Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.12.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 51 FRÉTTIR Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali. URÐARHÆÐ - GARÐABÆ - GLÆSILEGT EINBÝLI Í RÓLEGRI GÖTU - Stórglæsilegt og vel staðsett einbýlishús á einni hæð á þessum frábæra stað í Garðabænum. Húsið er staðsett innst í lokuðum botnlanga. Húsið er einstaklega vandað að allri gerð, vel innréttað og fullbúið að öllu leyti. Allur frágangur er til fyrirmyndar og garðurinn er með miklum og fjölbreyttum trjágróðri ásamt stórri viðarverönd. Að innan er húsið fallegt og vel skipulagt enda sérlega rúmgott. Húsið er 215 fm ásamt 31 fm bílskúr. Jón Gretar Jónsson, sölumaður, GSM. 840 4049. Opið hús í dag frá kl. 14 til 16 í Hraunbæ 12A Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. www.valholl.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30. Um er að ræða góða ca 100 fm íbúð á 2 hæð í góðri og vel staðsettri blokk. Tvennar svalir. Parket og flísar á gólfum. Íbúðin er laus fljótlega. V. 17,5 millj. Arthur sýnir íbúðina í dag á milli kl. 14.00 og 16.00. Glæsilegt og vandað 277 fm endaraðhús á tveimur hæðum með 27 fm innbyggðum bílskúr og fallegum veröndum með skjólveggjum beggja vegna hússins til norðurs og suðurs. Eignin skiptist m.a. í sjónvarpsstofu, stóra borðstofu með útgangi á lóð, stóra og bjarta setustofu með arni og sólskála, eldhús með fallegum sprautulökkuðum ljósgráum og svörtum innréttingum með graníti á borðum og góðri borðaðstöðu, fjögur rúmgóð herbergi auk vel innréttaðs fataherbergis og flísalagt baðherbergi auk gesta w.c. Innfelld halogenlýsing í loftum efri hæðar auk eldhúss á neðri hæð. Parket og flísar á gólfum. Falleg ræktuð lóð. Hiti í innkeyrslu og stéttum fyrir framan hús. Verð 62,0 millj. Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16 Verið velkomin FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Tjarnarmýri 1 - Seltjarnarnesi Glæsilegt og vandað endaraðhús OPIÐ HÚS Í DAG frá kl. 14 - 16 FYRSTI glugginn á stærsta jóla- dagatali landsins var opnaður á fimmtudag í kjölfar þess að kveikt var á jólatrénu á Ingólfstorgi. Af því tilefni var leikskólabörnum boð- ið til veislu þar sem dansað var í kringum jólatréð og jólalög sungin. Krökkunum til mikillar gleði mætti jólasveinn á svæðið og stýrði veisl- unni. Dagatalið er staðsett á framhlið húsakynna Tryggingamiðstöðv- arinnar við Aðalstræti og er hluti af jóladagatali Stöðvar 2, Galdrabók- inni, sem sýnt verður fram að jól- um. Börnunum var jafnframt boðið upp á hressingu og öll fengu þau Galdralitabók að gjöf. Morgunblaðið/Golli Stærsta jóladagatal á Íslandi SÍMINN hefur kynnt breytingar á verðskrá símtala úr farsímum frá öllum löndum heims sem tóku gildi frá og með sama degi. Síminn er nú með 280 virka reikisamninga og hvert og eitt þessara farsímafyr- irtækja er með sína eigin verðskrá. Þannig hafa viðskiptavinir Símans greitt mismunandi mínútuverð inn- an sama erlenda lands allt eftir því hvaða símafyrirtæki þjónustaði við- skiptavininn hverju sinni. Með breytingunni er heiminum skipt í fimm þjónustusvæði sem m.a. eru ákveðin með tilliti til verðs og land- fræðilegrar legu. „Með þessari breytingu erum við að einfalda verðskrá símtala úr far- símum frá öllum löndum heims,“ segir Eva Magnúsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Símans, og bendir á að í kjölfar aukinna ferðalaga til út- landa hafi Síminn talið nauðsynlegt að koma til móts við viðskiptavini sína með gegnsærri og einfaldri verðskrá frá útlöndum. „Síminn hefur fram að þessu rukkað við- skiptavini sína í samræmi við verðskrár erlendra farsímafyrir- tækja, sem hefur gert það að verk- um að skilaboðin til viðskiptavina hafa verið bæði flókin og ógegnsæ. Viðskiptavinir okkar hafa löngum kvartað yfir flókinni verðskrá er- lendra símtala og með þessari breytingu munu viðskiptavinir okk- ar betur geta fylgst með símnotkun sinni, auk þess sem auðveldara verður að kynna sér hvað símtalið kostar.“ Spurð hvort breytingin leiði al- mennt til hækkunar eða lækkunar á símreikningi viðskiptavina segir Eva erfitt að svara því, þar sem það fari eftir notkunarmynstri. „Ef maður tekur meðaltalið myndi ég telja að þetta væri að koma ósköp svipað út og jafnvel að viðskipta- vinir muni verða varir við lækkun.“ Aðspurð hvernig tekið yrði á mál- um ef í ljós kæmi að breytingin leiddi til verulegrar hækkunar fyrir viðskiptavini svaraði Eva því til að slíkar ábendingar yrðu skoðaðar. Gjöldin ýmist hækka eða lækka fyrir einstök lönd Samkvæmt nýju verðskránni, sem nálgast má á vef Símans, má sjá að hér eftir kostar mínútan, sé hringt úr farsíma erlendis frá og heim til Íslands, 69 kr. innan svæð- is 1, 89 kr. á svæði 2, 139 kr. á svæði 3, 159 kr. á svæði 4 og 259 kr. á svæði 5. Sama kostar einnig að hringja innanlands í viðkomandi landi. Að senda smáskilaboð kostar eftir breytingu 39 kr. innan allra fimm svæðanna og gildir það líka fyrir þá sem eru með Frelsi. Ný verðskrá fyrir Frelsi í útlöndum tók einnig gildi og samkvæmt henni kostar mínútan 79 kr. á svæði 1, 99 kr. á svæði 2, 149 kr. á svæði 3, 169 kr. á svæði 4 og 269 kr á svæði 5. Eins og Eva benti á hefur mín- útugjaldið á símtölum erlendis hingað til verið breytilegt eftir því hvaða símafyrirtæki þjónustaði ein- staklinginn erlendis. Nefnir hún sem dæmi að í Bretlandi hafi kost- að á bilinu 88–173 kr. að hringja úr farsíma heim til Íslands, allt eftir því hvaða fyrirtæki fólk átti við- skipti við. Eftir breytingu er mín- útuverðið fyrir farsímatöl frá Bret- landi139 kr. en Bretland flokkast sem land í svæði 3. Öll Norðurlönd- in, utan Grænlands, flokkast sem svæði 1. Sem dæmi um verð kost- aði mínútan fyrir breytingu í Dan- mörku á bilinu 60–120 kr. Spánn er meðal þeirra landa sem flokkast í svæði 2 og þar kostaði mínútan áð- ur 67–80 kr. en eftir breytingu kostar mínútan 89 kr. Spánn er því dæmi um land þar sem mínútan hækkar. Bandaríkin eru hins vegar dæmi um land þar sem mínútu- gjaldið lækkar nokkuð, því fyrir breytingu kostaði mínútan á bilinu 170–210 kr., en kostar eftir breyt- ingu 159 kr. Síminn breytir verðskrá símtala úr farsímum erlendis „Gegnsærri og ein- faldari verðskrá“ Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is Rangt farið með nafn Guðrúnar Kvaran Í FRÉTT um tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaun- anna í föstudagsblaðinu voru gerð þau mistök að rangt var farið með nafn eins af höfund- um bókarinnar Íslensk tunga, Guðrúnar Kvaran. Guðrún og lesendur blaðsins eru beðnir af- sökunar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.