Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 60
Mímí og Máni
Kalvin & Hobbes
SJÁÐU HVAÐ ÞÚ
HEFUR GERT! VIÐ
VORUM SEND TIL
SKÓLASTJÓRANS!
HELDURÐU NOKKUÐ AÐ
VIÐ VERÐUM FLENGD?
ÞEIR MEGA
EKKI FLENGJA
MIG, ÉG ER
STELPA
HVAÐA MÁLI
SKIPTIR
ÞAÐ?
VIÐ ERUM MEÐ
VIÐKVÆMARI BOSSA
Svínið mitt
© DARGAUD
MAMMA ÞÍN ER
KOMIN GULLI.
KOMDU
JÁ
BLESS.
ÞÚ ERT
VELKOMINN
HVENÆR
SEM ER
TAKK
TENGDÓ
BLESS
ELSKAN
SJÁUMST
BRÁÐUM
BLESS ELSKAN MÍN
ÓGEÐSLEGT!
ÓGEÐSLEGT!
ÞETTA VAR BARA
SMÁ KOSS
BLESS, BLESS
VINIR ÓFYRIR-GEFANLEGT
RÓLEG MAMMA.
ÞAU ENDURTAKA
BARA ÞAÐ SEM
ÞAU SJÁ Í
SJÓNVARPINU
JÁ, ÞETTA
ER EKKI
ALVARA
?
! ÉG VIL FÁ TYGGJÓIÐMITT AFTUR GULLI!!
Dagbók
Í dag er sunnudagur 4. desember, 338. dagur ársins 2005
Gömlu refirnir standa alltaf fyrirsínu varð Víkverja að orði þeg-
ar hann yfirgaf Salinn í Kópavogi
sl. þriðjudagskvöld eftir vel heppn-
aða söngskemmtun. Magnús Þór
Sigmundsson hefur
engu gleymt, enda er
hann einn af bestu
lagahöfundum Ís-
lands. Það má með
sanni segja að Magn-
ús Þór hafi farið á
kostum á útgáfu-
tónleikum sínum, þar
sem hann söng lög af
nýju plötunni sinni;
Hljóð er nóttin.
Röddin er að vísu að-
eins farin að gefa sig,
en söngurinn er
heillandi og á vel við í
mörgum lögunum,
sem Magnús flutti
með sinni djúpu rödd
um leið og hann spilaði á kassagít-
ar.
Magnús hóf tónleikana með lag-
inu Hljóð er nóttin, síðan kom hver
perlan á fætur annarri; Sú ást er
heit, Álfar, Ást, Þú átt mig ein,
Jörðin sem ég ann, Ást við fyrstu
sýn, Amazon, Blue Jean Queen og
að sjálfsögðu Ísland er land þitt.
Hljóð er nóttin verður svo sann-
arlega undir nálinni hjá Víkverja
um jólin og áramót. Þegar Víkverji
hlustar á Magnús Þór skýtur ósjálf-
rátt upp í hugann nafni Jóhanns
Helgasonar, sem er einnig frábær
lagahöfundur. Það væri gaman ef
þeir félagar kæmu saman á ný í
hljóðveri og sendu frá sér plötu
með bestu lögum sín-
um, með tilheyrandi
söng og gítarleik.
Það eru fleiri gaml-
ir refir sem kalla á
Víkverja að hlusta.
Platan Yfir Esjuna
með Helga Björnssyni
kallar, en á henni
syngur hann lög
Magnúsar Eiríks-
sonar, sem er, eins og
Magnús Þór, stór-
góður texta- og laga-
höfundur. Á plötunni
má finna lög eins og
Kóngur einn dag,
Reyndu aftur, Blús í
G, Samferða, Gamli
góði vinur, Ég elska þig enn, Óra-
langt í burt og Komdu í partý.
Björgvin Halldórsson býður einn-
ig upp á gamla góða smelli á plötu
sinni Ár og öld, Guðrún Gunnars og
Friðrik Ómar flytja enn eldri smelli
á plötu sinni Ég skemmti mér og
ekki má gleyma KK og Ellen, sem
syngja jólalög á plötu sinni Jólin
eru að koma.
Þegar Víkverji sér jólaplötu-
úrvalið í ár er ekki hægt að segja
annað en jólin séu komin.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Leiklist | Sönglist heitir söng- og leiklistarskóli sem er starfræktur í sam-
starfi við Borgarleikhúsið. Í skólanum eru um 180 nemendur á aldrinum 7–19
ára. Nú er vetrarönninni að ljúka hjá Sönglist og um helgina og fram í næstu
viku verða haldnar veglegar nemendasýningar á nýja sviði Borgarleikhúss-
ins, þar sem flutt eru 33 frumsamin leikrit með söngvum og dönsum. Sýning-
arnar verða sem hér segir:
4.12. sun. kl. 12.30 og 15.00
5.12. mán. kl. 17.00 og 20.00
6.12. þri. kl. 20.00
7.12. mið. kl. 17.30 og 20.00
Miðaverð er 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn 12 ára og yngri.
Morgunblaðið/Ómar
Leikarar framtíðarinnar!
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Og þegar þér eruð að biðja, þá fyrirgefið, ef yður þykir
nokkuð við einhvern, til þess að faðir yðar á himnum fyrirgefi einnig yð-
ur misgjörðir yðar. (Mark. 11, 25.)