Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 70
70 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 2, 5.20 og 10.15 B.i. 12
MBL
TOPP5.IS
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER
ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.20
-M.M.J. Kvikmyndir.com
-H.J. Mbl.
-L.I.B.Topp5.is
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er marg-
brotnari, útfærslan
er flóknari og
leikurinn skelfilegri
en nokkru sinni fyrr
fór beint á toppinn í
bandaríkjunum
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára
kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10
Sýnd kl. 8 B.i. 12 ára
Spennutryllir af bestu gerð með
Edward Burns og Ben Kingsley.
Sýnd kl. 2 B.i. 14 ára
miðaverð 450 kr
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
Ný Íslensk heimildarmynd sem
hefur farið sigurför um heiminn
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400 KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ GULU
I I I - I .
! I
Sýnd kl. 3.30 og 5.45 B.i. 16 ára
hversu langt myndir þú
ganga til að halda lífi
Alls ekki fyrir viðkvæma
Áætlunin er margbrotnari, út-
færslan er flóknari og leikurinn
skelfilegri en nokkru sinni fyrr
fór beint á toppinn í bandaríkjunum
Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 16 ára
BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY ROSE ER
ÓHUGNANLEGRA EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
S.K. DV
Topp5.is
S.V. Mbl.
LEIKTU atriði úr Waynés World.
Giskaðu á úr hvaða bíómynd eft-
irfarandi setning er: „… our pet́s
heads are falling of!“ Leiktu Jur-
assic Park með hægum hreyf-
ingum. Eða skrifaðu niður eins
margar myndir og þú getur sem
Tom Cruise hefur leikið í.
Þetta eru verkefni sem leikmenn
Kvikmyndaspilsins gætu þurft að
leysa. Kvikmyndaspilið kom í
verslanir fyrir skemmstu en þarna
er á ferðinni borðspil sem reynir á
kvikmyndakunnáttu og þekkingu á
samspilurum sínum.
„Spilið gengur mest út á það að
leika atriði úr kvikmyndum sem
aðrir leikmenn velja fyrir þig. Svo
eru ýmis spjöld og hjól sem breyta
gangi leiksins. Þú getur þurft að
leika illmenni í kvikmynd, leika
atriðið þitt hægt eða eitthvað því
líkt,“ byrjar Haukur M. er hann
mætir til viðtals ásamt Ástu Júlíu.
Þau eru hluti sjö manna hóps sem
stendur að útgáfu spilsins undir
nafni fyrirtækisins Hugarflæði.
„Þetta eru í raun þrír leikir sem
fólk hefur oft verið að spila sín á
milli í partíum; skiptast á tilvitn-
unum úr kvikmyndum, getur svo
lent í því að skrifa niður hversu
mörgum kvikmyndum einhver hef-
ur leikstýrt eða leikið í og svo
leika atriði úr bíómyndum.“
Gerum allt sjálf
Þau Haukur og Ásta segja vini
sína hafa upphaflega kynnt sig fyr-
ir hugmyndinni að spilinu fyrir
nokkrum árum.
„Við höfum spilað þetta mikið í
partíum og við höfum kynnt fullt
af fólki fyrir þessu,“ segir Haukur.
„Ég hef haft það í huga síðustu tvö
árin að það væri gaman að gefa
þetta spil svo út og svo kemur það
loksins núna. Þegar ég settist loks
niður og gerði uppkast voru allir
vinirnir kallaðir á fund og ákveðið
að láta verða að þessu.“
„Það er líka mjög heppilegt að í
þessum sjö manna hóp sem að út-
gáfunni stendur erum við með val-
inn mann í hverju hlutverki. Við
erum með einn grafískan hönnuð,
einn þrívíddarhönnuð, einn vöru-
hönnuð og svo framvegis,“ segir
Ásta. „Við gerum þetta því allt
sjálf.“
Kvikmyndaspilið er það fyrsta
sinnar tegundar hér á landi.
„Já, það hefur ekkert verið gefið
út af þessum spilum sem eru vin-
sæl erlendis eins og Sceen it? Það
stóð held ég til að gefa það út fyrir
þessi jól en sem betur fer fyrir
okkur náðist það ekki,“ segir
Haukur.
„Það er líka spurningaspil og
fyrirfram ákveðið hvað á að leika.
Það er allt annað en okkar spil,“
segir Ásta.
„Aðalfjörið er svo að velja vel
myndir til að leika. Maður þarf að
þekkja svolítið inn á meðspilara
sína. Ef maður á sjálfur að velja
mynd reynir maður frekar að leika
úr mynd sem maður veit að með-
spilarar manns þekkja,“ segir
Haukur en tekur fram að spilið
gangi ekki út á að klekkja á and-
stæðingunum með því að velja of
erfið verkefni.
„Spilið er hannað til að hafa
mjög gaman.“
„Þetta hefur yfirleitt gengið
mjög vel og það hefur sýnt sig að
fólk fer iðulega að hjálpa hvert
öðru þegar illa gengur með því að
gefa vísbendingar og ábendingar
um hvernig best sé að leika,“ segir
Ásta.
„Það sem okkur finnst skemmti-
legt við þetta spil er að leikmenn
ráða sjálfir hvernig leikurinn fer
fram. Leikmenn ráða sjálfir styrk-
leikanum. Ég myndi til dæmis
spila öðruvísi við fjölskylduna mína
en vinina,“ segir Haukur.
Gefa bíómiða
Kvikmyndaspilið er unnið í sam-
vinnu við Sambíóin og segja þau
Haukur og Ásta samstarfið hafa
verið frábært.
„Þeir höfðu trú á verkefninu
þegar það skipti mestu máli. Þeim
leist vel á þetta og við fengum því
staðfestingu á því fyrir utan hóp-
inn að spilið væri gott,“ segir
Haukur.
Spilið er sem fyrr segir komið í
verslanir en auk þess er komin
upp heimasíða spilsins þar sem
áhugasamir geta kynnt sér leik-
reglur auk þess að vinna sér inn
eintak af spilinu eða bíómiða með
því að taka þátt í léttum leik.
„Við gefum bíómiða á allar
stærstu myndirnar fram að jólum,“
segir Haukur og hvetur að lokum
alla til að kíkja inn á síðuna og
taka þátt í leiknum.
Spil | Kvikmyndaspilið komið í verslanir
Partíleikurinn sem varð að borðspili
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Þau Ásta og Haukur eru meðal þeirra sem gefa út Kvikmyndaspilið.
kvikmyndaspilid.is