Morgunblaðið - 09.11.2005, Page 13
Í MORGUNÖSINNI í Grand Centr-
al lestarstöðinni í New York er þröng
af fólki að skoða tækniundur ársins,
valin af tímaritinu Popular Science,
sem árlega tilnefnir 100 bestu upp-
götvanir hvers árs í tólf flokkum. Fólk
stendur í hópum umhverfis þá sem
sýna það nýjasta á hverju sviði. Þarna
er þverskurður borgaranna sem eiga
leið um stöðina, karlmenn í jakkaföt-
um, konur í dröktum og skólabörn
með kennurum, fjöldi ferðamanna og
fjölmiðlafólk.
Fyrir miðjum salnum stendur ung-
ur maður, klæddur stuttbuxum og
ræðir við vegfarendur. Það eina
óvenjulega í fari hans er vinstri fót-
urinn, en hann er silfurgrár; verð-
launauppfinning stoðtækjaframleið-
andans Össurar, svonefnt „Power
Knee.“ Þetta rafeindastýrða
gervihné, sem verið er að ljúka próf-
unum á, er ein tíu uppgötvana sem
verðlaunaðar eru í flokknum Almenn
heilsa. Í umsögn Popular Science seg-
ir að Power Knee Össurar sé fyrsti
vélvæddi gerviútlimurinn sem „hugs-
ar“. Hnéð gefi þeim sem misst hafi
fótlegg fyrir ofan hné, eðlilega hreyf-
ingu á göngu því hnéð líki eftir hreyf-
ingum hins hnésins.
Á lokastigi prófana
Í máli Jóns Sigurðssonar, forstjóra
Össurar, sem kynnti viðurkenn-
inguna á blaðamannafundi í New
York í gær, kom fram að gervihnéð
væri á lokastigi prófana og yrði fáan-
legt á markaði á næsta ári. Síðasta
gervihné Össurar, Rheo Knee, hefur
á liðnu ári unnið til ýmissa viðurkenn-
inga en þetta nýja hné er alveg ein-
stakt á sínu sviði, því það endurskap-
ar vöðvavirkni fótarins með því að
herma eftir heila fætinum.
„Power Knee er ávöxtur góðrar og
farsællar samvinni við fyrirtæki víða
um heim, en mesta vinnan liggur þó
hjá Victhom Human Bionics, Inc og
einnig kom MIT háskólinn að verk-
inu,“ sagði Jón.
Kim De Roy, þróunarstjóri hjá
Össuri, sagði að við smíði hnésins
hefði allra nýjustu tækni verið beitt;
tölvan í hnénu metur upplýsingar frá
skynjurunum á heilbrigða fætinum.
Þegar gengið er upp tröppur er því
fyrst stigið með heila fætinum og veit
gervihnéð strax til hvers er ætlast og
beitir sér með samskonar afli, með
samskonar hreyfingu.
Tuttugu og tveir sem misst hafa fót
Fyrsti vélvæddi gervi-
útlimurinn sem hugsar
Morgunblaðið/Einar Falur
Uppfinning Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Simon Bouchard á sýn-
ingu Popular Science í Grand Central-lestarstöðinni í New York í gær,
sýna hvernig vélvætt gervihnéð, Power Knee, virkar í raun.
hafa verið að prófa þetta nýja kné og í
dómum þeirra kemur fram að mina
álag sé á líkamann á göngu, göngulag-
ið batni, þeim gangi betur að ganga
upp og niður stiga, auk þess sem þeim
sé unnt að ganga hraðar.
„Þetta er samt alls engin endaaf-
urð,“ segir Jón. „Við erum þegar að
vinna að enn betra fæti. En þetta hné
er betra en Rheo og að ári verðum við
komnir með enn eitt betra.“
Rheo-hnéð kostar 16.000 dali í dag,
eða um 950 þúsund krónur. Enn er
ekki komið verð á Power-hnéð en Jón
segir að það muni kosta margfalt
meira. Byrjað var að vinna að þróun
hnésins fyrir um fjórum árum og hef-
ur þróunarvinnan kostað milljónir
dala.
Eftir Einar Fal Ingólfsson í New York
efi@mbl.is
Nýtt gervihné frá Össuri, Power Knee, meðal 100 bestu uppfinninga ársins
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
A‹ STYRKJA SAMBANDI‹
Mán. 17. okt og þri. 18. okt. kl. 8:30–17:00Kynntu flér máli› og skrá›u flig á endurmenntun.is
HVA‹ EINKENNIR GOTT SAMBAND? • HVA‹ BER A‹ VARAST?
HVERNIG LEYSUM VI‹ ÁGREINING? • HVA‹ ER MIKILVÆGAST?
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
!"#
$%%&$
' () *(#&
● HLUTABRÉF hækkuðu í verði í
Kauphöll Íslands í gær. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 0,25% og er
4.675 stig. Við-
skipti með hluta-
bréf námu 1,34
milljörðum, þar af
892 milljónum
með bréf
Straums Burðar-
áss. Bréf Flögu
hækkuðu um
10,7% og bréf
Össurar héldu
áfram að hækka, eða um 3,7%. Bréf
Mosaic lækkuðu um 2,29% og bréf
Atorku um 0,88%.
Bréf Össurar
hækkuðu enn
● KRÓNAN veiktist töluvert í við-
skiptum gærdagsins, eða um 1,2%,
og var gengisvísitalan við lokun
101,8 stig. Heildarveltan á milli-
bankamarkaði nam 14,3 milljörðum
króna. Gengi dollars er á 61,36 kr.,
pundið á 106,81 og evra 72,17. Í
Hálffimm fréttum KB banka segir að
mikil styrking krónunnar í síðustu
viku, þar sem vísitalan náði sínu
hæsta gildi frá opnun milli-
bankamarkaðar árið 1993, hafi að
einhverju leyti gengið til baka.
Krónan veiktist
töluvert
● HAGNAÐUR bresku verslunarkeðj-
unnar Marks & Spencer eftir skatta
frá apríl til loka september jókst um
63% í 212,6 milljónir punda, jafngildi
um 22,5 milljarða íslenskra króna. Á
þriðja fjórðungi ársins jókst velta
Marks & Spencer í fyrsta skipti í tvö
ár en talsmenn félagsins taka þó
fram að viðskiptaumhverfið sé enn
erfitt, einkum á Bretlandi. Tekjur fé-
lagsins í Bretlandi drógust saman
um 0,2% en jukust um 8,6% á er-
lendum mörkuðum.
Forstjóri M & S, Stuart Rose, hef-
ur hagrætt umtalsvert í innkaupum
og minnkað birgðastöðu félagsins
auk þess sem M & S hefur selt
meira af vörum við fullu verði.
Gengi bréfa verslunarkeðjunnar
hefur hækkað um 28% frá áramót-
um.
Betri afkoma hjá
Marks & Spencer
● SAMKVÆMT tölum frá greiðslu-
kortafyrirtækinu VISA jókst net-
verslun á Norðurlöndunum um 96%
á tímabilinu 1. júlí 2004 til 1. júlí
2005. Frá þessu er greint í frétta-
bréfi Samtaka verslunar og þjón-
ustu, SVÞ. Hliðstæðar tölur eru ekki
sagðar til fyrir Ísland eitt og sér, en
talið er ljóst að mikil aukning hafi
orðið í netverslun meðal Íslendinga
á síðustu mánuðum skv. VISA Ís-
land. Netverslun á Norðurlöndunum
er sögð lítil í alþjóðlegum sam-
anburði og nemur aðeins um 1% af
heildarveltu netverslunar í heimin-
um.
Tvöföldun á netversl-
un á Norðurlöndum
„ÞESSI viðurkenning heiðrar upp-
götvanir sem hafa ekki einungis
áhrif á það hvernig við lifum í dag,
heldur breyta þær hvernig við
hugsum um framtíðina,“ segir
Marc Jannot, ritstjóri Popular
Science, um viðurkenninguna sem
Össur fékk í gær.
Tímaritið hefur frá árinu 1987
heiðrað í desemberheftinu þær 100
uppfinningar, valdar úr þúsundum
tillagna, sem þykja bestar að dómi
sérfræðinga tímaritsins.
Uppgötvununum er skipt í tólf
flokka og að þessu sinni er
gervihné Össurar, Power Knee,
ein tíu uppfinninga sem heiðraðar
eru í flokknum „Almenn heilsa“.
Meðal annarra uppgötvana í þeim
flokki eru fyrsti gervihandlegg-
urinn sem stjórnað er af huganum,
tæki sem borið er á handlegg og
reiknar út orkueyðslu og tap á lík-
amsþunga, tæki sem eyðir bólum
og sprauta án nálar.
Meðal uppfinninga í öðrum
flokkum, sem veitt er viðurkenn-
ing fyrir að þessu sinni, eru nýr
Sony Walkman, Hurricane tor-
færujeppi, nýtt bremsukefi BMW,
minniskerfi frá Toshiba, Airbus
A-380 þotur, umhverfisvænn skýja-
kljúfur í New York, sjálfuppblás-
inn körfubolti, nýjasta Panasonic
borvélin og marglitar sápukúlur,
með litum sem skemma ekki
klæðnað.
Gervihné,
bremsukerfi
og borvélar
ÞRJÚ fyrirtæki í eigu Atorku
Group; Austurbakki, Icepharma
og Ismed, sem öll starfa á sviði
heilbrigðismála, munu sameinast
undir nafni Icepharma
hf. þann 1. janúar n.k.
Velta nýja félagsins er
áætluð um 4 milljarðar
króna. Forstjóri þess
verður Margrét Guð-
mundsdóttir, núver-
andi framkvæmdastjóri Austur-
bakka hf.
Benedikt Olgeirsson, fram-
kvæmdastjóri umbreytingaverk-
efna Atorku, segir að hjá samein-
uðu fyrirtæki muni starfa 65-70
manns. Hann segir enn ekki ljóst
hvort koma þurfi til uppsagna
vegna breytinganna en gerir ráð
fyrir að þær verði óverulegar,
komi til þeirra. Starfsemi Aust-
urbakka verður öll á Lynghálsi í
Reykjavík, í núverandi húsnæði
Icepharma og Ismed.
Í fréttatilkynn-
ingu segir að nýja
félagið muni bjóða
upp á fjölbreytt úr-
val vara og lausna
frá fjölda erlendra
birgja. Það sé mat
stjórnenda að samruni skili sér í
betri rekstri félaganna og geri það
betur í stakk búið til að sinna
ofangreindum verkefnum. Sam-
tímis hefur stjórn Atorku ákveðið
að selja víndeild og íþróttadeild
Austurbakka hf., sem hafa verið í
heildsölustarfsemi og markaðssett
og selt vín og íþróttavörur hér á
landi.
Fyrirtæki í eigu
Atorku sameinast
Veltan fjórir milljarðar króna en selja
á vín- og íþróttadeild Austurbakka
+,-. /&0#
1"$23!%43$56(7,
83
9$ :2(4; ",
<
%%
9!2 :2(4; ",
5
0
:2(4; ",
= :2(4; ",
+< :2
#$ ",
>5
#6
#%$ ",
*
276(2
#$2 ",
4;?$#0 <
#% ",
!04# ",
=
#6
#%$ >5
# ",
2&5 ",
> ",
32
4@42-<427
2A BA2",6
#%$ ",
C42 ",
3(2%
:2(4; ",
$%@
2%
742 >5
# ",
+
@;$7B
# ",
'8&5
#$8 :2(4; ",
(
$8
$(# ",
D &2B$ ",
0 "B
2%$;3$ ",
E 35
#3$8 &32(5&4@
2100$#0
@$73!7$# ",
/$##543!7$# ",
!"
$%&5$ 1B
"B
27
2 ",
5A342"F5
0 47425
# 9",
G%$"G2$ ",
! #$ %
'H
I7
3
9$7%,9&27
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
<2&13$#0 "2A
"122
9$7%,9&27
- -
-
-
-
-
-
-
- -
- -
-
-
- -
- -
-
-
-
-
-
-
J -
K
J -K
J K
-
-
-
-
J K
J -K
-
J -
K
J K
-
J K
J -K
-
-
-
J -
K
-
J - K
-
-
-
-
-
-
-
+&$5
29$7%$;3$
0$#
$56(7 I 5(%
0.
4;
5
,
, , , -
, -
,
,
, , , , -
-
-
, -
, -
-
-
-
-
-
-
/$7%$;3$ I ?L, %2,
+, M 3 404#
25$3$ B!5$
9$7%$;3
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-