfsmorðsárás gegn „trú- leysingjunum“ til að hefna fyrir innrásina í Írak. Stjórnvöld í Ástr- alíu hafa stutt hana og leggja til hermenn þar. Ekki kom fram hver möguleg skotmörk mannanna hefðu verið en á undanliðnum mánuðum hafa yfirvöld skýrt frá því að hryðjuverkamenn kunni að hafa ráðgert árásir m.a. á óperuhúsið í Sydney, hafnarbrúna þar, kauphöll- ina í Melbourne og járnbrautar- stöðvar. Segjast hafa afstýrt hryðjuverki í Ástralíu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.