Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 43
MENNING
www.urvalutsyn.is
Skíðaveisla
– Ítalía, Austurríki, Aspen og Vail
Ítalía Vinsælasti áfangastaðurinn okkar til fjölda ára.
Fyrsta flokks skíðastaðir með brekkum við allra hæfi.
Netsnjór í Madonna
12. janúar í 9 nætur
Bókunarstaða • Selva og Madonna
21. jan. 17 sæti laus
28. jan. 9 sæti laus
4. feb. Uppselt/biðlisti
11. feb. Uppselt/biðlisti
18. feb. Uppselt/biðlisti
25. feb. 12 sæti laus
4. mars Laus sæti
Austurríki
Flachau og Wagrain
Líflegt andrúmsloft, fjör, vetrar-
rómantík og gestrisni hjálpa þér
að upplifa hið fullkomna vetrarfrí.
Bókunarstaða
4. feb. Laus sæti
11. feb. Uppselt/biðlisti
18. feb. Uppselt/biðlisti
25. feb. Laus sæti
Aspen og Vail
26. feb. í 9 nætur
Mekka skíðafólks og draumur allra
skíðamanna er að komast á skíði í
Klettafjöllin í Colorado.
Bókunarstaða
4 sæti laus til Aspen og 12 sæti til Vail.
Verð frá
69.980* kr.
á hótel Montana m/morgunverði
Nánari uppl‡singar um fer›ir
ásamt l‡sinum á hótelum er a›
finna á www.urvalutsyn.is
2 fyrir 1
3. janúa
r í 9 næ
tur
Flugsæt
i til Salz
burgar 3
. jan.
og frá V
erona 12
. jan.
Verð 24.03
0 kr.
Beint leiguflug
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
3
05
10
1
2/
20
05
* Innifalið: Flug, gisting með morgunverði í 9 nætur,
akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn.
BRÚÐULEIKSÝNINGIN Rauðu
skórnir var frumsýnd á Litla sviðinu í
Borgarleikhúsinu fyrir tveimur árum
og vakti þá mikla hrifningu gesta og
gagnrýnenda. Sýningin hélt til bæj-
arins Neuchatel í Sviss nú í nóv-
ember, á alþjóðlega brúðuleikhús-
hátíð sem ber heitið Semaine de la
Marionette eða Vika brúðunnar.
„Þessi sýning hefur vakið dálitla
athygli hér heima, en það má kannski
segja að hún hafi endanlega slegið í
gegn þarna úti,“ segir Hallveig
Thorlacius, einn af aðstandendum
sýningarinnar, en ásamt henni héldu
til Sviss þau Helga Arnalds, Jón Páll
Eyjólfsson og Sigurður Kaiser.
Hún segir ferðina hafa verið mikla
upplifun, ekki síst fyrir þær sakir hve
umhverfið þar hafi verið jákvætt.
„Það er svo gott að koma á stað þar
sem hefðin er fyrir hendi og fólk
kann að lesa myndmál án þess að
hafa texta til að styðjast við – þar
sem brúðuleikhús er einfaldlega ein
af listgreinunum,“ segir hún og segir
raunina ekki alltaf vera slíka hér
heima. „Þessi leiklistarhátíð var nær
eingöngu ætluð fullorðnum, það voru
bara örfáar sýningar fyrir börn og
okkar sýning var til dæmis alls ekki
auglýst þannig, heldur var hún sýnd
á kvöldin klukkan hálfníu.“
Íslenska sýningin var valin til að
opna hátíðina og segir Hallveig hafa
verið troðfullt á hverju kvöldi sem
hún var sýnd. „Undirtektirnar voru
mjög góðar og dómar í fjölmiðlum
einnig,“ segir hún. „Það sem var
skemmtilegt við þessa hátíð var að
margar sýningarnar voru á jaðri leik-
listarinnar og kannski meira í ætt við
myndlist eða gjörninga en leikhús.
Það var greinilega mjög framsækið
leikhús sem var valið á hátíðina.“
Byggð á flökkusögu
Orð eru ekki uppistaða Rauðu
skónna, ólíkt mörgum leiksýningum,
heldur tónlist og brúðuleiklist. Tón-
listin, sem Ragnhildur Gísladóttir
samdi, hefur vakið mikla athygli og
verðskuldaða að sögn Hallveigar.
„Ekki nóg með að þetta sé flott tón-
list, heldur segir hún svo mikla sögu.
Hún er svo mælsk, ef svo má segja,
full af réttu tilfinningunum í hverju
atriði.“
Rauðu skórnir byggjast á gamalli
flökkusögu, sem H. C. Andersen
gerði fræga í samnefndri sögu. „Við
notum þó meira eldri flökkusögu sem
við rákumst á, því Andersen er með
helst til mikinn kristilegan boðskap í
sinni útfærslu. Í raun er þetta saga
um fíkn – sagan af stúlkunni sem get-
ur ekki hætt að dansa og verður að
höggva fæturna af til að ná henni úr
skónum. Það getur auðvitað ekki orð-
ið greinilegra en það,“ segir Hallveig.
Það liggur í hlutarins eðli hve
hryllileg þessi saga er, og segir Hall-
veig hana því aldrei hafa verið sýnda
fyrir börn. „Við höfum sýnt hana fyr-
ir unglinga og síðan auðvitað full-
orðna.“
Tilboð í kjölfarið
Aðdragandi þess að Rauðu skórnir
voru valdir á hátíðina er nokkuð lang-
ur, og sérstakur. „Okkur tókst loks-
ins að samhæfa allan hópinn til að
komast út á sama tíma, og því gekk
þetta upp núna,“ segir Hallveig, en
einstaklingarnir í hópnum að baki
sýningunni vinna jöfnum höndum að
öðrum verkefnum og að öðru leyti
ekki saman sem fastur leikhópur.
Hún segir hátíðina sérstaka að því
leyti að hún sé skipulögð af sviss-
nesku leikhúsfólki að fullu, en ekki
opinberum aðila. „Svisslendingarnir
heyrðu um sýninguna okkar einhvers
staðar í Afríku, frá finnsku leikhús-
fólki sem hafði séð hana á Assitej-
leikhúshátíðinni hér í Reykjavík í
fyrra. Við sendum þeim myndband í
kjölfarið og þeir tóku okkur strax,“
segir Hallveig, sem segir Rauðu
skóna í kjölfarið hafa fengið tilboð
um sýningar víðs vegar um heim.
„Það er ekki ljóst hvert við förum
enn. En það má vissulega segja að
þessi sýning hafi algjörlega farið að
blómstra þarna úti.“
Brúðuleikhús | Rauðu skórnir slá í gegn á leiklistarhátíð í Sviss
Troðfullt á
hverju kvöldi
Rauðu skórnir byggjast á tónlist og
brúðuleiklist, ekki töluðu orði. Aðstandendur sýningarinnar í Sviss.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is