Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 45
UMRÆÐAN
EITT af mikilvægustu vopnum
okkar í baráttunni gegn kynferðis-
ofbeldi er fræðsla. Almenningur
þarf að fá fræðslu um
hvað kynferðisofbeldi
er, hvernig má og
skal bregðast við því
og fagfólk þarf að fá
fræðslu í hvernig má
viðhalda þeirri þjón-
ustu sem til staðar er
og bæta hana. Til að
fræða almenning þarf
að halda uppi mál-
efnalegri umræðu og
auka vitund um kyn-
bundið ofbeldi meðal
annars með auglýs-
ingaherferðum og
aukinni umfjöllun í
grunn- og framhaldsskólum.
Fræðsla fagaðila er lykilþáttur í
því að vel takist til við úrvinnslu
og meðferð kynferðisbrotamála.
Sú menntun sem fagaðilar okkar
hérlendis búa að er mikil og góð
en að sjálfsögðu þarf nám þeirra
að vera í stöðugri endurskoðun og
þróun. Í námi heilbrigðisstétta,
lögfræðinga, lögreglu og fé-
lagsfræðinga þarf að vera fræðsla
um forvarnir, greiningu, meðferð
og úrræði þolenda kynbundins of-
beldis.
Ein áhrifaríkasta leiðin til að
þjálfa fagaðila í meðhöndlun og
samskiptum við þolendur kyn-
bundins ofbeldis er með æfingu.
En viljum við að sú þjálfun eigi
sér stað í raunverulegum að-
stæðum á raunverulegum þol-
endum? Svarið hlýtur að vera nei.
Að sjálfsögðu væri best ef sú
þjálfun færi fram í námi þessara
aðila og á þar til gerðum nám-
skeiðum. Á 16 daga átaki gegn
kynbundnu ofbeldi
mun Femínistafélag
Íslands í samstarfi við
K:at ehf., leiða saman
Neyðarmóttöku vegna
nauðgunar og Lög-
regluna í Reykjavík á
þjálfunarnámskeið.
Námskeiðið er sett
upp nánast eins og
flughermir í þjálfun
flugmanna. Búnar eru
til aðstæður sem líkj-
ast raunverulegum
aðstæðum og fólki
þannig gefið tækifæri
til að æfa sig í öruggu
umhverfi. Í þessu tilviki mun sér-
fræðingur Neyðarmóttökunnar
fræða starfsfólk lögreglunnar um
það hvað hægt er að gera til að
þolanda kynferðisofbeldis líði eins
vel og unnt er á meðan verið er að
taka skýrslu um atburði. Fræðsl-
an felst í því hvernig haga á við-
talinu svo viðmælandi finni til ör-
yggis og að borin sé virðing fyrir
honum. Því næst fær lög-
reglufólkið tækifæri til að æfa sig
á leikurum sem eru þjálfaðir í að
lifa sig inn í aðstæður þannig að
það verði trúverðugt. Menntun og
reynsla leikara gerir þeim kleift
umfram aðra að miðla á trúverð-
ugan hátt líðan þolenda ofbeldis
og ætti því að vera áhrifaríkara en
ef um ófaglærða aðila væri að
ræða.
Á þennan hátt verða aðstæður
eins raunverulegar og hægt er
meðan á skýrslutöku stendur. Eft-
ir þjálfun sem þessa geta fagaðilar
öðlast meira öryggi þegar tekist
er á við raunverulegar aðstæður.
Hlutaðeigandi aðilar gefa vinnu
sína í þágu þessa átaks og vonast
þannig til að þeirra framlag komi
að notum í baráttunni gegn kyn-
bundnu ofbeldi.
Þjálfunarnámskeið
fyrir fagaðila
Eftir Kolbrúnu Önnu
Björnsdóttur ’Fræðsla fagaðila erlykilþáttur í því að vel
takist til við úrvinnslu
og meðferð kynferð-
isbrotamála.‘
Kolbrún Anna
Björnsdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
K:at ehf., ráðskona menningarhóps
Femínistafélags Íslands,
leikkona og kennari.
16 daga átak
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Hvort sem þú þarft að selja eða leigja
atvinnuhúsnæði, þá ertu í góðum
höndum hjá Inga B. Albertssyni.
Nú er góður sölutími framundan,
ekki missa af honum.
Vandaðu valið og veldu fasteignasölu
sem er landsþekkt fyrir traust og
ábyrg vinnubrögð.
Franz Jezorski, hdl. og lögg. fasteignasali
ATVINNUHÚSNÆÐI
HAFÐU
SAMBAND
VERSLUNAR- OG ATVINNUHÚSNÆÐI
– TIL LEIGU –
SMIÐJUVEGUR 3, KÓPAVOGI (á móti Orkunni, Bónus og BYKO)
2.700 m² verslunar- og atvinnuhúsnæði. Þar af allt að 2.300 m² á
einu gólfi og í einum sal. Allt að 5,5 m lofthæð og góð bílastæði.
Hamraborg 20A, 200 Kópavogur
sími: 554 4000 – fax: 554 4018
www.husalind.is
Nánari upplýsingar veitir Barbara
í síma 554 0400 eða 898 9394.
leiguradgjof@leiguradgjof.is
Ástríður tekur á móti ykkur í dag milli kl. 17 og 19.
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 17-19, SUNDLAUGAVEGUR 28, REYKJAVÍK
Síðumúla 27 108 Reykjavík
sími 534 4040, fax 534 4044
Erlendur Davíðsson, lögg. fasteignasali og verðbréfamiðlari
Mjög falleg og björt 100 fm sérhæð á 1. hæð í
þríbýlishúsi auk sérbyggðs 28 fm bílskúrs. Kom-
ið er inn í flíslagða forstofu, parketlagt miðrými
með tveimur skápum, parketlagða stofu og
borðstofu, tvö parketlögð svefnherbergi, flíslagt
baðherbergi með baðkari og glugga og flíslagt
eldhús með góðri viðarinnréttingu og borðkrók.
Mjög góð eign.