Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 34
34 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Yfirgefið aldrei vistarverur þar
sem kertaljós logar
Munið að slökkva
á kertunum
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Átjánda nóvembersíðastliðinn voruHönnunarverð-launin veitt ífyrsta skipti. Það
var hinn nýstofnaði Hönnunar-
vettvangur sem stóð að verð-
launaveitingunni. Hönnunar-
vettvangur var stofnaður í maí
á þessu ári með það að mark-
miði að stuðla að faglegu og
virku hönnunarsamfélagi. Í
stjórn Hönnunarvettvangs
sitja fulltrúar frá iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu, Samtök-
um iðnaðarins, útflutningsráði,
Iðntæknistofnun, Reykjavík-
urborg og Form Ísland.
Í tilefni þess að í ár voru í fyrsta
skipti haldnir hönnunardagar á veg-
um Hönnunarvettvangs var ákveðið
að veita hönnunarverðlaun. Reykja-
víkurborg gaf í ár verðlaunaféð að
upphæð 500.000 kr.
Meginmarkmiðið með verðlaunun-
um er að vekja athygli á góðri hönnun
og virkja og hvetja hönnunarsam-
félagið hér á landi. Hönnunarvett-
vangur skipaði dómnefnd með það að
markmiði að ná fram mikilli faglegri
breidd og ná til bæði ungra og eldri
hönnuða. Það er ljóst að þessi verð-
laun eru kærkomin nýjung í vaxandi
samfélagi hönnunar hér á landi og
þau munu með árunum þróast og ná
sterkari stöðu og um leið efla og
styrkja hönnun sem mikilvægt fag
hér á landi.
Gera hversdaginn áhugaverðari
Verðlaunahafinn í ár er Tinna
Gunnarsdóttir vöruhönnuður. Tinna
hefur verið starfandi hönnuður hér á
landi undanfarin 15 ár og sýnt hönn-
un sína á öllum helstu hönnunarsýn-
ingum heimsins undanfarin ár. Hún
útskrifaðist með BA-gráðu í þrívíðri
hönnun frá WSCAD í Englandi og ár-
ið 1997 með mastersgráðu í iðnhönn-
un frá Domous Academy í Mílanó. Á
árunum 1993 til ’96 rak Tinna Gallerí
Greip sem stóð fyrir ýmsum hönnun-
ar- og myndlistarsýningum. Frá
árinu 1999 hefur hún kennt og haldið
fyrirlestra við Myndlistaskólann í
Reykjavík og Listaháskóla Íslands.
Tinna er mjög fjölhæfur hönnuður,
en eitt af því sem einkennir hennar
verk er að hlutirnir hennar gera okk-
ar hversdagslega umhverfi áhuga-
verðara. Þetta eru gjarnan hlutir sem
fá okkur til að líta tvisvar, gott dæmi
eru krómhellur sem hún sýndi í fyrsta
skipti í Japan árið 2004 á samsýningu
framsækinnar hönnunar frá Skandin-
avíu í galleríi Issey Miyake. Götuhell-
urnar úr krómi setja himininn og um-
hverfið undir fæturna okkar og fá
okkur til að skynja umhverfið á al-
gjörlega nýjan hátt. Hinn klassíski
hvíti blúndudúkur er orðinn svartur
og er skorinn með hátæknilegri að-
ferð í svart iðnaðargúmmí sem mun
endast margar kynslóðir. Munstrin í
dúkunum eru leikur að geómetrísk-
um formum eða flugum og skordýr-
um. Hönnun Tinnu vísar á skemmti-
legan hátt til náttúrunnar og
hefðarinnar. Svörtu gúmmíútimott-
urnar símunstruðu vísa í svarta sand-
inn og hans náttúrulega símunstur í
kringum Vík í Mýrdal en þangað á
Tinna ættir að rekja. Kollar hafa ver-
ið Tinnu hugleiknir og hefur hún bæði
komið með nýja sýn á erkitýpur af
kollum og gefið kollum algjörlega
nýtt form eins og í „geómetrísku
blómunum“, það eru kollar í formi
kúlu sem hafa þungan botn þannig að
þeir vagga fallega eins og veltibollar
sem smábörn nota iðulega. Margt af
því sem Tinna hannar er framleitt hér
á landi og hefur hún þannig nýtt sér
þá þekkingu og tækni sem er að finna
í litlum framleiðslu- og iðnaðarfyrir-
tækjum hér á landi sem er mjög já-
kvætt og vonandi að fleiri fari að taka
sér til fyrirmyndar.
Framundan hjá Tinnu eru fleiri
sýningar á erlendri grundu, í febrúar
á næsta ári verður hún með einkasýn-
ingu á Hönnunarsýningunni í Stokk-
hólmi (Stockholm Furniture Fair) á
svæði sem kallast Green House og er
ætlað ungum og áhugaverðum hönn-
uðum. Í apríl næstkomandi mun
Tinna ásamt tveimur öðrum íslensk-
um hönnuðum, þeim Guðrúnu Lilju
Gunnlaugsdóttur og Sigríði Sigur-
jónsdóttur, sýna á Salone Satellite
sem er hluti af hinni heimsfrægu
hönnunarmessu í Mílanó. Við hér
heima fáum að njóta hönnunar Tinnu
á sýningu sem verður haldin í Ás-
mundarsal í janúar, þar sem Tinna
sýnir ásamt hönnuðinum og keramik-
smiðnum Ragnheiði Ingunni Ágústs-
dóttur og myndlistarmönnunum Sig-
tryggi Bjarna Baldvinssyni og Sigríði
Ólafsdóttur.
Ekki nógu sýnilegt
Þar sem hönnun er á vissan hátt
ungt fag hér á landi og hefur ekki ver-
ið eins sýnilegt og aðrar menningar-
tengdar greinar er alltaf hollt að
horfa til annarra þjóða og sjá hvernig
staða hönnunar er þar.
Holland hefur á undanförnum 10
árum getið af sér nokkra af áhuga-
verðustu hönnuðum heims. Ár eftir ár
spretta upp í Hollandi nýir hönnuðir
sem ná að heilla heiminn með ferskri
og spennandi hönnun. Ástæðan fyrir
þessari grósku er mjög sennilega sú
að Hollendingar eru þekktir fyrir
góða hönnunarskóla og samfélag sem
styður dyggilega við bakið á hönnuð-
um og hönnun. Gott styrkjakerfi rík-
isins veitir ungum og nýútskrifuðum
hönnuðum tækifæri á að starfa sem
hönnuðir sem síðan skilar sér til baka
í margvíslegum formum eins og til
dæmis jákvæðri umfjöllun um Hol-
land, hollenska hönnun og hugvit.
Hollensk hönnun er í dag orðin
ákveðinn gæðastimpill eins og hin
klassíska danska hönnun hefur verið í
nokkra áratugi.
Hollenska hönnunarsamfélagið er
búið að festa sig í sessi og orðið þekkt
og eftirsótt um heim allan. Í stærstu
borgum Hollands er starfræktur
fjöldinn allur af hönnunargalleríum,
vinnustofum, stofnunum og söfnum
sem sérhæfa sig í fræðilegum rann-
sóknum, fræðslu og sýningum á
hönnun.
Hollensku hönnunarverðlaunin
Árið 2003 voru hollensku hönnun-
arverðlaunin (The Dutch Design Aw-
ards) veitt í fyrsta skipti. Það voru
samtök hollenskra hönnuða og ým-
issa bakhjarla sem stóðu fyrir verð-
launaveitingunni. Markmiðið með
þessum verðlaunum var að vekja at-
hygli á hönnuðum og hönnun, nota-
gildi hönnunar og aðgengileika bæði
til að ná athygli fleiri bakhjarla og
eins almennings. Verðlaunin eru veitt
í fimmtán flokkum og er sérvalin
dómnefnd fagfólks sem útnefnir og
veitir verðlaun í hverjum flokki fyrir
sig. Til dæmis eru veitt verðlaun í
flokknum Hönnun fyrir alla (design
for all) en það er flokkur sem skoðar
notagildi hönnunar, hún þarf að nýt-
ast sem flestum, óháð aldri fólks og
líkamlegu ásigkomulagi. Í kringum
afhendingu hönnunarverðlaunanna
er haldin sýning þar sem allir þeir
sem tilnefndir voru og þeir sem verð-
launin hlutu sýna. Með þessu er sýnt
allt það besta sem hollensk hönnun
hefur upp á að bjóða, frá vefsíðugerð
til umbúðahönnunar, frá innanhúss-
hönnun til hönnunar á almennings-
svæðum og frá listrænni hönnun til
iðnhönnunar.
Hin íslensku hönnunarverðlaun
munu vonandi gera góða íslenska
hönnun aðgengilegri almenningi og
sýna fram á að hönnun er ekki bara
fyrir ríka og sérfróða. Með aukinni
umfjöllun fá hönnuðir vonandi viður-
kenningu og tækifæri til að starfa við
sitt fag af fullum krafti og auka út-
breiðslu og notkun á hönnun. Hönnun
endurspeglar menningu hvers lands
og er hluti af menningunni rétt eins
og bókmenntir, tónlist, myndlist og
leiklist. Þessi verðlaun eiga jafnmikið
erindi við fólk og verðlaun í öðrum
geirum því hönnun kemur öllum við.
Hollt væri því fyrir okkur að líta til
Hollands og fleiri landa og sjá hvern-
ig stutt er við bakið á hönnuðum og
með því að efla iðnað og menningu
tengda hönnun styrkjum við þjóð-
arbúið.
Hvatt
til dáða
Í hlutarins eðli | Fagverðlaun eru hvetjandi fyrir þann sem
þau fær, þau veita viðmið fyrir aðra í sama fagi og hvetja
þá jafnvel líka til dáða skrifar Brynhildur Pálsdóttir.
Tinna þykir fjölhæfur hönnuður, en eitt af því
sem einkennir verk hennar er að hlutirnir
hennar gera okkar hversdagslega umhverfi
áhugaverðara.
Tinna er mjög fjölhæfur hönnuður, en eitt af því
sem einkennir hennar verk er að hlutirnir hennar
gera okkar hversdagslega umhverfi áhugaverð-
ara.
Munstrin í dúkunum eru leikur að
geometrískum formum.
Tinna Gunnarsdóttir tekur við Hönnunarverðlaununum.
Höfundur er vöruhönnuður.