Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 8
8 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frumvarp til nýrravatnalaga er eittþeirra þingmála
sem tekist er á um á þessu
þingi. Frumvarpið kemur
úr iðnaðarráðuneytinu og
er því ætlað að leysa af
hólmi vatnalög frá árinu
1923. Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra
segir stefnt að því að frum-
varpið verði samþykkt á
vorþingi. Hún mælti fyrir
frumvarpinu á Alþingi fyr-
ir nokkrum vikum og
mætti það harðri andstöðu
þingmanna stjórnarand-
stöðunnar. Frumvarpið er nú til
umfjöllunar í iðnaðarnefnd þings-
ins en Birkir J. Jónsson, formaður
nefndarinnar, gerir ekki ráð fyrir
því að það verði afgreitt úr nefnd
fyrr en eftir áramót.
Endurskoðun núgildandi vatna-
laga hófst í iðnaðarráðuneytinu
árið 2001 og var markmið hennar
að samræma ákvæði vatnalaga
annarri löggjöf sem sett hefur ver-
ið á þeim tíma sem liðinn er frá
gildistöku laganna, að því er fram
kemur í skýringum frumvarpsins.
Sérstök nefnd var svo skipuð, af
iðnaðarráðherra, í mars 2003 til að
gera tillögu um frumvarp til nýrra
vatnalaga. Formaður nefndarinn-
ar var Karl Axelsson hrl.
Frumvarpið leit dagsins ljós á
síðasta löggjafarþingi, en hlaut
ekki afgreiðslu. Það var svo lagt
fram að nýju, eitthvað endurbætt,
nú á haustþingi, og hefur þegar
farið í fyrstu umræðu, eins og áður
sagði.
Stjórnarandstæðingar hafa
gagnrýnt ýmsa þætti frumvarps-
ins, m.a. eftirfarandi ákvæði, sem
fjallar um eignarrétt að vatni:
„Fasteign hverri, þar með talið
þjóðlendu, fylgir eignarréttur að
því vatni sem á henni eða undir
henni er eða um hana rennur.“
Iðnaðarráðherra segir að þetta
ákvæði feli einungis í sér form-
breytingu, þ.e. ekki sé verið að
færa landeigendum nein ný rétt-
indi. Ekki eru þó allir sammála
þeirri túlkun, þ.á m. Ögmundur
Jónasson, þingmaður Vinstri
grænna, eins og síðar verður vikið
að.
Iðnaðarráðherra sagði, er hún
mælti fyrir frumvarpinu, að með
umræddri breytingu væri verið að
falla frá hinni jákvæðu skilgrein-
ingu á eignarrétti á vatni, sem nú-
gildandi lög byggðust á. Í annarri
grein núgildandi laga segir:
„Landareign hverri fylgir réttur
til umráða og hagnýtingar því
vatni, straumvatni eða stöðuvatni,
sem á henni er, á þann hátt, sem
lög þessi heimila.“
Kaupa þurfi réttinn
Áður en lengra er haldið er rétt
að útskýra muninn á jákvæðri og
neikvæðri skilgreiningu á eignar-
rétti. Í athugasemdum frumvarps-
ins segir að neikvæð skilgreining
tilgreini ekki með upptalningu
hverjar heimildir eigandinn hafi
yfir verðmætinu „heldur er gengið
út frá því að eigandinn njóti allra
heimilda nema þeirra sem eru
með beinum hætti undanskildar
eignarráðum hans, hvort heldur
sem það hefur gerst með lögum
eða samningi“. Jákvæð skilgrein-
ing er hins vegar sú skilgreining
„þar sem taldar eru upp allar
heimildir eiganda, sem í eignarétti
geta falist […]“, að því er fram
kemur í athugasemdum frum-
varpsins.
Iðnaðarráðherra sagði er hún
mælti fyrir frumvarpinu að nú-
gildandi lög heimiluðu fasteignar-
eiganda aðeins þá hagnýtingu
vatns sem sérstaklega væri leyfð.
„Í þessu frumvarpi er aftur á móti
lagt til að hin neikvæða skilgrein-
ing eignarréttar verði lögð til
grundvallar,“ sagði hún. „Þannig
má segja að fasteignareiganda sé
heimil öll hagnýting vatns sem
ekki er sérstaklega takmörkuð.“
Valgerður ítrekar í samtali við
blaðamann að eignarrétturinn á
vatni sé skv. núgildandi lögum í
hendi landeigenda eða fasteignar-
eigenda. Dómaframkvæmdir hafi
staðfest það. „Ef breyta á þessum
rétti, eins og þingmenn Vinstri
grænna tala um, þarf að kaupa
hann af viðkomandi aðilum.“
Ögmundur Jónasson er þessu
ósammála. „Ágreiningurinn snýst
um það hvort ráðstöfunarréttur
einstaklinga á vatni í núgildandi
lögum sé ígildi eignarréttarins,
sem nú á að festa í lög. Við teljum
svo ekki vera.“ Með breytingunum
sé verið að festa eignarrétt ein-
staklinga á vatni. Nær hefði verið
að ganga í gagnstæða átt, segir
hann, og tryggja rétt almennings
til vatnsins. „Ég vona að ríkis-
stjórnin beri gæfu til að endur-
skoða þetta mál frá grunni.“
Jóhann Ársælsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, sem sæti á í
iðnaðarnefnd, telur varhugavert
að breyta skilgreiningunni á eign-
arréttinum. Hann kveðst til að
mynda ekki skilja hvernig menn
geti átt vatnið sem renni undir
eigninni fremur en vindinn sem
blási yfir henni. „Mér finnst hins
vegar sjálfsagt að menn hafi nýt-
ingarréttinn,“ segir hann. Sigur-
jón Þórðarson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins í iðnaðarnefnd,
gerir einnig ýmsar athugasemdir
við frumvarpið, en ekki þó við
eignarhaldið á vatni, eins og þing-
menn Samfylkingar og Vinstri
grænna.
Fréttaskýring | Þingmenn takast á
um frumvarp til nýrra vatnalaga
Formbreyting
eða ekki?
Iðnaðarráðherra hafnar því að verið
sé að færa landeigendum ný réttindi
Frumvarp til nýrra vatnalaga er rætt á þingi.
Ráðherra segist vilja falla
frá jákvæðri skilgreiningu
Í athugasemdum frumvarps-
ins til nýrra vatnalaga segir að
þess séu fá dæmi að í lögum sé á
jákvæðan og tæmandi hátt kveð-
ið á um það hvað felist í til-
teknum heimildum eignarréttar.
Glöggt dæmi þess séu þó vatns-
réttindi, sbr. 2. grein núgildandi
vatnalaga. Þar segir m.a. að
landareign hverri fylgi réttur til
umráða og hagnýtingar á því
vatni, sem á henni sé. Þetta er
kölluð jákvæð skilgreining á
eignarrétti.
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
edda.is
Ný ljóðabók
frá Þórarni Eldjárn
„Þeir sem aðhyllast orðaglens, ákveðnar
skoðanir og leiki með hætti fá hér einnig töluvert
fyrir sinn snúð, og allt er þetta vel gert.“
Gunnþórunn Guðmundsdóttir, bokmenntir.is
Misrétti
Að jafnrétti náist er veruleg von um
því vekur það furðu að enn
er bærinn svo fullur af fallegum konum
sem fengu sér ljóta menn.
MBL
22. – 28. nóv.
2.
Ljóð
„Annars er bókin hans Þórarins sérlega fín.
Þarna eru bæði rímuð kvæði og órímuð,
alvörugefin, glettin, smáskrítin og djúpvitur -
vald Þórarins á málinu er einstakt.“
Egill Helgason, Silfur Egils, visir.is
„Eiturlyfjasala er ein arðvænlegasta
„atvinnugrein“ heimsins í dag. Bankar og aðrar
virðulegar peningastofnanir græða gífurlegar
upphæðir að ráðstafa eiturlyfjagróða sem hljóðar
uppá meira en 500 milljarða dollara á ári.“
Svavar Sigurðsson,
sími 699 3357 AUGLÝSING
Tilvitnun í bókina „Falið vald eiturlyfja kolkrabbans“,
sem er til útláns á bókasöfnum landsins.
Kt. 190237-2069 - Banki: 1101-26-111557
EINAR K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra fagnaði fimm-
tugsafmæli sínu í félagsheimilinu
Víkurbæ í Bolungarvík á föstu-
dagskvöld. Fjölmörg skemmti-
atriði voru í boði og m.a. flutti
karlakórinn Ernir af Vestfjörðum
níðvísur um ráðherrann. Á með-
fylgjandi mynd eru Einar, Sigrún
J. Þórisdóttir eiginkona hans og
börn, Guðfinnur Ólafur, Sigrún
María og Pétur með eintak af
níðvísunum svo þau gætu tekið
undir.
Að sögn fréttaritara Morg-
unblaðsins á Vestfjörðum voru á
milli þrjú og fjögur hundruð
manns saman komin og gríðarleg
stemning í félagsheimilinu. Margt
góðra manna mátti þar finna og
kom víða að en á meðal gesta
voru Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, ráðherrar og
þingmenn úr öllum flokkum.
Ræðuhöld voru tíð en að beiðni
veislustjórans, Halldórs Halldórs-
sonar bæjarstjóra á Ísafirði, voru
þær hafðar í styttra lagi, eða svo-
kallaðar ör-ræður, svo fleiri
kæmust að.
Eftir afmælisdagskrá var svo
slegið upp dansiballi þar sem
gleðisveitin Halli og Þórunn lék
fyrir dansi fram á nótt.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Fagnaði fimmtugsafmæli í Bolungarvík