Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.11.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9 -40% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM SÍÐUSTU DAGAR NÓVEMBER ÚTSÖLUNNAR TÍSKUVÖRUVERSLUN Samkomulag hefurnáðst milli fulltrúaHáskóla Íslands og Landsbóksafns – Há- skólabókasafns um fjár- magn frá Háskólanum sem notað verður til þess að áfram verði hægt að hafa safnið opið fram á kvöld á virkum dögum og til klukkan 17 um helgar yfir vetrartímann líkt og verið hefur undanfarin ár. Þetta varð niðurstaða fundar um málið í gær en það verður tekið fyrir í há- skólaráði á morgun þar sem lokaákvörðun verður tekin. Samkomulagið gildir út árið 2006. Áður hafði Sigrún Klara Hannes- dóttir landsbókavörður boðað að safninu yrði lokað frá klukkan 17 á virkum dögum og að það yrði lokað um helgar. Stærstur hluti þeirra sem nýta sér þjónustu Landsbókasafns er nemendur í Háskóla Íslands. Há- skólinn hefur einnig aukið þjón- ustu við nemendur með því að hafa helstu byggingar háskólans opnar lengur og stendur til að bæta enn frekar þar úr á næst- unni. Besta lesrýmið Elías Jón Guðjónsson, formað- ur Stúdentaráðs, segir stúdenta hafa lagt mikla áherslu á að bók- hlaðan sé opin á kvöldin og um helgar. Hann segir að á Lands- bókasafninu sé að finna besta les- rýmið á háskólasvæðinu auk þess sem bókasafnið sé mjög mikil- vægt fyrir nemendur í bóknámi sem þurfa að skrifa ritgerðir og vinna margs konar verkefni. Elías Jón segir stúdenta jafn- framt ánægða með aukinn aðgang að byggingum Háskóla Íslands til lestrar. Þeir vilji þó ekki að sá að- gangur verði bættur á kostnað þjónustu í bókhlöðunni. „Það er engin ástæða til þess að draga úr þjónustu á einum stað um leið og hún er bætt á öðrum,“ segir hann. Áslaug Agnarsdóttir, sviðs- stjóri þjónustusviðs Landsbóka- safns Íslands – Háskólabóka- safns, segir það vera mat starfsfólks Landsbókasafns að að- sókn í safnið hafi aukist í haust og í fyrra. „Það hefur orðið talsverð aukning yfir daginn og talningar styðja það líka,“ segir Áslaug. Hún segir að aðsóknin nái há- marki á próftímum en einnig sé hún góð á miðju misseri. „Safnið er alltaf vel sótt og jafnvel líka á sumrin en þá eru menn hér að vinna ritgerðir,“ bætir hún við. Nemendur í HÍ flestir í hópi gesta Áslaug segir að reglulega sé tal- ið hversu margir sæki safnið. Á hverju kvöldi sé gestafjöldinn tal- inn og það sé einnig gert að degi til í fyrstu viku hvers mánaðar sem og allar helgar. Hún segir að stærstur hluti safngesta sé nem- endur í Háskóla Íslands og aðrir sem tengjast skólanum. Í mars á þessu ári var gerð stór könnun á þessu, en þá var 400 spurninga- blöðum dreift til gesta í bókhlöð- unni og bárust 343 svör. Af þeim sem svöruðu reyndust 83,1% vera nemendur við Háskóla Íslands, 2,3% voru kennarar við skólann og 1,7% voru starfsmenn HÍ. Því tengdust 87,1% þeirra sem svör- uðu Háskólanum,“ segir Áslaug. Hún segir að það hafi verið kann- að nokkrum sinnum á undanförn- um árum hverjir nýti sér bókhlöð- una. Í þeim hafi komið í ljós að háskólanemar eru á bilinu 85–88% allra sem hana sækja. Áslaug seg- ir að á kvöldin sé aðeins meira um það en á daginn að aðrir en há- skólanemar nýti sér þjónustuna. Hún bendir á að sérlestrarsalur sé í þjóðdeild sem er á fyrstu hæð safnsins. Aldrei hefur verið talið hversu margir sitja þar en í hús- inu eru alls 430 borðsæti. Nemendur fái aðgangskort að byggingum HÍ Guðmundur R. Jónsson, pró- fessor og framkvæmdastjóri á rekstrar- og framkvæmdasviði Háskóla Íslands, segir að miðað við það samkomulag sem náðst hafi um fjármagn vegna opnunar- tíma Þjóðarbókhlöðu, sem nú bíð- ur afgreiðslu háskólaráðs, verði hægt að halda opnunartíma Landsbókasafns óbreyttum. Guð- mundur segir ekki liggja fyrir hversu mikla fjármuni Háskólinn leggi í verkefnið, en menn telji sig hafa „teygt sig eins langt og mögulegt er“. Hann segir að um þessar mundir sé unnið að því af fullum krafti, í samráði við stúd- enta, að lengja opnunartíma í byggingum Háskólans. Nú er þar opið til klukkan 22 virka daga og á sunnudögum en til klukkan 20 á laugardögum. Guðmundur segir að verið sé að vinna því að koma á svonefndu að- gangskortakerfi fyrir stúdenta svo þeir geti farið inn í byggingar Háskólans á þeim tímum sem þeim hentar. „Þegar þetta að- gangskortakerfi verður komið á getum við haft margar bygging- anna opnar allan sólarhringinn,“ segir hann. Stefnt sé að því að þetta náist á næstunni. Áætlaður kostnaður við að opna byggingarnar er 2,5–3 milljónir á ári. Um er að ræða aukakostnað vegna ræstinga og umsjónar- manna. Fréttaskýring | Lesaðstaða nemenda í HÍ Lesið allan sólarhringinn Samkomulag um fjármagn vegna afgreiðslutíma Landsbókasafns Frá Landsbókasafni. Mögulegt að nýta kennslustofur til lestrar  Hátt í 8.900 manns voru skráð- ir til náms í Háskólanum í haust. Í bókhlöðunni eru alls 430 borð- sæti sem nemendur geta nýtt til lestrar, en fjöldi lesrýma í bygg- ingum Háskólans er mismun- andi. Til stendur að nemendur skólans fái sérstök aðgangskort að byggingum hans og geti því leitað þangað þegar þeim hentar. Er hugmyndin meðal annars sú að nemendur geti lesið í kennslu- stofum utan kennslutíma. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is Hann er svo ungur, hann ætti að geta nagað helling. Svo er hann líka með sínar eigin geiflur. ALMANAK Þjóðvinafélagsins fyrir árið 2006 er komið út og er þetta 132. árgangur ritsins. Það hefur að venju að geyma Almanak Háskól- ans, sem Þorsteinn Sæmundsson reiknaði og bjó til prentunar, og Árbók Íslands 2004, sem Heimir Þorleifsson hefur samið. Í almanakinu er m.a. að finna dagatal með upplýsingum um sjáv- arföll, gang himintungla og messur kirkjuársins, en í árbókinni er yf- irlit um árferði, atvinnuvegi, íþrótt- ir, stjórnmál, verklegar fram- kvæmdir og margt fleira. Sérstaklega er fjallað um forseta- kosningarnar 2004 og fjölmiðla- málið fær góða umfjöllun. Fjöldi mynda er í ritinu, sem að þessu sinni er 216 bls. að stærð. Almanak- ið er prentað í prentsmiðjunni Odda, útgefandi er Hið íslenska Þjóðvinafélag, en Sögufélag sér um dreifingu. Almanak Þjóðvina- félagsins komið út SÁ hluti Baugsmálsins sem Hæsti- réttur vísaði til héraðsdóms, þ.e. átta ákæruliðir af 40, verður tekinn fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur mánudaginn 14. nóvember nk. klukkan 9:15. Í þinghaldinu verður framhald málsins ákveðið. Hæstiréttur vísaði 32 liðum ákærunnar frá dómi og hefur Sig- urði Tómasi Magnússyni, fyrrv. héraðsdómara, verið falið að fara yfir málsskjölin sem ákæruliðirnir byggja á og taka afstöðu til þess hvort tilefni sé til að ákæra vegna þeirra. Varðandi hina ákæruliðina átta mælti Hæstiréttur fyrir um að þeir skyldu teknir til meðferðar fyrir héraðsdómi og mun saksókn- ari efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra sjá um saksókn í þeim þætti málsins. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn ♦♦♦ Fyrirtaka í Baugsmálinu á mánudag

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.