Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 33
var, og þeir gátu hönd á fest,
hrópuðu og kölluðu hver öðrum
hærra og buðu Íslendinga vel-
komna … Út úr öllum gluggum
var stungið flaggstöngum og sums
staðar á strætum voru heiðurs-
bogar skreyttir blómum og blóm-
vöndlum.“
Hannes og konungur mestu mátar
Það er ekki lítið við haft. Síðan
er gengið til hallar og taka kamm-
erherrar og þjónar á móti þing-
mönnunum og vísa þeim til her-
bergja þar sem þeir geta þvegið
sér og greitt. Konungur og
drottning taka síðan á móti þeim í
Drottningarsal hallarinnar. Veisl-
an sjálf fer fram í svokölluðum
Kuppelsal og eru 300 manns í
henni. Konungur flytur fyrst
skrifaða ræðu en tekur síðar til
máls undir borðum blaðalaust sem
er óvenjulegt, örvaður af kampa-
víni og hrifningu stundarinnar.
Heyra má saumnál detta meðan
konungur heldur ræðuna og allir
skynja að hún er mælt beint frá
hjartanu. Hann fullvissar Íslend-
inga um elsku sína til þeirra. Það
vekur nokkra kátínu og reyndar
hneykslun þeirra Íslendinga, sem
telja sig veraldarvana, að séra
Árni Jónsson á Skútustöðum
gengur til drottningar eftir mál-
tíðina og þakkar fyrir matinn að
góðum og gömlum íslenskum sið.
Loks eru veislugestir ljósmynd-
aðir ásamt konungsfjölskyldunni á
tröppum Garðsalarins og síðan
reika þeir um stund um hinn und-
urfagra Hallargarð og leikur Frið-
rik VIII á als oddi í garðinum.
Þeir Hannes Hafstein eru mestu
mátar. Hinn lífsglaði konungur
kann vel að meta heimsmennsku
íslenska ráðherrans. Síðar minnt-
ist J.C. Christensen forsætisráð-
herra þessa dags er hann mælti
minningarorð um Friðrik VIII í
danska þinginu eftir andlát hans
1912 og sagði: „Þá mælti kon-
ungur það aftur og aftur að sá
dagur væri hinn fegursti, er hann
hefði lifað, af því hann væri þá
staddur mitt á meðal þjóða sinna
og vér fundum allir að þau orð
komu frá hjartans rótum. Hann
unni þessum tveim þjóðum, er
hann átti yfir að ráða, og ekkert lá
honum ríkara á hjarta en að vinna
að því að andi samkomulags yrði
drottnandi meðal þeirra.“
Endalausar raðir símastaura
Íslensku þingmennirnir fara
heimleiðis með Lauru að morgni
30. júlí.
Það er grenjandi rigning þegar
Laura kemur til Seyðisfjarðar.
Hannes Hafstein tekur þann kost
að fara af skipinu og skilur þar
leiðir hans og flestra þingmann-
anna. Ráðherrann ætlar að kynna
sér af eigin raun framkvæmdir við
símalagningu, sem langt er komin,
og ríða frá Seyðisfirði með línunni
norður um landið og suður. Magn-
ús Vigfússon dyravörður úr
Stjórnarráðinu er kominn með
gæðinga Hannesar og verður
fylgdarmaður hans og einnig eru
hestasveinar með í för. Nú eru
komnar endalausar raðir síma-
staura um firði og heiðar og er
það mikil breyting á ásýnd lands-
ins frá því sem áður var. Í ræðu
síðar um haustið segir Hannes:
„Á ferð minni að norðan eftir
ritsímalínunni heyrði ég haft eftir
manni, sem oft þarf að vera einn á
ferð um fjöllin, að þegar hann sjái
ritsímastaurana, sem í beinum og
fögrum röðum standi hól af hól,
leiti af leiti, þá finnist honum hann
ekki lengur vera einn. Honum
finnist hann þá kominn í mannlegt
samfélag og óbyggðin orðin að
byggðu bóli. Líkri tilfinningu hefi
ég heyrt fleiri lýsa er þeir í fyrsta
skipti sáu stauraraðirnar rísa þar
sem auðnin var áður.“
Stórkostleg undur
Sæstrengurinn og ritsímalínan
eru stórkostleg mannvirki og und-
ur í augum allra Íslendinga, eitt-
hvert hið mesta sem þeir hafa
upplifað. Brátt geta Seyðfirðingar
talað við Akureyringa og Akur-
eyringar við Reykvíkinga þegar
þeim sýnist og sent skeyti eða
fengið skeyti frá útlöndum. Þetta
á eftir að valda gjörbyltingu í
verslun og viðskiptum og öllum
samskiptum. Það er glaður Hann-
es Hafstein sem ríður með nýju
símalínunum. Þó að ekkert annað
liggi eftir hann mun síminn halda
nafni hans á lofti. Hann tekur
norsku símakarlana tali og er
kumpánlegur við þá. Þeir hafa
unnið þrekvirki á þeim stutta tíma
sem Hannes krafðist að verkið
skyldi taka. Allt er samkvæmt
tímaáætlun þrátt fyrir snjóþyngsli
og kulda langt fram eftir vori.
Alþýðlegur og vinsæll ráðherra
Þegar von er á Hannesi til Ak-
ureyrar 10. ágúst 1906 fara flokk-
ar manna úr Eyjafirði, kjördæmi
hans, til móts við hann. Einn
flokkur bíður við Goðafoss, annar
í Vaglaskógi og svo áfram og
verður úr mikil og tignarleg hóp-
reið síðasta spölinn til Akureyrar.
Daginn eftir komuna þangað
bjóða eyfirskir bændur ráðherra
sínum til fjölmenns samkvæmis á
Grund í Eyjafirði, hinu forna höf-
uðbóli þangað sem hann sjálfur á
ætt að rekja.
Daginn eftir heldur Hannes af
stað til Reykjavíkur, ríður um
æskustöðvarnar, Hörgárdalinn, og
áleiðis upp á Öxnadalsheiði og síð-
an um blómlegar sveitir Skaga-
fjarðar. Hannes er alþýðlegur í
hátt og að því leyti ólíkur mörgum
eldri valdsmönnum á Íslandi.
Hann lætur fylgdarmenn sína
ávallt sitja til borðs með sér þar
sem snætt er á bæjum og hjálpar
gjarnan sjálfur til við að ná saman
hestum þar sem áð er. Hann tekur
sjálfan sig ekki of hátíðlega. Samt
ber persóna hans svo mikla virð-
ingu að engum dettur annað í hug
en að sýna honum fyllstu kurteisi.
Guðjón Friðriksson: Ég elska þig storm-
ur – ævisaga Hannesar Hafstein kemur
út hjá Máli og menningu. Bókin er 726
bls.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 33
Komnar í næstu verslun
NÝJAR FRÁBÆRAR
FERILSPLÖTUR
Johnny Cash · Ring Of Fire
The Legend Of Johnny Cash
Johnny Cash var 71 árs þegar hann féll frá þann
12. september, 2003, en goðsögnin lifir áfram. Ring Of Fire:
The Legend of Johnny Cash er fyrsta platan sem spannar allan
tónlistarferil hans, sem stóð frá 1955-2003.
Ring Of Fire · I Walk The Line · Jackson · Folsom Prison
Blues · A Boy Named Sue (Live) · Big River · Get
Rhythm · Cry Cry Cry · Hey Porter · A Thing Called Love
· Guess Things Happen That Way · San Quentin (Live) ·
The Man In Black · The Highwayman · The Wanderer ·
I’ve Been Everywhere · Rusty Cage · Personal Jesus ·
Give My Love To Rose · One · Hurt
John Fogerty & Creedence Clearwater
Revival · The Long Road Home
Ultimate Collection
Frábær safnplata sem inniheldur öll þekktustu lögin frá sólóferli
John Fogerty og Creedence Clearwater Revival. Einnig fylgja með
fjórar nýjar upptökur.
Born On The Bayou · Bad Moon Rising · Centerfield · Who’ll
Stop The Rain · Rambunctious Boy · Fortunate Son · Lookin’
Out My Back Door · Up Around The Bend · Almost Saturday
Night (live) · Down On The Corner · Bootleg (live) · Have You
Ever Seen The Rain? · Sweet Hitch-Hiker · Hey Tonight (live) ·
The Old Man Down The Road · Rockin’ All Over The World
(live) · Lodi · Keep On Chooglin’ (live) · Green River · Déjà Vu
(All Over Again) · Run Through The Jungle · Hot Rod Heart ·
Travelin’ Band · Proud Mary · Fortunate Son (live)
Fjórar nýja
r
upptökur.
Spannar al
lan tónlista
rferil
Johnny Cas
h, sem stóð
frá
1955-2003