Morgunblaðið - 09.11.2005, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GRÍPA TIL NEYÐARLAGA
Franska stjórnin brást í gær við
óeirðunum í hverfum innflytjenda
með því að grípa til 50 ára gamalla
laga sem sett voru gegn uppreisn-
armönnum í Alsír. Veita þau heimild
til að setja neyðarlög í allt að 12
daga án samþykkis þingsins. Einnig
má banna fjöldafundi og lögreglan
má gera húsleit á grunsamlegum
stöðum hvenær sem er sólarhrings-
ins.
Arnaldur verðlaunaður
Arnaldur
Indriðason
hlaut Gullna
rýtinginn í
Bretlandi fyrir
skáldsögu sína
Grafarþögn en
þessi virtu
verðlaun voru
afhent í 50. sinn
við hátíðlega at-
höfn í London í
gær. Það eru
samtök breskra glæpasagnahöfunda
sem veita verðlaunin.
Jarðvélar með lægsta tilboð
Lægsta tilboð sem barst í útboði
Vegagerðarinnar í seinni hluta tvö-
földunar Reykjanesbrautar reyndist
385 milljónum kr. lægra en áætlað
var. Jarðvélar ehf. bjóðast til að
vinna verkið fyrir 1.175 mkr.
Gagnrýna Bandaríkjamenn
Ítalska ríkissjónvarpið, RAI, seg-
ir að Bandaríkjamenn hafi beitt fos-
fórsprengjum gegn uppreisn-
armönnum í Írak. Er þetta sagt
jafnast á við að beita efnavopnum.
Bandaríkjamenn segja sprengj-
unum eingöngu beitt til að lýsa upp
vígvöll.
Kæra borgina
Húsfélag Skúlagötu 32 til 34
hyggst kæra ákvörðun Reykjavík-
urborgar um byggingu á Barónsreit.
Þar á að byggja allt upp í 15 hæða
íbúðaturna og 100 stúdentaíbúðir
sem kvartað er undan vegna birtu-
skerðingar.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 26/29
Fréttaskýring 8 Bréf 29
Viðskipti 13 Minningar 30/32
Erlent 14/15 Skák 31
Minn staður 16 Brids 33
Höfuðborgin 17 Myndasögur 36
Suðurnes 17 Dagbók 36/39
Akureyri 18 Staður og stund 38
Landið 18 Leikhús 40
Daglegt líf 20 Bíó 42/45
Menning 22, 41/45 Ljósvakamiðlar 46
Forystugrein 24 Veður 47
Viðhorf 26 Staksteinar 47
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FORYSTA Alþýðusambands Íslands
er tiltölulega ánægð eftir fund með
forystumönnum ríkisstjórnarinnar í
gær og gera aðilar ráð fyrir að verða í
sambandi áfram næstu daga vegna
aðkomu stjórnvalda að endurnýjun
samninganna. Launanefnd aðila
vinnumarkaðarins fundaði einnig í
gær og gert er ráð fyrir öðrum fundi
nefndarinnar í dag.
„Við áttum að okkar mati tiltölu-
lega góðan fund með ráðherrunum,
þ.e.a.s. forsætis- og utanríkisráð-
herra,“ sagði Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ. „Það var betri tónn en á
síðustu fundum. Engu var hafnað.
Það er kannski fátt fast í hendi, en
engu að síður metum við það svo að
það hafi verið annar tónn og mun já-
kvæðari í þessu spjalli í dag (gær).“
Verða í sambandi næstu daga
Hann sagði að þeir hefðu sam-
mælst um að verða í sambandi næstu
daga og halda fund ef á þyrfti að
halda. Það væri vika til stefnu og
þyrfti að nýta hana, en samkvæmt
samningum á niðurstaða launanefnd-
arinnar að liggja fyrir 15. nóv.
Þau mál sem ASÍ hefur verið að
ræða við stjórnvöld snúa að löggjöf
um starfsmannaleigur og þjónustu-
samninga, starfsmenntamál og full-
orðinsfræðslu, útgjöld lífeyrissjóða
vegna örorku og tekjutengingu at-
vinnuleysisbóta. Grétar sagði að
ítrekað hefði komið fram að frumvarp
um starfsmannaleigur væri í farvegi
og yrði lagt fram á þessu haustþingi
og ekki væri ástæða til að ætla annað
en að það yrði með ásættanlegum
hætti, þó þeir hefðu ekki séð það í
endanlegri mynd. Hvað starfs-
menntamálin og fullorðinsfræðsluna
varðaði hefði komið fram á fundinum
að þau mál væri verið að skoða í mik-
illi alvöru og tillögur þar að lútandi
væru í undirbúningi.
„Varðandi örorkuþáttinn í lífeyris-
kerfinu hjá okkur er það þungt mál að
þeirra mati sem hingað til hefur nán-
ast verið hafnað, þ.e.a.s. þeim þætti að
stjórnvöld komi inn í fjármögnunina.
Það var orðað þannig í þessu spjalli að
það væri verið að skoða það af fullri
alvöru og þeir stefndu að því að vera
með á næstu dögum einhverjar hug-
myndir sem vonandi væru eitthvað í
áttina að okkar viðhorfum. Það verð-
ur auðvitað að koma í ljós.“
Grétar sagði að varðandi tekju-
tengingu atvinnuleysisbótanna hefði
því verið lýst yfir að það réðist vænt-
anlega fyrst og fremst af því hvaða
samkomulagi Alþýðusambandið og
Samtök atvinnulífsins næðu í þeim
efnum. „Það er þá auðvitað bara við-
fangsefnið núna á næstu dögum að
láta reyna frekar á það.“
Tiltölulega ánægðir eftir
fund með ríkisstjórninni
Fjármögnun örorkulífeyris í skoðun og tekjutenging
atvinnuleysisbóta á samningaborði aðila vinnumarkaðarins
Eftir Hjálmar Jónsson
hjalmar@mbl.is
„ÉG er með nokkuð sjóaðan hóp en
því má ekki gleyma að á þessum fjór-
um árum sem ég hef verið með lands-
liðið hafa níu landsliðskonur orðið
ófrískar og eignast börn. Af þeim hef-
ur aðeins ein skilað sér til baka inn í
landsliðið að loknum barnsburði,“
segir Stefán Arnarsson, landsliðþjálf-
ari kvenna í handknattleik, í samtali
við Morgunblaðið.
Stefán hefur valið 22 leikmenn til
æfinga fyrir undankeppni Evrópu-
mótsins sem fram fer á Ítalíu undir
lok þessa mánaðar.
Stendur framförum
í íþróttinni fyrir þrifum
Stefán segir að þetta brottfall
reyndra handknattleikskvenna standi
framförum landsliðsins að nokkru
leyti fyrir þrifum, en íslenskur
kvennahandknattleikur er nokkur
eftirbátur þess sem gerist hjá frænd-
þjóðunum í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð. Nokkuð sem handknattleik-
ur karla gerir ekki.
Mikil afföll
í kvenna-
landsliðinu
Við eigum ágæta | C4
UNGUR fálki, sem áhöfnin á Klakki SH 510 frá
Sauðárkróki bjargaði langt austsuðaustur af
landinu, við Þórsbanka, í síðustu viku, er nú á
batavegi hjá starfsmönnum Náttúrufræðistofu
Norðurlands vestra. Hann rífur í sig smáfugla og
kindahjörtu og er óðum að hressast. Ljóst er að
hann þarf að fara í hreinsun hjá fagmanni og
verður hann sendur til Reykjavíkur nú í vikunni.
Líklegt er að um eins árs kvenfugl sé að ræða og
vekur athygli hversu langt úti í hafi hann var á
ferð, eða miðja vegu milli Íslands og Færeyja.
Fuglinn er óvenjustór að sögn Þorsteins Sæ-
mundssonar, forstöðumanns Náttúrufræðistofu.
Fuglinn er ómerktur en hann verður merktur.
Ljósmynd /Árni Gunnarsson
Fálka var bjargað
um borð í skip
HANN Kristófer Dan brá sér með
pabba sínum Stefáni Þór Kjart-
anssyni inn í laxaslátrunina hjá Vísi
og Salar Islandica á Djúpavogi í vik-
unni. Mamma Kristófers vinnur hjá
Vísi, en pabbinn er sjómaður á Hæls-
vík GK. Það er Jóna Kristín Sigurð-
ardóttir, matsmaður, sem sýnir
Kristófer laxinn, en eftir það lá leið-
in á leikskólann. Nú verður um 40 til
50 tonnum af laxi slátrað vikulega á
Djúpavogi til áramóta. | B2
Morgunblaðið/Kristinn BenediktssonLaxinn skoðaður
NORÐURÁL, Reykjanesbær og Fjárfestingar-
stofan, sem er í eigu iðnaðar- og viðskiptaráðuneyt-
isins og Útflutningsráðs, hafa staðfest sameiginlega
aðgerðaáætlun um hugsanlega byggingu álvers í
nágrenni Helguvíkur á Reykjanesi.
„Aðgerðaáætlunin tekur m.a. til samstarfs þess-
ara aðila um undirbúningsvinnu varðandi útfærslu
á staðsetningu álversins, orkuöflun, umhverfisskil-
yrði og þá fjölmörgu skipulagslegu þætti sem lúta
að verkefninu. Miðað er við að þarna rísi í áföngum
250.000 tonna álver sem taki til starfa í fyrsta lagi
árið 2010 og í síðasta lagi 2015,“ segir meðal annars
í fréttatilkynningu af þessu tilefni.
Fram kemur að gert sé ráð fyrir að undirbún-
ingsvinnu verði lokið samkvæmt áætluninni ekki
síðar en í júlí næsta sumar, en Fjárfestingarstofan
aðstoðar við upplýsingaöflun og framgang áætlun-
arinnar.
Helguvík ákjósanleg
Norðurál, Reykjanesbær og Hitaveita Suður-
nesja gerðu samkomulag síðastliðið vor um að
kanna möguleika á rekstri álvers í Helguvík. Nið-
urstöður könnunar þessa efnis lágu fyrir í sept-
Aðgerðaáætlun um
álver í Helguvík
ember og „kom m.a. fram að hafnarskilyrði í Helgu-
vík eru mjög ákjósanleg og unnt er að byggja 250
þúsund tonna álver á núverandi iðnaðarsvæði í
Helguvík í landi Reykjanesbæjar þannig að öllum
umhverfisskilyrðum sé fullnægt. Enn fremur kom
fram að með því að teygja byggingarsvæðið aðeins
til norðurs frá skipulögðu iðnaðarsvæði eru stækk-
unarmöguleikar enn meiri. Fyrstu athuganir á
flutningsleiðum fyrir raforku gefa jákvæð fyrirheit
og er lögn í sjó talin líklegur kostur síðasta spölinn
frá Fitjum að Helguvík,“ segir ennfremur.
Í tilkynningu frá Century Aluminum, móð-
urfélagi Norðuráls, segir að Logan Kruger hafi
tekið við stöðu forstjóra fyrirtækisins af Craig A.
Davis, sem verður áfram stjórnarformaður þess.
Kruger er menntaður námaverkfræðingur
sem hefur áratuga reynslu af rekstri málmfyr-
irtækja víða um lönd.
Nýr forstjóri
Century Aluminum