Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 66
66 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju Orgeljól Mi›aver›: 2500 / 2000 kr. Hugljúf jóla- og aðventulög í útsetningum fyrir sópran, saxófón, orgel og kór. 4. des. Sunnudagur kl. 17 Mi›aver›: 1500 / 1200 kr. Útgáfutónleikar geisladisksins Jólagjöfin. L I S T V I N A F É L A G H A L L G R Í M S K I R K J U ����� ��������������� ������� ��������� ��������� ������ � � � � ���� ncb � � � � � � � � � � � � � � H � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � , � � � � � � � � � � � � � � � H � � � � � � � � � � � H � � � � � � � , � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � , � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � H � � � � � � � � � � � � � � 11. des. Sunnudagur kl. 18 Kantötur IV-VI 10. des. Laugardagur kl. 17 Kantötur I-III Mi›aver›: 3000 / 2500 kr. Mótettukór Hallgrímskirkju Ísak Ríkhar›sson drengjasópran Sigur›ur Flosason saxófónn Björn Steinar Sólbergsson orgel Stjórnandi: Hör›ur Áskelsson �læsileg, frönsk jólatónlist fyrir orgel eftir �albastre, �aquin, �uilmant o.fl. Hulda Björk Gar›arsdóttir sópran Sesselja Kristjánsdóttir alt Eyjólfur Eyjólfsson tenór Ágúst Ólafsson bassi Schola cantorum Alþjó›lega barokksveitin frá Den Haag í Hollandi Stjórnandi: Hör›ur Áskelsson 11. des. Sunnudagur kl. 15 Kantötur I-III J. S . B a c h Jól a ór atór í an I - V I TÓNLISTARHÁTÍÐ Á JÓLAFÖSTU Í HALLGRÍMSKIRKJU 2005 Jólaóratóríutvenna (fyrir þá sem vilja heyra Jólaóratóríuna alla): 5000 kr. Mi›akvartett á ferna tónleika: 7000 kr. Mi›asala í Hallgrímskirkju Björn Steinar Sólbergsson, leikur á orgel 4. des. Sunnudagur kl. 20 BERGSVEINN Arilíusson kemur inn á athyglisverðan punkt í inn- gangsorðum þessarar fyrstu sóló- plötu sinnar sem inniheldur ábreiður yfir smelli frá níunda áratugnum eða hið svonefnda „eitís“ tímabil. Þar talar hann um að aldrei hafi hann minnst á níunda áratuginn þegar hann er spurður út í áhrifa- valda í tónlist. Það er nefnilega oft- ast svo að fólk talar mikið um sveitir frá sjöunda og áttunda áratugnum – og tíunda áratugnum þegar spurt er um innblástur. Níundi áratugurinn er einfaldlega ekki tekinn með. Frankie goes to Hollywood, Alpha- ville, Erasure o.s.frv. rata bara ekki inn í radarinn og stundum er talað um að þetta tímabil hafi verið það smekklausasta og það stórfurðuleg- asta í gervallri poppsögunni (þetta er almennt álit, undanskilin er um- föðmun sveita á borð við Killers, Ladytron o.fl.). Bergsveinn stígur hérna fram sem skilgetið afkvæmi þessa tíma- bils, maður sem drekkti sér í Bravo- blöðum á milli þess sem hann lék sér í Sinclair Spectrum leikjum og horfði á Go West og Don Johnson í sjónvarpinu. Hann vippar fram nokkrum af þeim lögum sem slógu í gegn á þessum tíma og setur þau í hæggengan djasspoppbúning. Merkilegt hversu margir velja að fara þessa leið þegar um þennan tíma er að ræða. En nákvæm eft- irlíking af upprunalegu lögunum væri líklega til að æra óstöðugan. Nei, Bergsveinn velur frekar að strípa upprunalegu útsetningarnar niður, sem oftar en ekki innihéldu vafasama hljóðgervla og enn vafa- samari trommuhljóm (trommu- hljómur níunda áratugarins er enn þann dag í dag óskiljanlegur). Þegar best tekst til eru laglínurnar dregn- ar skýrar fram í ljósið en upp- haflega mátti greina og maður heyr- ir að á bakvið flúrið og ofhleðsluna var bara skrambi gott lag. Stundum fella upprunalegu lögin sig þó ekki að þessum nýju útfærslum, virka greinilega bara í hinum uppruna- lega, axlapúðahlaðna búningi. Í fyrrnefnda flokkinn má t.d. setja „True Colors“ (Cindy Lauper) og „Live To Tell“ (besta Madonnulagið, sammála Bergveinn!). Hið síðar- nefnda er mjög vel sungið af Berg- sveini og útsetningin er snotur, nær kjarna þessa gullfallega lags frá- bærlega. Merkilegt er þó að þessi sömu lög voru sungin af Margréti Eir á svipaðan hátt fyrir fimm árum síðan á ágætri tökulagaplötu henn- ar. Þessi plata Bergsveins sann- færði mig þá að lag David Bowie, „Absolute Beginners“ er algjör snilld. „Don’t Give Up“, glæstur dú- ett þeirra Peter Gabriel og Kate Bush, nær ekki frumgerðinni að gæðum en er samt vel heppnað. Bergsveinn er góður söngvari, nett rámur baritónn sem á auðvelt með að skríða upp og niður tónstigann. Hann landar glæsilega hinum háu tónum Gabriel og Telma Ágústs- dóttir bakkar hann sömuleiðis vel upp. Bergsveinn, sem er kannski þekktastur fyrir kröftugan og rokk- aðan söng (að maður tali ekki um sálarleginn) kemur reyndar nokkuð á óvart hér sem hörku ballöðu- söngvari. Þannig virðast hugljúfu lögin liggja best, „Somebody“ með Depeche Mode virkar vel og „Never Ending Story“, með hinum „hár- prúða“ Limahl, er skemmtilega út- sett. En svo eru lög sem virka ekki. „It Must Be Love“ með Madness er einkennilegt og „Rio“ með Duran Duran enn einkennilegra. „Eternal Flame“ er sætt en samt eiginlega meira fyndið. Ekki verður hjá því komist að gagnrýna fráganginn lítið eitt. Það hefði nauðsynlega þurft að skella annars ágætum hugleiðingum Berg- sveins um hvert og eitt lag í próf- arkalestur. Mýgrútur er af stafsetn- ingar- og innsláttarvillum og Baldvin trymbill heitir Balvin! Klippimyndin í miðju bæklings er hins vegar mjög flott, æska margra er þarna í hnotskurn, svei mér þá. Fólk sem fætt er á bilinu 1970 til 1976 ca fékk þetta merkilega tímabil beint í æð, hvort sem því líkaði bet- ur eða verr. Þessi óður Bergsveins til þeirrar tónlistar sem efalaust stendur hjarta hans næst er góðra gjalda verður. Sum lögin ganga býsna vel upp en önnur miður. Ég er hins veg- ar í engum vafa um heiðarleika þann sem ýtti plötunni úr vör til að byrja með. Bravobarn horfir um öxl TÓNLIST Íslenskar plötur Um undirspil sjá Kúmen sem skipa Bald- vin A.B. Aalen (trommur, slagverk, radd- ir), Gunnar Þór Jónsson (kassagítar, raddir), Jón Ómar Erlingsson (kontra- bassi, raddir) og Njáll Þórðarson (píanó, rhodes, raddir). Telma Ágústsdóttir, Andrea Gylfadóttir og Hreysikattakórinn ljá plötunni söng og raddir og Jesper Blæsbjerg leikur á trompet og flugelhorn. Addi 800 stýrði upptökum en útsetn- ingar voru í höndum Bergsveins og Kúm- en. Beggalingur ehf. gefur út. Bergsveinn – September  Arnar Eggert Thoroddsen Ein af helstu og bestu plötumársins 2004 var Sung Tongsmeð Animal Collective, fram-úrskarandi skemmtileg blanda af súru þjóðlagarokki spilað á kassagítar og raddir. Fyrir stuttu kom svo ný plata með sveitinni, Feels, sem er enn betri en Sung Tongs og kemur sér kirfilega fyrir á lista yfir bestu plötur ársins. Kjarni Animal Collective er þeir David Portner, eða Avey Tare, og Noah Lennox, eða Panda Bear, en í hljómsveitinni eru þeir einnig Brian „Geologist“ Weitz og Josh „Deakin“ Dibb. Á fyrstu plötu sveitarinnar, Spirit They’re Gone, Spirit They’ve Vanished, voru þeir bara tveir Avey Tare og Panda Bear, en sveitin aftur á móti fullskipuð á næstu plötu, Here Comes the Indian. Fyrir einhverjar sakir voru þeir aftur orðnir tveir á Sung Tongs, Avey Tare og Panda Bear. Í kjölfar Sung Tongs kom svo sólóskífa Panda Bear, Young Prayer, uppgjör hans við föður sinn og tilfinn- ingarótið þegar sá lá banaleguna, en plötuna samdi Panda Bear til að gleðja föður sinn banvænan. Mikilvægt frelsi Þeir félagar eru allir virkir í öðrum sveitum en Animal Collective, til að mynda spilar Panda Bear í sveitunum Jane og Together og Avey Tare í Ter- restrial Tones og Gang Gang. Í viðtali skömmu eftir að Young Prayer kom út sagði Panda Bear einmitt að það væri þeim félögum mjög mikilvægt að hafa frelsi til að vinna með hverj- um sem er, en þeir leggja líka hvor öðrum lið og þannig tók Avey Tare plötuna upp með Panda Bear. Panda Bear er fremstur meðal jafningja í Animal Collective og hans framlag býsna mikilvægt, eins og heyra má þegar maður hlustar á Young Prayer. Hann lærði á píanó sem patti og byrjaði fljótlega að semja lög. Síðar lærði hann á selló, en mest gaman hafði hann af því að syngja og söng með skólakórnum í miðskóla. Einn skólafélaga hans var Josh Dibb, sem fékk snemma við- urnefnið Deakin, og þeir stofnuðu hljómsveitina saman. Þegar þarsíðasta plata Animal Collective, Sung Tongs, kom út í septemberlok 2004 voru sveitin og liðsmenn hennar búin að gefa út rúm- lega sjö breiðskífur á fjórum árum. Þeir voru þó ekki búnir að syngja nægju sína því 31. maí í vor kom út fjögurra laga plata, Prospect Hum- mer, sem þeir gerðu með söngkon- unni Vashti Bunyan, í júlí smáskífan Who Could Win A Rabbit og í lok september önnur smáskífa, Grass, með einu lagi af Feels og tveimur lög- um öðrum. Fjórða breiðskífa Animal Collective, Feels, kom svo út 18. októ- ber sl. Útpælt frelsi Aðal Animal Collective er hve tón- listin er frjáls og spunakennd, en Panda Bear segir að það sé allt út- pælt og planað. Sum laganna séu vissulega sprottin úr spunalotum, en flest verði þannig til að einhver kem- ur með hugmynd að lagi eða útlínur sem allir síðan taka að sér að fylla út í og smám saman verði lagið höfund- arverk þeirra allra. Eins og getið er voru þeir bara tveir á sung Tongs, Panda Bear og Avey Tare, en á Feels eru liðsmenn aftur orðnir fjórir, Geo- logist og Deakin slást í hópinn að nýju. Fyrir vikið er meira í músíkina lagt, hljóðfæraskipan fjölbreyttari en á fyrri skífum, en sérstaklega ber á þessu í taktgrunni laganna. Sung Tongs var órafmögnuð að mestu, aðallega kassagítarslagarar, rútubílasöngvar framtíðarinnar (geimskipasöngvar?), en á Feels er meira undir, meira rafmagn, fjöl- skrúðugri hljóðfærasláttur og fyrir vikið meira í skífuna spunnið, eftir meiru að slægjast. Platan var tekin upp í gamalli kirkju í mars sl. með upptökustjóranum Scott Colburn, sem frægur er meðal tónlistar- áhugamanna fyrir samstarf sitt við Sun City Girls. Tveir íslenskir lista- menn, annar reyndar hálfur Íslend- ingur, koma við sögu á plötunni;ann- ars vegar Eyvind Kang, sem er hálfur Íslendingur og hefur meðal annars starfað talsvert með Skúla Sverrissyni, og Kristín Anna Valtýs- dóttir Múmstúlka sem spilar á píanó á skífunni. Tónlist á sunnudegi Árni Matthíasson Rafmagnaðir geimskipasöngvar Ein sérkennilegasta hljómsveit sem nú er starfandi og um leið ein sú forvitnilegasta er Animal Coll- ective. Fyrir stuttu kom út fjórða breiðskífa kvart- ettsins sem er stundum dúó. Aðal Animal Collective er hve tónlistin er frjáls og spunakennd.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.