Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Í þessari heimsókn í Öskjuhlíð-arskóla upplifði ég sterkt aðbörnin fá að vera þau sjálf ogþað dylst heldur engum aðfólkið sem vinnur þarna elsk-
ar börnin. Kennurunum þykir vænt
um nemendurna og persónuleika
þeirra, þeir eru opnir fyrir hug-
myndum þeirra og skammast sín
ekki fyrir þau.“
Mary Ellen Mark situr á vinnu-
stofu sinni í New York og er að
skoða myndirnar sem hún tók af
fötluðum nemendunum í heimsókn
sinni í Öskjuhlíðarskóla einn föstu-
dag í haust. Vikuna á undan hafði
hún verið að mynda nokkur verkefni
fyrir Morgunblaðið en hafði jafn-
framt mikinn áhuga á að heimsækja
skólann. Meðan hún beið eftir leyfi
til að mynda í skólanum frá forsvars-
mönnum og foreldrum barnanna,
myndaði hún íslenska myndlistar-
menn og unglingamenningu. En
þegar boð barst um að heimsækja
Öskjuhlíðarskóla, eyddi hún þar
lunga úr degi og vill ólm koma aftur
og vinna meira í skólanum.
„Ég hef komið í skóla og stofnanir
sem annast fatlaða, þar sem for-
stöðumennirnir skammast sín og
vilja helst ekki að maður hitti skjól-
stæðinga þeirra. Í Öskjuhlíðarskóla
eru börnin virt fyrir það hver þau
eru, allir eru fullir af ást og hlýju og
þess vegna er umhverfið svo nota-
legt,“ segir Mary Ellen.
Þessi hálfsjötuga kona er einn
virtasti ljósmyndari samtímans. Um
aldamótin var hún valin áhrifamesti
starfandi kvenljósmyndarinn af einu
helsta ljósmyndatímariti Bandaríkj-
anna. Hún er ekki listamaður sem
lítur undan eða forðast sannleikann;
þess í stað hefur hún í fjóra áratugi
ljósmyndað fólk á barmi hengiflugs-
ins, skrásett líf þeirra sem minna
mega sín og þeirra sem hafa orðið
undir í lífsgæðakapphlaupinu. Ferill
Mary Ellen Mark er annars afar
fjölbreyttur og meðal kunnustu
myndefna hennar eru sirkusar á
Indlandi, heimilislaus ungmenni í
Seattle, geðdeild kvenna í Oregon,
líknarstofnun móður Teresu í Kal-
kútta og vændiskonur í Bombay.
Hún hefur gefið út á annan tug bóka
og unnið til fjölda viðurkenninga.
Mary Ellen Mark hefur nokkrum
sinnum heimsótt Ísland og tvisvar
hafa verk hennar verið sýnd á Kjar-
valsstöðum.
En hvers vegna skyldi hún hafa
verið svona áhugasöm um að kynna
sér aðstæður fatlaðra barna á Ís-
landi?
„Á ferlinum hef ég tekið mikið af
myndum af fólki sem glímir við ein-
hvers konar fötlun. Ég er líka mjög
áhugasöm um hvers kyns frásagnir
af lækningum og meðferðar-
úrræðum, og um aðstæður þeirra
sem eru andlega vanheilir.
Sum þessara barna í skólanum
eru fötluð andlega og líkamlega,
önnur bara andlega. En þau eru
mjög frjáls og opin. Þau eru tilgerð-
arlaus og heiðarleg. Ég hef alltaf
dregist að þessum hreinleika. Líf
fatlaðra getur vissulega verið dap-
urlegt en einnig svo fullt af lífi og
húmor. Þetta eru bara venjuleg börn
en þau hafa fötlun sem heilbrigð
börn hafa ekki. Stundum tekst mér
að fanga áhugaverð augnablik í lífi
þeirra,“ segir hún um leið og hún
velur þær myndir sem hún kann
best að meta úr heimsókn sinni.
„Þetta var einstök upplifun. Mig
langar mjög mikið til að koma aftur
og eyða lengri tíma í skólanum, ég
var bara að mynda í rúmlega hálfan
dag – en það var frábær dagur.
Mörg barnanna eru svo sterkir ein-
staklingar. Ég held þau hafi líka not-
ið þess að vera ljósmynduð – þau
elska athyglina.
Þarna er strákurinn með húfuna –
ég kallaði hann Herra Svalan – í frí-
mínútum leyfði hann einni stelpunni
að vera með húfuna sína. Og svo Al-
exander sem var svo fallegur og
elskulegur. En þetta eru bara
krakkar.“
Hún horfir á myndir af pilti með
býflugu í krukku, öðrum með sjó-
ræningjamerki á húfunni og Alex-
ander skellihlæjandi í sundlauginni.
„Þessi skóli er dásamlegur. Íslend-
ingar eiga hrós skilið fyrir að búa
svona vel að fötluðum.“
„Þessi skóli er dásamlegur“
Ljósmyndarinn Mary Ellen Mark fylgdist með skóladegi í Öskjuhlíðarskóla
Í Öskjuhlíðarskóla eru þroskaheft og fjölfötluð börn á
grunnskólaaldri. Bandaríski ljósmyndarinn Mary Ellen
Mark, sem er einn áhrifamesti ljósmyndari samtímans,
fylgdist með skóladegi og myndaði börnin við iðju sína.
Hún segir að þrátt fyrir fötlunina séu börnin mjög frjáls og
opin, tilgerðarlaus og heiðarleg. Hún naut heimsókn-
arinnar og vill snúa aftur. Einar Falur Ingólfsson fylgdist
með og ræddi við foreldra eins nemanda og skólastjórann.