Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 29
Ármúla 10 • Sími: 5689950
w
w
w
.is
ak
w
in
th
er
.c
om
Sænsku Rúmin
Eftirsótt lífsgæði
Það er ekki bara stelpan, líka bíll-inn,“ sagði ungi maðurinn meðáherslu. Stúlkan í framsætinuhjá honum brosti svolítið feimn-islega en bjálfinn ég, sem varla
geri greinarmun á Austin Mini og Range
Rover, stóð eins og þvara á miðri götu á
dimmum nóvemberdegi.
„Þú ert kominn með flotta
stelpu,“ hafði ég sagt þeg-
ar ég kom manninum loks-
ins fyrir mig eftir að hann
stoppaði fyrir mér og
heilsaði kankvíslega út um
bílgluggann, vísast í þeim tilgangi að sýna
mér eitthvað merkilegt.
Ætli hann hafi ekki verið tveggja ára
þegar ég sá hann fyrst, ljóshærðan, svolít-
ið kringlóttan í framan með skýrleg augu.
Stundum kom hann heim til mín með
mömmu sinni og stundum heimsótti ég þau
og alltaf var sólskinsbjart yfir honum. Svo
fór hann að trítla einsamall yfir götuna
milli húsanna okkar, hringja upp á í ýms-
um erindagjörðum og alltaf var sólskins-
bjart yfir honum. „Er hún mamma þín
heima,“ spurði hann eitt sinn manninn
minn, honum til mikillar kátínu og fyrir
vikið fékk ég ýmsar glósur um að ég hlyti
að bera aldurinn nokkuð illa. En strákur
jafnaði fyrir mig metin þegar hann nokkru
síðar heilsaði bóndanum með þessum orð-
um: „Æ, komdu nú sæll og blessaður,
gamli vinur.“
Hann var skemmtilegur nágranni þótt
hann ætti það til að gerast leiðtogi ungra
stigamanna uppi á þakinu okkar. Og kött-
inn sinn kallaði hann aldrei annað en
morðingja í okkar eyru því að hann vissi
að við grunuðum hann um ýmis óhæfuverk
úti í garði. Hann átti hjá okkur athvarf
þegar hann læsti sig úti og allaf var hann
kurteis og kumpánlegur, kringlóttur í
framan með andlitið fullt af sólskini.
Glymjandi rokktónar yfir götuna færðu
okkur heim sanninn um að vinurinn væri
smám saman að breytast í ungling sem
nennti ekki lengur af fara með foreldrum
sínum í sumarbústað. Eina slíka helgi
bauð hann kunningjum heim til sín upp á
heitan pott og þegar í ljós kom að slíkt ílát
var þar hvergi að finna var lúin jeppa-
kerra á bílaplaninu fyllt með heitu vatni
og dubbuð upp í óvænt hlutverk. Svo var
sullað og skvampað inn í ljósa sumarnótt
og ekki spillti ánægjunni að leikvangurinn
stóð í þéttbýlu hverfi og starandi augu bak
við gluggatjöld og bílrúður.
En þegar hann stoppaði fyrir mér bílinn
þarna um daginn var mér ljóst að ég hafði
ekki séð hann lengi og litlar spurnir af
honum haft. Vísast er hann kominn eitt-
hvað á þrítugsaldur, hefur sjálfsagt þekkt
stelpuna sína lengi og keyrt marga bíla
þótt þessi nýjasti sé langflottastur. Yfir
honum var þó sama sólskinsbirtan og áður
og það hlýtur að teljast virðingarvottur við
gamla grannkonu þegar ungur maður
nemur staðar í svörtu skammdegi til að
sýna henni það merkilegasta í lífi sínu,
hvort sem það er fjórhjóladrifinn dreki eða
glæsileg stúlka.
Bíll, stelpa og skíma í skammdeginu
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Guðrúnu
Egilson
’Það er ekkert gaman að verasnillingur. Það er kvöl og
pína.‘John Lennon í óbirtu viðtali sem sýna átti
á BBC 4 í gærkvöldi, laugardag.
’Takk.‘38 ára frönsk kona þegar hún vaknaði eftir
aðgerð þar sem græddur var á hana hluti
nefsins, varir og haka. Hún var bitin af
hundi í maí og hlaut við það alvarleg
meiðsl.
’Þessi gríðarlega aukning áskattbyrði tiltekinna þjóð-
félagshópa er óvenjuleg ... og
ef til vill furðulegri fyrir þá
sök að á þessum tíma hafa
stjórnvöld haft þá stefnu að
minnka skattheimtu.‘Stefán Ólafsson, prófessor, kynnti á
fimmtudag skýrslu sem sýnir að skatt-
byrði öryrkja af heildartekjum hefur auk-
ist verulega frá 1995.
’Ég er ekki að biðja um mikiðþví þó að ég hefði milljón í
bætur á mánuði þá liði mér
ekkert betur. En bara ef ég
hefði að borða, þá væri ég að-
eins hressari.‘Sigríður Bachman Egilsdóttir talaði við
Morgunblaðið eftir að opið bréf hennar til
ríkisstjórnarinnar birtist í blaðinu á
þriðjudag. Sigríður er öryrki.
’Þessi mannlegi harmleikurer enn óafsakanlegri en ella
vegna þess að hægt hefði verið
að koma í veg fyrir hann.‘Jan Eliasson, forseti allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna er fórnarlamba alnæmis
var minnst um heim allan á fimmtudag.
’Við sættum okkur aðeins viðfullnaðarsigur.‘George W. Bush Bandaríkjaforseti í ræðu
á miðvikudag um innrásina í Írak og
ástandið í landinu.
’Við skulum þora að aukafrelsið.‘Angela Merkel í fyrstu stefnuræðu sinni
sem kanslari Þýskalands.
’Við munum vinna kosning-arnar.‘Paul Martin, forsætisráðherra Kanada og
leiðtogi Frjálslynda flokksins, eftir að
minnihlutastjórn hans hafði verið felld á
þingi.
’Fari þeir til fjandans. Fólkiðvill þá ekki.‘Jose Vicente Rangel, varaforseti Vene-
súela, eftir að þrír stjórnarand-
stöðuflokkar höfðu ákveðið að hætta þátt-
töku í þingkosningum sem fram eiga að
fara í dag, sunnudag.
Ummæli vikunnar