Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 42
42 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÚT ER kominn geisladiskurinn
Óperuaríur þar sem Ingibjörg
Guðjónsdóttir sópran syngur
þekktar aríur eftir Puccini og Moz-
art með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands. Hljómsveitarstjóri er Gerrit
Schuil sem er Íslendingum að góðu
kunnur, bæði sem píanóleikari og
stjórnandi. Margar af þekktustu
sópranaríum tónbókmenntanna
hljóma á diskinum, m.a. Donde
lieta úr La Boheme, Un bel di ve-
dremo úr Madama Butterfly, Chi’ll
bel sogno úr La Rondine og aríur
Liu, Signore ascolta og Tu che di
gel, úr Turandot. Lokaaría disks-
ins er eftir meistara Mozart úr óp-
erunni La clemenza di Tito en þar
leikur Einar Jóhannesson klarín-
ettuleikari einleik.
Ingibjörg stundaði söngnám við
Tónlistarskóla Garðabæjar en
framhaldsnám við Indianaháskóla
í Bandaríkjunum. Hún hefur hald-
ið fjölda einsöngstónleika og verið
einsöngvari með kórum og sinfón-
íuhljómsveitum, hér á landi sem
erlendis, sl. 20 ár. Ingibjörg starf-
ar nú sem einsöngvari og kórstjóri
Kvennakórs Garðabæjar sem hún
stofnaði árið 2000.
Hefur fengið
útgáfubakteríuna
Óperuaríur er fyrsti geisla-
diskur Ingibjargar en upptökur
fóru fram í Háskólabíói í nóv-
ember fyrir ári. Ingibjörg gefur
sjálf út diskinn og segir hún til-
drög þess að hún réðst í það verk-
efni hafa tengst ákveðnum tíma-
mótum í lífi sínu og söngferli.
„Það hafði lengi verið draumur að
gefa út geisladisk en það var ekki
fyrr en ég heyrði afrakstur af
upptökum sem ég hafði gert fyrir
Ríkisútvarpið á síðasta ári með
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Gerrit Schuil hljómsveitarstjóra,
að ég ákvað að hér væri ástæða til
að láta drauminn rætast og gefa
mér veglega afmælisgjöf á fer-
tugsafmælinu mínu 13. nóvember
sl.“
Í efnisvali sótti Ingibjörg til
tónlistar sem hefur staðið henni
nærri á söngferlinum. „Óperur
Puccinis hafa alltaf heillað mig
enda fjalla þær flestar um ósköp
venjulegt fólk, gleði þeirra og
sorgir.“ Ingibjörg bendir þó á að
um sé að ræða mjög fjölbreytilegt
úrval aría eftir Puccini, og sýni
þær glöggt breidd hans sem tón-
skálds, enda gæði hann hverja ar-
íu sterkum persónulegum blæ.
„Tónlistin á diskinum er svo tíma-
laus og að sama skapi ákaflega
rómantísk. Hún kallar kannski dá-
lítið á að fólk setji hversdags-
amstrið til hliðar og leyfi sér að
njóta fegurðar tóna Puccinis.“
Ingibjörg segir að lokum að sér
hafi komið skemmtilega á óvart
hve ferlið við útgáfuna hafi verið
gefandi og lærdómsríkt. „Allt ferl-
ið var sem ævintýri líkast. Þeir
sem áttu hlut að máli tóku þessari
útgáfu minni einstaklega vel.
Reynslubanki bræðra minna, Ósk-
ars, saxófónleikara og Ómars, gít-
arleikara, var óspart notaður,
enda hafa þeir gefið út sína eigin
geisladiska í djassinum. Vonandi
er þetta bara byrjunin enda hef
ég fengið í mig „útgáfubakt-
eríuna“ og get varla beðið eftir að
byrja á nýju upptöku- og útgáfu-
ferli!“
Tónlist | Þekktar óperuaríur á geisladiski
„Þetta er ákaflega djúp og falleg
tónlist sem fólk á auðvelt með að
tengjast,“ segir Ingibjörg Guðjóns-
dóttir söngkona um óperuaríur
Puccinis sem hún flytur á nýút-
komnum geisladiski.
Tímalaus tónlist
Eftir Heiðu Jóhannsdóttur
heida@mbl.is
Stíngsög 600w
4.995
Vörunúmer ECSJ-JS600UK
2.995
Vörunúmer ECSJ-OS135UK
Tómstundasett
Slípi- og fræsvél
PowerCraft
Vörunúmer KJ10650
• 5 hraðar
• 10-30K snún/mín
• 125W - 230V
• 40 aukahlutir
Tilboðsverð
3.495
Fyrir veiðimanninn Tifsög PowerCraft
Vörunúmer KJ78750
• 1.440 snún/mín
• Sagardýpt 405 mm
• Sagarþykkt 50 mm
Tilboðsverð
Tómstundasett
8.995
Tilboðsverð
2.995
Tilboðsverð
meðan birgðir endast
6.995
Vörunúmer KJ78909
Tilboðsverð
meðan birgðir endast
34.995
Tilboðsverð
meðan birgðir endast
31.995
Rifflaskápur
fyrir 5 skotvopn
Vörunúmer KJ78905
• Hæð 145 cm
• Breidd 35 cm
• Dýpt 30 cm
Rifflaskápur
fyrir 7 skotvopn
Vörunúmer KJ78907
• Hæð 145 cm
• Breidd 50 cm
• Dýpt 30 cm
Rifflaskápar
Tilboðsverð
meðan birgðir endast
32.995
Scrubs
hreinsiklútar
Tilboðsverð
1.695
með vsk
Hitablásari
2.995
Hobbýdeildin
Tilboðsverð
meðan birgðir endast
6.495
Vörunúmer ECSJ-CD14.4UK
Fyrir jeppamanninn
Rafhlöðuborvél
4.995
Rafhlöðuborvél
5.995 18v
Vörunúmer ECSJ-CD14.4UK
Vörunúmer ECSJ-CD18UK
14.4v
Tilboðsverð
Tómstundasett
2.495
Slípisett PowerCraft
Vörunúmer KJ10850
• 100 hlutir
• Vandaður trékassi
3.995
Vörunúmer ECSJ-CD14.4UK
115mm
Sími 5757 600 • Fax 5757 605
Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík
fossberg@fossberg.is • www.fossberg.is
Juðari 135w
FOSSBERG
Verkfæri Slípirokkur 600w
meðan birgðir endast
HELDUR var hún dapurleg jóla-
stemningin á aðventutónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands á fimmtu-
dagskvöldið. Í rauninni var ekkert
jólalegt við þá ef frá eru taldar fáein-
ar jólastjörnur á sviðinu. Þó að ein-
tóm barokktónlist hafi verið á efnis-
skránni er varla sjálfgefið að hún
framkalli hátíðlegt andrúmsloft. Þarf
ekki að setja hana í rétt samhengi?
Er barokktónlist yfirleitt viðeigandi í
vonlausum hljómburði Háskólabíós?
Markaðssetningin virðist hafa brugð-
ist því ég man ekki eftir svona
dræmri aðsókn á Sinfóníutónleikum
ef frá eru taldir þeir sem hún hélt á
þarsíðustu Myrku músíkdögum. Einn
náungi sem ég ræddi við í hléinu furð-
aði sig á því af hverju tónleikarnir
hefðu ekki verið haldnir í kirkju, og
ég tek undir það. Aðventutónleikar
Sinfóníunnar í Langholtskirkju væru
mun girnilegri en í fráhrindandi bíói
sem má muna fífil sinn fegurri.
Ef ég á að vera alveg hreinskilinn
þá voru kaflar úr Vatnasvítu Händels
miður skemmtilegir áheyrnar. Ekki
vegna þess að þeir væru illa leiknir;
öðru nær. Hornablástur þeirra Emils
Friðfinnssonar og Josephs Ognibene
var sérlega líflegur og frammistaða
óbóleikaranna Eydísar Franzdóttur
og Daða Kolbeinssonar var til fyr-
irmyndar. Hljómsveitin í heild lék
líka oftast prýðilega. Það dugði bara
ekki til. Maður hefur heyrt tónlist
Händels flutta þúsund sinnum áður; í
bíómyndum, í útvarpi, úr hátöl-
urunum heima og víðar. Hún hefur
alltaf hljómað betur en á þessum tón-
leikum. Endurómunin í Háskólabíói
hentar einfaldlega ekki barokktónlist.
Í rauninni hæfir hún engri músík, en
hátíðleg barokktónlistin, sem getur
verið svo voldug og glæsileg, missti
bókstaflega alla merkingu þarna í
bíóinu. Útkoman var eins og að hlusta
á Händel úr hljóðgervli.
Svipaða sögu er að segja um Kant-
ötu BWV 51 eftir Bach, en þar var
Hallveig Rúnarsdóttir í aðal-
hlutverki. Þótt hún hafi sungið af við-
eigandi tilþrifum og túlkun hennar
einkennst af ágætlega ígrunduðum
blæbrigðum og markvissri uppbygg-
ingu skorti röddina nægilega fyllingu
til að hún bærist á viðunandi hátt í
bíóinu. Hún virkaði mjó og fyrir
bragðið urðu hápunktar tónlistar-
innar máttlitlir. Hallveig er sann-
arlega ágætur músíkant og hefur oft
sungið einstaklega fallega, en hér var
hún ekki á réttum stað.
Reyndar verður að segjast að mjög
fáir söngvarar njóta sín í Háskólabíói.
Verkefnavalsnefnd hljómsveitarinnar
ætti að hafa það í huga þegar ein-
söngvarar eru valdir til að koma fram
með hljómsveitinni. Í bíóinu duga
engin vettlingatök.
Trompeteinleikur Ásgeirs Stein-
grímssonar í kantötu Bachs kom tals-
vert betur út en söngur Hallveigar.
Og óbóleikur Matthíasar Birgis Nar-
deau í óbó- og fiðlukonsert í c-moll
eftir Bach var líka afar vandaður og
barst prýðilega um salinn. Greinilegt
var að Matthías er hæfileikaríkur
tónlistarmaður.
Hinn einleikarinn í verkinu, Ari
Þór Vilhjálmsson fiðluleikari, naut sín
síður þótt hann hafi yfirleitt spilað af
nákvæmni og með réttum tilþrifum.
Rödd fiðlunnar rann of mikið saman
við strengi hljómsveitarinnar og var
útkoman undarlega loðin, a.m.k. þar
sem ég sat.
Skemmtilegasta atriði tónleikanna
var sennilega Les Boréades, hljóm-
sveitarsvíta eftir Rameau. Hljóm-
burðurinn var auðvitað ekkert betri,
en kröftugur trommuleikur Franks
Aarninks kryddaði tónlistina svo
hægt var að ímynda sér lífsglaða bar-
okkdansara í misgóðum holdum
hoppandi um sviðið. Og það var að
minnsta kosti fyndið.
Hvar var jólastemningin?
TÓNLIST
Háskólabíó
Rameau: Les Boréades; Bach: Jauchzet
Gott in allen Lenden, kantata BWV 51;
Bach: Konsert fyrir óbó, fiðlu og strengi í
c-moll BWV 1060; Händel: Úr Vatnasvít-
unum. Hljómsveitarstjóri Harry Bicket.
Einleikarar: Ari Þór Vilhjálmsson og
Matthías Birgir Nardeau. Einsöngvari:
Hallveig Rúnarsdóttir. Fimmtudagur 1.
desember.
Sinfóníutónleikar
Jónas Sen