Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miklar umræður urðuum Gerplu þegarhún kom út. Í bók-inni Laxness málesa bréfaskipti þjóðþekktra manna um bókina og höfund hennar. Hér er gripið niður í bréf Ragnars í Smára og Sigurðar Nordal og eru beinar tilvitnanir í bréfin skáletraðar. Sigurður Nordal var hógværari við Kristin E. Andrésson en trún- aðarvin sinn, Ragnar Jónsson í Smára. Ragnar hafði sent honum Gerplu og bréf um leið með hug- leiðingum um bókina, sem hann lofaði að vísu hástöfum, en bætti við: Hinu get ég þó ekki neitað, að stöðugt sækir á mig við lestur bók- arinnar sá óhugnanlegi óþefur, sem leggur af ýmsu því, er Laxness hefur skrifað um heimspólítík, virð- ingarleysi fyrir helgidómum ann- arra manna og viss tegund af sýnd- armennsku, sem kemur fram í því að eigna sér það, sem aðrir hafa gert. Kemur mér til dæmis í hug tvennt, sem hvort tveggja nálgast fölsun, að eigna sér eins og hann hefur gert verk Lárusar Pálssonar í Snæfríði Íslandssól og umfram allt verk Jóns Helgasonar, sem er í þessari bók það afgerandi fyrir bókina, að hún nálgast að vera verk þeirra beggja. En snilld Hall- dórs er svo mikil og hugrekki hans og vinnuþrek svo óvenjulegt, að maður fyrirgefur þetta allt með ánægju, er skáldskapur hans flýtur um æðarnar. Ragnar vék síðan að efni bók- arinnar og boðskap. Mér finnst bókin fjalla um öll þau vandamál, sem fyrir liggja í dag. Barátta skáldsins, við skulum segja þess manns, sem hefur verið svo ógæfusamur að fæðast ekki meðal núíta, þeirra manna, sem einir eru sinnar gæfu smiðir og hafa allt, sem hugur þeirra girnist og hönd, gamla sagan um „jarð- arskika og kvenmann“. Sú barátta er eilíf og því harðari, sem hann hefur náð hærri þroska. Köllunin rekur hann burt frá ást og sælu til þess að þjóna sínum konungi. Þetta er svo sem engin ný saga, en hún er hér sögð með svo gjörsamlega nýjum hætti, að hún birtist sem nýr hlutur. Ragnar hélt áfram: Raunasaga Þormóðs er ný saga um Ljósvíkinginn, Bjart í Sumar- húsum, Napóleón Bónaparti og Jón Hreggviðsson, en ekki saga um stríð og frið, eins og Halldór hefur boðað. Áróður Halldórs fyrir hug- sjón friðarins er ekki sérlega sann- færandi á þann hátt, að maður finni með hjartanu, að hann elski frið, heldur óttist ófrið. En sá áróð- ur er snilldarlega felldur inní skáldskap bókarinnar. Ragnar taldi upp nokkra áhrifa- mikla kafla í bókinni og skírskot- anir þeirra til samtímans, en sagði síðan: Hitt þarf ekki endilega að vera lofgjörð til Stalíns, er hann segir, að kvæði, sem ort er um konung, sem ekki er lengur við völd, sé ekki kvæði, heldur hverri þögn verra, það eitt sé kvæði, sem ort er sig- ursælum konungi. Hér mun hann eiga við, að ekkert þýði að berjast gegn þróuninni. Okkur, sem lesið höfum um það, er 15 milljónir manna voru á einum degi teknir á einu bretti undir Stalín í Póllandi, finnst náttúrlega, að þessi orð lykti dálítið af tækifærissinnuðu hugar- fari. Með þessu vísaði Ragnar til þess, þegar Laxness fagnaði því í árslok 1939, að hinn Rauði her Stalíns lagði undir sig austurhluta Póllands. Áróður fyrir hugsjónum friðarins ekki sannfærandi Sigurður Nordal skrifaði Ragn- ari á móti langt bréf um Gerplu: Ég er nýbúinn (í 4. eða 5. sinn) að mæla með Halldóri til Nób- elsverðlauna (auk alls persónulegs áróðurs í sama skyni), svo að ég veit mig alveg frían af löngun til þess að meta verk hans miður en að verðleikum. Og ég hef enga þess háttar tilfinningu gagnvart fornöld né fornsögum, að hún skyggi á bók Halldórs eða ég hneykslist á bók- inni þess vegna, þótt einhvers kon- ar samanburður sé vitanlega óhjá- kvæmilegur. Ég skrifaði einu sinni á mínum ungu árum skopstælingu á Gunnlaugs sögu, sem ég því mið- ur er búinn að týna, og ég met sög- urnar ekki síst vegna þess, að þær þola alveg miskunnarlausa gagn- rýni, þ.e.a.s. þótt harkalega sé með þær farið, verður alltaf nóg eftir, Bókarkafli | Laxness, þriðja bindi ævisögu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um Nóbelsskáldið, er komið út. Í bókinni er fjallað um aðdrandann að því að Halldór Laxness fékk Nóbelsverðlaunin, ýmis stjórnmálaafskipti hans, þar á meðal í Rússlandi, og viðburðaríkar utanlandsferðir. Höfundurinn leitar víða fanga, meðal annars í bréfasöfnum Sigurðar Nordal og Þórbergs Þórðarsonar á Landsbókasafninu. Er list mann- bætandi? Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Nóbelsskáldið Halldór Laxness og skrif hans urðu tilefni ítarlegra bréfaskipta vinanna Sigurðar Nordals og Ragnars Jónssonar í Smára. Sigurður Nordal taldi raunasögu Halldórs fólgna í því að hann ætti minna og minna af tilfinningum afgangs til þess að gefa persónum sínum. Ólafur K. Magnússon Ragnari Jónssyin í Smára fannst Gerpla Halldórs Laxness einkennast af vissu virðingarleysi fyrir helgidómum annarra manna. Eitt þeirra bréfa sem Ragnar í Smára sendi Sigurði Nordal. Morgunblaðið/ Ólafur K. Magnússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.