Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Kári Þormar, kórstjóri ogorganisti í Áskirkju, hafðiorð á því í viðtali í blaðinu í fyrradag, að þessa dag- ana stæði yfir „svakaleg vertíð“ fyrir kirkjutónlistarfólk. Það staðfestist þegar skoðaður er listi yfir tónleika næstu viku. Morg- unblaðið hefur upplýsingar um að á næstu sjö dögum, frá 1.–7. des- ember, verði 21 tónleikar með sí- gildri músík, jólamúsík og djassi. Þá eru ótaldir allir aðrir tón- leikar: popp, rokk og hvers konar dægurtónlist, og einnig þeir tón- leikar sem blaðið hefur ekki haft spurnir af. Fyrir utan töluna 21 eru svo einnig þeir tónleikar sem eru endurteknir, – þ.e. þegar tón- listarmenn flytja sama prógramm á tvennum og jafnvel fernum tón- leikum. Í sumum tilfellum eru því einir tónleikar samasem fernir. Varlega áætlað má giska á að tónleikar fyrstu viku desem- bermánaðar séu á milli 40 og 50 á landinu öllu, jafnvel miklu fleiri. Fyrir utan þetta standa að sjálfsögðu allir skólatónleikar og nemendatónleikar sem eru ótal- margir á þessum árstíma. Það er því ekki að undra að kórstjórinn kalli þennan árstíma „svakalega vertíð“.    Það má leiða hugann að því aðá langflestum tónleikanna á listanum koma tugir manna við sögu. Það eru nefnilega kórar og hljómsveitir sem bera hitann og þungann af tónleikahaldi á að- ventu. Í stærstu kórunum syngja allt upp í 80 manns, jafnvel ívið fleiri, en í þeim allra minnstu 12– 16 manns. Á aðventu syngja kór- ar svo oft með hljómsveitum á tónleikum sínum. Það má því ímynda sér að að jafnaði komi um 40–50 manns fram á aðventu- tónleikum. Það gæti því sem hægast slagað í að tíu þúsund manns komi fram á tónleikum á aðventu og um jól á Íslandi. Og þá eru auðvitað áheyrend- urnir eftir. Þeir eru örugglega ekki færri en flytjendurnir, mið- að við þær vinsældir sem að- ventu- og jólatónleikar hafa notið á síðustu árum. Jafnvel Hallgrímskirkja troð- fyllist dag eftir dag af fólki sem vill koma að hlusta á eitthvað uppbyggilegt, fallegt og gleðilegt í myrkrinu í stað þess að beygja sig undir músíkglundrið sem þröngvað er upp á fólk í búðum og mollunum á þessum árstíma. Hvað eigum við að segja – að á milli 30 og 50 þúsund manns komi á tónleika á aðventu og um jól? Og svo – ef fólk vill reikna meira – má auðvitað margfalda þær ágiskuðu tölur með miða- verði og skoða hverju allur þessi söngur veltir í beinhörðum pen- ingum. Ég ætla þó ekki að hætta mér út á þær brautir – það er verkefni fyrir hagfræðinga og viðskiptafræðinga. Það er samt athyglisvert að leiða hugann að því að langflest það fólk sem stendur í stafni á aðventunni og syngur og spilar okkur til ánægju gerir það af ein- skærum áhuga, og þiggur ekki krónu fyrir persónulega. Kór- arnir hafa jú væntanlega sem heild einhverjar tekjur af miða- sölu, en á móti þurfa þeir flestir að greiða þeim atvinnumönnum sem koma fram með þeim; – ein- söngvurunum, organistum, kór- stjórum, auk annars útlagðs kostnaðar sem getur falist til dæmis í nótnakaupum.    Eftir stendur að þrátt fyrirallt tal um að þessi þjóð sé þjökuð af lífsgæðakapplaupi, eyðslusemi og skuldafíkn er það þó drjúgur hluti hennar sem hef- ur nautn af því að skapa list – og er tilbúinn til þess að eyða í það dýrmætum frístundum sínum, og enn stærri hluti sem hefur yndi af því að sækja tónleika á þessum annasama árstíma og gefa sér tíma til að staldra við og njóta listarinnar. Á vertíð listarinnar ’Þrátt fyrir allt tal um að þessi þjóð sé þjökuð af lífsgæðakapp- laupi, eyðslusemi og skuldafíkn er það þó drjúgur hluti hennar sem hefur nautn af því að skapa list.‘ AF LISTUM Bergþóra Jónsdóttir Morgunblaðið/Kristinn Kammersveit Reykjavíkur hefur haldið vinsæla jólatónleika í meira en þrjátíu ár. Í ár verða þeir 18. desember. begga@mbl.is Fréttasíminn 904 1100 Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Álfhólsvegur - Kópavogi. Sérhæð Sérl. falleg 100 fm, 4ra herb. íbúð á jarðhæð í góðu þríbýli. Hús í góðu standi. Falleg- ar innréttingar, parket á gólfum, þvottahús í íbúð, allt sér. Falleg eign, mjög vel stað- sett. Verð 20,7 millj. Hraunbær - Reykjavík 4ra-5 herb. Höfum fengið í einkasölu sérlega fallega 113 fm íbúð á þriðju hæð í góðu fjölbýli. Íbúðinni fylgir aukaherbergi í kjallara. Fallegar innréttingar, vönduð gólfefni. Íbúðin er laus nú þegar. Verð 19,3 millj. Hraunteigur - Reykjavík. 3ja herb. sérh. Nýkomin í einkasölu á þessum frábæra stað sérlega falleg 87 fm, 3ja herbergja íbúð á jarðhæð (kjallari) í mjög góðu þríbýli. Hús í góðu standi að utan, fallegar innrétt- ingar og gólfefni, talvert endurnýjuð eign í góðu standi. Verð 18,3 millj. Háteigsvegur - Reykjavík. 2ja - 3ja. Nýkomin í einkasölu sérlega skemmtileg 64 fm 2ja-3ja herb. íbúð á neðri hæð í góðu fjölb. Eignin er mikið endurnýjuð, m.a. allir gluggar, gler, raflagnir o.fl. Eitt svefnh. á hæðinni og annað gott herb. í kjallara. Flísalagt bað, ný standsett. Verð 15,9 millj. BÚI Sigurður Guðmundsson lögg. fasteignasali Jóhanna Sigurðardóttir sölufulltrúi. Sími: 699 5680 Sigríður Guðnadóttir sölufulltrúi. Sími: 663 3219 Asparás 8 210 Garðabæ Opið hús í dag kl. 15.30-16.00 Verð 24,7 millj. Stærð: 100,3 fm Fjöldi herbergja: 3 Byggingarár: 2001 Brunabótamat: 16,6 Virkilega falleg íbúð í tveggja hæða viðhaldslitlu fjölbýli á góðum stað í Garðabæ. Flísalögð forstofa með skápum. Þvottahús inn af forstofu, flísalagt með hillum. Rúmgott sjónvarpshol. Opin og björt stofa og borðstofa, gengið út á rúmgóðar vestursvalir úr stofu. Eldhús með fal- legri kirsuberjainnréttingu, borðkrókur. Hjónaherbergi og barnaherbergi með góðu skápa- plássi. Stórt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, baðkar og sturta, handklæðaofn. Í heildina falleg og vel skipulögð íbúð í góðu álklæddu húsi. Stutt í skóla og leikskóla. Upplýsingar veita Sigga 663 3219 - sigga@remax.is og Jóhanna 699 5680 - johanna@remax.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.