Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 76

Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 4. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is Opið virka daga frá kl. 10-18 Opið á laugardögum 11-16 Opi› í dag, sunnudag, frá kl. 13 til 17 SÉRHVER árstíð á sér sína töfra og það á ekki síst við um aðventuna þegar beðið er jólanna, fæðingarhátíðar frels- ar í stysta dag ársins, 21. desember. Litadýrðin getur orðið mikil þegar myrkrið tekur völdin. arans. Þá hækkar sól á lofti á ný og felur í sér fyrirheit um vor og sumar að loknum vetri. Enn eru reyndar nokkrir dag- Morgunblaðið/Brynjar Gauti Litadýrð við sólsetur á aðventu „ÞAÐ ber of mikið í milli að okkar mati. Nýj- asta útspil borgarinnar var það langt frá því sem okkur í samninganefndinni er heimilt að semja um, þannig að við erum nú að fara yfir málið í stærri hópi og leita eftir nýju umboði ef við eigum að halda áfram að ræða á þessum nótum,“ segir Sjöfn Ingólfsdóttir, formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, um viðræður félagsins við Reykjavíkurborg um gerð nýs kjarasamnings. Eldri samningur rann út um síðustu mánaðamót, en borgar- stjóri beindi því til samningsaðila í haust að ljúka samningum í október í von um að það gæti auðveldað borginni að leysa mönnunar- mál á þjónustustofnunum borgarinnar. Sjöfn segir að sér finnist ekki líklegt að samninganefndin fái umboð til að ganga til samninga á grundvelli tilboðs borgarinnar. Að mati Sjafnar er síðasta útspil borgar- innar ekki viðunandi fyrir félagið sem heild jafnvel þó að tillögurnar feli í sér umtalsverða hækkun á lægstu grunntöxtum. „Segja má að við ætlum að byggja brú yfir þetta sund sem þarna skilur að og efniviðurinn í þá brú þeirra megin frá er ekki nægur til þess að við treyst- um okkur til þess að halda áfram með þetta verk að óbreyttu,“ segir Sjöfn. Efling á lokametrunum „Menn eru búnir að sitja töluvert lengi yfir þessu og við erum svo sem farnir að nálgast þessa lokametra. En við erum hins vegar búnir að vera nokkuð lengi á þeim,“ segir Sig- urður Bessason, formaður Eflingar, um samningaviðræður félagsins við borgina, og tók fram að hann vonaðist til þess að samn- ingar næðust á næstu sólarhringum enda væri hann nokkuð bjartsýnn. Snemma í haust sagðist borgarstjóri vilja flýta samningavið- ræðum borgarinnar við fyrrnefnd félög til þess að brúa það launabil sem verið hafði að myndast og mæta með þeim hætti manneklu á m.a. leikskólum og frístundaheimilum. „Við svöruðum því til að við værum að sjálfsögðu til í þá vinnu, en bentum jafnframt á að þetta væru mjög flóknir samningar,“ segir Sigurð- ur og bendir á að líta þurfi til margra ólíka hópa í samningagerðinni. Undir þetta tekur Birgir Björn Sigurjóns- son, skrifstofustjóri starfsmannaskrifstofu Reykjavíkurborgar, sem segir fulltrúa stétt- arfélaganna hafa verið jákvæða fyrir því að viðræðum væri flýtt. „Hins vegar er það svo að Reykjavíkurborg er einn stærsti vinnu- staður landsins og í þessum tveimur félögum eru um 70% af okkar starfsmönnum, þannig að þetta er mikið og flókið verkefni.“ Styrkir samkeppnishæfni borgarinnar Þegar Birgir Björn er inntur eftir því hvort hann telji komandi samninga munu auðvelda borginni að laða til sín starfskrafta svarar hann því játandi. „Í þessu samhengi vil ég þó í fyrsta lagi taka það fram að það er ekki sá vinnuveitandi á höfuðborgarsvæðinu sem ekki er í vandræðum með að fá til sín fólk. Í öðru lagi vil ég taka það fram að kjörin hjá okkar fólki eru ekki ósamkeppnisfær við kjör í sambærilegum störfum hjá öðrum vinnu- veitendum. Í þriðja lagi vona ég síðan að nýr kjarasamningur styrki okkar samkeppnis- hæfni og geri okkur að enn meira aðlaðandi vinnuveitanda en við höfum hingað til talið,“ segir Birgir Björn og tekur fram að áskorun borgarstjóra frá því í október sl., um að sér- staklega þyrfti að hækka laun kvennastétta sem vinni umönnunarstörf, muni endurspegl- ast í komandi kjarasamningi. Kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar útrunninn Nýjasta útspil borgarinnar í viðræðunum ekki nægilegt Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is SÉRA Þórhallur Heimisson segist oft tala um þá óvissu sem einkennir hátíðarhaldið hjá fjöl- skyldum eftir að foreldrarnir hafa gengið í gegnum skilnað. „Þetta er svipuð tilfinning og ef ástvin- ur manns deyr á árinu enda breytist allt, að ég tali nú ekki um ef fólk hefur verið lengi í sambúð og búið að skapa einhverjar hefðir.“ Í Tímariti Morgunblaðsins í dag er rætt um jólin hjá sundruðum fjölskyldum og mismunandi tilfinningar sem tengjast þessari fjöl- skylduhátíð í kjölfarið. „Stundum er fólk í þeirri stöðu eftir skilnað að þurfa hreinlega að finna sér félagsskap á að- fangadagskvöld og finnst það mjög niðurlægj- andi og erfitt,“ segir Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur. „Þá þarf viðkomandi að huga að því hvort hann geti boðið einhverjum til sín eða hvort hann treysti sér til að spyrja ein- hverja hvort hann megi vera með þeim. Þetta eru hlutir sem borgar sig að huga að fyrr en seinna.“ Þórhallur segir börnin líka oft finna fyrir miklu öryggisleysi og kvíða um jólin. / Tímarit Þegar allt er breytt um jólin Sr. Þórhallur Heimisson Skilnaður raskar hátíð- arhaldinu hjá mörgum MYNDLISTARSÝNINGIN Huldukonur í íslenskri myndlist verður opnuð í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands í dag, sunnudag. Sýningin fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar og námu myndlist erlendis en gerðu myndlistina þó ekki að ævi- starfi. Sýningin og samnefnd bók eru afrakstur 25 ára rannsóknavinnu Hrafnhildar Schram listfræðings og sýningarhönnuður er Elín Edda Árnadóttir. Á sýningunni er leitast við að svipta hulunni af listakonunum sem ekki sýndu verk sín opinberlega að tveimur þeirra undanskildum. Flestar kvennanna lögðu list sína til hliðar fljótlega eftir giftingu eða innan fárra ára. / 26–27 Sýning á verkum 19. aldar kvenna opnuð í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.