Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
www.dyrabaer.is
Hundabúr - hundabæli 30% afsl.
Nutro þurrfóður fyrir hunda og ketti
í hæsta gæðaflokki.
Full búð af nýjum vörum. 30% af-
sláttur af öllu. Opið mán.-fös. kl. 10-
18, lau. 10-16 og sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Beagle hvolpur til sölu. Hvolpur-
inn er 6 mánaða. Hvolpurinn er
þrifinn, örmerktur og bólusettur.
Hefur ættbókarvottorð. Tvö búr
fylgja með. Upplýssingar í síma
848 6483/rl@mk.is.
Heilsa
Yaktrax - fótaðu þig í hálkunni!
Yaktrax - broddalausu mann-
broddarnir! www.yaktrax.go.is
Nudd
Höfuðbeina- og spjaldhryggjar-
meðferð. 12. nóvember heldur
Upledger stofnunin Clinical
Symposium dag. Þá mun kennari
á vegum UI meðhöndla einstak-
linga með HBSM. Upplýsingar og
skráning í síma 863 0611 eða á
www.upledger.is.
Listmunir
Tékkneskar og slóvanskar
kristalsljósakrónur. Handslípaðar.
Mikið úrval. Gott verð.
Slóvak Kristall,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
sími 544 4331.
Námskeið
Viltu algjört fjárhagslegt frelsi?
Viltu læra í eitt skipti fyrir öll
hvernig á að ná toppárangri í
alþjóðlegum netviðskiptum? Kíktu
þá inn á www.Samskipti.com og
kynntu þér magnað námskeið ...
Íþróttir
Óskast. Gott 10 feta snókerborð,
á ekki meira en 100.000 krónur.
Einnig vantar 8 feta poolborð á
undir 60.000 krónur, en er opin
fyrir öllu t.d. skiptum, tilboðum og
staðgreiðslu. Hafið samband í
síma 868 9449.
Til sölu
Sedrusviður
Utanhússklæðningar og pallaefni
sem endist og endist.
Spónasalan ehf.,
Smiðjuvegi 40, gul gata,
s. 567 5550 sponn@islandia.is
Þjónusta
Raflagnir og
dyrasímaþjónusta
Setjum upp dyrasímakerfi
og gerum við eldri kerfi
Nýlagnir, viðgerðir, töfluskipti,
endurnýjun á raflögnum.
Gerum verðtilboð
Rafneisti
sími 896 6025 • lögg. rafverktaki
Ýmislegt
Ullarsjölin komin kr. 1.690.
Alpahúfur kr. 990.
Treflar frá kr. 1.290.
Flísfóðraðir vettlingar.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Ný sending
Pilgrim skartgripir. Ný sending.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 12,
sími 562 2466.
Kuldaskór á herra úr sérstak-
lega góðu leðri og með rennilás.
Lambaskinnsfóðraðir með inn-
leggi og höggdeyfi.
Litir: Svart og brúnt, st. 40-47,
verð 11.500.
Litur: Svartur. St. 40-47. Verð
9.500.
Litir: Svart og brúnt. St. 41-46,
Verð 8.500.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
Til sölu VW Passat station,
árg. '99, ekinn 123 þús., álfelgur,
nýjar bremsur, ný tímareim, sk.
'06. Vetrardekk fylgja. Glæsilegur
bíl. Áhv. 675 þús. Fæst gegn yfir-
töku láns. Uppl. í síma 669 1195.
TIL SÖLU VOLVO XC-70
Cross Country, 4x4, árg. '99, ek-
inn 140 þús., sjálfskiptur, rafdrifin
sóllúga, rúður og speglar,
ljóst leðuráklæði. Skr. 7 manna.
Fallegur bíll. Verð 1.590 þús.
Sími 663 2595 eða 553 9865.
Subaru Impreza ST 5/97, 2.0. Ek-
inn 177 þús., ný skoðaður. Verð
390 þús./Visa/Euro. Upplýsingar
í síma 587 5058.
Polo gullmoli á aðeins 390.000
þús. árg. 12.98, 1000 V, ek. 70 þ.,
ný vél, ek. 5 þús. Nýtt púst, ný
nagladekk. Sk. '06 án athuga-
semda, 1 eigandi, gullfallegur bíll.
Ásett 450 þús., tilboð 390 þús.
stgr. S. 661 8185.
Lincoln LS árg. 2000, ek. 90 þús.
km. V6, 3000cc, einn með öllum
þægindum. Skipti á dýrari jepp-
ling, skipti á ódýrari koma einnig
til greina. Uppl. í síma 864 6984.
Árgerð 2005, ekinn 36 þús. km,
silfurlitaður, sjálfsk., 3,7 l vél, 17"
dekk. Verð 2.900 þ. kr. stgr. Upp-
lýsingar í síma 848 4553.
Jeppar
Daewoo Musso 5/2001 E23
Grand Luxe, ek. 51 þús., sjálfsk.,
bensín. Sem ný negld vetrardekk
+ heilsársdekk, 31", dráttarkúla,
stigbretti, loftkæling o.fl. Verð
1.650 þús. staðgr. S. 896 5806.
Bílaþjónusta
Bryngljái á bílinn!
Endist árum saman - verndar
lakkið - auðveldar þrif.
Mössun - blettun - alþrif - djúp-
hreinsun. Yfir 20 ára reynsla!
Litla Bónstöðin, Skemmu-
vegi 22, sími 564 6415.
Hjólbarðar
Negld vetrardekk tilboð
4 stk. 165 R 13 + vinna kr. 24.900.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
Negld vetrardekk
155 R 13 kr. 4790
175/70 R 13 kr. 4990
195/65 R 15 kr. 5950
185 R 14 C kr. 7530
195/70 R 15 C kr. 7730
195/75 R 16 C kr. 8890
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
s. 544 4333.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Varahlutir
JEPPAPARTAR EHF.,
Tangarhöfða 2, sími 587 5058
Nýlega rifnir Patrol '91-95, Terr-
ano II '99, Subaru Legacy '90-'04,
Impreza '97-04, Kia Sportage '03
og fleiri japanskir jeppar.
Smáauglýsingar
augl@mbl.is
KB BANKI hefur greitt Krabba-
meinsfélagi Íslands alls 1,5 milljónir
króna og er fjárhæðin stuðningur
við velunnarasöfnunina, en síðasti
þriðjungur framlagsins var afhent-
ur nýlega. Krabbameinsfélag Ís-
lands og KB banki hafa í rúmt ár átt
samstarf um söfnun velunnara fyrir
félagið undir heitinu „Þitt framlag
skiptir máli“, að því er fram kemur
í frétt frá Krabbameinsfélaginu.
Viðskiptavinum KB banka og
öðrum bauðst að bætast í hóp þeirra
sem nú þegar styrkja félagið með
reglulegu framlagi og hét KB banki
því að leggja fram 500 krónur fyrir
fyrstu þrjú þúsund velunnarana
sem bættust í hópinn, en því marki
hefur nú verið náð.
Í fréttatilkynningu Krabbameins-
félagsins segir að stuðningur KB
banka sé félaginu mikils virði, en
bankinn hefur verið aðalstyrkt-
araðili þess síðan 1998 og lagt fé-
laginu lið með margvíslegum hætti.
Jafnframt vill félagið þakka öllum
þeim sem hafa gerst velunnarar
Krabbameinsfélagsins síðustu mán-
uði og ár, en sá hópur fer sífellt
stækkandi.
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, þakkar Ingólfi
Helgasyni, forstjóra KB banka á Íslandi, fyrir stuðninginn við félagið.
KB banki styrkir
Krabbameinsfélagið
FRÉTTIR
VERÐI heimilað að selja léttvín, bjór
og sterkt áfengi í matvöruverslunum
mun það bitna harkalega á vöruúr-
vali, sér í lagi á landsbyggðinni, þar
sem búast má við að fjöldi tegunda
sem í boði eru verði einungis brot af
því sem það er í dag. Þetta er skoðun
Alfreðs Almarssonar, verslunarstjóra
í Vínbúðinni á Akureyri. „Fólk stend-
ur í þeirri trú að það úrval sem er í
vínbúðunum flytjist yfir í matvöru-
búðina. Það gerist augljóslega ekki.
Úrvalið minnkar örugglega og verðið
hækkar örugglega,“ segir Alfreð.
Í dag eru rúmlega 800 tegundir af
áfengi á boðstólum í verslun ÁTVR á
Akureyri, en verði sala á áfengi færð í
matvöruverslanir geta neytendur á
Akureyri reiknað með að geta valið úr
samtals 50–100 tegundum af áfengi.
Þegar við bætist að ljóst er að verð
muni hækka segir Alfreð ljóst að ekki
sé fýsilegt að leggja niður vínbúðir
ÁTVR. „Ef það sem kemur í staðinn
fyrir áfengisverslun ríkisins er verra
en það sem við höfum núna er ég ekki
sammála því að gefa eigi áfengissöl-
una frjálsa,“ segir Alfreð.
Úrvalið í smærri vínbúðum á lands-
byggðinni er ekki jafn gott og á Ak-
ureyri, og segir Alfreð að í minni
verslunum séu gjarnan um 100 teg-
undir á boðstólum. Ef heimilað verði
að selja áfengi í dagvöruverslunum
megi búast við því að verslanir á
staðnum selji nokkrar tegundir, en
úrvalið verði sama og ekkert.
Alfreð segir að almenningur verði
að gera sér grein fyrir því að það sé
ekki möguleiki að einungis léttvín og
bjór flytjist frá ÁTVR, það sé einfald-
lega ekki hægt að reka verslanir
ÁTVR með einungis sterku áfengi.
Það væri svipað eins og að ætla sér að
reka bensínstöð án þess að selja bens-
ín og olíu. Ekki gangi heldur upp að
leyfa sölu á bjór og léttvíni í versl-
unum og halda áfram óbreyttum
rekstri ÁTVR, þá hefðu verslanir
ÁTVR yfirburði yfir aðra samkeppn-
isaðila þar sem einungis í verslunum
ÁTVR mætti selja sterkt áfengi, sem
standist ekki samkeppnislög.
Villandi kannanir
Þar af leiðir að kannanir sem gerð-
ar hafa verið á undanförnum árum
séu villandi að mati Alfreðs, þar sem í
þeim er spurt hvort viðkomandi vilji
að sala á léttvíni og bjór verði leyfð í
dagvöruverslunum, þegar ljóst er að
sterkt áfengi þurfi að fylgja á eftir.
Réttara væri að spyrja hvort fólk vilji
að sala á öllu áfengi verði leyfð í dag-
vöruverslunum þar sem ljóst er að
það verði afleiðingin.
Sigurður Jónsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjón-
ustu, sagði í samtali við Morgunblaðið
fyrir nokkru að hagnaður af tóbaks-
sölu sé notaður til þess að halda
álagningu á áfengi lágri. Alfreð segir
að ekki þurfi að gera annað en skoða
ársskýrslur ÁTVR til þess að stað-
festa þetta.
Segir úrval áfengis minnka verði það selt í matvörubúðum
Kæmi verst niður á íbú-
um landsbyggðarinnar
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Úrval áfengistegunda gæti minnk-
að úr 800 í 50–100 á Akureyri, segir
Alfreð Almarsson.