Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 37
grjótið,“ segir séra Þorsteinn Pét-
ursson á Staðarbakka, og héldu að
„skárra mundi að þjóna á Bremer-
hólmi“ en að „forrétta svoddan
publique-erfiði, eins og það skeði í
Kaupinhafn, omsonst og án betal-
ings“. Þarf ekki að orðlengja það að
lengstum gekk í þófi um nauðung-
arvinnu þessa, enda aðbúnaður á
vinnustað slæmur; fengu bændur
ekki inni í staðarhúsum en máttu
hýrast í fjárhúsum meðan á
vinnunni stóð. Þegar Skagfirðingar
tóku að slá slöku við, kurruðu Ey-
firðingar og kváðu eitt skyldi yfir
alla ganga. Varð þetta tilefni mikilla
bréfaskipta þeirra amtmanns, bisk-
ups og sýslumanna, án þess að á
vinnulagið kæmist viðunandi skip-
an, þótt áfram væri unnið að nafn-
inu til.
Sabinsky átti ekki sjö dagana
sæla. Sambúðin við verkamennina
versnaði enn og byggingareftirlits-
manninum var ekki lagið að setja
niður deilur þegar upp úr sauð. „Ég
vildi óska að ég væri búinn með
kirkjuna á morgun, og ég skal
sannarlega varast að koma mér í
annað eins aftur. Nótt og dag er ég
eirðarlaus, á daginn vinn ég eins og
þræll og á nóttunni sækir að mér
efi um að ég standi mig. Á mér
standa spjótin úr öllum áttum, mér
til skapraunar,“ skrifar hann
kirkjustjórnarráðinu 28. september
1758. Hann þrábiður að fá einn eða
tvo múrara til aðstoðar og ítrekar
að sá fagmaður sé ekki til sem unn-
ið geti einn síns liðs við erfið skil-
yrði. Og loksins tókst að sannfæra
ráðið um að verkið væri ekki á eins
manns færi. Hinn 4. apríl 1759 var
samið við múrarasvein, Caspar
Schlätzer að nafni, um að fara til
Íslands og aðstoða Sabinsky við
múrverkið. Kom hann til Hóla 21.
ágúst og hafði með sér 252 kalkt-
unnur og annað byggingarefni.
Þegar hér er komið sögu var Sab-
insky byrjaður á útveggjunum og
búinn að hlaða þá upp í gluggahæð,
alla nema annan langvegginn. Voru
þeir gerðir úr holtagrjóti innan en
tilhöggnum rauðum sandsteini ut-
an.
Kirkjur Íslands, 5. og 6. bindi, koma út
hjá Hinu íslenska bókmenntafélagi og
eru prýdd fjölda ljósmynda og teikninga
af kirkjum. Verkið er samstarfsverkefni
Þjóðminjasafnsins, Húsafriðunar-
nefndar, Fornleifaverndar, Biskups-
stofu, Byggðasafns Skagfirðinga og Bók-
menntafélagsins. Höfundar eru
Guðrún Harðardóttir sagnfræðingur,
Gunnar Bollason sagnfræðingur, Hörð-
ur Ágústsson listmálari og fræðimaður,
Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur,
Kristín Huld Sigurðardóttir for-
stöðumaður Fornleifaverndar, Kristján
Eldjárn, Kristmundur Bjarnason
fræðimaður, Sigríður Sigurðardóttir
safnstjóri, Unnar Ingvarsson héraðs-
skjalavörður, Þorsteinn Gunnarsson
arkitekt, Þór Hjaltalín minjavörður og
séra Þórir Stephensen. Samtals eru
bækurnar 610 blaðsíður.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 37
Komnar í næstu verslun
NÝJAR FRÁBÆRAR
FERILSPLÖTUR
Dire Straits & Mark Knopfler
· Private Investigations: Best Of
Öll þekktustu lög Mark Knopfler og Dire Straits ásamt einu nýju
lagi, sem er dúett þeirra Mark Knopfler og Emmilou Harris.
Plata 1
Calling Elvis · Telegraph Road · On Every Street ·
Sultans Of Swing · Going Home · Love Over Gold ·
Darling Pretty · Romeo And Juliet · Long Road · Tunnel
Of Love · Private Investigations
Plata 2
Why Aye Man · Sailing To Phildelphia · So Far Away ·
Money For Nothing · What It Is · Brothers In Arms ·
Trawlerman's Song · Boom Like That · Walk Of Life · All
The Road Running · Your Latest Trick
Bob Marley · Africa Unite: The Single Collection
Í ár hefði Bob Marley orðið sextugur og til þess að fagna þeim
tímamótum hefur þessi frábæra ferilsplata verið gefin út.
Platan inniheldur allar helstu perlur Bob Marley ásamt nýja laginu
“Slogans”, sem aldrei hefur verið gefið út.
Plata 1
Bend Down Low · Mellow Mood · Stir It Up · Caution · Soul
Rebel · Small Axe · Duppy Conquerer · Soul Shakedown Party
· Kaya · Keep On Moving · Sun Is Shining · Don't Rock My
Boat · Screw Face · Lick Samba · Guava Jelly · Craven Choke
Puppy · Lively Up Yourself (JAD version) · Trenchtown Rock ·
Concrete Jungle
Plata 2
I Shot The Sheriff · Get Up Stand Up · Lively Up Yourself ·
No Woman, No Cry (Live) · Roots Rock Reggae · Exodus ·
Waiting In Vain · Jamming · Is This Love · Satisfy My Soul ·
Sun Is Shining · Could You Be Loved · Three Little Birds ·
Redemption Song · Buffalo Soldier · One Love/People Get
Ready · Iron Lion Zion · Africa Unite (will i am remix) ·
Slogans · Stand Up Jamrock (Ashley Beedle Remix)
Platan er f
áanleg í
einfaldri og
tvöfaldri
útgáfu.
Platan er fá
anleg í
einfaldri og
tvöfaldri
útgáfu og í
sérútgáfu.
Inniheldur
lagið:
All The Roa
d Running
með Mark
Knopfler og
Emmilou H
arris!
Helgin öll...
Íþróttir á morgun