Morgunblaðið - 04.12.2005, Page 61

Morgunblaðið - 04.12.2005, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 61 DAGBÓK Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 20% afsláttur af öllum drögtum Opið í dag frá kl. 13-17 VIÐ SELJUM ATVINNUHÚSNÆÐI FYRIR FYRIRTÆKI OG FJÁRFESTA I I I I I I VELDU EIGNAMIÐLUN eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali í Hafnarfjarðarkirkju 10 ára Skráning hefst mánudaginn 5. desember á hin feikivinsælu hjónanámskeið Hafnarfjarðarkirkju sem yfir 6.500 manns hafa tekið þátt í frá árinu 1996 Leiðbeinandi á námskeiðinu er sr. Þórhallur Heimisson. Nánari upplýsingar á heimasíðu Hafnarfjarðarkirkju www.hafnarfjardarkirkja.is Jákvætt námskeið um hjónaband og sambúð Upplýsingar og skráning á srthorh@ismennt.is • Samskipti hjóna. • Leiðir til að styrkja hjónabandið. • Orsakir sambúðarerfiðleika. • Leiðir út úr vítahring deilna og átaka. • Ástina, kynlífið, hamingjuna og börnin. Á námskeiðunum er m. a. fjallað um: Námskeiðin hefjast eftir áramót. Samfés, Samtök félagsmiðstöðva, standaað málþingi um frítímastarf á Íslandi,föstudaginn 9. desember næstkomandien 20 ár eru liðin frá stofnun samtak- anna. Málþingið er haldið á Hótel Nordica og hefst klukkan 10. Um 90 félagsmiðstöðvar um allt land starfa innan Samfés og nær starfsemin til um 20 þúsund unglinga og því mikilvægt að líta til framtíðar og skoða hvernig starf í frítíma þróast. – Hvert er upphafið að stofnun samtakanna? „Upphafið má rekja til fyrstu félagsmiðstöðv- anna, sem stofnaðar voru í Reykjavík um 1970, en sjálf samtökin voru stofnuð 1985,“ segir Ólafur Þór Ólafsson, formaður Samfés. „Staða samtak- anna er nokkuð sérstök. Félagsmiðstöðvarnar eru nánast allar reknar af sveitarfélögunum en Samfés eru samt sem áður frjáls félagasamtök. Samtökin eru vettvangur félagsmiðstöðva og þeirra sem starfa þar en þeim hefur fjölgað á hverju ári.“ – Hver er tilgangur samtakanna? „Þau eru ætluð þeim, sem starfa á þessu sviði og gefa þeim tækifæri til að hittast og bera sam- an bækur sínar og jafnframt að gefa ungling- unum tækifæri til að hittast. Þess vegna hafa þróast sameiginlegir árlegir viðburðir sem sam- tökin eru hvað þekktust fyrir. Frægust er söng- keppnin og Samfésballið, sem reyndar hafa sam- einast í eina Samféshátíð og svo er Stíll, sem er nýtt verkefni með þátttöku unglinga og nýlega var haldið í Kópavogi. En auk þess erum við að vinna mjög mikið í samskiptum og á faglegum grunni.“ – Hvernig hafa viðtökurnar verið? „Þær eru góðar og þörfin er til staðar. Við er- um í raun að vinna á sviði, sem fáir ef nokkrir sinna. Íþróttafélögin sinna sínu og skólarnir sjá um menntunina en okkar svið er frítíminn. Við eigum að sinna þeim sem ekki finna sig annars staðar. Það er okkar hlutverk.“ – Hvað er framundan? „Dagskráin er alltaf spennandi. Í fyrsta lagi er það afmælið og málþingið en síðan erum við að hvetja til þess að unglingarnir frá tveimur eða fleiri félagsmiðstöðvum komi saman og kynnist án þess að við séum að skipuleggja það frekar. Við í Verinu ætlum til dæmis að hitta þau í Kópa- vogi og þau á Norðurlandi allt frá Eyjafirði að Hvammstanga ætla að hittast á Sauðárkróki. Svo er það Samféshátíðin í mars á næsta ári. Þar koma saman nokkur þúsund unglingar á vímu- lausa hátíð. Keppt er í söng og síðan koma fram þjóðþekktir listamenn og hljómsveitir. En aðal- atriðið er að sjálfsögðu það starf sem fer fram í sjálfum félagsmiðstöðvunum.“ Frítími | Samtök félagsmiðstöðva standa að málþingi um frítímastarf Mikilvægt að líta til framtíðar  Ólafur Þór Ólafsson er fæddur árið 1972. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og er að auki með próf í kennslufræði til kennsluréttinda. Hann starfaði sem íþrótta- og tómstundafulltrúi hjá Sandgerðisbæ frá 1996 til 2004 þegar hann tók við starfi forstöðumanns hjá Fé- lagsmiðstöðinni Verinu í Hafnarfirði. Ólafur er bæjarfulltrúi í Sandgerðisbæ auk þess að gegna formennsku í Samfés. 80 ÁRA afmæli. Í dag, 4. desem-ber, er áttræður Einar K. Torfason, fyrrverandi bifreiðaeft- irlitsmaður, Spóahólum 8, Reykjavík. Hann er að heiman í dag. 80 ÁRA afmæli. Sólborg Guð-mundsdóttir, Flatahrauni 16b, Hafnarfirði, varð áttræð 9. ágúst síð- astliðinn. Af því tilefni er vinum og vandamönnum boðið til kaffisamsætis að Garðaholti sunnudaginn 4. desem- ber klukkan 15–18. Vonumst til að sjá sem flesta. 70 ÁRA afmæli. Í dag, 4. desem-ber, verður sjötug Ingibjörg Birna Þorláksdóttir, Eyktarsmára 8, Kópavogi. Inga og eiginmaður hennar, Hafsteinn Sigurþórsson, eru stödd á Kanarí á afmælisdaginn. Sími hjá þeim er 0034 686 127 096. 60 ÁRA afmæli. Mánudaginn 5.desember verður Örn H. Tyrf- ingsson, vélfræðingur í Elliðaárstöð, 60 ára. Af því tilefni ætla hann og kon- an hans, Lena M. Hreinsdóttir, að hafa opið hús í Félagsheimili starfsmanna Orkuveitunnar í Elliðaárdal, milli kl. 17 og 19 þann dag. Árnaðheilla dagbók@mbl.is Hvar er Kristján Jóhannsson? NÚ í byrjun aðventunnar er ég farin að hlakka til að heyra fallegu jóla- söngvana í útvarpi og sjónvarpi. Þá datt mér í hug að ég hefði ekki heyrt í Kristjáni Jóhannssyni í langan tíma. Þá mundi ég eftir uppá- komunni sem varð í beinni útsend- ingu í Sjónvarpinu. Kannski varð Kristjáni á þarna og hefur tekið of djúpt í árinni til að verja sig. Verður okkur ekki öllum eitthvað á í lífinu? En við verðum að kunna að sættast. Nú finnst mér að þau sem eru fúl út í Kristján ættu að fyrirgefa þess- um stórkostlega listamanni og bjóða hann velkominn heim og leyfa okkur að njóta hans stórkostlegu raddar í sjónvarpi og útvarpi og sem víðast. Við eigum ekki svo marga listamenn sem skara fram úr á heims- mælikvarða að við höfum efni á að afneita neinum þeirra. Ég þekki Kristján Jóhannsson ekki neitt. Hef aldrei séð hann nema í sjónvarpi. Mig langar bara til að heyra hans stórkostlega söng aftur. Nú vona ég að þeir sem eru mér sammála láti heyra frá sér í fjöl- miðlum. Hrefna Magnúsdóttir, Hraunási 1, Hellissandi. Meint fangaflug CIA í íslenskri lofthelgi MIKIÐ hefur verið rætt í þjóðfélag- inu um hugsanlegt fangaflug leyni- þjónustunnar CIA um íslenska loft- helgi, með lendingum á flugvöllum hérlendis. Ekki fæ ég skilið hvað vakir fyrir íslenskum ráðamönnum að ætla að humma þetta mál lengi í staðinn fyrir að hefja rannsókn hið fyrsta og krefja stjórnvöld fyrir vestan um skýringar strax. Erum við bara svo miklir aumingjar að við látum BNA vaða yfir okkur á skít- ugum skónum og segjum ekkert og gerum ekkert á þeirra hlut þegar þeir vaða sem alheimslögregla yfir alla heimsbyggðina? Þeir krefjast þess að vera undaþegnir stríðs- glæpadómstólnum í Haag en á sama tíma eru grunsemdir um meintar pyntingar sem þeir stunda í Gvant- anamo. Ég skora á þig, dómsmálaráð- herra góður, og utanríkisráðherra, að þið farið að sýna hvað í ykkur býr og krefjið þessa háu herra í Wash- ington um svör fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Látum ekki varnar- viðræðurnar við þessa varasömu herramenn og dömur hræða okkur til undirgefni. Nei takk, ekki ég. Með fyrirfram þökk og von um skjót viðbrögð. Ómar F. Dabney, sjálfstæðismaður í 30 ár. Oddfellow-hringur týndist ODDFELLOW-HRINGUR týndist sl. miðvikudag, líklega við stætó- skýlið við Sundlaugina á Seltjarnar- nesi. Skilvís finnandi hafi samband við Margréti í síma 847 9663. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is TVÆR ljósmyndasýningar verða opnaðar í dag, sunnudag, í Þjóð- minjasafni Íslands. Þetta eru sýn- ingarnar Norður með myndum eftir Marco Paoluzzo og Aðflutt landslag með ljósmyndum Péturs Thomsens. Sýningarnar standa til 20. febrúar 2006. Marco Paoluzzo er fæddur í 1949 í Biel í Sviss. Hann er eink- um þekktur fyrir ferðaljósmyndir sínar frá Íslandi sem komu út í bókinni Ísland fyrir 10 árum. Ný- útkomin er önnur Íslands- ljósmyndabók hans North Nord. Þar er kjarni ljósmyndanna frá Ís- landi en hluti frá Færeyjum. Sýn- ingin Norður er eins konar út- gáfusýning tengd útkomu bókarinnar og þar eru sýndar glæsilegar stækkanir höfundarins af úrvali mynda úr bókinni. Pétur Thomsen er ungur ljós- myndari sem nýlokið hefur námi í ljósmyndun í Frakklandi. Hann hefur vakið athygli erlendis fyrir ljósmyndir sínar og var einn af 50 ungum ljósmyndurum sem valdir voru til þátttöku í alþjóðlegri ljós- myndasýningu ungra ljósmyndara ReGeneration. Photographers of tomorrow 2005-2025. Sýningin var fyrst í Lausanne í Sviss og hefur í kjölfarið sýnt myndir sínar á ýms- um stöðum. Myndirnar sem sýndar eru í Þjóðminjasafninu eru lit- myndir teknar á virkjunarsvæðinu við Kárahnjúka. Tvær ljósmyndasýningar í Þjóðminjasafni Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.