Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 55
MINNINGAR
✝ Þorbjörg Björns-dóttir, fyrrver-
andi forstöðumaður
Bókasafns Hafnar-
fjarðar, fæddist í
Tröð í Súðavík 15.
október 1928. Hún
lést á heimili sínu í
Hafnarfirði laugar-
daginn 19. nóvem-
ber síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Björn Jóhannsson
kennari í Hafnar-
firði, f. 12. septem-
ber 1891, d. 20. októ-
ber 1963, og Elísabet Einarsdóttir,
f. 14. október 1897, d. 12. apríl
1980.
Þorbjörg giftist 29. október 1949
Sveini Hauki Valdimarssyni, þau
skildu 1957. Sonur þeirra er Valdi-
mar, f. 23. október 1948. Börn hans
eru, a) Sveinn Haukur, f. 26. febr-
úar 1972, b) Elísabet,
f. 24. nóvember
1978, sambýlismað-
ur Sveinn Á. Jóns-
son, synir þeirra eru
Logi, f. 15. ágúst
1999, og Valdimar, f.
18. apríl 2001, og c)
Davíð, f. 27. júlí
1982.
Þorbjörg giftist
23. apríl 1958 Re-
nald Brauner, f. 27.
janúar 1928, þau
skildu 1968. Sonur
þeirra er Reinald, f.
27. apríl 1950, d. 12. júlí 1984.
Þorbjörg starfaði við Þjóðleik-
húsið frá 1. september 1952 til 31.
október 1968 og í Bókasafni Hafn-
arfjarðar frá 1. október til ársloka
1992.
Útför Þorbjargar fór fram í
kyrrþey.
Yfir tindum öllum
er ró,
friður á fjöllum,
fugl í tó
hljóðnaður hver;
Það bærist ei blær eða kliður.
Einnig þinn friður
framundan er.
(Þýð. Yngvi Jóhannesson.)
Ef eitthvað öðru fremur tengist
minningu minni um mína kæru vin-
konu hana Þorbjörgu Björnsdótt-
ur, þá er það friður – friður, kyrrð,
traust og góðvild – nokkuð sem við
nútímafólkið erum á góðri leið með
að glata frá okkur. Fáar líkingar
úr íslensku máli eiga betur við
hana en þegar sagt er að einhver
hafi staðið eins og klettur við hlið-
ina á einhverjum. Hún var sann-
arlega það bjarg sem stóð kyrrt og
fast og traust þótt stormar blésu.
Sumir kalla það tilviljun, aðrir
handleiðslu æðri máttarvalda, þeg-
ar viðburðir lífsins taka aðra
stefnu en áætlað er í upphafi
hverrar ferðar. Þannig var það fyr-
ir 32 árum þegar ég réðst til starfa
hjá Þorbjörgu á Bókasafn Hafn-
arfjarðar þar sem hún var for-
stöðumaður um langt árabil, því
þessi óvænta atvinna sem féll mér
að ófyrirséðu í skaut átti eftir að
breyta lífsferli mínu öllu. Réð þar
ekki eingöngu einstaklega
skemmtilegt og frjótt starf, heldur
fyrst og síðast samskipti mín við
Þorbjörgu sem með leiftrandi gáf-
um sínum, víðsýni og eðlislægri
tign og glæsileika, kenndi mér,
stelpukálfinum, flest það um lífið
sem skiptir máli. Hún sýndi mér
hvað felst í því að vera heilsteypt
manneskja, að láta ekki blekkjast
af flærð og sýndarmennsku, að
læra að þekkja vini sína og þá sem
eru trausts verðir. Hins vegar gat
Þorbjörg átt það til að koma við
kaun á fólki sem kannski gat ekki
tekið hreinskiptni og heiðarleika
hennar og þurfti þá sá hinn sami
stundum að fara í svolitla nafla-
skoðun á sjálfum sér. „Það verður
hver að vera samferða samvisku
sinni, hvort sem hún er góð eða
vond,“ sagði hún stundum. Hún
hafði andstyggð á hræsni og óheil-
indum fólks í stóru og smáu,
heimskri meðalmennsku og hvern-
ig framapotarar samfélagsins af
öllum gerðum svífast oft einskis til
að ná sínu fram.
Af þessu leiðir að hvergi var
betra að koma en til Þorbjargar,
vildi maður fá álit eða heiðarleg
svör við hinum aðskiljanlegustu
vandamálum. Alltaf var hægt að
treysta því að svörin yrðu bæði
sönn og rétt. Hún var líka þeim
sjaldgæfu eiginleikum gædd að
geta skapað friðsemd og kyrrð og
tíma, jafnvel í hinu mesta annríki.
Síðan gat hún komið fólki á óvart
með því að taka málstað einhvers
sem samfélagið hafði kannski
dæmt þungum sökum. Hún var
glögg á þjáningu meðbræðra sinna
og -systra og var óspör að láta í
ljós samúð sína, líka gagnvart þeim
sem voru henni alls ókunnugir.
Sömuleiðis lét hún viðkomandi vita
af því þegar hún hreifst til dæmis
af einhverri tónlist, leikflutningi
eða ef einhverjum mæltist vel í
ræðu eða riti. Hún sagði að það
væri synd ef fólk þyrði aldrei að
segja neitt fallegt um hvert annað
nema í minningargreinum.
Þrátt fyrir afar fastmótaðar
skoðanir átti hún þó auðvelt með
að skipta um skoðun væru mótrök-
in nógu skýr. Hún gerði sér far um
að setja sig inn í málefni líðandi
stundar og hafði unun af að rök-
ræða hlutina, sjá sem flesta fleti og
draga ályktanir í kjölfarið.
Ógleymanlegar eru mér allar þær
menningarlegu og þroskandi sam-
ræður sem ég átti með Þorbjörgu
og hennar samferðafólki og gestum
á Bókasafni Hafnarfjarðar, þar
sem saman kom bókmenntafólk af
öllum gerðum, listamenn og fræði-
menn sem höfðu þar gjarnan fasta
aðstöðu. Þar voru lífsins gátur oft
krufðar til mergjar og skoðað var
upphaf og endir alls og ekkert látið
ósnortið í þeim efnum. Á stundum
sem þessum naut Þorbjörg sín
best, þar sem hún náði að laða
fram ýmsa góða hæfileika í fari
fólks með persónutöfrum sínum.
Hún hafði líka til að bera þá djúpu
og góðu menntun sem felst í heimi
leikhúss og leikbókmennta því hún
var hvíslari við Þjóðleikhúsið í tæp
20 ár, og sömuleiðis var hún afar
vel að sér í heimsbókmenntunum,
tónlist og öðrum listum. Hún var
víðlesin og víðsýn og átti auðvelt
með að fyrirgefa mannlega breysk-
leika.
Árið 1984 varð Þorbjörg fyrir
þeirri miklu sorg að missa yngri
son sinn, Reinald Reinaldsson, ein-
stakan námsmann og hæfileikarík-
an, þar sem hann stundaði nám í
kaþólskum fræðum í Freiburg í
Þýskalandi. Eftir lát hans var sem
einhver lífsneisti slokknaði í Þor-
björgu, sem hún náði aldrei að
kveikja á ný til fulls. Hún talaði oft
um það hin síðari ár að hún vildi
frekar fá að deyja heldur en að
þurfa vera byrði á fólkinu sínu eða
fara á spítala og verða háð öðrum
og hjálparvana. Henni hefur nú
orðið að ósk sinni því hún varð
bráðkvödd á heimilinu sínu fallega,
án þess að hafa nokkru sinni dvalið
á spítala. Hún hélt því reisn sinni,
tign og gáfum allt til hins síðasta,
og þann frið og hvíld sem hún
þráði hefur hún nú öðlast.
Með djúpri sorg og með innilegri
þökk og virðingu kveð ég mína
traustu vinkonu sem aldrei brást.
Ég er stolt yfir að hafa fengið að
njóta vináttu og tryggðar þessarar
merkilegu og glæsilegu konu svona
lengi því hún gaf mér nýja lífssýn
og færði mér þá menntun sem ég
nýt nú best í dag.
Elsku Valdimar, ég og Óli og
fjölskyldan mín vottum þér og
börnunum þínum og fjölskyldu
þinni allri okkar dýpstu samúð og
bið Guð um að lýsa myrkrið fram-
undan með minningunni um ein-
staka konu.
Gróa Finnsdóttir.
ÞORBJÖRG
BJÖRNSDÓTTIR
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Við andlát Sigríðar
Ólafsdóttur er margt
sem kemur upp í hug-
ann. Fyrst söknuður
að þessi einstaka góða kona, sem
mér þótti svo vænt um, skuli ekki
lengur vera nálægt okkur. Síðan
kemur þakklæti fyrir að hafa verið
svo gæfusöm að fá að kynnast henni
og njóta umhyggju hennar, hlýju og
vinskapar, sem aldrei bar skugga á.
Þegar við Gyða, dóttir hennar
Sirrýar, urðum vinkonur í lok
barnaskólans tóku þau foreldrar
hennar, Guðmundur og Sirrý, mér
einstaklega vel. Heimili þeirra var
SIGRÍÐUR
ÓLAFSDÓTTIR
✝ Sigríður Ólafs-dóttir fæddist í
Reykjavík 26. ágúst
1925. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ 1. nóvem-
ber síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Fossvogskapellu í
kyrrþey 9. nóvem-
ber.
mjög fallegt og stíl-
hreint, listaverk, bæk-
ur og hljóðfæri. En
það sem mest var um
vert var að þau
sæmdarhjón voru
samhent í því að
rækta allt í kringum
sig, börnin, vinina,
garðinn og allt sem
þau komu nálægt.
Þetta fallega heimili
var okkur vinum
barnanna þeirra öll-
um opið. Guðmundur
tók oftar en ekki á
móti okkur hárri röddu og bauð inn
til Sirrýar sem örugglega ætti eitt-
hvað gott handa svöngum ungling-
um. Og þvílíkt veisluborð, aðeins
það besta var nógu gott handa þeim
sem komu til þeirra. Ég get ekki
rifjað upp unglingsárin öðruvísi en
að minnast móður Sirrýar, Gyðu
Gunnarsdóttur, sem ég var svo lán-
söm að kynnast og voru þau kynni á
sama máta hlýja og væntumþykja.
Þegar unglingsárunum lauk og
við vinkonurnar urðum fullorðnar
eignaðist ég mína bestu vini í þess-
ari fjölskyldu. Ógleymanlegar eru
gjafir, kökur sem báru af öllum öðr-
um kökum, vinátta og tryggð. Sirrý
og Guðmundur sýndu mér og fjöl-
skyldu minni alltaf það besta og
minnumst við heimsókna til þeirra á
Unnarbrautina með söknuði.
Ég bið algóðan guð að blessa
minningu þeirra elskulegu hjóna,
Guðmundar og Sirrýar. Þó að þess-
ar góðu manneskur séu ekki lengur
á meðal okkar, lifa þær í huga og
hjarta mínu og ég minnist þeirra
með virðingu og þakklæti fyrir mig
og mína fjölskyldu.
Kolbrún Þormóðsdóttir (Kolla).
Nú þegar Sirrý mamma hennar
Gyðu hefur fengið hvíldina, koma
upp í hugann hjá okkur gömlu vin-
konunum ótal minningar frá
menntaskólaárunum. Heimili Gyðu
á Unnarbrautinni var oftar en ekki
miðstöð félagslífs okkar, hvort sem
var eftir skóla á daginn eða áður
eða eftir að kíkt var á bæjarlífið.
Alltaf var tekið vel á móti okkur og
vinum okkar með meiri háttar
kræsingum sem mamma Gyðu töfr-
aði fram handa okkur. Við drifin inn
úr kuldanum inn á þetta hlýlega,
glæsilega heimili þar sem við fund-
um að við vorum velkomin. Þessar
minningar eru samofnar mennta-
skólaárunum, þessum dýrmæta
mótunartíma í lífi okkar. Við send-
um Gyðu og fjölskyldunni allri okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur og
minnumst Sirrýar með hlýju og
þakklæti.
Rósa, Sigríður, Kolbrún.
Hún amma hefur
kvatt þennan heim og
farið til afa og Guðmundar og hinna
sem biðu eftir henni. Hún amma var
komin á góðan lífsaldur 95 ára.
Ég á frábærar minningar með afa
og ömmu þegar við heimsóttum þau
í Keflavík. Stundum fengum við að
gista og þá lékum við krakkarnir
með gömlu happadrættismiðana
þeirra í búðarleik og öðrum leikjum.
Mér fannst allaf skemmtilegt að
koma í heimsókn til þeirra og ræða
við þau um þeirra hagi hér áður fyrr
og fá að heyra hvernig lífið var og
gekk fyrir sig á þeirra æskuheim-
ilum og hvernig fyrstu búskaparárin
voru hjá þeim. Það er óhætt að
segja að hún amma hafði séð tímana
tvenna eða þrenna á langri ævi.
Við hjónin heimsóttum ömmu og
afa reglulega á Nónvörðuna og það
var alveg ómissandi að koma til
þeirra á jólunum með pakka og setj-
ast niður hjá þeim í smátíma.
Mín erfiðasta stund var þegar afi
lá banaleguna. Ég gat ekki fengið
mig til að heimsækja hann, það var
eins og ég vildi bara muna eftir
góðu stundunum með honum.
Þegar amma fluttist á dvalar-
heimilið í Keflavík var hún ekki sátt
að fara að búa innan um annað fólk
sem hún þekkti ekki, en það leið
ekki á löngu þar til hún varð mjög
ánægð með þessa hagi. Eins var
hún fljót að finna þann góða anda á
ÞÓRUNN ÞORBJÖRG
GUÐMUNDSDÓTTIR
✝ Þórunn Þor-björg Guð-
mundsdóttir fædd-
ist í Skoruvík á
Langanesi 1. nóv-
ember 1910. Hún
andaðist á dvalar-
heimilinu Garð-
vangi 6. nóvember
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
22. nóvember síðast-
liðinn.
dvalarheimilinu í
Garði en þar var hún
til sinnar síðustu
stundar.
Ég náði oft að
heimsækja ömmu þar
og sitja hjá henni í
smá tíma og ræða um
daginn og veginn.
Eins og með afa þá
gat ég ekki fengið mig
til að heimsækja hana
ömmu þegar hennar
tími nálgaðist og ég
vildi bara eiga góðu
dagana um hana í
minningunni.
Góður Guð, viltu passa ömmu
mína og afa, eins og þau pössuðu
mig, með kærleika og hlýhug.
Amma, þú faðmar hann afa fyrir
mig.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Ragnar Marinó, Jóhanna
Helga og synir.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal
senda í gegnum vefsíðu Morg-
unblaðsins: mbl.is (smellt á reit-
inn Morgunblaðið í fliparöndinni
– þá birtist valkosturinn „Senda
inn minningar/afmæli“ ásamt
frekari upplýsingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður
hún að berast fyrir hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst
ekki innan hins tiltekna skila-
frests er ekki unnt að lofa
ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur renn-
ur út.
Lengd Minningargreinar séu
ekki lengri en 2.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta
þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningar-
greinar