Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 04.04.2003, Blaðsíða 35
4. apríl 2003 FÖSTUDAGUR Fréttiraf fólki 36 SPY KIDS 2 kl. 3.45 og 5.50 DAREDEVIL b.i. 16 kl. 8 og 10.20 THE RING kl. 10.30 b.i. 16 ára SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 3.45 TWO WEEKS NOTICE kl. 6 og 8 THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50, 8, 10.10 GULLPLÁNETAN m/ísl. tali kl. 4 THE RING b.i. 16 kl. 10.10 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 Sýnd í lúxus kl. 8 Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 b.i. 14 ára kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI kl. 5.508 FEMMES kl. 8CRUSH kl. 10.10ADAPTATION kl. 8 og 10.30NOWHERE IN AFRICA MAN WITHOUT A PAST kl. 6 NORRÆNIR BÍÓDAGAR Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.40 b.i. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 5.15, 8 og 10.40 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára THUNDERPANTS kl. 4 25th HOUR kl. 8 og 10.40 4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 10.30 NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4, 6, 8, 10 ■ TÓNLIST Þegar amma gamla finnur hjásér þörf að tjá sig um rokksveitina Botnleðju segir það margt um eftirvæntingu innan þjóðfélagsins. Þrátt fyrir að Birgitta Haukdal hafi farið með sigur úr bítum í undankeppni Eurovision hér á landi var það al- veg örugglega Botnleðja sem fangaði fjölmiðlaathyglina í kringum keppnina. Biðin eftir nýrri plötu er á enda og ætti hún að skila sér í búðir í dag, eða hvað? „Hún kemur öðru hvoru megin við helgina,“ segir Heiðar Örn Kristjánsson, söngvari og gítar- leikari Botnleðju. „Það var ekki ákveðinn neinn sérstakur út- gáfudagur. Hún kemur bara í búðir um leið og hún kemur til landsins, það verður öðru hvoru megin við þessa helgi.“ Platan er sungin á ensku og verður gefin út af norska fyrir- tækinu Trust Me Records í Evr- ópu og Asíu til þess að byrja með. Hún heitir því skemmtilega nafni „Iceland National Park“. „Þetta er uppsprottið frá ljós- myndaranum Brian Sweeney, fé- laga okkar frá Skotlandi, sem gerði umslagið. Þetta er hans sýn á Íslandi. Hann lítur á það sem einn risastóran þjóðgarð sem ber að friða. Þetta er líka skírskotun í það hvernig Ísland er markaðs- sett erlendis.“ Þar á Heiðar við hvernig ís- lenskir tónlistarmenn neyðist oft til þess að tala meira um náttúru landsins en tónlist sína. Ekki má gleyma frægri auglýsingaherferð Flugleiða þar sem ferðamönnum er boðið upp á „Dirty Weekend“ á Íslandi. Tony Soprano er víst alvar- lega að íhuga að skella sér á klak- ann. „Þetta hefur farið fyrir hjart- að á mörgum að það sé verið að selja landið svona og kvenfólk. Ís- land er orðið eins og einn stór sæð- isbanki.“ Hljómur plötunnar er töluvert hrárri en á þeirri síðustu. „Platan er ekki tekin upp í hljóðveri, held- ur bara í æfingahúsnæðinu okkar. Við fluttum inn í landið brjálaðan araba frá Sviss sem kom hingað með tæki og tól. Við þurftum ekk- ert að flýta okkur út af því að klukkutíminn væri of dýr.“ Botnleðja er við það að leggjast í tónleikaferð um landið. Platan kemur út í Noregi 28. apríl og fer sveitin þá líklegast í tónleikaferð til Oslóar. Útgáfutónleikar hér á landi verða haldnir fljótlega eftir páska. biggi@frettabladid.is Fimmta breiðskífa Botnleðju, „Iceland National Park“, er væntanleg í plötubúðir. Lagið „Eurovísa“ trónir nú á toppi vinsældalista X-sins 97,7 og sveitin við það að leggjast í tónleikaferð um landið. BOTNLEÐJA Hafnfirðingarnir þrír heimsóttu ýmsa skemmtilega staði á tónleikaferð sinni um Evrópu með banda- rísku sveitinni Spörtu. Þar nýttu einnig tækifærið til þess að spila sig þétta fyrir plötuupptökurnar. Ísland eins og einn stór sæðisbanki Rokkdúettinn The White Stripeser í vandræðum vegna lagsins „The Union Forever“ sem var að finna á þriðju breiðskífu þeirra „White Blood Cells“. Titill lagsins og meirihluti textans er fenginn „að láni“ úr þrekvirki Orson Welles „Citizen Kane“ og eru Warner Brothers eigendur höf- undarréttar myndarinnar. Þeir segjast vera að skoða málið og er talið líklegt að sveitin fái kæru á hendur sér þar sem hún notaði textabrotið í leyfisleysi. Skaða- bótakrafa Warner Brothers verð- ur líklegast há þar sem platan hef- ur selst í rúmlega 650 þúsund eintökum í Bandaríkjun- um. Mick Jagger, söngvari The Roll-ing Stones, sem nú eru staddir á Indlandi, lét þau ummæli falla að sveitin hefði ekki komið oftar til þess lands vegna gífurlegra af- skipta yfirvalda í gegnum tíðina af tónlistarmönnum sem heimsækja Indland. Jagger segir að áður fyrr hafi þeir neyðst til þess að sækja um fjölda leyfa hjá stofnunum áður en þeir gátu heim- sótt landið. Í dag er þetta breytt og steinarnir rúlla því á Indlandi. Fatahönnuðurinn Stella McCartn-ey, dóttir Bítilsins Paul, kallar pabba sinn nánös í viðtali við tísku- blaðið I-D. Hún segir að hann hafi sent hana í hefðbundinn skóla þar sem hún var utangátta frá öllum öðrum vegna gífurlegs ríkidæmis foreldra sinna. Hún segir að vegna þessa hafi hún stöðugt ver- ið í baráttu að komast í mjúkinn hjá hinum krökkunum. Það hefði t.d. alltaf verið neyðarlegt fyrir hana að missa af strætisvagninum, því þá hefði hún neyðst til þess að fá skutl í glæsibifreið. Hún segist ekki geta hugsað sér að leggja svipaða lífs- reynslu á börn sín. Sérverslun með vandaðar heimilis- & gjafavörur Pastavél kr 4900,- Kringlunni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.