Morgunblaðið - 09.11.2005, Page 48

Morgunblaðið - 09.11.2005, Page 48
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. HAGVAGNAR í Hafnarfirði hafa ráðið fimm Pólverja til að keyra strætisvagna fyrirtæk- isins. Hagvagnar aka á leiðum Strætó bs. á höfuðborgarsvæð- inu. Komu Pólverj- arnir hingað til lands um miðjan síðasta mánuð og að sögn Gísla J. Friðjónssonar, framkvæmdastjóra Hagvagna, hafa þeir staðið sig mjög vel í akstrinum. Segir Gísli að illa hafi gengið að manna stöður vegna mikillar þenslu í þjóð- félaginu og að einhvern veginn verði menn að bjarga sér til að viðhalda þjónustu. Segir Gísli að mjög vel sé að mönnunum búið hjá Hagvögnum, til dæmis hafi allir ráðningar- samningar verið þýddir á pólsku. Aðspurður um íslenskukunnáttu Pólverj- anna segir Gísli Hagvagna oft hafa haft er- lenda ríkisborgara í vinnu sem náð hafi því helsta í íslenskunni mjög fljótt og þessir fimm menn séu mjög viljugir til að læra. Þá muni þeir fara á íslenskunámskeið bráðlega. Pólverjar ráðnir til að aka strætó Illa gengur að manna stöður vegna þenslu LÆGSTA tilboð sem barst í útboði Vega- gerðarinnar í seinni hluta tvöföldunar Reykjanesbrautarinnar reyndist 385 millj- ónum kr. lægra en Vegagerðin hafði áætlað. Jarðvélar ehf. bjóðast til að vinna verkið fyr- ir 1175 milljónir en áætlaður verktakakostn- aður var 1560 milljónir. Starfsmenn Vega- gerðarinnar fara nú yfir tilboðin og ganga til samninga við lægstbjóðendur. Vonast er til að framkvæmdir hefjist fyrir áramót en þeim á að ljúka í síðasta lagi í júní 2008. Þá verður Reykjanesbraut, frá bæjarmörkum Hafnarfjarðar og í Reykjanesbæ, með tveim- ur tvíbreiðum akreinum og öll meg- ingatnamót mislæg. Sturla Böðvarsson samgönguráðherra var viðstaddur opnun tilboðanna og kvaðst ánægður með niðurstöðuna. | 18 Morgunblaðið/RAX Lægsta tilboð 385 milljónum undir áætlun Tilboð opnuð í gær í seinni hluta tvöföldunar Reykjanesbrautar áfram að hlusta og meta faglega allar ábendingar sem berast,“ sagði Þorgerður Katrín. Hún sagði ýmsar ábendingar þegar hafa verið teknar til greina og nefndi einnig að ákveðið hefði verið að koma til móts við bekkjarskólana til að þeir gætu haldið sérstöðu sinni. Kennarar við MA héldu fund á Ráðhústorgi og gengu síðan fylktu liði að húsakynnum skólans þar sem þeir hittu ráðherra að máli. ÞORGERÐUR Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra tók við mótmælum kennara við Mennta- skólann á Akureyri í gær, en þeir líkt og kennarar við fjóra aðra bekkjarkennsluskóla í landinu mótmæltu fyrirhugaðri styttingu framhaldsskólanáms úr fjórum ár- um í þrjú. Ráðherra sagði við kennara og nemendur MA, þegar hún tók við mótmælunum, að hún væri sann- færð um að fyrirhuguð breyting yrði farsæl. „En við munum halda Ráðherra tók við mótmælum vegna styttingar framhaldsskólanáms Metum allar ábend- ingar faglega Morgunblaðið/Kristján Þorlákur Axel Jónsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri, afhenti Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra mótmæli vegna fyrirhugaðrar styttingar framhaldsskólanáms, í húsnæði skólans í gær. Ekki tekið tillit til | 11 TEKJUR sjómanna hafa dregizt sam- an um allt að 25% á síðustu tveimur ár- um og eru nú svipaðar og þær voru ár- ið 1999, sé tekið mið af ákveðnum ísfisktogara. Þetta hefur ennfremur leitt til þess að illa gengur að manna skipin. Skýringin á þessum samdrætti er fyrst og fremst hið háa gengi ís- lenzku krónunnar. Þetta segir Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Hann hefur miklar áhyggjur af þessari þróun og segir að á heildina litið sé staðan nú verri en menn hafa horfzt í augu við mjög lengi. „Í landi er talað um kaupmáttaraukningu og launaskrið, en hjá sjómönnum er þessu þveröfugt farið. Eftirspurn eftir vinnuafli í landi hefur leitt til þess að menn fást ekki á skipin.“ | B1 Allt að 25% lækkun launa sjómanna NÝTT gervihné, Power Knee, sem stoð- tækjafyrirtækið Össur framleiðir, hefur af tímaritinu Popular Science verið tilnefnt meðal 100 bestu upp- finninga ársins. Þetta var kynnt á blaðamannafundi sem Össur stóð fyrir í New York í gær, áður en stoðtækja- sýning hófst í Grand Central lestarstöð- inni. Össur er að ljúka prófunum á þessu rafeindastýrða gervihné. Uppgötv- unum ársins er skipt í tólf flokka og er hnéð meðal tíu uppfinninga í flokknum „Almenn heilsa“. | 13 Gervihné Öss- urar meðal upp- finninga ársins ♦♦♦ HÚSFÉLAG Skúlagötu 32 til 34 undirbýr nú, í samráði við lögfræð- inga sína, að kæra ákvörðun Reykjavíkurborgar um byggingu á Barónsreit, sem afmarkast af Vita- stíg, Skúlagötu, Barónsstíg og Hverfisgötu. Þar er fyrirhuguð bygging tveggja 4–5 hæða húsa með um 100 íbúðum fyrir stúdenta. Eru meðal annars gerðar athuga- semdir vegna skerðingar birtu, en sumar íbúðanna eru aðeins með gluggum að reitnum, og um að götumynd muni ekki halda sér. Þá er gert ráð fyrir byggingu þriggja 15 hæða íbúðaturna við Skúlagötu auk bílakjallara. Ingi Björn Poulsen, formaður húsfélagsins, bendir á að fyrir nokkrum árum hafi verið gerðar endurbætur á Skúlagötu 32 til 34 og einnig á hóteli sem samfast er byggingunni. Þá hafi aðeins fengist leyfi fyrir að bæta einni hæð ofan á húsin en hærri húsum hafnað á þeim forsendum að deiliskipulagið gerði ekki ráð fyrir hærri húsum og að þau þyrftu að liggja vel í götumyndinni. Síðar hefðu verið teiknaðir upp fimmtán hæða turn- ar sem væru í engu samræmi við götumyndina. Segir hann að aðeins einn fulltrúi í skipulagsráði hafi greitt tillögunni um Barónsreitinn atkvæði en allir hinir hafi setið hjá, meðal annars á grundvelli mót- mæla húsfélagsins. Í borgarráði hafi svo tveir setið hjá. Ekki hægt að koma til móts við alla Dagur B. Eggertsson, formaður skipulagsráðs, segir málið hafa verið töluvert lengi í vinnslu og nokkrar útfærslur hafi verið lagðar fram. Hann segir að málið hafi ver- ið umdeilt, einkum þar sem náms- mannaíbúðirnar eiga að rísa, en dregið hafi verið úr hæð bygging- anna til að koma til móts við ábend- ingar íbúa á svæðinu. Segir hann ekki hægt að koma til móts við alla. Um 15 hæða turnana segir Dagur að langt sé síðan sú lína var lögð að byggingin teygði sig nokkuð til himins næst Skúlagötunni. Sé það í samræmi við strandlengjuna þó svo að ákvörðunin hafi verið um- deild á sínum tíma. Íbúar við Skúlagötu ætla að kæra byggingar á Barónsreit  Segja breytingu | 6 Eftir Andra Karl andri@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.