Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 16
Reykjahverfi | Hrognatöku er nú lokið hjá Norð- urlaxi hf. í Reykjahverfi og hefur gengið vel að ná þeim hrognum sem tekin eru. Laxinn var vel á sig kominn en samt er ekki reiknað með að hrygn- urnar lifi það að hrygna aftur. Það er m.a. vegna þess að úr þeim eru tekin sýni vegna sjúkdóma- varna. Öðru máli gegnir með hængana því þeim sem koma úr Laxá er sleppt og þeir merktir með slöngumerki í bakuggann með sérstöku númeri. Tilgangurinn með þessu er að komast að því hvort laxinn lifir þetta af og hvort hann veiðist aftur í ánni. Á myndinni eru þeir Jón Helgi Björnsson og Jón Helgi Vigfússon hjá Norðurlaxi að sleppa hængum við Hólmatagl eftir að hafa merkt þá. Ekki var að sjá annað en að laxarnir væru frelsinu fegnir þegar þeir syntu frjálslega í ánni. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Frelsinu fegnir Laxeldi Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Læra að synda | Sundnámskeið fyrir full- orðna er hafið á Hólmavík. Ása Einars- dóttir kennir á námskeiðinu, en kennt verð- ur einu sinni í viku næstu tíu vikurnar. Ása segir í samtali við vefinn bb.is að nokkur að- sókn sé að námskeiðum sem þessu en öðru sams konar námskeiði lauk nú nýlega. „Sundlaugin hér er rétt rúmlega ársgömul, og því margir á svæðinu sem ekki hafa haft aðstöðu til að læra að synda eða halda sund- kunnáttu sinni við. Mikið af fólkinu er kannski að synda í fyrsta skipti síðan á ung- lingsárunum.“ Sundlaugin á Hólmavík var opnuð í júlí í fyrra, en þangað til hún var byggð var næsta sundlaug á Laugarhóli í Bjarnarfirði.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Sjónlistaverðlaun | Á fundi menningar- málanefndar var farið yfir þá undirbúnings- vinnu sem átt hefur sér stað vegna hinna Íslensku sjónlistaverðlauna sem stofnað verður til á Akureyri á næsta ári. Ljóst er að verkefnið er umfangsmikið, en hug- myndin er að stofna félag um verðlaunin með þátttöku bæjarins og fleiri aðila. Vegna þess undirbúnings sem fram þarf að fara á yfirstandandi ári hefur menningar- málanefnd óskað eftir því við bæjarráð að 850.000 krónum verði bætt við heimildir nefndarinnar í fjárhagsáætlun ársins 2005.    Pítsur | Nýr pítsustaður hefur verið opn- aður í Ólafsfirði. Hann heitir Höllin og er við Hafnargötu 16 þar sem bakaríið Brauð- ver var áður. Eigendur Hallarinnar eru þær Bjarkey Gunnarsdóttir og Aðalbjörg Ólafsdóttir. Á vef Ólafsfjarðarbæjar segir að boðið verði upp á heimsendingu en einn- ig getur fólk sótt pítsurnar. Ljósmynd/Magnús Sveinsson Skrifað hefur veriðundir nýjan sam-starfssamning milli Nettó og handknattleiks- deildar KA. Nettó hefur verið helsti stuðningsaðili handknattleiksdeild- arinnar undanfarin ár og hefur félagið unnið marga titla á þeim tíma, Íslands-, deildar- og bikarmeist- aratitla. Forvarnarstarf er eitt mikilvægasta verkefni íþróttanna og með því að styrkja meistaraflokka fé- laganna og um leið að búa til fyrirmyndir er verið að leggja drjúgan skerf til uppbyggingar og hvatn- ingar fyrir unga krakka að feta braut íþróttanna. Samstarf KA og Nettó hefur einmitt miðað að því, segir í fréttatilkynn- ingu. Það voru Sigmundur Sigurðsson, versl- unarstjóri Nettó á Ak- ureyri, og Hannes Karls- son, formaður handknattleiksdeildar KA, sem undirrituðu samninginn. Nýr samstarfssamningur Morgunblaðið/Kristján Gísli Ásgeirsson yrk-ir eftir prófkjörum helgina. Þó ekki rættust allar spár ýmsir fylltust kæti og sumir greiddu fúlgur fjár fyrir aftursæti. Davíð Hjálmar Har- aldsson bætir við: Varla nokkur sýnist súr né sakna gullsins dýra en margir vilja eflaust úr aftursæti stýra. Í gær var rangfeðruð vísa Helga Zimsens og er hann beðinn forláts á því. Vísan er svohljóðandi: Þó að vetur kóngur kynni kuldatíð og skafla spinni varla slíku vafstri sinni vorið býr í sálu minni. Helgi Zimsen sendir kveðjur vegna vísunnar: Vegna þessa ærist ei óðar fæ úr bætt leiða þetta væmna vísugrey vel má Þórir ættleiða. Af prófkjöri pebl@mbl.is FJÁRMÁLARÁÐSTEFNA sveitarfé- laga 2005 verður haldin á Nordica Hotel í Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 10. nóvember, og föstudaginn 11 nóvember. Ráðstefnan hefst kl. 10 með ræðu Vil- hjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þá mun Halldór Ásgrímsson forsætisráð- herra fjalla um samskipti ríkis og sveit- arfélaga og framtíðarsýn ríkisstjórnar- innar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Á fyrri degi ráðstefnunnar verða flutt fimm erindi um fjárhagsstöðu sveitarfé- laga, um kjarasamninga og vinnumark- aðsmál, endurskoðun á hlutverki Jöfn- unarsjóðs sveitarfélaga, álagningu fasteignaskatts o.fl. Síðar sama dag verða pallborðsum- ræður með þátttöku fulltrúa þingflokka á Alþingi um framtíðarsýn í málefnum sveitarfélaganna. Síðari daginn verður ráðstefnunni skipt upp í tvær málstofur. Í annarri verður m.a. birt tölfræði um þróun grunnskólans 1996–2004, fjallað um reikningsskil sveitarfélaga og þjóðhags- reikninga og gerð grein fyrir upplýs- ingaveitu sveitarfélaga. Í hinni málstof- unni verður m.a. fjallað um innkaupamál sveitarfélaga frá ýmsum sjónarhornum. Öll erindi og ávörp sem flutt verða á ráðstefnunni verða birt á upplýsinga- og samskiptavef Sambands íslenskra sveit- arfélaga, www.samband.is, eins fljótt og auðið er eftir að þau verða flutt. Fjármála- ráðstefna sveitarfélaga Vesturbyggð| Bæjarráð Vesturbyggðar hefur samþykkt að leggja til við stjórn of- anflóðasjóðs að áfram verði haldið við frumhönnun snjóflóðavarna neðan Búðar- gils á Bíldudal á grunni þeirra draga sem fyrir liggja. Tekur bæjarráð undir sjónar- mið skipulags-, umhverfis- og byggingar- nefndar sem fram komu á fundi nefndar- innar nýlega og felur bæjarstjóra að fylgja málinu eftir. Nefndin leggur til að kannað verði hvort mögulegt sé að sveigja garðinn meira til norðurs til að verja athafnasvæðið sem er á hættusvæði nú. Einnig leggur nefndin til að tenging milli Lönguhlíðar og Tjarnarbrautar (Ásbrekka) verði færð sunnar þannig að hún verði ekki á hættu- svæði. Að öðru leyti lýsir nefndin sig ánægða með fyrirliggjandi drög að frum- athugun og leggur til að þeim verði lokið og verkefnið tilkynnt til Skipulagsstofnunar í samráði við stjórn ofanflóðasjóðs svo fljótt sem kostur er. Frumhönnun snjóflóðavarna ♦♦♦ ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Ársalir - fasteignamiðlun ◆ Fyrirtæki til sölu Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali 533 4200 eða 892 0667 Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5 105 Rvk 533 4200 Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar: Ársalir ehf - fasteignamiðlun. GARÐATORG 1 - Einn besti söluturn á Höfuðborgarsvæðinu er til sölu, með eða án hús- næðis, sem er til sölu eða leigu. Spilakassar, Lottó og Happaþrennur. Mikil ís-sala og frá grilli. Leiga og sala á myndböndum. FATAHREINSUN OG ÞVOTTAHÚS Vel staðsett fyrirtæki í Reykjavík, með nýleg tæki og búnað. Er vel rekið og skilar hagnaði. Mikil vinna framundan og góð viðskiptasambönd fylgja. Til afhendingar strax. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Geitabúskapur| Indriði Haraldsson í Kvistási er búinn að fá sér tvær geitur. Þær komu frá Rauðará í Þingeyrarsveit og eru báðar huðnur segir á vefnum kelduhverfi- .is. Geitur í Kelduhverfi eru því orðnar sex, en nýlega fékk Aðalsteinn á Víkingavatni geithafur, einnig frá Rauðá, en fyrir átti hann þrjár huðnur. Einnig kemur fram að geiturnar eru sólgnar í bygg og geta orð- ið nokkuð aðgangsharðar þegar þær reyna að ná í góðgætið úr höndum Indriða.   

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.